Morgunblaðið - 21.12.1990, Síða 35
■ SÓFÍU. Búlgarska þingið fól
nýrri ríkisstjórn völd í gær, fyrstu
íjölflokka ríkis-
stjórn landsins í
40 ár. Staða
kommúnista er'
samt sem áður enn
mjög sterk. Eftir
langan þingfund
var samþykkt að
mynda ríkisstjórn
18 ráðherra úr
þremur flokkum.
Fimm þeirra eru óflokksbundnir.
Nýi forsætisráðherrann en óflokks-
bundinn lögfræðingur, Dimitar
Popov að nafni.
H VÍN. 26 Albanir hafa verið
handteknir og dæmdir til 11-20 ára
fangelsisvistar fyrir að taka þátt í
mótmælum gegn stjórnvöldum í
síðustu viku. Utvarpið í Tirana
sagði á miðvikudag að þeir hefðu
framið „glæpi“ í borgunum Durres,
Albasan og Shkoder.
M SÞ. Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna samþykkti yfirlýsingu
gegn ' aðskilnaðarstefnunni í
Suður-Afríku á miðvikudag. Ekki
hefur áður náðst jafn mikil sam-
staða um málið sem hefur verið
mjög umdeilt í áratugi. í yfirlýsing-
unni segir að halda skuli áfram
efnahagsþvingunum gegn stjórn-
völdum í Suður-Afríku en ekki er
krafist nýrra refsiaðgerða.
■ LJUBLJANA. Tilkynnt var í
júgóslavneska lýðveldinu Slóveníu
í gær að ákvörðun um að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag
um úrsögn úr júgóslavneska ríkja-
sambandinu yrði ekki haggað.
Dómsmálaráðherra Júgóslavíu,
Vlado Kambovskí sagði að ríkis-
stjórnin gæti komið á mjög öflugum
efnahagsþvingunum gegn Slóven-
um ef af atkvæðagreiðslunni verð-
ur. Yfirvöld í Júgóslavíu hafa sagt
að hún brjóti í bága við stjórnar-
skrá landsins.
■ SÞ. Sadako Ogata, japanskur
kvenprófesSor við Sófíu-háskólann
í Tókýó, hefur ver-
ið tilnefnd í stöðu
framkvæmda-
stjóra Flótta-
mannahjálpar
Sameinuðu þjóð-
anna. í tilkynn-
ingu frá SÞ sagði
að Perez de Quell-
ar framkvæmda-
stjóri myndi á
föstudag biðja allsheijarþingið að
ráða Ogata til þriggja ára í embætt-
ið. Flóttamannahjálpin hefur hlut-
verk að vernda hinar 15 milljónir
flóttamanna í heiminum.
Sadako Ogata
Dimitar Popov
■ BERLÍN. Nýtt þýskt þing var
formlega sett í þinghúsinu í Berlín
í gær af Willy Brandt, fyrrverandi
kanslara Vestur-Þýskalands. Þing-
húsið í Berlín verður þó ekki aðset-
ur þýska þingsins, ekki fyrst um
sinn a.m.k. Þótt Berlín sé höfuð-
borg sameinaðs Þýskalands munu
helstu stjórnsýslustofnanir áfram
hafa aðsetur í Bonn um allmörg ár.
■ BANGKOK. Herráðið í Burma
bannaði í gær lýðræðisflokk lands-
ins sem vann yfirburðasigur í alls-
herjarkosningum í maí sl. Kjörráð
Burma tilkynnti að Þjóðarbanda-
lag um lýðræði, undir forystu Tin
Oo og Aung Kyi, sem báðir eru í
haldi, væri ekki lengur löglegt.
■ STOKKHÓLMI. ÞRÍR fyrrver-
andi lögregluforingjar voru í gær
dæmdir til refsingar en þrír sýknað-
ir af ákæruatriðum vegna hlerana
í tengslum við rannsókn á morðinu
á Olof Palme fyrrverandi forsætis-
ráðherra. Dómstóllinn féllst á að
hleranir hefðu verið réttlætanlegar
vegna morðrannsóknarinnar en
komst hins vegar að þeirri niður-
stöðu að lögreglan hefði stundað
þær í alltof miklum mæli. Hans
Holmer fyrrverandi lögreglustjóri,
hlaut þyngstan dóm en hann var
dæmdur til að greiða dagsektir í
90 daga. Hinir tveir hlutu 70 daga
sekt.
köÍÖÍjÖÍLÍáÐÍÐ lÓSMÖIém §Í?6esÉMBeK’Í990
Í 8 35
Jón Baldvin Hannibalsson um fund með utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna:
Aukínnar svartsýni gætir um
framtíðarhorfur í ríkjunum
HALDINN var fundur utanríkis-
ráðherra Norðurlandanna fimm
og Eystrasaltsríkjanna þriggja í
Kaupmannahöfn í gær í tengslum
við opnun upplýsingaskrifstofu
Eistlands, Lettlands og Litháens
þar. Fyrir íslands hönd sat Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra fundinn.
„Við heyrðum meðal annars
þeirra mat á stöðu mála í Eystra-
saltsríkjunum, kynntum og lýstum
hugmyndum um hvernig hægt er
að efla samstarf þeirra og Norður-
landanna og bárum saman bækur
um það. Af hálfu Norðurlandanna
var gerð grein fyrir því hvað þegar
hefði verið gert og hvaða áætlanir
væru uppi um stuðning. Þeir tóku
einna jákvæðast í þær hugmyndir
að efna til sem nánastra samskipta
á öllum sviðum milli einstakiinga,
almannasamtaka, fyrirtækja, og
töldu einna gagnlegast ef menn í
stjórnunarstörfum, í atvinnulífi og
sveitarstjórnum fengju tækifæri til
að koma til stuttrar starfs- eða
námsdvalar þannig- að þeir gætu
nýtt sér þekkingu og reynslu Norð-
urlandabúa við að byggja annars
vegar upp lýðræðsilegt stjórnkerfi
og hins vegar fyrirtæki sem kynnu
eitthvað til verka í umhverfi mark-
aðskerfis. Þetta er í líkingu við þær
áætlanir sem ríkisstjórnin ræddi á
seinasta ríkisstjórnarfundi," sagði
utanríkisráðherra.
„Eftirtektarverðasti þáttur þess-
ara viðræðna var hvað þeir höfðu
að segja hver ag einn af ástandinu
heima fyrir. Hvaða mat þeir lögðu
á framtíðarhorfurnar."
„Almennt má segja að þeir séu
svartsýnir, jafnvel svartsýnni en
áður, en jafnframt hafa þeir ekki
svör á reiðum höndum um hvað
kunni að gerast. Astandið er fyrst
og fremst óvissuástand. Sovétríkin
eru komin út í stjórnleysi. Þar ríkir
anarkí. Þrátt fyrir það að Gor-
batsjov safnar völdum á hendur
forseta og gefur út tilskipanir þá
eru þær dauður pappír, það fer
enginn eftir þeim. Það er algjör
ruglingur um hver raunverulega fer
með völd. Kannski eru þau nánast
hvergi. Hvorki hjá miðstjórnarvald-
inu, ekki hjá forystumönr.um ein-
stakra lýðveldi, ekki í kerfinu, ekki
í embættisliðinu, ekki í forstjóra-
veldinu. Það er lömun. Við slíkar
kringumstæður getur allt gerst.
Hitt er svo annað mál að það er
ekki svo margra kosta völ. Það er
almenn og útbreidd skoðun að nú-
verandi ástand sé óþolandi og geti
ekki gengið lengur. Hins vegar er
flestum viti bornum mönnum ljóst
hver áhættan er og hvað kunni að
tapast ef herinn og harðlínuöflin
ná völdum og láta til skarar skríða.
Þannig að lang líklegast er að áfram
verði ríkjandi nánast lamað stjórn-
kerfi og stjórnleysi,“ sagði Jón
Baldvin.
Frábær tónlist úr spennusögu Ómars
Njóttu sögunnar til fulls - hafðu snælduna við höndina
í tengslum við glænýja skáldsögu Ómars Ragnarssonar, í einu
höggi, hefur verið gefin út samnefnd snælda með vandaðri tónlist
í flutningi íslenskra listamanna og með textum eftir Ómar. Öll
lögin leika stórt hlutverk í skáldsögunni en bók og snælda standa
vel fyrir sínu í sitthvoru lagi.
Meðal efnis á snældunni:
í EINU HÖGGI
SOFÐU ÞÁ SIGGA MÍN
ELSKU STÚFUR
ÓRÓSA
GRÁTTU lÍR ÞÉR AUGUN
ERU EKKIALLIR í STUÐI?
JÓLAENGILL
Og fl. lög
Flutt af Ómari, Pétri Hjaltested, Birni Thoroddsen og
Pálma Gunnarssyni.
Flutt af Ómari, Grétari Örvarssyni og Gunnlaugi Briem.
Flutt af Guðrúnu Grétarsdóttur og Grétari Örvarssyni.
Flutt af Ara Jónssyni og Grétari Örvarssyni.
Sungið af Ellen Kristjánsdóttur.
Flutt af Ómari, Magnúsi Kjartanssyni og Árna Scheving.
Flutt af Helgu Möller, Eyjólfi Kristjánssyni og Grétari
Örvarssyni.
IRÓDI
BÓKA & BIAÐAÚTGÁFA
Verð á snældu:
1.199 kr.
Verð á skáldsögu:
2.280 kr.
I Kr l-M. H .