Morgunblaðið - 21.12.1990, Síða 56

Morgunblaðið - 21.12.1990, Síða 56
5& MORGUNBIÍAÐIÐ FÖSTXHIKAGIirRri^ÍjÍ)BSEMBERJ1990r. Minning: Helga Jónsdóttir Fædd 18. mars 1920 Dáin 14. d'esember 1990 Allt kemur og fer, ekkert stendur í stað, líf vaknar og líf hverfur og þó verður ekkert að engu. Fyrir örfáum dögum sátum við Helga við sama borð og hlýddum á Guðrúnu Ásmundsdóttur leikkonu ræða um trúmál, við ræddum af- stöðu okkar er við bjuggumst til brottfarar og vorum sammála um gildi trúarinnar. Ég kyssti hana á kinnina og sagði „Þú kemur í heim- Sókn“. „Já endilega," svaraði hún. „Sjáumst," og ég gekk á braut. Fregnin um andlát Helgu kom mjög á óvart. Fullfrísk og dáin eftir and- artak. Helga Jónsdóttir fæddist að Möðruvöllum í Hörgárdal í Eyja- firði. Foreldrar hennar voru Jón trésmiður og orgelleikari þar, f. 28. desember 1884, d. 25. nóvember 1923, Eggertsson bónda á sama stað Davíðssonar og kona hans María Þorgerður, f. 18. maí 1893, d. 3. ágúst 1971, Sigurðardóttir bónda á Dagverðareyri í Glæsibæj- arhreppi, Oddssonar. Helga ólst upp með móður sinni og föðurforeldrum á Möðruvöllum. Hún varð stúdent frá Menntaskól- anum á Akureyri 1940 og þau ár sem hún stundaði nám í mennta- skóla bjuggu þær mæðgur að Odda- götu 1, eða í húsi Kristjáns Sigurðs- sonar kennara, en hann var bróðir Maríu, móður Helgu, og kona hans, Sesselja, var systir Jóns föður henn- ar. Börn þeirra hjóna voru því svo gott sem systkini Helgu enda fór vel á með þessu frændfólki. Elsta barn þeirra Kristjáns og Sesselju er Gunnar sem býr að Dagverðar- éyri, kvæntur Fjólu Pálsdóttur, næst Rannveig húsmæðrakennari, sem giftist Peter Hallberg, þeim er mest og best þýddi bækur Halldórs Laxness á sænska tungu. Þá var Kristín efnaverkfræðingur er giftist Peter Hallberg eftir lát systur sinnar og síðan var Eggert héraðs- dómslögmaður sem var kvæntur Björgu Valgeirsdóttur og síðast Guðrún Hulda, húsmóðir í Reykjavík, sem var gift Sigurði Ingólfssyni. I þessum hópi var Helga öll árin í Menntaskólanum á Akureyri. Ég sem rifja þetta upp var svo lánsöm að dvelja með þessari fjölskyldu einn vetur. Þetta var skemmtilegt fólk, vandað greint og góðviljað. Ekki hefur mér líkað betur við ann- að fólk mér óskylt. Nú eru þau flest horfin yfir móð- una miklu og flest þeirra langt um aldur fram. Ég minnist nú jólanna með þessu fólki, hátíð og gleði. Við gengum út að Dagverðareyri og gistum þar í góðu yfirlæti, gengum síðan til baka inn að Akureyri, ungt fólk með óráðna framtíð í fangið, glöð og áhyggjulaus. Helga nam heimspeki í Háskóla íslands, einnig tók hún BA-próf í íslensku, hún var í Kennaraskólan- um og iærði á hljóðfæri, þar kynnt- ist hún eiginmani sínum og 30. október 1943 giftist hún Guðmundi Eggert Matthíassyni, f. 26. febrúar 1909, d. 17. júlí 1982, prests í Grímsey Eggertssonar Jochums- sonar frá Skógum í Þorskafirði og var Eggert afi Guðmundar bróðir séra Matthíasar Jochumssonar skálds, móðir Guðmundar var Mundína Guðný Guðmundsdóttir ættuð úr Þingeyjarsýslu. Guðmundur eiginmaður Helgu var hámenntaður tónlistarmaður. Persóna hans bar í ríkum mæli með sér mýkt og fágun hins sanna lista- manns. Guðmundur var mikill og góður tónlistarkennari og organisti við Kópavogskirkju. María móðir Helgu flutti til þeirra hjóna er þau stofnuðu heimili og bjó hjá þeim til endadægurs. Hún sá um heimilishaldið, gætti bama og var sívinnandi og ómetanleg. Helga vann lengi í blóðbankanum og síðar á Kópavogshæli við skrif- stofustörf. Öll störf sem Helga vann voru unnin af alúð og samvisku- semi. Þau hjón Helga og Guðmundur bjuggu lengst af við Digranesveg í Kópavogi, um árabil fóru söngæf- ingar kirkjukórsins fram á heimili þeirra. Var jafnan kaffi á borðum og sjálf söng Helga með kómum en hún hafði góða söngrödd. Það má því segja að hún og þau hjón hafi átt mörg sporin í þágu kirkju- kórsins. Böm þeirra hjóna eru fjögur. María hjúkrunarkona og tónlistar- kennari, gift Per Bjömdal Jakobsen í Noregi, búsett í Asker. Guðný konsertmeistari í Sinfóníuhljóm- sveit íslands, gift Gunnari Kvaran sellóleikara. Rannveig félagsráð- gjafi, gift Hallgrími Axelssyni verk- fræðingi, og Björg snyrtifræðingur. Hin síðari árin hefur Helga gætt barnabama sinna í ríkum mæli og stutt þannig að velferð barna sinna eftir bestu getu. Dætur hennar hafa dvalið tímabundið á heimili hennar þegar þörf hefur krafið. Allt hefur verið sjálfsagt þeim til handa. Öll er nú þessi gengin tíð, ævi- skeið fallegrar og vandaðrar konu er mnnið. Þakklæti þeirra er eftir lifa og hennar nutu við er mikið. Guð blessi minninguna. Emma Hansen Tengdamóðir mín Helga Jóns- dóttir frá Möðruvöllum í Hörgárdal er látin. Hún hvarf héðan af jörðu skyndilega um hádegisbil föstudag- inn 14. þ.m. en þann sama morgun hafði ég rætt við hana í síma. Hún ætlaði sér í bæjarferð ýmissa erindagerða þennan dag, en fór ekki þá ferð heldur í það mikla ferðalag sem bíður okkar allra er hér á jörðinni dveljum um stundar- sakir. Þessum örfáum minningarorðum er ekki ætlað að rekja skilmerkilega æviferil og ættir Helgu Jónsdóttur, en mér er ljúft og kært að minnast hennar sem manneskju og góðrar vinkonu. Ég tók fyrst eftir Helgu mörgum árum áður en ég kynntist henni persónulega. Hún var þá á tónleik- um með manni sínum Guðmundi Matthíassyni organleikara og kenn- ara, og mér var starsýnt á þessa konu. Hún var glæsilega búin og fríð sýnum, en það sem ég tók mest og best eftir voru sérstaklega Hjónaminning: Unnur Björnsdóttir Krisiján Sigurðsson Unnur Fædd 1. september 1900 Dáin 14. desember 1990 Kristján Fæddur 11. mars 1896 Dáinn 3. nóvember 1966 Þeim fækkar nú óðum sem fædd- ir eru á Iiðinni öld. Nýlátin er kona, sem fæddist á síðasta ári hinnar nítjándu aldar. Níræð varð hún í haust er leið og var þess þá minnst að viðstöddum mörgum gestum í Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldr- aðra í Kópavogi, þar sem hin aldr- aða kona átti heima síðustu mánuð- ina sem hún dvaldi á meðal okkar hét á þessari jörð. Þá var hún orð- in lotleg og sáu allir viðstaddir, að endalokanna gat orðið skammt að bíða. Sú varð og raunin. Unnur Björnsdóttir, sem hér er minnst, fæddist á Gilsstöðum í Vatnsdal hinn 1. dag september- mánaðar árið 1900. Voru foreldrar hennar hjónin Bjöm Sigurður Áma- son, Benjamínssonar bónda í Grundarkoti í Undirfellssókn í Vatnsdal, og Sólveig Benediktsdótt- ir, Jónssonar bónda í Grísatungu í Hjarðarholtssókn. Jón var frá Bala- skarði á Laxárdal fremri. Fluttist hann suður fyrir heiði, líkt og marg- ir á harðindatímabilinu seint á lið- inni öld. Björn og Sólveig fluttust út á Skaga, að Kálfshamarsvík, á ný- býli þar eða þurrabúð. Kálfsham- arsvík var þá í uppgangi sem ver- stöð. Um tíu ára aldur fer Unnur í fóstur til hjónanna á Ásbúðum á Skaga, þeirra Ásmundar Árnasonar og Steinunnar Sveinsdóttur. Þar vann hún fyrir sér og dvaldi þarna til þess tíma, að hún fyllti 18. árið. Hjón þessi reyndust Unni mjög vel. Bar hún þeim vel söguna upp frá því. Unnur sækir um skólavist í Kvennaskólanum á Blönduósi. Námsdvölin varð Unni til mikilla nytja, bæði á verklegu og andlegu sviði. Þarna var aðeins um eins vetrar nám að ræða. Upp úr skólavistinni á Blönduósi kynntist Unnur ungum bóndasyni af Laxárdal fremri, Kristjáni Sig- urðssyni í Hvammi Semingssonar og Elísabetar Jónsdóttur konu hans. Bóndasonurinn sem Unnur hafði valið sem ævifélaga útskrifaðist sem búfræðingur frá Hólaskóla vor- ið 1918. Þetta var góð menntun fyrir verðandi bændur og gerði þá víðsýnni um leið í andlegum efnum. Kristján hafði yndi af bókum. Á æskuheimili hans voru ljóð í háveg- um höfð og þar var mikið kveðið á kvöldvökum. Kristján var hagmælt- ur ágætlega. Því til vitnis er kvæð- ið Skammdegi, sem hann orti fannaveturinn minnisstæða árið 1920. Þá var svo sannarlega fann- armoli á Laxárdal. Þarna segir Kristján þetta m.a.: Harðnar að með hríðarbylji. Hvort er þetta Drottins vilji, að fónnin svona sveitir hylji svo ei hafi fugl í nef, byrgt er allt á bökkum sef, yfir lægðir, ása og rinda, upp á hæstu ijallatinda, allt er fanna vafið vef. Unnur og Kristján giftu sig á þjóðhátíðardegi Norðmanna, 17. maí 1923. Hófu þau búskap í Hvammi með Sigurði Semingssyni og dætrum hans tveimur. En þar sem bújörðin Hvammur var ekki tii skiptanna, fluttust ungu hjónin með son á fyrsta árinu utar í dalinn, að Refsstöðum, vorið 1924. Bjuggu þau þar ásamt öðrum ungum hjón- um, Sveini Hannessyni frá Elivog- um og Elínu Guðmundsdóttur, sem einnig áttu þá son á fyrsta árinu — þann er þetta ritar. Fardagaárið næsta bjuggu þau svo þarna. Af samtali við Unni komst ég að því að samvinna og sambúð þessara tveggja hjóna hafi verið með mesta sóma. Björn Aðils (fæddur 15. febr- úar 1924), sonur þeirra, naut ástríkis föður míns á borð við son- inn. Sat h'ann oft með okkur snáð- ana, sinn á hvoru hné. Sama mun Kristján hafa gert. Húsnæði á Refs- stöðum var þröngt fyrir tvenn hjón, en þröngt mega sáttir sitja, stendur einhvers staðar. Var gaman að heyra Unni lýsa þessum tíma, sem orðinn var það langt að baki. Unn- ur mun vera síðasta manneskjan sem man mig barn í vöggu. Vorið 1925 fluttust Unnur og Kristján að Litla-Vatnsskarði, næsta bæ íyr- ir framan Refsstaði. (Sama vor fluttust Sveinn og Elín frá þessari ágætu jörð að koti einu utar í daln- um, en Sneis heitir. Bjuggu þau þar næstu níu árin. En þar er önnur saga.) Á Litla-Vatnsskarði var dvölin aðeins árið, enda um rýrðarkot að ræða. Árið eftir (1926) flytjast þau að Hvammi. Bjuggu þau þar fyrst um sinn ásamt Sigurði föður Krist- jáns, sem farinn var að kenna þreytu eftir langan og strangan vinnudag (fæddur 1867). Búa þau þarna allt til ársins 1939. Einkennd- ist búskapur þeirra af snyrti- mennsku. Unnur var nýtin húsmóð- ir og Kristján hélt öllu í góðu horfi, líkt og faðir hans hafði gert. Lund- arfar þeirra hjóna var að vísu nokk- uð ólíkt. Hún opinská og glaðlynd, hann dulari miklu. Mér er í barns- minni heimsókn ein um sumar að Hvammi, er ég var barn. Móðir okkar hélt með okkur systkinin á hestbaki að Hvammi. Og mikið var hún Unnur elskuleg og tók okkur opnum örmum. Auðséð var að þama hittuSt gamlar vinkonur. Bærinn í Hvammi var reisulegur. Stofuþilin tvö buðu mann velkominn í bæinn; reisn varyfir bænum þeim. Frá Hvammi var síðan flutt að Háagerði á Skagaströnd, en 1944 að húsinu Þórshamri í Skagastrand- arkauptúni. Kristján starfaði hjá kaupfélaginu á Skagaströnd sem pakkhúsmaður, en síðustu árin sem skrifstofumaður. Hann lést úr hjartasjúkdómi 3. nóvember 1966, slétt sjötugur að aldri. Fluttist Unn- ur þá suður í Kópavog til Björns sonar síns og tengdadóttur. Hún bjó með Aðalsteini Andréssyni frá Mánaskál í tólf ár, frá árinu 1974 til 1986. Þá fluttist hún að nýju til sonarins og tengdadótturinnar, að Bræðratungu 19. Þau Unnur og Aðalsteinn áttu saman nokkur ágæt ár. Á þessu ári var heilsu og þreki Unnar það mjög tekíð að hnigna, að hún fékk inni í hjúkrunarheimil- inu í Kópavogi, sem fyrr er getið í grein’þessari. Þar var vel um hana hugsað. Hún var þakklát starfsfólk- inu, sem reyndi að láta henni líða eins vel og tök voru á. Nokkrum sinnum leit ég til Unnar á þessum stað, en oftar á hinu vistlega heim- ili sonar hennar og tengdadóttur. Hún mundi vel liðinn tíma og naut þess að segja öðrum frá honum. Unnur andaðist í svefni um há- degisbil föstudaginn 14. desember 1990, í Sunnuhlíð. fögur augu hennar. Þau voru djúp og stór með sérkennilega fagurri grængulri slikju. Einhversstaðar stendur að augu manneskjunnar séu spegill sálar hennar og ég tel að mikill sannleik- ur sé í þessu fólginn. Helga hafði næman fegurðarsmekk, hafði yndi af góðri tónlist og söng töluvert á yngri árum. Hún var einn af stofn- endum kirkjukórs Kópavogskirkju og starfaði við hann óslitið í u.þ.b. þijátíu ár, frá stofnun hans 1952. Það hefur vafalaust veitt þeim hjón- unum Helgu og Guðmundi Matt- híassyni organleikara, en hann starfaði við Kópavogskirkju frá vígslu hennar til dauðadags 1982, mikla ánægju að geta starfað sam- an að málefnum kirkjunnar. Á efri árum tók Helga upp á því að læra framsögn og upplestur. Hún sótti tíma hjá föður mínum, Ævari Kvaran, og sagði hann mér, að hún hefði verið í hópi sinna bestu nemenda. Ég held að ég hafí aldrei kynnst samviskusamari manneskju en Helgu. Samviskusemin var svo mik- il að það olli henni stundum óþarfa áhyggjum. Hún hafði ríka réttlætis- kennd og lét álit sitt óhikað i ljos fyndist henni gengið á rétt sinn eða annarra. Helga gekk ekki alltaf heil til skógar og hafði því mikinn skilning og samúð með veiku fólki og þeim sem minna mega sín. Fjölskyldan var Helgu ætíð mjög dýrmæt og hún lét sér ævinlega annt um hana. Hún eignaðist íjórar dætur með manni sínum Guðmundi Matthíassyni. Helga reyndist mér og fjölskyldu minni sérstaklega vel, ætið boðin og búin að taka að sér dóttur okkar Karól, jafnvel vikum saman, ef við vorum á ferðalögum. Helga var mjög andlega hugs- andi kona og víðlesin í bókmenntum andlegrar ættar. Það var því mjög ánægjulegt að spjalla við hana um eilífðarmálin. Hún gleypti ekki við hveiju sem var úr þeirri átt, fór Börn eignuðust þau Unnur og Kristján tvö, en þau eru: Bjöm Aðils, múrarameistari, sem fyrr er getið, kvæntur Lovísu Hannesdótt- ur frá Hvammi í Laxárdal í Skaga- fjarðarsýslu. Börn þeirra em fimm, en barnabömin 9 að tölu. Elísabet fædd 1925, gift Gunnari Helga- syni, vömbifreiðarstjóra á Skaga- strönd. Böm þeirra em þijú og bamabömin 8 að tölu. Þau hjón sem hér hefur verið minnst, skiluðu góðu ævistarfi. Niðjarnir sjá um að ávaxta arfinn dýrasta, mannfólkið sjálft, sem erfa mun í fyllingu tímans þetta ágæta land, sem við byggjum. Mikil birta er í huga mínum yfir minningu Unnar sálugu. Maður hennar, þótt löngu sé horfínn frá okkur, lifir í minningunni sem hinn farsæli iðjumaður, er ætíð hugsaði fyrst og fremst um að gera skyldu sína og standa við orð sín. í dag verður Unnur frá Hvammi lögð til hinstu hvíldar í Spákonu- fellskirkjugarði á Skagaströnd við hlið síns ágæta eiginmanns. Blessuð sé minning hennar og þeirra beggja. Auðunn Bragi Sveinsson frá Refsstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.