Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 71
IÞROTTIR i
:r
jaaa
HANDKNATTLEIKUR/ALÞJOÐLEGT MOT KVENNA
Heppnin var með A-liðnu
tryggði sérsigurá lokamínútunum
Heppnin var með A-landsliðinu gegn ungl-
ingalandsliðinu í leik liðanna í Keflavík
í gærkvöldi. Unglingaliðið virtist lengi vel
ætla að vinna sinn annan sigur í mótinu, en
á lokamínútunum fór allt úr-
Björn skeiði hjá liðinu og það nýttu
Blöndal stúlkumar sér í A-liðinu og
sigraðu með 3ja marka mun,
21:18. í hálfleik var staðan
12:9 fyrir unglingaliðið.
skrifarfrá
Keftavik
Leikur íslensku landsliðanna var ákaflega
jafn framan af og jafnt var á öllum tölum að
7:7 og voru stúlkurnar í unglingaliðinu alltaf
fyrri til að skora. Þá kom góður kafli og þær
komust í 10:7 og í hálfleik var staðan 12:9.
I síðari hálfleik náði A-liðið fljótlega að jafna
13:13 og síðan var jafnt á öllum tölum þar
til rúmar 3 mínútur vora til leiksloka og stað-
an 18:18. Þá komu 3 mörk í röð frá A-liðinu
sem þar með tókst að tryggja sér sigur í leikn-
um. Bestar í A-liðnu voru markverðirnir Kol-
brún Jóhannsdóttir og Sigrún Ólafsdóttir.
Sóknarleikurinn var bæði einhæfur og hug-
myndasnauður og þann þátt þarf að laga.
Skortur á einbeitni varð unglingaliðinu að
falli að þessu sinni og gerði liðið sig sekt um
byijendamistök á örlagaríkum augnablikum á
lokamínútum leiksins. í liðnu era margir efni-
legir einstaklingar sem áreiðanlega eiga eftir
að knýja dyra hjá A-liðinu áður en langt um
líður.
Kolbrún Jóhannsdóttir, markvörður
íslenska liðsins stóð sig vel í gærkvöldi.
Öruggur sigur hjá
spænsku stúlkunum
Fátt virðist nú geta komið í
veg fyrir sigur spænskan sig-
ur á alþjóðamótinu eftir stór-
sigur spænsku stúlknanna á
Portúgal í íþróttahúsinu í
Keflavík í gærkvöldi. Lokatöl-
ur leiksins urðu 28:15 eftir
að staðan í hálfleik hafði ver-
ið 13:6.
Jafnræði var með liðunum
fyrstu mínúturnar og portúg-
ölsku stúlkurnar virtust ætla að
standa í nágrönnum sínum. En
■!■■■■ þegar staðan var
Bjöm 6:6 og portúgal í
Blöndal sókn var dæmt
skrifarfrá heldur vafasamt
skref á þær port-
úgölsku í hraðaupphlaupi sem
virtist setja þær algerlega úr jafn-
vægi og þær skoraðu ekki meira
í fyrri hálfleik. Spænsku stúlkurn-
ar skoruðu hins vegar hvert mark-
ið á eftir öðra og voru komnar
með yfirburðarstöðu í hálfleik -
og eftirleikurinn var eftir því.
HANDKNATTLEIKUR /LANDSLIÐIÐ
„Hæfilega bjartsýnn
- segirÞorbergurAðalsteinsson, landsliðsþjálfari
u
>,EG er hæfilega bjartsýnn fyrir leikina
gegn Þjóðverjum. Strákarnir eru stað-
ráðnir í að gera sitt besta og það er
góð stemmning í hópnum," sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari,
í samtali við Morgunblaðið igærkvöldi.
Islenska liði leikur gegn Þjóðveijum í
Lubeck í kvöld. „Við föram óhræddir í
þennan leik og við vitum að pressan er á
Þjóðveijum eftir tvö töp heima á íslandi og
þar sem leikurinn verður sýndur í beinni
útsendingu í þýska sjónvarpinu,“ sagði Þor-
bergur.
Hann sagði að ferðalagið hafi gegnið vel,
en liðið fór frá Keflavík til Hamborgar með
viðkomu í Kaupmannahöfn í gærmorgunn.
Pyrri leikurinn fer fram í kvöld kl. 18.30
að íslenskum tíma, en síðan verður leikið
öðru sinni á morgun í Schwerin. Þorbergur
fór út með 15 leikmenn og eina breyting frá
, leikjunum hér á landi var að Bjarki Sigurðs-
son kemur inn fyrir Gunnar Beinteinsson.
Liðið er annars skipað eftirtöldum leikmönn-
um:
Markverðir: Bergsveinn Bergsveinsson,
Guðmundur Hrafnkelsson og Hrafn Mar-
geirsson.
Aðrir leikmenn:Konráð Olavson, Jakob Sig-
urðsson, Birgir Sigurðsson, Geir Sveinsson,
Bjarki Sigurðsson, Valdimar Grímsson, Pat-
rekur Jóhannesson, Jón Kristjánsson, Sig-
urður Bjamason, Gylfí Birgisson, Einar Sig-
urðsson og Stefán Kristjánsson.
Valdimar Grímsson leikur aðeins fyrri leik-
inn í kvöld, en verður síðan að fara heim
vegna vinnu. Þorbergur sagði að leikurinn í
kvöld yrði mjög erfiður. „Við eram að byggju
upp eins og Þjóðverjar og eram með marga
nýja leikmenn. Ég held að mælikvarðinn á
styrkleika íslenska liðsins komi ekki í ljós
fyrr en í mótinu á Spáni í janúar þegar við
höfum alla okkar bestu menn,“ sagði lands-
liðsþjálfarinn.
Bjarki Sigurðsson kemur inn í landsliðið á ný og leikur gegn
Þjóðverjum í kvöld.
U-16ARA LIÐIÐ
iðhefiir
verid
valið
- íyrir alþjóðlega-
mótið í ísrael um
áramótin
ÍSLENSKA drengjalandslið-
ið í knattspyrnu, U-16 ára,
tekur þátt í alþjóðlegu móti
í ísrael um áramótin. Pilta-
landsliðið hefur verið með í
keppninni undanfarin ár, en
drengjaliðið er að undirbúa
sig fyrir úrslitakeppni Evr-
ópumótsins, sem verður í
Sviss í maí, ogþví ákveðið
að það færi til Israel að
þessu sinni.
Islands verður í B-riðli og leik-
ur fyrsta leikinn gegn Port-
úgal 27. desember, daginn eftir
veiður leikið við Tyrki og loks
Pólveija 30. desember. Á gaml-
ársdag verður leikið um sæti,
en úrslitaleikur mótsins fer fram
2. janúar. Liðið heldur utan ann
an dag jóla og kemur heim 3.
janúar.
Þói'ður Lárusson og Kristinn
Björnsson, þjálfarar U-16 ára
liðsins, hafa valið eftirtalda leik-
menn til fararinnar:
Alfreð Karlsson, ÍA
Árni Arason, ÍA
Brvnjóifur Sveinsson, KA
Gunnar Egill Þórisson, Víkingi
Gunnlaugur Jónsson, ÍA
Helgi Sigurðsson, Víkingi
Hrafnkell Kristjánsson, FH
ívar Bjarklind, KA
Jóhann Steinarsson, ÍBK
Jón Gunnar Gunnarssbn, FH
Lúðvík Jónasson, Stjömunni
Orri Þórðarson, FH
Pálmi Haraldsson, ÍA
Sigurbjörn Hreiðarsson, Val
Sigurvin Ólafsson, Týr Vestm.
Viðar Erlingsson, Stjömunni
Þorvaldur Asgeirsson, Fram
Fararstjórar verða Gylfi Orra-
son og Jóhannes Sveinbjöms-
son. Auk þess fer Einar Jonsson
læknir með liðinu og svo Guð-
mundur Stefán Maríasson, dóm-
ari.
URSLIT
HANDKIMATTLEIKUR
ísland - Unglingal.
21 : 18
Iþróttahúsið í Keflavík, alþjóðlegt mót í
handknatlleik kvenna, fnnmtudaginn 20.
desember 1990.
Mörk A-landsliðsins: Rut Baldursdóttir 4,
Andrea Atladóttir 3, Inga Lára Þórisdóttir
3, Björg Gísladóttir 2, Ósk Víðisdóttir 2,
Guðný Gunnsteinsdóttir 2, Brynhildur Þor-
geirsdóttir 2, Inga H Pálsdóttir 1, Elísabet
Þorgeirsdóttir 1, Kristín Pétursdóttir 1.
Mörk unglingaIaiidsliðsins:Herdís Sigur-
bergsdóttir 4, Halla M Helgadóttir 4, Auður
Hermannsdóttir 3, Heiða Erlingsdóttir 3,
Hulda Bjarnadóttir 2, Sigrún Másdóttir 1,
Svava Sigurðardóttir 1.
HANDKIMATTLEIKUR
Spánn - Portúgal
28 : 15
íþróttahúsið í Keflavík, alþjóðlegt mót í
handknattleik kvenna, fimmtudaginn 20.
desember 1990.
Mörk Spánar:Dolores Assin 6, Montserrat
Puche 5, Julis Aparico 4, Raqvel Vizcaino
2, Begona Sanchez 2, Cristina Gomez 2,
Jzaskun Muaika 2, Paldus Arranz 2, Esper-
anza Tereero 2, Kannelle Magazaga 1.
Mörk PortúgahAna Sorral 5, Julia Calado
3, Fernanda Rova 2, Pauia Castro 1, Ana
Leitao 1, Micaele Silva 1, Helena Mendes
1, Paula Santo 1.
knAttspyrna
Vináttuleikur:
Oporto, Portúgal:
Portúgal - Bandaríkin......1:0
Domingos Oliveira (8.). 2.000.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Leikir í NBA-deildinni á miðvikudag:
New York - Miami Heat..104: 94
Cleveland - LA Lakers...84: 74
Detroit - Chicago Bulls.......105: 84
Boston Celtics - Philadelphia.115:105
New Jersey - LAClippers..118:105
Washington - Indiana..........114:112
San Antonio - Denver..... 144:109» -
Phoenix Suns - Minnesota.112: 9o
FOLK
■ GUNNAR Guðmundsson, leik-
maður með ÍK í knattspyrnu, hefur
gengið til liðs við Víking.
■ BJÖRN Einai’sson, sem Iék
sjö Ieiki með Víkingum í 1. deild
1989 hefur gengið til iiðs við Fylki
sem leikur i 2. deild næst sumar.
■ FRANZ Beckenbauerverður
áfram þjálfari franska liðsins Ma-
seille ef marka má orð stjórnar-
formannsins, Bernard Tapie, í
samtali við Reuter-fréttastofuna í
gær. Beckenbauer, hefur iýst því
yfir að hann væri tilbúinn að hætta
sem þjálfari liðsins vegna ágrenings
við Tapie. „Beckenbauer hefur
þurft á aðstoðarmanni að halda sem
þekkir vel til franska boltans. Ég
er með góðan þjálfára inní mynd-
inni og nafn hans mun koma fram
innan fárra daga. Ég viðurkenni
að hafa gert mistök. Ég hélt að það
væri nóg að ráða þjálfara sem stýrði
vestur-þýska landsiiðinu til sigurs
ÍHM, en það er misskilningur. Þeg-
ar þjálfarinn talar ekki sama tungu-
mál og leikmennirnir er ekki hægt
að gera ráð fyrir toppárangri. Því
höfum við farið þá leið að finna
aðstoðarmann hans,“ sagði Tapie.
■ ARI Heikinnen, finnski lands-
liðsmaðurinn í knattspyrnu, hefur
skrifað undir samning við Brighton
sem leikur í 2. deild ensku knatt-
spyrnunnar. Brighton greiðir
finnska liðinu Turku 150 þúsund
pund fyrir Heikinnen, sem er 25
ára gamall sóknarmaður.
Idag
Handknattleikur: Alþjóðlegu
móti kvenna lýkur í kvöld í
íþróttahúsinu í Keflavík. ís-
land U leikur gegn Spáni kl.
18.30 og kl. 20.15 leikur ís-
land A - Portúgal.