Morgunblaðið - 21.12.1990, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990
33
Biðleikur Karpovs var of
máttlaus gegn meistaranum
____________Skák________________
Margeir Pétursson
ÁSKORANDANUM, Anatoly
Karpov, tókst ekki að láta kné
fylgja kviði er 21. einvígisskák
hans við Kasparov heimsmeistara
var tefld áfram í Lyon í gær-
kvöldi. Skákinni lauk með jafn-
tefli eftir 84 leiki. Karpov hafði
átt mjög vænlega stöðu þegar
skákin fór í bið, en það var engan
veginn auðvelt fyrir hann að
ákveða biðleik sinn. Hann hafnaði
hvassasta leiknum, en vaidi annan
traustari í staðinn, sem reyndist
þó vera of linkulegur. Staða
Karpovs í einvíginu er nú von-
laus, hann verður að vinna allar
þijár skákirnar sem eftir eru til
að endurheimta heimsmeistaratit-
ilinn sem hann glataði árið 1985.
Kasparov hefur 11'/2 vinning en
Karpov 9 !A>.
Biðleikur Karpovs kom mjög á
óvart, því hann átti í fórum sínum
mun hvassari leik, sem flestir skák-
menn hefðu líklega valið, jafnvel þó
mjög erfjtt hafi verið að sjá fyrir
endann á afleiðingum hans yfir borð-
inu. Eftir töluverðar athuganir sýnist
mér ljóst að hann hefði gefið Karpov
mjög góða vinningsmöguleika, þó
ekki sé hægt að slá því föstu að
hann vinni þvingað.
Eftir þann leik sem Karpov valdi
voru vinningsmöguleikar hans ekki
lengur til staðar, Kasparov tefldi
mjög örugglega og gaf honum engin
færi. Karpov hafa verið mjög mi-
slagðar hendur í seinni hluta einvígis-
ins og sérstaklega hefur hann verið
lánlaus í tveimur síðustu skákum.
Fyrst fékk hann hrikalega útreið á
laugardaginn í 20. skákinni og lét
síðan Kasparov slá ryki í augu sín
með vafasamri gagnsókn í þeirri 21.
Fyrstu 40 leikirnir í 21. skákinni
birtust hér í Mbl. í gær og þegar
skákin fór í bið var staðan þessi:
Svart: Gary Kasparov
Hvítt: Anatoly Karpov
Hér er hvassasti leikurinn 41.
Re7! og svartur fær ekki varið peðið
á g6. Eina von svarts er fólgin í
kóngssókn, sem gæti leitt til þrá-
skákar. En hvítur virðist geta staðið
hana af sér eins og eftirfarandi af-
brigði sýna: a) 41. — Hal+ 42. Kc2
- Da4 (Eftir 42. - Rc5? fellur svart-
ur á eigin bragði eftir 43. Rxg6+ —
Kh7 44. Hxg7+ - Kxg7 45. Dxd4+
— Kxg6 46. bxc5 og hvítur hefur
alltof miklar bætur fyrir skiptamun-
inn og hlýtur að vinna) 43. Rxg6+
— Kg8 44. Hxg7+ - Kxg7 45. Df8+
— Kh7! (45. — Kxg6 46. e5+ leiðir
beint til máts) 46. Dh8+ — Kxg6
47. e5+ - Kf7 48. Bc4+ - Ke7 49.
Df6+ — og hvítur tekur síðan peðið
á d6 með skák og hirðir riddarann
á b3. Þá mun hann hafa þrjú peð
upp í skiptamuninn, en það er þó
erfitt að sýna fram á alveg öruggan
vinning í þessu afbrigði, án lengri
rannsókna.
b) 41. - Rd2+? 42. Kc2 - Da4+
43. Kxd2 - Dxb4+ 44. Ke2 -
Dxb2+ 45. Kf3 og vinnur.
c) 41. — Da4 (Gallinn við þennan
leik er að svart skortir alvöruhótan-
ir) 42. Rxg6+ - Kh7 (42. - Kg8
43. Re7n— Kh8 44. Hf5! er lakara)
43. Re7! (Hótar Df5+ og máti) 43.
— Da2+ 44. Kc2 - Ral+ 45. Kdl
— Db3+ 46. Kel og vinnur.
En Karpov treysti greinilega ekki
svo snörpum möguleika og valdi ann-
an biðleik: 41. b5? — Hal+ 42. Kc2
- Rc5
Riddarinn kemur sér fyrir á reitn-
um sem Karpov gaf eftir með bið-
leiknum. Áskorandinn verður nú að
fóma skiptamun til að halda fmm-
kvæðinu.
43. Hxg7 — Kxg7 44. Dxd4+ —
De5 45. Dxe5+ — dxe5 46. b6 —
Hgl 47. Re3 - Hel 48. Rc4 - Hgl
49. Re3 - Hel 50. Rc4 - Hgl 51.
b4 - Hxg2+ 52. Kc3
52. - Ra4+!
Kasparov fellur auðvitað ekki í
gildruna 52. — Rxd3?? 53. b7, en
fórnar manni á hvíta frípeðið.
53. Kb3 - Rxb6 54. Rxb6 - Hg3
55. Kc3 - Hxh3 56. b5 - h4 57.
Rc4 - Hxd3+!
Þetta leiðir til steindauðrar jafnte-
flisstöðu, því staða með drottningu
og riddara gegn drottningu gefur
enga vinningsmöguleika, nema alveg
sérstaklega standi á. Hér hefur
svartur að auki tvö peð til að veijast
með. Karpov teflir samt áfram, enda
síðustu forvöð.
58. Kxd3 - h3 59. b6 - h2 60. b7
- hl=D 61. b8=D - Dfl+ 62. Kc3
- Dcl+ 63. Kb3 - Ddl+ 64. Ka2
- Da4+ 65. Ra3 — Dxe4 66. Dc7+
- Kh6 67. Rc4 - Dd5 68. Kb2 -
e4 69. Df4+ - Kg7 70. Kc3 -
Dd3+ 71. Kb4 - Dd4 72. Dh4 -
Kf7 73. Kb5 - Dd5+ 74. Kb4 -
Dd4+ 75. Dh7+ - Dg7 76. Dhl -
Dd4 77. Dh4 - Kg8 78. Df4 -
Kg7 79. Dcl - Kf6 80. Kb5 -
Dd5+ 81. Kb4 - Dd4 82. Kb5 -
Dd5+ 83. Kb6 - Dd4+ 84. Kc6 -
Ke6 og hér var samið jafntefli.
Hjálparstofnun
kirkjunnar:
Rúmlega
9 milljónir
hafa safnast
RÚMLEGA 9 milljónir króna
höfðu safnast í árlegri landssöfn-
un Hjálparstofnunar kirkjunnar
í gær, en það er um 1,5 milljón
króna meira en safnast hafði á
sama tíma í fyrra.
Söfnunin stendur út desember-
mánuð, en að sögn Jónasar Þóris-
sonar, framkvæmdastjóra Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar, verður tekið
á móti framlögum sem berast út
allan janúarmánuð.
----*-*-*--
Kór Lang-
holtskirkju
flytur Jóla-
óratoríu
KÓR Langholtskirkju flytur
Jólaóratoríuna eftir J.S. Bach í
Langholtskirkju 29. og 30. des-
ember næstkomandi. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 17 báða
dagana. Forsala aðgöngumiða er
í Langholtskirkju og Eymunds-
son í Kringlunni og Austurstræti.
Flytjendur, ásamt Kór Lang-
holtskirkju, eru Ólöf K. Harðardótt-
ir sópran, Solveig M. Björling alt,
Michael Goldthorpe, tenór, Bergþór
Pálsson bassi og Kammersveit
Langholtskirkju. Konsertmeistari
er Júlíana Kjartansdóttir en stjórn-
andi Jón Stefánsson.
Birting hafnar sam-
starfi við
BIRTING hefur hafnað því að tiln-
efna mann til að starfa með kjör-
nefnd Alþýðubandalagins í
Reykjavík að undirbúningi og
framkvæmd forvals á G-lista í
Reykjavík fyrir alþingiskosning-
arnar.
Kjartan Valgarðsson formaður
Birtingar sagði að Birting myndi
ekki framar taka þátt - í neinurn
kjörnefnd
óformlegum viðræðum um málið
heldur aðeins formlegum.
Þá hefur Birting einnig sent for-
ustu og þingmönnum Alþýðubanda-
lagsins bréf, þar sem fram kemur
að ekki sé lengur talin þörf á fundi
með þingflokki Alþýðubandalagsins.
Óskað var eftir slíkum fundi í síðustu
viku en samþykkt að fresta honum
þá vegna óformlegra samræðna sem
voru í gangi.
Gefðu jólagjöf sem örvar
sköpunargáfuna
KAWAI HLJÓMBORÐ
*»_ KAWAl mssö
£ b|a'bi f'^Trtn f3Srffisr*l
Sa ^.... A : B
** r' nemp. mm w««í
MS 20 32 nótna, getur hljómað á 80 mismunandi vegu,
16 taktar í trommuheila. Verð kr. 5.900,-
* Wmm.. i&é
MS21037 nótna, 16taktar ítrommuheila, 192tóntegundir
og auk þess trommupúðar til að spila inn eigin trommur.
Verð kr. 7.900,-
MS 510 49 nótna, 20 grunntónar, 400 tóntegundir.
Verð kr. 8.900,-
BJERTON
KASSAGÍTARAR
Framleiddir úr úrvalsvið
sem gleður jafnt auga<
sem eyra.f
Verð kr.
16.900,
PIGNOSE
æfingamagnarar
Fyrirgítarleikara,
bassaleikara og hljóm-
borðsleikara.
Verð kr. 8.900,-
PEAVEY magnarar í öllum stærðum og gerðum.
MEINL DISKASETT
Þýsk hágæðavara
og draumur
trommuleikarans.
Verð frá kr. 7.900,-
REYKJAVIKUR
Laugavegi 96 • Sími 600935
KYNNTU ÞER URVALIÐ I HLJOÐFÆRAHUSINU