Morgunblaðið - 21.12.1990, Qupperneq 64
64
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990
Athugasemd frá Fast-
eignamati ríkisins
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Fasteignamati ríkisins:
„í leiðara Morgunblaðsins sl.
sunnudag var fjallað um hækkun
fasteignamats frá síðasta ári. Þar
eð sú umij'öllun gaf villandi mynd
af því, hvaða forsendur liggja að
baki fasteignamatinu, þykir rétt að
koma á framfæri við lesendur blaðs-
ins hveijar þær eru.
Lög um skráningu og mat fast-
eigna nr. 94/1976 kveða á um
hvernig fasteignamat skuli ákvarð-
að. Skv. 17. og 26. gr. laganna
skal fasteignamat það, sem útgefið
er 1. desember ár hvert, vera gang-
verð fasteigna, umreiknað til stað-
greiðslu í nóvember á sama, ári.
Til þess að ná þessu markmiði
safnar Fasteignamat ríkisins
kaupsammningum um fasteignir og
vinnur úr þeim upplýsingar, sem
ákvörðun Yfirfasteignamatsnefnd-
ar um framreikning ár hvert bygg-
ist á. Fasteignamatið byggir því
ekki á vísitölum, heldur eru mark-
aðsathuganir grundvöllur þess.
■ Þegar framreikningur matsins
er ákveðinn í nóvember ár hvert
liggja markaðsathuganir ekki fyrir
lengra en fram til 3. ársfjórðungs
(ágúst). Áætla verður því þær verð-
breytingar, sem verða á fasteigna-
markaðnum fram til nóvember. Á
síðasta ári reyndist þessi áætlun
allnokkru of lág.
Til þess að uppfylla það lagaskil-
yrði, að fasteignamatið skuli vera
staðgreiðsluverð í nóvembermánuði
þurfti því nú að hækka matið um-
fram þær verðhækkanir, sem höfðu
orðið yfir árið. Ef vel hefði átt að
vera, hefði hin almenna hækkun í
íbúðarhúsnæðinu þurft að vera
15%, en varfærnissjónarmið réðu
því, að hækkunin var ákveðin 12%.
Þess er líka að geta í þessu sam-
bandi að Fasteignamat ríkisins fær
nú í íbúðarhúsnæðinu fleíri mats-
kærur til hækkunar á mati en lækk-
unar. Nokkrir stórir lífeyrissjóðir
hafa ákveðið að nota fasteignamat-
ið með veðhæfnisviðmiðun við lán-
veitingar. Kröfur til þess að fram-
lagt fasteignamat sé sem næst réttu
lagi hafa því aukist verulega frá
því sem var.
Skattlagning sveitarfélaga og
ríkis á fasteignir þarf ekki að fylgja
hækkunum fasteignamats. í þeirra
höndum er að ákveða álagningar-
prósentu á matið, sveitarfélaganna
skv. lögum um tekjustofna sveitar-
félaga og Alþingis, við afgreiðslu
fjárlaga. Það er því á þeirra valdi
að ákveða hvort þjóðarsátt verði
fylgt eða ekki í þessu máli.
Virðingarfyllst
Magnús Ólafsson for stjóri,
Aths. ritstj.:
í forustugrein Morgunblaðsins
var ekki fjallað um með hvaða
hætti Fasteignamat ríkisins ákvarð-
ar 12% hækkun matsins. Þar var
aftur á móti borin saman 12%
hækkun við 6,1% hækkun launavísi-
tölu á þessu ári. Skattþyngingunni
sem felst í þessum mismun var
mótmælt.
Það er að sjálfsögðu rétt hjá
Fasteignamati ríkisins, að skatt-
lagning ríkis og sveitarfélaga á
fasteignir þarf ekki að fylgja þess-
ari 12% hækkun. En ríki og sveitar-
félög þurfa að lækka álagningar-
prósentuna þannig að hækkun fast-
eignamats hafi ekki áhrif umfram
6,1% hækkun launavísitölu. Annað
er skattþynging og ekki í samræmi
við markmið þjóðarsáttar.
IÍDÓ
L œ k j a r g_a t a 2
Hijómsveit D.B.D.
leiknr fyrir dansi
Miðaverð kr. 500,- Borðapantanir ísíma 26655 Húsið opnar kl. 22
Morgunblaðið/Gunnar E. Hauksson
Bæjarbúar dönsuðu í kringum jólatréð á Þingeyri.
Kveikt á jólatrénu á Þingeyri
Þingeyri.
ÞAÐ er orðinn árviss viðburður dönsuðu kringum jólatréð eftir að
að kveikt er á jólatrénu fyrir Jónas Ólafsson sveitarstjóri hafði
framan Sparisjóðinu á Þingeyri kveikt á ljósunum. Og auðvitað birt-
u.þ.b. 13 dögum fyrir jól. ust jólasveinarnir, sem koma árlega
alla leið ofan af Glámu til að geta
Foreldrar og börn komu saman tekið þátt í gleði bæjarbúa.
einn góðviðrisdaginn og sungu og - Gunnar Eiríkur
Sauðárkrókur:
Góður gestur í
skammdeginu
Sauðárkróki. ^
SAUÐKRÆKINGAR og Skag-
firðingar fengu góðan gest, þeg-
ar Anna Málfríður Sigurðardótt-
ir pínaóleikari kom og hélt tón-
leika í sal Tónlistarskólans á
Sauðárkróki og í félagsheimilinu
Miðgarði í Varmahlíð nú fyrir
skemmstu.
Á efnisskrá tónleikanna á Sauð-
árkróki voru verk eftir Chopin,
Beethoven, Liszt, Rakhmaninoff og
ýmsa fleiri öndvegishöfunda.
Tónleikarnir voru ágætlega sóttir
og þökkuðu áheyrendur listakon-
unni vel og innilega í lok þeirra.
- BB.
Anna Málfríður Sigurðar-
dóttir píanóleikari.
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
Mannakorn 6: Samferða
EIN SÚ BESTA
Hljómplötur
Sveinn Guðjónsson
Það er alkunna að Magnús Ei-
ríksson hefur lengi verið talinn í
hópi bestu dægurlagahöfunda
þessa lands. Og sú náðargáfa
hefur ekki yfirgefið hann ef tekið
er mið af nýjustu plötu Manna-
korna, sem er ein sú besta sem
sveitin hefur sent frá sér og eru
þær þó margar góðar. Magnús
og Pálmi Gunnarsson hafa á
undanförnum árum sent frá sér
sex hljómplötur undir nafni Mann-
akorna, og á þessum plötum hafa
þeir skapað sígilda dægurtónlist
með lögum, sem mörg eru orðin
ódauðleg meðal almennings. Á
nýju plötunni eru nokkur sem lík-
leg eru til að bætast í þann hóp.
Platan hefst á tveimur meist-
arastykkjum, titillaginu „Sam-
ferða“ og „Óralangt í burtu“, sem
bæði eru í hópi þeirra bestu sem
Magnús hefur samið. Einkum
þykir mér fyrrnefnda lagið áhrif-
amikið, enda hjálpast þar að góð-
ur texti og gullfalleg melódía.
Pálmi syngur lagið af mikilli inn-
lifun og í því má heyra firna góð-
an trommu- og slagverksleik
Gunnlaugs Briem, ásamt með fal-
legum gítarleik Tryggva Hbner.
Raunar finnst mér frammistaða
Gunnlaugs á allri þessari plötu
kapítuli út af fyrir sig og eitt af
aðalsmerkjum hennar er að mín-
um dómi áberandi góður trommu-
og slagverksleikur, þar sem sam-
an fer tækni, góður tónn og gott
samspil við bassa Pálma Gunnars-
sonar. Síðarnefnda lagið er eitt
af þessum dæmigerðu lögum
Magnúsar, sem líklega á eftir að
hreiðra um sig í digru „smella-
safni" hans um ókomin ár. Ellen
Kristjánsdóttir aðstoðar Pálma í
söngnum og gerir það með mikl-
um „sjarma“ þótt ekki sé röddin
kröftug.
Síðan kemur hvert lagið af
öðru, flest mjög góð og ekkert
slakt að mínum dómi. Að vísu fær
Magnús „lánaðar" nokkrar linur
í laginu „Sé ekki eftir neinu“ úr
lagi Paul McCartney „Ballroom
Dancing“, en annað eins hefur
nú gerst. Bubbi Morthens syngur
blúslagið „Haltu mér fast“ með
miklum átökum eins og honum
einum er lagið undir urrandi
Hammondorgeli Karls Sighvats-
sonar og í næsta lagi „Silfur-
stjarnan" má meðal annars heyra
harmonikkuleik Guðmundar Ing-
ólfssonar, svo nefnd séu dæmi um
ijölbreytnina á þessari plötu.
Þannig mætti rekja sig í gegnum
öll lögin á plötunni, en ég læt les-
endum eftir að hlusta sjálfa og
sannfærast. Platan endar á sér-
kennilegu lagi „Nillabar“, sem
mér finnst að mörgu leyti eitt
skemmtilegasta lagið. Textinn er
mergjaður og Pálmi syngur hann
af mikilli sannfæringu. í þessu
lagi má líka heyra skemmtilegar
píanófléttur Eyþórs GunnarsÁonar
en frammistaða hans á þessari
plötu í heild er með miklum ágæt-
um, sem og annarra er við sögu
koma.
Eftir að hafa hlustað á þessa
plötu hefur álit mitt á Magnúsi
Eiríkssyni sem listamanni aukist
til muna. Tónsmiðar hans eru sí-
gildar, óháðar tíma og hafnar yfir
tískusveiflur. Og hann er ekki
aðeins góður lagasmiður heldur
semur hann einnig prýðilega
texta, sem setja sterkan svip á
lögin. Þessi plata er ekki einungis
í hópi hinna bestu sem Manna-
korn hafa sent frá sér heldur einn-
ig í hópi þeirra bestu sem út komu
fyrir þessi jól.
TÓNL E/KA R
Á HÓTEL BORB i KVÖLD KL. 22
Björk Guömundsdo »
og tríóGuömundaHng
fVliöaverö kr. 1
IllVINIR
iinimnlni
m
Laugavegi 45 - s. 21255
Föstud. og laugard.:
SNIGLABANDID
Þorláksmessa:
ÍSLANDSVINIR
Annar íjólum:
JÖTUNUXAR
28. og 29. des.:
NÝUÖNSK
Gamlárskvöld:
ÍSLANDSVIHIR og fl.
Gledilegjól