Morgunblaðið - 21.12.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DÉSEMBER 1990
almenningsþörf krefji. Þarf til þess
lagafyrirmæli og fullt verð að koma
fyrir. Á þessi sjónarmið verður ekki
fallist.
I fyrsta lagi vegna þess að eftir
uppkvaðningu Félagsdóms hafði
ASÍ uppi kröfur á hendur sínum
viðsemjendum um sömu launa-
hækkun og BHMR fékk. Var í því
efni vísað til forsendna í samningum
þess. Ennfremur að VSÍ og VMS
hafi fallist á að verða við þeirri
kröfu. Lögin eru því ótvírætt al-
menn, þar sem þau svipta stærsta
hluta launþega í landinu með sama
hætti launahækkun sem þeim hafði
verið ákveðin. Þessar væntanlegu
launahækkanir til annarra en
BHMR og þar af leiðandi víxlhækk-
anir launa voru einmitt tilefni laga-
setningarinnar.
I öðru lagi er ekki unnt að telja
vinnulaun sem ekki hefur verið
unnið fyrir eign í skilningi 67. gr.
stjórnarskrárinnar. Launakrafa
stofnast ekki fyrr en vinnuframlag-
ið hefur verið innt af hendi. Laun-
þegi hefur því ekki þær heimildir
sem felast í eignarréttinum þegar
um væntanleg laun er að ræða.
Löggjafinn hefur því ótvíræða
heimild til að breyta reglum um
laun sem ekki hefur verið unnið
fyrir. Slík laun njóta því ekki vernd-
ar 67. gr. stjórnarskrárinnar.
Félagafrelsisákvæðið
Loks er skírskotið til þess að
bráðabirgðalögin séu andstæð fé-
lagafrelsisákvæði 73. gr. stjórnar-
skrárinnar, þar sem lögin grafi
undan starfsemi fijálsra stéttarfé-
laga og leiði til þess að félagsmenn
glati trú á gildi þess að starfa í
skipulögðum félagsskap með lög-
legum hætti til þess að bæta kjör
sín. Samkvæmt 73. gr. eiga menn
rétt á að stofna félög í sérhveijum
löglegum tilgangi án þess að sækja
þurfí um leyfi til þess. Ekkert félag
má heldur leysa upp með stjórnar-
ráðstöfun. Ákvæði greinarinnar
snýr því að félagasamtökunum sem
slíkum.
Bráðabirgðalögin um launamál
frá síðastliðnu sumri takmarka á
engan hátt rétt manna til að stofna
stéttarfélög. Þá hefur stéttarfélag
heldur ekki verið leyst upp eða
bannað með lögunum. Af þessum
sökum er útilokað að halda því fram
að 73. gr. stjórnarskrárinnar eigi
hér við og að bráðabirgðalögin
bijóti á einhvern hátt í bága við
þá grein.
Þingmeirihluti
Svo sem að framan er rakið er
langsótt að halda því fram að setn-
ing bráðabirgðalaga um launamál
frá 3. ágúst 1990 uppfylli ekki skil-
yrði 28. gr. stjórnarskrána. Þegar
ljóst varð að ekki yrði komist hjá
lagasétningu síðastliðið sumar var
málið vandlega undirbúið. Á þeim
tíma fullyrði ég jafnframt að trygg-
ur þingmeirihluti var fyrir málinu
í báðum deildum Alþingis. Það er
þó alls ekki skilyrði fyrir útgáfu
bráðabirgðalaga að svo skuli vera,
enda alþingismönnum sem öðrum
heimilt að skipta um skoðun. Hafi
einhveijir skipt um skoðun hefur
þeim snúist hugur á ný því staðfest-
ingarfrumvarp vegna laganna hefur
nú fullnægjandi stuðning stjórnar-
sinna í báðum deildum Alþingis og
nýtur jafnframt hlutleysis nokkurra
skilningsríkra og víðsýnna þing-
manna Sjálfstæðisflokksins.
Um málið er því óþarft að deila.
Höfundur er aðstoðarmaður
forsætisráðherra.
Vitni vantar
SLYSARANNSÓKNADEILD
lögreglunnar í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að því er ekið var
á bíl af gerðinni Fiat Croma
fyrir utan Hótel Sögu um
klukkan 18 þann 12. þessa
mánaðar. Þá var nýlokið á
hótelinu fundi á vegum Fjár-
festingafélagsins. Tjónvaldur-
inn fór af vettvangi og er
skorað á hann hann eða vitni
að óhappinu að gefa sig fram
við lögreglu.
Rannsóknadeild lögreglunnar
í Hafnarfirði lýsir eftir vitnum
að tveimur ákeyrslum um síð-
ustu helgi. Ljósgráum
Renault-fólksbíl var ekið á tengi-
kassa á Hjallabraut við Víði-
vang. Á staðnum urðu eftir aft-
urstuðari og ljósker af bílnum.
Skorað er á vitni að gefa sig
fram ög einnig ökumanninn, sem
vitjað getur bílhlutanna á lög-
reglustöðinni í Hafnarfirði.
Um klukkan 11.20 að morgni
laugardagsins 15. desember var
ekið á rauðan Subaru-fólksbíl,
sem var kyrrstæður við Fjarðar-
kaup.
Ný sending
afglœsilegum sófasettum
frd Frakklandi.
Ath. mikið úrval af homsófwm,
hvíldarstólum og sjónvarpsskápum.
Þessir
höfundar árita
í Eymundsson
föstudaginn 21. desember:
Þórarinn Tyrfíngsson - Það hálfa
væri nóg, í Eymundsson í
Austurstræti kl. 14-16.
Ómar Ragnarsson - f einu höggi,
í Eymundsson í Austurstræti
kl. 16-18.
Janus Guðlaugsson - Lærðu
knattspymu í Eymundsson í
Kringlunni kl. lS-lfiSy-.vÓ
Atli Eðvaldsson - Lærðu
knattspymu, í Eymundsson í
Kringlunni ki. 15-16.
Eðvarð Ingólfsson - Haltu mér -
slepptu mér í Eymundsson í
Mjódd kl. 15-16.
Þorgrímur Þráinsson - Tár, bros
og takkaskór, í Eymundssþn á
Eiðistorgi kl. 15-16.
Aðfangadag
Steinunn Sigurðardótt
orðið, í Eymundsson
kl. 15-16.
mt
U
líðasta
Hlémm
T Krtstján Jóhannsson - Kt
Eymundsson í Austurstræti,
24. desember kl. 10-12.
$ fti ii -
BÓKAVERSLUN
AUSTURSTRÆTl • VIÐ HLEMM • MJÓDD ■ KRiNGLUNNl ■ EIÐISTORGI
91-18880 ■ 91-29311 91-76650 91-687858 91-611700