Morgunblaðið - 23.12.1990, Page 15

Morgunblaðið - 23.12.1990, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER ,19,90 15 dýrustu djásnum á altari trúarinn- ar, aleigunni og jafnvel lífinu, til þess að hljóta náð fyrir augum guðs. Trúin ristir djúpt í hugsun, sálarlífí og menningu þjóða í öllum ‘löndum veraldar. Listamenn hafa tileinkað guði sín bestu verk. Hin klassísku verk tónskáldanna eru flestöll tileinkuð guði. Hugmyndin um guð er ódauðleg í mannshugan- um og maðurinn er trúarleg vera, því allir einstaklingar verða að taka ákvörðun um að trúa á guð eða ekki. Það kemst enginn undan þeirri ákvörðun. Efinn er mannlegur þáttur sem aldrei er langt undan og hinn trú- aði hlýtur ævinlega að spyija sjálf- an sig: .„Hví trúi ég? Hver er hug- mynd mín um guð?“ Hann er einn- ig spurður af öðrum hvers 'vegna hann trúi og ef hann svarar „bara“, þá hljómar það nú hálfdapurlega. Tómas Aquinas sagði að menn ættu að hugsa og finna heimspekileg rök til að réttlæta trú sína og verja hana spurningum heiðingjanna. Menn eiga alltaf að hugsa, hvort sem um trú þeirra eða trúleysi er að ræða og þorá að hugsa um hvað sem er og hugsa jafnvel fram á ystu nöf hugans. Annars skreppur hugsunin saman og deyr. Nú ætla ég að hugsa áfram og takast á við guðshugmyndina. Glíma eina glímu við guð uns dags- brún rennur upp. Margar spurning- ar vakna þegar hugað er að guði. Hvar er guð? Tilheyrir hann for- tíðinni, nútíðinni eða heimi fram- tíðarinnar? Hann var, er og verður og hefur því þijár hliðar. Hann heyrir undir fortíðina sem upphaf heimsins og tímans, en hefur sem slíkur engin bein áhrif á mannkyns- söguna eða daglegt líf manna. Hann er það sem ýtti skipi lífsins úr vör en skipið siglir síðan um alheimshöf og getur lagt í hverri höfn og farið hvert á land sem er. Þetta er fyrsta hlið guðs. Guð var Alfa, upphafið, það sem hrinti öllu af stað. Til að skýra hugmynd mína um upphaf heimsins er hægt að birta stærðfræðijöfnu eða nota til þess eðlisfræðilíkan, en það má einnig beita öðrum aðferðum hugsunar- innar, til að mynda hinum skáldlega stíl: í upphafi var guð einn og ein- mana í tóminu. En ást hans á öðru en sjálfum sér var svo mikil og þrá hans til að elska eitthvað annað var svo gífurleg, og ástin og ástarþján- ingin svo gríðarlega heit að orka hans þjappaðist óendanlega þétt og krappt saman uns hún sprakk. Sprengingin er kölluð hvellurinn mikli eða miklihvellur og var upp- haf tímans og alls efnis í alheimin- um. í miklahvelli bjó ósk um líf og í óskinni voru nákvæmlega valin gildi með það markmið í sér að gera þróun lífsins mögulega. Og hin guðlega skynsemi eða logos, valdi náttúrulögmálin af kostgæfni með lífið í huga. Lífið á sér því upphaf í ástarþrá guðs eftir ein- hveiju öðru en sjálfum sér og þess vegna var upphafsástand heimsins með jörðina í burðarliðnum. Al- heimurinn þandist síðan jafnt og þétt út og þegar hann hafði kólnað nægjanlega sameinuðust atóm í stærri heildir á jörðinni og lífið kviknaði, og lífverur þróuðust. Mað- urinn varð líkur guði og um æðar hans streymir ástin, þjáningin, löngunin, óskin, vonin, reiðin og brot af öllu tilfinningalífi guðs, en einnig býr skynsemin í blóðinu. Heimurinn allur hvílir í faðmi guðs og þarf ekki að styðja sig við neitt annað. Hér er einmitt komin guðshliðin sem streymir um æðar mannsins og er huíin í bijósti, blóði eða sál sérhvers manns. Guð er rödd sem hvíslar sannleikann lágum rómi og aðeins eyru skynseminnar geta numið óminn. Þannig er sambandi guðs við manninn háttað. Menn geta hlustað á rödd hans og spurt og leitað svara með rannsókn skyn- seminnar sem kafar í sálardjúpin í leit að þekkingu á guði og sjáifum sér. I rauninni að óvirkri þekkingu sem býr í sálinni eða skynseminni. En guð lifir líka með okkur sem upphaf. Hann er það sem hefur hugsunina til flugs, því í upphafi var logos sem merkir orð, hugsun og skynsemi. Logos er lögmálið sem Spámaðurinn Jeremía, freska í lofti Sixtínsku kapellunnar eftir Michelangelo olli því að við erum til og kom skipu- lagi á alheiminn. Logos er Reglan. Guð er óendanleg bylgja sem liggur frá upphafínu eða fortíðinni í gegn- um nútíðina og inn í framtíðina. Örbylgjukliðurinn sem streymir jafnsterkur úr öllum áttum til jarð- arinnar er ást guðs við upphaf tímans — til lífsins. Orð guðs er það sem skynsemi mannsins getur öðlast þekkingu á en guð er ekki aðeins Orð heldur sannleikurinn allur. Hinn varanlegi innri veruleiki sem skilningsljósið getur brugðið daufri birtu á. Hann er lifandi veruleiki sem getur endur- goldið ást mannanna. Guð er í raun- inni takmark skynseminnar og hins mannlega vilja. Hann er hinn al- vitri vilji sem veikur vilji mannsins getur tengst. Hann er líka endan- legt takmark ástarinnar, því guð þráir ást mannanna og i hans fyrsta boðorði felst beiðni um ást. Guð er möguleiki, innri mögu- leiki, sem maðurinn getur komist í snertingu við. Maðurinn veit sjaldn- ast hvað best er að gera en með því að tengjast guðsviljanum og segja verði þinn vilji en ekki minn, þá fullkomnast viljinn og hið besta gerist hvað sem það er. Guð er innri máttur sem maðurinn þarf að virkja af fúsum og fijálsum vilja. Guð er innra með mönnum og fullyrðingin „Guðs ríki er innra með yður“ (Lúk. 17.26) staðfestir það og einmitt á þann hátt er guð persónulegur. Guð var Alfa eða uphafíð, guð er innra með öllum mönnum og guð verður Ómega eða endirinn, en það er þriðja guðshliðin. „Ég tilbý ljósið og framleiði myrkrið" Hvernig er guð? Það þarf að nálgast hann frá tveimur sjónar- hornum til að skilja hann. Annars- vegar sem upphafið og hinsvegar sem innri veruleika mannsins. Hann er sannleikurinn óendanlegi, hann er varanlegur en birtist okkur á margan hátt. Hann er eilífur en er jafnframt upphaf tímans og býr í tímarúminu. Hann er Orð, en allt efni er gert úr honum. Hann er eining en samt þrennur á margan hátt, til að mynda sem fortíð, nútíð og framtíð, og faðir, sonur og heil- agur andi: Hann er faðir tímans og heimsins, hann er sonurinn eða veg- urinn til sjálfs sín, og hann er heil- agur andi sem býr innra með öllum mönnum. Skynsemi hans er hrein en hann er líka ást og tilfínningar. Hann er algóður og réttlátur en getur bæði veitt gleði og þjáningu. „Ég tilbý ljósið og framleiði myrkr- ið, ég veiti heill og veld óhamingju. Ég er Drottinn, sem gjöri allt þetta,“ er ritað í Jesaja 45, 7. En öll hans verk hafa göfugan tilgang sem felast í því að opna lokuð augu, aga og snúa mönnum frá hégóma sínum og blekkingu. Hann er alvitur, hann er upphaf- ið og endirinn og getur á þann hátt séð fyrirfram allar fijálsar viljaákvarðanir einstaklinganna, án þess að hafa áhrif á þær eða trufla nema til hans sé leitað. Hann er almáttugur. Hann er haf óþijótandi möguleika, ekkert er ómögulegt, allt sem hægt er að hugsa er mögu- legt. Guð er sannleikurinn, logos og eros (ást) sem mannleg skynsemi leitar þekkingar á, og sem tilfinn- ingarnar leita tengsla við. Sannleikurinn er einn, en af hon- um fara tvennar sögur. Heimurinn er einn, allt er eitt og í upphafí var allt nátengt. Lögmálið er eitt og reglan er ein sem liggur að baki alheiminum og sköpuninni. En regl- an hefur tvíeðli eða tvær hliðar. Annars vegar andlega, logos. Og hins vegar efnislega, sem eðlisfræð- ingar og stærðfræðingar rannsaka með góðum árangri. Sagt er frá þessu tvíeðli reglunnar, heimsins eða lögmálsins í Biblíunni. Jesús sagði: „Þér eruð neðan að, ég er ofan að. Þér eruð af þessum heimi, ég ér ekki af þessum heirni." (Jóh. 8.23). „Mitt ríki er ekki af þessum heimi.“ (Jóh. 18, 36.) Sú hugsun, að allt sé tvennt er ríkjandi í vest- rænum hugsunarhætti og kemur vel fram bæði í Biblíunni og einnig hjá Platóni. „Vér vitum að lögmálið er andlegt, en ég er holdlegur," (Róm, 8, 14) sagði Páll postuli. „Hver vill frelsa mig frá þessum dauðans líkama?" (Róm, 8, 24). Og Platón spurði „Hvenær getur sálin öðlast sannleikann, og hvenær öðl- umst við þekkinguna?“ „Eftir dauð- ann, því þá og ekki fyrr verða sálir okkar skildar frá líkamanum og óháðar honum," var svarið sem hann fann. Við höfum öðlast ágæta vísindalega þekkingu á efnishliðinni en það er erfíðara að rannsaka hina hliðina, þess vegna lofaði Platón dauðann. Hann taldi að veruleikinn yrði sálinni ljós þegar hún myndi losna undan þunga líkamans og að öll sú þekking sem fengist í gegnum líkamann væri fyrst og fremst fyrir tilstuðlan hinnar rökréttu hugsun- ar. Eru þróunarkenningin og sköpunarsagan báðar réttar? Maðurinn er andleg vitundarvera sem hugsar og talar. Hann veit af sjálfum sér, öðrum, umhverfi sínu og heiminum. Hann hefur sköpun- argáfu, visku og hjartagæsku og virðist þar af leiðandi ekki vera fullkomlega seldur undir lögmál náttúrunnar eins og önnur spendýr. Ekki er hægt að útskýra andagift skáldsins, visku hins vitra og hjarta- gæsku hins góða með því að vísa til erfðavísa, hormóna og efnafræði taugaboða, eða eiginleika og hegð- unar.efnisins. Er skáldagyðjan raf- segulkraftur? 0g spretta ljóð ljóð- skáldanna af rafhlöðnum ögnum? Á ljóðið sér uppruna í öreindum efnis- ins? Gerið tilraun og búið til vísinda- legt skýringarlíkan sem segir bæði til um hvernig þetta ljóð, eftir Snorra Hjartarson, varð til og hvað það merkir: Á grunnsævi kvölds flæðir gullinn straumur um þéttriðið net nakinna tijánna og fyllir þau Ijóskvikum fiskum. Bráðum kemur rökkrið undir brúnum seglum og vitjar um aflann. Er ekki miklu líklegra að þetta ljóð eigi sér uppruna í lögmáli hugs- unarinnar? Maðurinn þráir að skilja sjálfan sig, bæði persónulega og sem veru í tíma og rúmi. Hann spyr og von- ast til að getað svalað forvitni sinni. Hann spyr til að mynda: Er guð skapari okkar mannanna? Skapaði guð heiminn? Getum við sannað til- veru guðs með rökhugsuninni einni saman? Fyrst gefum við okkur for- senduna: „Ef heimurinn á sér upp- haf þá er guð til.“ Síðan rannsökum við málið vísindalega og komumst að því að heimurinn á sér upphaf sem hægt er að sanna. Þá getum við sagt: „Þar af leiðandi er guð til.“ En væri guð þá ekki til ef heim- urinn ætti sér ekkert upphaf? Gæti ekki eins verið, að við kæmust að því að heimurinn ætti sér ekkert upphaf og „þar af leiðandi er guð til“, eins og í fyrri rökfærslunni? Guðir mannanna hafa verið fjöl- margir og margar eru sköpunarsög- umar en í þjóðsögum flestra landa er sannleikskjarni, til dæmis í grískri og norrænni goðafræði, og er athyglisvert að bera goðsagnim- ar saman. í upphafí var Ginnunga- gap eða gapandi tóm og ómælis- djúp, samkvæmt norrænum sögn- um. Óðinn og bræður hans drápu Ými jötun og drógu í mitt Ginnuna- gap. Úr skrokknum var jörðin gerð og hauskúpan var notuð sem him- inn. Síðar skapaði Óðinn fyrstu mennina úr tijádrumbum, hann blés guðlegum anda sínum í þá. Lóður gaf þeim mátt skynseminnar og skynfæranna. Hænir gaf þeim mál- ið. Veröld manna og goða endar að lokum með ragnarökum. Hin foma goðafræði ýmissa þjóða þarf ekki endilega að vera röng, hún er frekar sem skáldskap- arlíking sem tjáir hluta sannleik- ans. Heimspekin er aftur á móti vísindaleg hugsun með skáldskap- arlegu ívafí. Hún leitar að vísinda- legum skýringum og skilgreining- um á hugtökum og notast því ekki við goðafræðina nema að takmörk- uðu leyti. Heimspekingar geta ekki beinlínis fullyrt að goðsagnir séu rangar því skáldskapur getur tjáð sannleika undir merkjum ímyndun- araflsins. Skáldið getur búið sögu sem aldrei myndi eiga sér stað í heiminum, en þrátt fýrir það gæti sagan varpað einhveiju ljósi á sann- leikann ogjafnvel lýst honum betur og á skiljanlegri hátt en nokkur fræðigrein vísindanna. Biblían er um okkar guð. í fyrstu Mósebók (Genesis) er sköpunarsög- una að finna. Sköpunarsagan getur verið sönn þó hún sé ef til vill að- eins ljóð um upphaf heimsins. Hvort er sannara, nákvæm vísindaleg út- listun á tilurð veraldarinnar eða snilldarlegt Ijóð um hið sama? Hvort er sannleikurinn í skýrslu vísinda- mannsins eða í ljóðabók skáldsins? Er hann ekki hjá þeim báðum? Það er hægt að lýsa honum á óendan- lega marga vegu. Skýrslan og ljóð- ið eru aðeins tveir möguleikar. Þrátt fyrir það er sannleikurinn eilíflega hinn sami. Menn túlkuðu sköpunarsöguna bókstaflega um langan aldur og trúðu að guð hefði skapað mennina í einu vetfangi. Kenning Charles Darwins (1809-1882) um þróun tegundanna samræmist við fyrstu sýn ekki sköpunarsögunni, en vísindamenn hafa síðan sýnt og sannað að þróun lífsins var afar hæg og tók milljónir ára. Talið er að lífið hafi fyrst kviknað í sjónum þegar atóm sameinuðust í stærri heildir og síðan hafí lífíð þróast smátt og smátt í ýmiskonar sjávar- dýr. Eftir langa mæðu tóku sumar tegundir að leika sér í fjörunni og skriðu seinna endanlega á land og gerðust landdýr. Hlýtur ekki að hafa verið gert ráð fyrir lífínu í upphafi? Eða kviknaði lífið af tilvilj- un og eru öll þessi lífsskilyrði að- eins hending? Hugsanlega var forveri manna dýr á ijórum fótum sem reis upp um síðir, felldi hárin, klæddi sig, uppgötvaði eldinn og verkfæri hverskonar, reisti sér jafnvel kofa. Heilinn var óvenjulega vel heppnað- ur í þessu dýri. Darwin gaf þetta í skyn og eins og gefur að skilja sló prestum og vísindamönnum saman og deildu þeir oft hatramm- lega. Darwin var talinn villimaður og útsendari djöfulsins. Deilan stóð um það hvort sköpunarsagan eða þróunarkenningin væri rétt. En er þessi spurning kannski röng: „Hvort er sköpunarsagan eða þró- unarkenningin rétt?“ Getur ekki SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.