Morgunblaðið - 23.12.1990, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1990
=1
Tækin
sem stilla þig
inn á góða skapið
STÍLHREINT FERÐATÆKI
Útvarps og kasettutæki með fullkomnum vekjara.
Stafræn klukka, innbyggður hljóðnemi,
og margir fleiri kostir. Verð kr -| 5.250,-
Verdi og Rigoletto
eftir Jón Ragnar
Höskuldsson
í mars 1850 barst Giuseppe
Verdi, sem þá var 37 ára, beiðni
frá stjórn óperunnar í Feneyjum,
Teatro La Fenice, að skrifa nýja
óperu fyrir leikhúsið til flutnings á
hátíðarhöldum, snemma næsta árs.
Verdi hafði átt gott samstarf við
Feneyinga við uppfærslu tveggja
fyrri ópera sinna, Ernai og Attila,
Og tók því þessari málaleitan vel
og bundist var fastmælum um áð
hin nýja ópera yrði tilbúin til flutn-
ings í febrúar 1851. Verdi leitaði
umsvifalaust til Francesco Maria
Piave, sem þá hafði þegar skrifað
sex óperutexta fyrir Verdi, til að
finna áhugavert söguefni. Fyrir
valinu varð skáldsagan „Le Roi
s’amuse", eða „Konungurinn
skemmtir sér“, eftir Victor Hugo
og fjallar á frjálslegan hátt um
Franz fyrsta, gjálífan konung
Frakka á öndverðri 16. öld.
Ítalía laut austurrískum yfirráð-
um á þessum tímum. Piave sann-
færði Verdi um að austurríska rit-
skoðunin, sem sífellt þurfti að taka
tillit til, gæti ekki sett sig upp á
móti efm sögunnar og hófst þegar
handa. Óperan skyldi heita „La
maledizione" eða „Formælingin".
Það varð þeim því mikið áfall þegar
stjórn óperunnar barst bréf þremur
mánuðum fyrir áætlaða frumsýn-
ingu frá austurrískum yfirvöldum
þar sem lagt var blátt bann við
sýningu verksins.
Þessi niðurstaða hefði þó ekki
átt að koma á óvart. Leikrit Hugos
var bannað eftir fyrstu sýningu
þess í París 1832. Það lagði áherslu
á ógeðfellda framkomu þess aðals
sem þjóðin átti að hylla og það að
konungbornum manni skyldi for-
mælt, eins og í leikritinu var gert
en breytt var í endanlegri útgáfu
óperunnar, þótti aldeilis ekki boð-
legt. Þá þótti ekki við hæfi að sýna
kryppling á sviði í návist slíkra stór-
menna.
Settust nú forráðamenn leikhúss-
ins niður með Verdi og reyndu að
fá hann til að samþykkja nauðsyn-
legar breytingar á textanum til að
uppfylla kröfur hinna austurrísku
Kostas Paskalis í hlutverki Rigo-
lettos.
herra. Vegna þrákelkni Verdis og
með ábendingum frá vinhollum
austurrískum embættismönnum
urðu breytingar þó minni háttar.
Gengið var frá samkomulagi 30.
desember 1850 þar sem sögusviðið
var fært frá frönsku hirðinni til
minni háttar hertogadæmis á Ítalíu.
UTVARPSVEKJARI
meö tveimur aðskildum hringingum,
stilltur á rafhlöðu sem tekur
við ef rafmagnið slær út.
RM 7400
Verð frá 2.830,-
RP 8800
Verð frá 4.050,-
ELDHÚSTÆKHE) VINSÆLA
Sterkt og gott tæki með þægilegum hljómi.
M 1740
FERÐATÆKI
Útvarp og kassettutæki með sterku útvarpi
og góðum hljómi. Verð kr. 5.850,-
K '
M 7033
Verð kr. 7.800,“
FERÐATÆKI ’
Sterk, fáanlegt í þremur litum, innbyggður hljóðnemi og
stereo sem gefur því góðan hljóm.
VASADISKÓ
MGR 78
í miklu litaúrvali og mörgum stærðum. 0 .rA
Verð frá 2.45U,"
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780
Hitaveitan NN
eftir dr. Benjamín H.J.
Eiríksson
Það er óhjákvæmilegt að taka
hitaveituna enn á dagskrá, Hita-
veitu Reykjavíkur. Sitt af hveiju
heyrist þessa dagana, sem hlýtur
að vekja athygli þeirra er búa við
mjög ófullnægjandi hitaveitu.
Hitaveitan tryggir ekki heitt
vatn, sagði hitaveitustjóri og auð-
skilið að hann átti við það, að Hita-
veita Reykjavíkur bæri ekki ábyrgð
á því, að notendurnir fengju nægi-
lega heitt vatn, vatn eftir þörfum.
Það myndi ekki þýða að leita til
dómstólanna.
Mer þykir gæta nokkurs hroka
embættismannsins í þessum orðum.
Hitaveitan er eign borgaranna og
einmitt stofnuð til þess að ábyrgj-
ast þeim nægilegan hita með hita-
veitunni og það einmitt þegar kalt
er og vilja þeir að framkvæmdir og
rekstur miðist við það. Klakaðar
íbúðir eru ekkert gamanmál, ekki
sízt fyrir gamla og sjúka, til dæmis
lungnasjúklinga. Borgararnir eru
hinn rétti húsbóndi. Þegar ráðs-
mennirnir reynast ónýtir eiga þeir
að víkja.
Ný dælustöð hefur verið sett upp
í skyndi fyrir Hafnarfjörð. Hún er
eins konar eftirþanki, þanki sem
ýtt hefir verið til hliðar á undanföm-
um árum, sökum „brýnni“ verkefna
en þess, að leggja nýja leiðslu til
Hafnarfjarðar.
Hitaveitustjóri sagði að með dæl-
ustöðinni ætti vatnið að nægja í
6-7° frosti. Hvaðan vatnið í dælu-
stöðinni ætti að koma, sagði hann
ekki hver væri aflögufær. Hér í
Vesturbænum eru kaldir ofnar þeg-
ar þetta er skrifað.
Fer vatnið, sem nú hverfur, til
Hafnarijarðar?
Mér sýnist augljóst að hin pólit-
íska stjórn hitaveitunnar, svo og
hin tæknilega, hafi hvor tveggja
brugðist. Það er ekki einleikið hve
illa stjórn hitaveitunnar gengur að
átta sig á viðfangsefninu, vanda-
málunum. Sem viðmiðun er viðmið-
un hitaveitustjóra algjörlega ófull-
nægjandi. Stjórn hitaveitunnar
virðist alls ekki geta gert sér í hug-
arlund, hvers konar ástand geti
myndast hér á höfuðborgarsvæðinu
hvaða dag sem er. Erfitt ástand
gæti snúist í hreinan hrylling.
Árið 1918 hefði mátt sjá hvað
hér gæti gerzt. Hér gæti staðið
15-20° frost dögum eðajafnvel vik-
um saman. Það ár fengu menn sér
göngutúra á þykkum ís út í skipin
sem lágu innifrosin úti á fírði í
Hafnarfirði. Hvar væmm vér stödd
með allt okkar í slíku ástandi, með
núverandi menn við stjómvöl hita-
veitunnar? Hér yrði stórkostlegt
tjón á mörgum sviðum: Klakaðar
íbúðir, skemmd tæki, sjúkt fólk,
mikil óánægja og vanlíðan.
Mig minnir að einhvern tím a
hafi heyrst að hitaveitan væri miðuð
Dr. Beiyamín H.J. Eiríksson
„í þessi verkefni hefðu
peningarnir átt að fara:
Leiðslu til Hafnarfjarð-
ar, nýja tanka, nýja
toppstöð og sjálfsagt
fleira sem koma myndi
í Ijós við rannsókn á
málefnum Hitaveitu
Reykjavíkur.“
við 15° frost. Eins og stendur er
hún langt fyrir neðan þetta.
Eitt af því sem mér virðist að
þurfi að gera strax er það, að auka
geymslurýmið, byggja fleiri tanka,
Afrek hesta og manna
Bókmenntir
Sigurjón Bjömsson
Guðmundur Jónsson og Þorgeir
Guðlaugsson: Hestar og menn
_ 1990. Árbók hestamanna. Slyald-
■ borg. Reykjavík 1990, 237 bls.
Árlegur viðburður er útkoma
| þessarar bókar enda er hún titluð
árbók. Hún kemur nú út í fjórða
» sinn og virðist því vera að festast
g í sessi. Eins og vera ber er þessi
B bók með sama sniði og hinar fyrri:
| sama brot, sama uppsetning, svipað
efnisval. Efni hennar skiptist í fímm
efnisþætti: ferðasaga, frásögn af
mótum, viðtöl við einstaka menn,
* sögulegt yfirlit og úrslit helstu
■ móta ársins.
Ferðasagan er að þessu sinni tíu
daga hestaferð um norðanverða
Vestfirði, þ.e. út Snæíjallaströnd,
yfir til Grunnuvíkur, fyrir Hrafns-
g fjörð, þaðan um Furuljörð, Reykjar-
ijörð nyrðri og allar götur í Stein-
grímsfjörð og þaðan yfir Stein-
grímsfjarðarheiði til Dýraijarðar.
Þetta var sem sagt mikil ferð og
oft um torleiði mikið. Ferðasagan
er skráð af fararstjóranum Gísla
Hjartarsyni á ísafirði. Þessi frásögn
hefur flesta þá kosti sem góð ferða-
lýsing þarf að hafa. Hún er glögg
leiðarlýsing og þar koma til hjálpar
velmerkt og skýr kort. Sagt er frá
landslagi, örnefnum o.þ.l. og all-
margar skemmtilegar myndir prýða
greinina. Ferðasaga er ekki góð
nema lesandi geti slegist með í ferð-
ina og upplifað hana að nokkru leyti
með ferðahópnum. Hvað það varðar
fullnægir þessi frásön kröfum þess
sem þetta ritar, nema hvað ég er
ekki alveg viss um að ég hefði ver-
ið alls kostar sáttur við hestakost-
inn!
Mótafrásagnir eru þijár. Þar er
fyrst að telja ellefta Landsmótið á
Vindheimamelum sl. sumar. Öllum
ber víst saman um að það mót hafi
í alla staði verið glæsilegt, þó að
einhveija galla mætti fínna eins og'
ávallt. um Landsmótið hefur tals-
vert verið skrifað og er því mesta
nýjabrumið farið af. En einhvern
veginn finnst mér að frásögnin
hefði mátt vera meira lifandi.
Myndir eru hins vegar margar
hveijar gullfallegar. Textabrengl
hefur þó orðið við myndir á bls. 30
og 31.
Minna hefur verið sagt frá þrett-
ánda íslandsmótinu sem nú var
haldið í Borgarnesi í sumar. Er það
fyrsta mótið á vegum Hestaíþrótta-
sambands íslands. Það mót þótti
takast með ágætum og er frásögn
af því prýðileg.
Loks er dálítil frásögn af Norður-
landamóti í hestaíþróttum sem
haldið var skammt frá Árósum á
Jótlandi. íslendingar tóku nú í
fyrsta sinn þátt í Norðurlandamóti.
Viðtöl við knapa, reiðkennara og
tamningamenn sem sumir eru jafn-
vel einnig hrossaræktendur eru