Morgunblaðið - 21.12.1990, Page 5
ÍSIENSKA AUGlÝSINGASTOfAN HF.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990
5
GARÐAR SVERRISSON
Mynd af einum mesta listamanni sem íslenska
þjóðin hefur eignast; jámsmiðnum frá Akureyri sem
fómar öllu fyrir óvissa framtíð í hörðum heimi
óperunnar þar sem honum tekst með fágætum
viljastyrk að komast í fremstu röð í heiminum.
Maðurinn, listamaðurinn og eldhuginn er
viðfangsefni þessarar tæpitungulausu frásagnar.
Kristján rekur hér af einstakri hreinskilni og
hispursleysi æsku sína og uppvöxt, segir frá
vonbrigðum sínum og glæstum sigrum á sviði og
•utan, frá ástríðu og sorgum, ljóma sviðsljósanna og
skugga öfundar og umtals.
Garðar Sverrisson vakti mikla athygli fyrir
metsölubókina „Býr Islendingur hér“ en saga hans
um Kristján Jóhannsson er grípandi og
feikilega vel skrifuð.
IÐUNN
VANDAÐAR BÆKUR
♦ 1 45 ÁR ♦
í
Ævi og örlög Einars Benediktssonar
Einar Benediktsson var stórbrotinn maður. Fáir
Islendingar hafa barist af meiri eldmóði fyrir
hugsjónum sínum; þar fylgdi athöfn orði. Ljóð hans
lifa með þjóðinni, djúpvitur sannleikur, áköf
barátta, snilld sem á fáa sína líka.
Gils Guðmundsson rekur hér ævintýralegan æviferil
skáldsins og veitir innsýn í verk hans og óvenjulega
athafnasemi.
„Er niðurstaða sú að hér hafi Gils tekist að mynda úr
efnivið sínum samfellda og afar lifandi frásögn sem
unun er að lesa... En aðgengilegri nálgun og
læsilegri um þetta margslungna efni getur vart
hugsast.“ Ums. Atla Magnússonar (Tímanum.
45 ÁR ♦
♦ VANDAÐAR BÆKUR