Morgunblaðið - 23.12.1990, Qupperneq 1
72 SIÐUR
295. tbl. 78. árg.
SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/RAX
LÁGAFELLSKIRKJA í MOSFELLSSVEIT
Óttast að valdataka hersins
hefjist í EystrasaJtsríkjimum
- segir Ramunaz Bogdanas, aðstoðarmaður Landsbergis, í samtali við Morgunblaðið
„ÉG óttast að valdataka hersins hefjist í Eystrasaltsríkjunum og ef
til vill Georgíu," sagði Ramunaz Bogdanas, aðstoðarmaður Vytautas
Landsbergis, forseta Litháens, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Bogdanas lét þess getið að ráðamenn í Litháen byggjust ekki við
því að geta farið í jólafrí að þessu sinni. „Það er ýmislegt sem bend-
ir til að eitthvað gerist fyrir áramót. Ég get nefnt sem dæmi um
ógnina að núna áðan sá ég herþyrlur fljúga yfir þinghúsið sem hef-
ur ekki gerst síðan í mars.“ Vladímír Kríjútskov, yfirmaður sovésku
öryggislögreglunnar KGB, sagði í gær að vegna ógnana utan frá
og innan blasti upplausn við Sovétríkjunum. í ræðu á fulltrúaþing-
inu sakaði hann leyniþjónustur erlendra ríkja um að grafa undan
Sovétríkjunum og sagði að aðskilnaðarsinnar í Eystrasaltsríkjunum
og Georgíu hefðu komið sér upp 26.000 manna her.
Kazimiera Prunskiene, forsætis-
ráðherra Litháens, sem nú er stödd
í Tókýó, höfuðborg Japans, hvatti
vestrænar ríkisstjórnir til þess í gær
að taka harðari afstöðu gagnvart
Míkhaíl Gorbatsjov, forseta Sov-
étríkjanna, til þess að hamla gegn
einræði í Sovétríkjunum, sam-
kvæmt frétt fteuters-fréttastofunn-
ar. Hún sagði að vestræn ríki ættu
að hóta að hætta aðstoð við Sov-
étríkin vegna daðurs Gorbatsjovs
við harðlínumenn. „Það er fáránlegt
af vestrænum ríkjum að styðja
Gorbatsjov skilyrðislaust óháð
stefnu hans í innanríkismálum.“
Prunskiene sagðist telja að afsögn
Edúards Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, væri aðvör-
un til heimsbyggðarinnar um að
harðlínumenn í kommúnistaflokkn-
um og hlutum hersins væru að ná
völdum. „Þeir voru í þann mund
að bola honum burt og hann ákvað
að senda heimsbyggðinni skilaboð."
Afsögn Shevardnadze hefur vak-
ið ótta í Eystrasaltsríkjunum. Gor-
batsjov sagði fyrr í vikunni á full-
trúaþinginu í Moskvu að hann
myndi e.t.v. lýsa yfir neyðarástandi
á „erfiðum svæðum" og er talið að
hann hafi átt við Eystrasaltsríkin
og Georgíu. Prunskiene sem hafði
áformað að snúa heim 29. desemb-
er eftir heimsókn til Astralíu sagði
að það gæti farið svo að hún þyrfti
að hraða heimferð sinni ef Gorba-
tsjov léti til skarar skríða. Hún
sagði að Shevardnadze hefði verið
einarður bandamaður Eystrasalts-
þjóðanna. „Sem Georgíumaður
skildi hann vonir okkar og það er
hann sem hefur komið í veg fyrir
að herinn tæki völdin í Eystrasalts-
ríkjunum," sagði Prunskiene.
„Shevardnadze sagði mér sjálfur
að ef einhver vandamál kæmu upp
þá skyldi ég tala við hann. Það er
lionum að þakka að allt hefur farið
friðsamlega fram til þessa.“
Ramunaz Bogdanas sagði að það
ylli áhyggjum að fyrir tveimur dög-
um hefðu hermenn í hafnarborginni
Klaipeda fengið heimild til að leita
á óbreyttum borgurum á götu úti,
handtaka þá og skjóta ef um mót-
þróa yrði að ræða. „Aðferðir Sovét-
valdsins minna á kyrkingu, þær
vekja minni athygli en ef um
skyndilegt valdarán væri að ræða,
en leiða til sömu niðurstöðu." Bogd-
anas vitnaði í heimildir leyniþjón-
ustumanna i Svíþjóð sem yfirmaður
sænska heraflans hefði sagt frá í
Aftonbladet að herinn myndi taka
völdin innan tíðar í Sovétríkjunum.
Bogdanas, sem kom hingað í
sumar, var spurður um viðbrögð
yfirvalda í Litháen við þingsályktun
Alþingis um Litháen frá því fyrr í
vikunni. „Við höfum ekki heyrt um
hana,“ sagði Bogdanas. Hann gerði
svo hlé á máli sínu og sagði nokkur
orð á móðurmáli sínu við annan
mann. Svo kom hann aftur í símann
og sagðist hafa spurt Landsbergis
forseta landsins hvort hann hefði
heyrt um þingsályktunina en svo
var ekki. „Landsbergis bíður
spenntur eftir að heyra hver yfirlýs-
ing Alþingis var,“ sagði Bogdanas.
Lech Walesa.
Walesa sver
embættiseið
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa sór í gær emb-
ættiseið sem forseti Póllands.
Hann er fyrsti forseti Póllands
sem kjörinn er í lýðræðislegum
kosningum.
Þingmenn risu úr sætum og
fögnuðu Walesa innilega þegar
hann hafði tekið við embætti. „Á
þessari stundu hefst saga þriðja
pólska lýðveldisins,“ sagði hann í
ávarpi. „Þeim skuggalegu tímum
er lokið er yfirvöíd í ríki okkar voru
valin undir þrýstingi erlendis frá. í
dag stígum við örlagaríkt skref á
langri og blóði drifinni leið til sjálf-
stæðis.“