Morgunblaðið - 23.12.1990, Síða 51
oeer fl5THM!a?>aa .ss flao/.auM/ua aiaAjanuoHOM
MORGUNBKÐIÐ- SUNNUDAGUR 23: -DESKMBBRU990
Afmæliskveðja:
Haukur Gíslason
Stóru-Rey kj um
Haukur Gíslason bóndi og
hreppstjóri á Stóru-Reykjum í
Hraungerðishreppi er sjötugur í
dag. Haukur er fæddur á Þorláks-
messudag 1920, fjórði elstur af
níu systkinum, börnum Maríu Þor-
láksínu Jónsdóttur frá Seljatungu
og Gísla Jónssonar hreppstjóra á
Stóru-Reykjum.
Gísli og María bjuggu rausnar-
búi á Stóru-Reykjum, var Gísli í
fararbroddi í félagsmálum í sveit
sinni og sýslu um áratugaskeið.
Oddviti, hreppstjóri og sýslunefnd-
armaður og formaður stjórnar
Kaupfélags Árnesinga á mestu
uppbyggingarárum félagsins.
Það var því gestkvæmt á Stóru-
Reykjum, þangað komu margir til
skrafs og ráðgjörða, heimilið var
miðstöð mikilla umsvifa og hús-
bóndinn störfum hlaðinn. Haukur
og systkini hans fóru því ung að
árum að vinna og létta undir við
búskapinn á Stóru-Reykjum, en á
heimilinu hjá Gísla og Maríu var
einnig frændi sem systkinin köll-
uðu svo, Hannes Jónsson bróðir
Gísla. Vann hann alla tíð að búinu
og var lítið útá við, þó ekki skorti
hann gáfur og hæfileika.
Það kom fljótt í hlut Hauks að
verða sá bræðranna sem mest
starfaði að búskapnum, bæði var
það að hugur bræðra hans stefndi
til annarra starfa og svo hitt að
Haukur varð fljótt kappsfullur við
vinnu og glöggur búfjárhirðir.
Einnig mun Gísli hafa talið eðli-
legj; að einhver sona sinna yrði
bóndi á Stóru-Reykjum, en jörðin
hefur verið setin af sömu ættinni
allt frá 1841 og oftast erfst í bein-
an karllegg.
Það varð því hlutskipti Hauks
Gíslasonar að standa við hlið for-
eldra sinna og innleiða nýja bú-
skaparhætti, öld véltækninnar var
að þoka til hliðar aldagömlum sið-
um í búskaparháttum.
Stóru-Reykjaheimilið var þar
eins og víðar í fararbroddi nýrrar
sóknar. Láfsstarf Hauks hefur því
að mestu verið bundið við búskap-
inn á Stóru-Reykjum. Hann stund-
aði að vísu vinnu útífrá í slátur-
tíðinni á haustin um tíma, enda
orðalagður fláningsmaður. Hann
fór einnig í vist og aflaði sér þekk-
ingar og starfsreynslu um land-
búnaðinn, en það var gert til að
búa heimilið undir öld véltækninn-
ar, fyrst fyrir hesta og síðar þá
miklu þróun sem átt hefur sér stað
frá stríðslokum og öllum er kunn.
Haukur gekk að eiga Sigur-
björgu Geirsdóttur frá Hallanda
1952. Sigurbjörg er af kunnu
dugnaðarfólki komin í báðar ættir.
Fyrstu árin bjuggu þau félags-
búi með gömlu hjónunum og í sama
húsi þó heimilin væru aðskilin að
forminu til. Aldur var að færast
yfir gamla fólkið og heilsunni tók
að hraka, svo þau Haukur og Sigga
báru hitann og þungann af umönn-
un og umhirðu á báðum heimilum.
Unga stúlkan frá Hallanda tók að
sér mikið hlutverk þegar hún gerð-
ist húsfreyja á þessu forystuheim-
ili, en henni farnaðist það vel og
bar aldrei skugga á samskipti
hennar og tengdaforeldranna eða
við Hannes. Lifði gamla fólkið til
æviloka á Stóru-Reykjum og minn-
ist Sigurbjörg þeirra jafnan með
virðingu og hlýhug.
Haukur og Sigurbjörg hafa ver-
ið samhent í lífí og starfí og byggt
upp jörð sína og ræktað, eru nú
Stóru-Reykir ein best hýsta jörð í
Ámessýslu.
Þau hjón eiga sex börn sem eru:
María, f. 1953, býr í Geirakoti í
Sandvíkurhreppi, gift Ólafí Krist-
jánssyni, Margrét, f. 1955, býr á
Selfossi, gift þeim er þetta ritar,
Gerður, f. 1958, býr á Skálá í
Skagafírði, sambýlismaður Karl
Bergmann, Gísli, f. 1961, bóndi á
Stóru-Reykjum, kvæntur Jónínu
Einarsdóttur, Vigdís, f. 1965,
garðyrkjufræðingur í Reykjavík,
Hróðný Hanna, bankamaður á
Selfossi, sambýlismaður Hróbjart-
ur Örn Eyjólfsson.
Barnabörnin eru nú þrettán og
eitt langafabam.
Haukur á Reykjum hefur verið
starfí sínu og stétt trúr, óvenju
kappsfullur og fljótur að vinna
hvert verk. Hefur næmt auga og
gott verksvit, þolir illa droll og
tafsamar vinnuaðferðir. Jafnan
með þeim fyrstu að ljúka heyskap
í sveit sinni, glöggur á veður og
oft forspár um tíðarfar, mikill bú-
fjárræktarmaður ekki síst á sauð-
fé/ jafnan með verðlaunahrúta í
fremstu röð í sveit sinni og sýslu.
Oft hefur þeim er þetta ritar verið
það undrunarefni, hversu glöggur
og skjótur Haukur er að velja sér
ásetningshrúta úr hjörðinni á
haustin.
Haukur hefur verið kvaddur til
trúnaðarstarfa fyrir sveit sína, átti
sæti í hreppsnefnd um langt skeið
og var varaoddviti. Hefur gegnt
hreppstjórastarfi í ein þijátíu ár.
Það er gott að leita til Hauks,
hann greinir aðalatriði hvers máls,
þannig hefur hann reynst farsæll
í félagsmálum og leyst öll mál í
sátt og friði.
Haukur hefur ekki tamið sér
mikil ræðuhöld á mannafundum,
en bæði þar og í einkaviðtölum
gerir hann oft athugasemdir sem
sýna vel hversu glöggur hann er
og vel heima í hinum flóknustu
málum. Enda fylgist hann vel með
þjóðmálum og tekur afstöðu til
málefna hverju sinni. Hann er
umtalsgóður um fólk, sé eitthvað
sem honum mislíkar, talar hann
sem minnst um það og eyðir öllu
slíku tali. Hann sér að vísu hina
spaugilegu hlið tilverunnar og hef-
ur gaman af atvikum sem engan
særa.
Heimilið á Stóru-Reykjum er
myndarlegt menningarheimili, þau
hjón hafa reglu á hveijum hlut.
Umgengni bæði innanbæjar sem
og úti við er til fyrirmyndar. Á
síðustu árum hafa þau hjón ferð-
ast talsvert bæði hér innanlands
svo og erlendis. Hafa þau af slíku
yndi og hafa eignast í gegnum
slíkar ferðir góða kunningja um
allt land.
Þau Haukur og Sigurbjörg geta
nú horft með nokkru stolti yfír
farinn veg, þau lögðu sig fram og
gæfan hefur verið þeim hliðholl.
Búskapurinn á Stóru-Reykjum en
enn að ganga í beinan karllegg,
færast í hendurnar á syni og
tengdadóttur sem hafa byggt sér
glæsilegt íbúðarhús á staðnum.
Þótt Haukur Gíslason sé nú sjö-
tugur og lífssól hans að ganga inn
á Vesturloftið, þá ber hann aldur-
inn vel, varla hægt að greina grátt
hár á höfði hans, fullur orku og
starfsgleði. Megi hamingjan fýlgja
þeim hjónum um alta framtíð.
Guðni Ágústsson
g
Cóð tíðindi fyrir þd m
vilja nd longt um jólin
Nú eru jól í tvennum skilningi. í fyrsta lagi eru það hin
hefðbundnu jól og svo jól hjá þeim er vilja hringja í vini sína
og ættingja úti á landi eða erlendis.
Astæðan er mikil verðlækkun á langlínusímtölum innanlands
og milli landa. Þeir sem fara seint að
sofa um hátíðarnar geta hringt enn
ódýrara eftir kl. 23.
Notaðu símann til að óska vinum þínum og ættingjum
gleðilegra jóla - það er svo ódýrt.
PÓSTUR OG SÍMI
Viö spörum þér sporin
| «J