Morgunblaðið - 21.12.1990, Síða 62
d
62
öeer íiaaMaeaa .12 auoAauTgöa GiGAjaMuaaoM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990
fclk f
fréttum
SPIL
Minna undir heppni komið
en meira undir hyggjuviti
KVIKMYNDIR
Kynþokki Geres tefur
kvikmyndaupptökur
Það vakti almenna athygli í
kvikmyndaborginni Holly
wood, að leikarinn og hjartaknús-
arinn Richard Gere skyldi ekki
vinda sér úr einu stórvirkinu í
annað eftir velgengnina með
myndina Pretty Woman þar sem
. hann lék á móti Júlíu Roberts.-
Þóttu þau bæði fara á kostum og
hafa vinsældir myndarinnar verið
feiknalegar.1 Allir vissu að Gere
hefði verið ráðinn til aðalhlut-
verksins í kvikmyndinni „Final
analasys", en einhverra hluta
vegna tafðist verulega að hefja
upptökur. Nú liggur skýringin
fyrir.
Þannig er mál vexti, að myndin
hefur verið leikstjóralaus. Fyrst
átti Harold Becker að leikstýra.
Becker stýrði síðast „Sea of love“
með þeim A1 Pacino og Ellen
Barkin og þótti líklegur til afreka
í „Final analasys" þar sem um
spennumynd er einnig að ræða.
Aðalkarlhlutverkið í myndinni er
hlutverk sálfræðings sem fellur
fyrir systur eins af sjúklingum
hans og alls konar uppákomum
sem af því sambandi hljótast.
Becker sá fyrir sér „venjulega
útlítandi" mann í hlutverkið, ekki
kyntröll á borð við Gere og er ljóst
Richard Gere ... of sætur.
var að framleiðendur myndarinn-
ar vildu hafa Gere í hlutverkinu
sagði Becker starfi sínu lausu.
Þá var John Boorman ráðinn,
sá gamalreyndi leikstjóri. Ekki
hafði hann lengi haft starfann
með höndum er þeim Gere lenti
saman. Voru þeir á öndverðum
meiði um ýmislegt í myndinni og
er ekki tókst að bera klæði á vopn-
in hætti Boorman einnig. Frétta-
fulltrúi Warner Bros, sem er
framleiðandi myndarinnar sagði
nýverið að enginn skortur væri á
hæfum leikstjórum og fljótlega
yrði nýr maður ráðinn og stefnt
er að því að upptökur myndarinn-
ar heflist í mars á næsta ári.
V/SA
Dags. 21.12 1990
NR. 195
VAKORT
Númer eftirlýstra korta
4543 3700 0000 2678
4543 3700 0001 5415
4929 541 675 316
4548 9000 0021 2540
4548 9000 0027 9424
Kort frá Kuwait sem byrja á nr.:
4506 13** 4966 66** 4509 02**
4507 13** 4921 04** 4921 90**
4547 26** 4552 41** 4560 31**
4508 70** 4507 77** 4966 82**
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
VISA ÍSLAND
Díana var hin glæsilegasta.
Það vantaði ekki að Dí var tekið
með kostum og kynjum af gestgjöf-
um og ríkisyfirvöldum svo og öllum
þeim sem málið snerti. Og Díana
var glæsileg að vanda. En margt
af fína fólkinu í Washington lét
ekki sjá sig. Aðeins 260 sæti seld-
ust og safnaðist því minna fé en
efni stóðu til. Það var mál manna,
að miðaverðið hefði verið allt of
hátt. „Gersamlega fáránlegt," sagði
dálkahöfundur í dagblaðinu The
Washingtonian og bætti við að
1.500 dollarar hefðu þótt hrikalegt
verð, hvað þá meira. „Þeir sem verð-
lögðu sætin þekkja víst lítið til
Washingtonbúa," bætti umræddur
dálkahöfundur við.
Þrátt fyrir mannfæð fór veislan
hið besta fram og þeir sem mættu
skemmtu sér konunglega. Þetta var
stuttur stans hjá Dí, en hún náði
þó að heimsækjá eyðniheimilið um-
rædda og ræddi þar lengi við börn-
in. Leyfði einni lítilli stelpu sem
gekk undir nafninu Díana prinsessa
meira að segja að sitja í Rollsinsum
nokkra stund. Dí hitti einnig Barb-
öru Bush forsetafrú og áttu þær
langan fund þar sem umræðuefnið
var einkum eyðniplágan sem herjar
á heimsbyggðina.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Samkvæmisskör í úrvali frá
PETER
KAISER
Domus Medica,
sími 18519
Kringlunni 8-12,
sími 689212
Björn Snædal heitir ungur Akur-
eyringur sem ráðist hefur á
eigin spýtur í óvenjúlegt og frum-
legt verkefni. Á þrettándanum á
þessu ári fékk hann hugmynd að
spili sem bæði gekk út á að sigra
náungann á sama tíma og framtíð
manns var tryggð, jafnframt því
að veita spilendum ákveðna innsýn
inn í heim sem fyrir marga er einn
allsheijar frumskógur sem best er
að standa fyrir utan. Nú, tæpu ári
seinna, er spilið fullgert, Verðbréfa-
spilið heitir það og hefur vakið
mikla athygli. Morgunblaðið ræddi
aðeins við Bjöm og spurði um eðli
spilsins.
„í Verðbréfaspilinu fá leikmenn
það verkefni að ávaxta ákveðinn
höfuðstól sem þeim er úthlutað í
upphafi, eins mikið og kostur er.
Þeir ávaxta þennan höfuðstól með
kaupum og sölum á verðbréfum í
fyrirtækjum. Einnig bjóðast aðrir
ávöxtunarmöguleikar eins og sjóðs-
bréf, Spariskírteini Ríkissjóðs, Gull-
bók og fleira. Þess má geta, að þau
fyrirtæki sem nefnd eru í spilinu
eru til og eru styrktaraðilar að út-
gáfu spilsins. Seinni part spilsins
beijast menn síðan um yfirráð í
fyrirtækjum uns að lokum einn
hirðir allt og stendur uppi sem
stjórnarformaður íslands. Spilið er
þannig gætt talsverðum veru-
leikablæ án þess þó að teljast flók-
ið, en tveir til sex geta spilað, allt
ofan í 10 ára krakkar," segir Björn.
Hann bætir við til nánari útskýring-
ar, að ef menn ráði við spilið Matad-
or þá ráði þeir við Verðbréfaspilið.
Þau séu bæði peningaspil, en í Verð-
bréfaspilinu er minna undir heppni
keppenda komið og rneira undir
hyggjuviti og skjótri hugsun.
SÖFNUN
Hálfmislukkuð söfn-
un Díönu fyrir
eyðnisjúka
Díana Bretaprinsessa hélt í vest-
urvíking fyrir nokkru, nánar
tiltekið til Washington, með það
markmið að afla fjár fyrir ýmsa
þurfandi hópa, svo sem Ijárvana
balletthópa í Lundúnum og Wash-
ington svo ekki sé minnst á heimili
í Washington fyrir börn sem sýkst
hafa af eyðni og eiga hvergi höfði
að halla. Valinn var glæsilegasti
veislusalurinn í Washington og selt
í 500 gullbrydduð sæti. Plássið
skyldi kosta 2.500 doliara, en 3.500
dollara ef í pakkanum væri að heilsa
Díönu með handabandi. Dí hafði
gilda ástæðu til að ætla að allt
gengi að óskum, enda hafði hún
haldið vestur í svipuðum erinda-
gjörðum bæði 1985 og 1989 og þá
höfðu færri komist að en vildu.
Björn Snædal
Björn segist vera „spilageggjari"
og síðan að hugmyndin að spilinu
hafi vaknað hafi hann lagt nótt við
dag, enda sannfærður um 1 ágæti
hugmyndar sinnar. Framan af
starfaði með honum Tómas Gunn-
arsson, en síðar meir stóð Björn
einn að spilinu. Þeir stofnuðu fyrir-
Morgunblaðio/Svemr
tækið „íslensk spil“ sem gefur spil-
ið út, en Penninn sér um dreifing-
una. „Þetta hefur reynst vera mjög
dýrt fyrirtæki, en ef ekki hefði not-
ið við styrktarfyrirtækjanna hefði
ekki verið hægt að bjóða spilið á
því sanngjarna verði sem raun ber
vitni. Þátttöku þeirra má ekki túlka
með þeim hætti að þau ætli sér síðar
meir í sölu hlutabréfa á almennum
markaði, heldur vakir fyrir þeim
öllum að hjálpa til að auka skilning
almennings með þessari leið, að
hlúa beri að fyrirtækjum og sterk
fyrirtæki séu undirstaða hagsældar
í landinu," segir Björn að lokum.