Morgunblaðið - 23.12.1990, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 23.12.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1990 45 Vinsælir viðkomu- staðir vínelskenda yi ENSK vín eru fáséð í verslunum. Ein öruggasta leiðin til að kom- ast yfir flösku er að heimsækja vínbónda og kaupa af honum beint. Um 65% af ensku víni eru seld þannig. Afgangurinn er að mestu seldur á veitingastöðum og í betri vínverslunum í ná- grenni við vínekrurnar. Kaup- maður í bænum Henley-on- Thames, sem er umkringdur vín- görðum á enska vísu, var löngu búinn að selja enska vínið sem hann hafði fengið þegar ég vildi kaupa af honum í haust. En ég fékk keypt hjá Leighton-fjöl- skyldunni sem framleiðir The Thames Valley-vín og David Ea- land á Old Luxters. Vínin voru vel drekkandi með mat hér í Sviss en af einhverjum ástæðum fannst mér þau betri þegar ég smakkaði þau í sveitasælunni í Englandi. Þau eiga betur heima þar, og ég sætti mig ágætlega við meginlandsvínin sem fást hér úti i búð. Ensku vínræktarsamtökin hafa gefið út lítinn bækling með lista_yfir víngarða í Englandi sem eru opnir almenningi. Flestir eru aðeins opnir á sumrin en nokkrir allt árið um kring. Margir bjóða upp á skipulagðar heimsóknir, vínsm- ökkun og vín til sölu og þó nokkrir hafa veitingastaði og leikaðstöðu fyrir böm. Þeir eru vinsælir við- komustaðir í helgarferðum og sunnudagsbíltúrum vínáhugafólks. Jarðarber eða vínekrur? Old Luxters er meðal þeirra sem eru opnir allt árið. Mark Gloyens, víngerðarmaður, gaf mér nákvæma leiðarlýsingu á hvernig ég kæmist þangað frá London. Ég þurfti samt að spyija nokkrum sinnum til veg- ar, bakka og snúa við í vinstrium- ferðinni til að finna víngarðinn. Hann stendur við þröngan sveita- veg í suðurhluta Oxfordshire og er ekki nema hektari (10.000 fermet'r- ' ar) að stærð. Skógar og „venjuleg- ir“ sveitaakrar eru allt í kring og það er ekki fyrr en maður er kom- inn upp bratta brekku og fyrir horn sem maður sér grænan vínviðinn teygja sig til sÖlar í beinum og skip- ulögðum röðum. David Ealand, eigandi Old Luxt- ers, keypti búgarðinn og hluta landsins sem fylgdi honum fyrir ellefu árum. Bærinn var þá í nið- urníðslu en fyrri eigandi hafði stundað svínarækt. Ealand var haf- málalögfræðingur í fjármálaheim- inum í London. Hann og Fiona, kona hans, sem dó úr krabbameini í sumar, veltu fyrir sér hvort þau ættu að fá sér hesta eða rækta jarð- arber á landareigninni en komu sér loks saman um að hefja vínrækt. ‘ Þau létu sér ekki nægja að rækta vínber heldur komu sér upp brugg- húsi með tækjabúnaði til að búa til vín og tappa á flöskur. Nú framleið- ir Ealand um 10.000 flöskur af Old Luxters-víni á ári og 25.000 flöskur af Chiltern Valley, en það er fram- leitt úr vínbeijum sem hann kaupir af nágrönnum í kring. Auk þess framleiðir hann vín fyrir nágranna sem ekki hafa tækjabúnað til þess og er kominn út 'í bjórbruggun í hlöðunni, sem fylgdi búgarðinum, og sér kránum í kring fyrir Old Luxters Brewery Barnale-bjór. Stór hluti vínyrkjubændanna í Englandi er menntamenn sem gera það gott í London og stunda vín- yrkju í frístundum. Þeir nota sér tækjabúnað stórtækari náunga til að fá eigið vín á sérmerktar flöskur 'fl Z' ; tt-ibvSH REá < S-QO Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir. Frú Leighton með nokkrar verðlauna-Thames Valley-vínflöskur. Á töflunni má sjá algengasta verðið á hennar vínum, 4 til 5 pund eða 428 til 535 ÍSK. Ealand-hjónin keyptu sér gamlan búgarð, gerðu hann upp og hófu vínrækt: Old Luxters í Oxfordshire. Eitt af óendanlegum verkefnum Gloyens, víngerðarmanns á Old Luxters, er að rífa laufin af vín- viðnum svo að sólargeislarnir komist í berin. og hafa gaman af að gefa eða bjóða gestum upp á það. En fæstir leggja atvinnuna á hilluna og helga sig alveg vínræktinni eins og Ealand hefur gert. Vínklúbbar í berjatínslu Chiltern Valley Noble Bacchus frá 1989 hlaut verðlaun í sam- keppni enskra vína í sumar. Gloy- ens, víngerðarmaðurinn á Old Luxt- ers, sem er lærður bruggari, sagði að loftslagið þarna rétt vestan við London væri ákjósanlegt fyrir vín- yrkju. Rigningin er minni en annars staðar og hitastigið hærra. Hann hélt að London og hæðirnar í kring hefðu þessi jákvæðu áhrif á veður- farið. Jörðin er mjög næringarrík svo jurtirnar vaxa hratt. Gloyens sagði að það væri óendanlegt við- fangsefni að rífa laufin af vínviðn- um svo sólargeislarnir kæmust í berin. Hann lætur þau hanga eins lengi og hann getur fram á haustið en þegar tími er kominn til að tína þá eru félagar vínklúbba einfaldlega látnir vita og þeir mæta snemma morguns, vinna fram að hádegi og fá málsverð með víni að launum. Það tekur tvo morgna að hreinsa hektarann. Leighton-hjónin borga fólki fyrir beijatínslu á vínekrunum sínum. Þau hófu vínyrkju í Thames-dalnum 1979 og rækta 10,3 hektara. Þeir eru í Berkshire og standa við breið- ari götu en Old Luxters, ekki all- langt frá Reading. Frúin var ein heima þegar mig bar að garði og hafði engan tíma til að spjalla. Hún seldi mér nokkrar verðlaunaflöskur af hvít- og rauðvíni og sagði að The Thames Valley-vín bæru af öðrum enskum vínum. Hún átti von á að uppskeran hjá þeim í ár yrði um 50.000 flöskur af léttum, bragð- miklum vínum sem minntu helst á þýsk vín. Þau eru að bæta aðstöð- una fyrir gesti við bæinn en frú Leighton sagði að þeim fjölgaði frá ári til árs og Bretar kynnu æ bætur að meta ensk vín. Það er hægt að panta lista yfir enska vín- garða sem eru opnir almenningi iyá: The English Vineyards Association Ltd., 38 West Park, London SE9 4RH, Englandi. Vínrækt- arsamtökin selja cinnig kort yfir garðana, upprúllað kostar það 3,20 pund og saman- brotið 2,85. -ab. R A OAUGL ÝSINGAR ÝMISLEGT Meðeigandi óskast 6 ára fyrirtæki í örum vexti leitar að heiðarleg- um, fjársterkum hluthafa eða virkum meðeig- anda. Helmingshlutur 10 milljónir króna. Velta sl. ár var 87 milljónir og velta 1991 er áætluð 105-110 milljónir króna. Áhugasamir sendi upplýsingar til auglýsinga- deildar Mbl., merktar: „Meðeigandi - 8788“, fyrir 5. janúar 1991. Sundlaug, sauna og Ijósalampar á Hótel Loftleiðum. Opnunartími um jól og áramót er sem hér segir: Aðfangadagur: 08.00-16.00. Jóladagur: 10.00-16.00. Annar í jólum: 10.00-17.00. Gamlársdagur: 08.00-16.00. Nýjársdagur: 10.00-17.00. TILKYNNINGAR Jólatrésskemmtun Læknafélags Reykjavíkur og Lyfjafræðinga- félags íslands verður í Domus Medica fimmtudaginn 27. desember frá kl. 15.00- 18.00. Jólasveinarnir. SJÁLFSTIEDISPLOKKURINN F É L A G S S T A R F Sauðárkrókur Ungir sjálfstæðismenn Aðalfundur F.U.S. Víkings verður haldinn fimmtudaginn 27. desem- ber í Sæborg kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Inntaka nýrra félaga. 3. Önnur mál. Stjórn. F.U.S. Víkings. Föstudagsrabb Föstudaginn 28. desember, milli jóla og nýárs, verður rabbfundur i Hamraborg 1, 3. hæð, kl. 21.00. Gestur fundarins verður dr. Þór Whitehead, sagnfræðingur. Efni umræðunnar verður aðdragandinn að inngögnu islands I Nató og varnarliðssamn- ingurinn. Verið velkomin. Týr, félag ungra sjálfstæðismanna i Kópavogi. FÉLAGSLÍF Kf\0 SSÍNN r t Auðbrekka 2 . Kópavoqur Þorláksmessa: Almenn samkoma kl. 16.30. Jóladagur: Hátiðarsamkoma kl. 16.30. 2. jóladagur: Jólasamkoma I beinni útsend- ingu í ríkisútvarpinu kl. 11.00. Gleðileg jól H ÚTIVIST Viðey að vetri Sunnud. 23. des. kl. 13.00. ^engið verður um austureyna. Brottför frá Sundahöfn. Áramót í Básum Það er ógleymanleg upplifun að fagna nýju ári í Básum enda staðurinn ekki síöur beillandi að vetri en að sumri. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá: Göngu- feröir um Goðaland og Þórs- mörk, kvöldvökur með söngvum, leikjum og jafnvel stiginn dans. Á gamlárskvöld verður að sjálf- sögðu vegleg áramótabrenna með öllu tilheyrandi. Örfá sæti laus. Útivist óskar öllu útivistarfólki svo og öðrum velunnurum sfnum friðsællar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Þökk- um samfylgdina á árinu, sem er að líða. Sjáumst! Útivist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.