Morgunblaðið - 23.12.1990, Blaðsíða 53
L
MORGUNBIJVÐIB SUNNUDAGUR -23. í^ljSBMBER 1990 ;
Vandræðagemlingurinn
og útvarpsstjarnan
Jólamynd Laugarásbíós heitir
Prakkarínn („Problem Child“) og
er um sjö ára gamlan dreng sem
hefur þá sérstöku hæfileika að
geta lagt nánasta umhverfi sitt
og líf þeirra sem nálægt honum
koma gersamlega í rúst þegar
honum sýnist svo.
Leikstjóri gamanmyndarinnar
er Dennis Dugan én með aðalhlut-
verkin fara John Ritter, þekktur
sjónvarpsleikari í Bandaríkjunum,
Amy Yasbeck, sem leika foreldra
stráksins, Jack Warden leikur af-
ann en hinn sjö ára gamla vand-
ræðagemling leikur Michael Oliv-
er.
Ritter og Yasbeck eru hjón sem
reynt hafa í mörg ár að eignast
barn, hann af því hann langar í
bam, hún af því það fer vel við
úthverfalífið þeirra. Þegar hjónin
leita fyrir sér með ættleiðingu
komast þau að því að margra ára
biðlisti er eftir venjulegum bömum
en til sé þessi strákur ... Þegar
piltur yfirgefur nunnurnar á mun-
aðarleysingjahælinu og heldur á
vit nýju foreldranna dansa þær
af gleði og hægt og sígandi tekur
líf hjónanna að breytast í martröð.
Önnur jólamynd Laugarásbíós
er unglingamyndin Hækkaðu í
Úr jólamynd
Prakkarinn.
Laugarásbíós,
tækinu („Pump Up the Volume")
með unglingastjömunni Christian
Slater í aðalhlutverki. Leikstjóri
og handritshöfundur er Allan
Moyle.
Slater leikur uppburðarlítinn og
hlédrægan strák sem kemur í nýj-
an menntaskóla í Arizona. Hann
hefur fáa til að tala við um vanda-
mál unglingsins svosem eins og
foreldra, skólann, stelpur og hvað
eina svo hann lætur móðan mása
á stuttbylgjuútvarpi, sem hann
setur upp í kjallaranum heima hjá
sér.
Hann er ekkert sérlega feiminn
í þessu kvöldútyarpi sínu og það
fellur í góðan jarðveg hjá jafn-
öldrum hans og skólasystkinum
sem taka að hringja í útvarpið
hans og lýsa sínum eigin áhyggj-
um um skólann, kennarana, sam-
kynhneigð, jafn'vel sjálfsmorð.
Brátt stefnir í uppreisn í skólan-
um ...
Slater er einn af efnilegustu
ungu leikurunum í Hollywood —
einhver líkti honum við Jack Nic-
holson þegar hann var ungur —
en það má vera að einhver muni
eftir honum úr Nafni rósarinnar
þar sem hann lék meðreiðarsvein
Vilhjálms frá Baskerville.
Úr jólamynd Bíóborgarinnar,
Jólafríið.
Lítil dama, ónýtt
jólafrí, endalaus
saga og hafmeyja
Úr aðaljólamynd Bíóhallarinnar og Bíóborgarinnar, Þrír menn
og lítil dama.
Þrír menn og litil dama („Three
Men and a Little Lady“) er aðal-
jólamynd Bíóhallarinnar og Bíóborg-
arinnar en það er framhaldsmynd
hinnar geysivinsælu Þrír menn og
bam, sem aftur var endurgerð
frönsku gamanmyndarinnar, Þrír
menn og karfa eða „Trois hommes
et un couffín" eftir Colin Serrau.
Framhaldsmyndin er með þeim
Tom Selleck, Ted Danson og Steve
Guttenberg sem fyrr en nú er litla
barnið, sem þeir önnuðust með miklu
brambolti í fyrri myndinni, orðin
fímm ára gömul en það auðveldar
sannarlega ekki málið. Þegar
mamman, leikin af Nancy Travis,
kynnist Breta og flyst með honum
yfír hafíð með stelpunni elta pipar-
sveinarnir þrír og reyna að hafa
áhrif á gang mála.
„í fyrstu myndinni var kjörorð
piparsveinanna þetta: Svo margar
konur, svo lítill tími,“ segir leikstjór-
inn Emile Ardolino („Dirty Danc-
ing“), sem tekið hefur við stjóminni
af Leonard Nimoy. „Núna hafa þeir
þroskast og fólk fær að sjá hvemig
bamið hefur haft áhrif á þá og hvem-
ig þau fást við ólík vandamál sam-
an.“ Þrír menn og lítil dama hefur
verið fmmsýnd í Bíóhöllinni en byij-
ar einnig í Bíóborginni á annan í
jólum.
Önnur jólamynd Bíóhallarinnar er
líka önnur framhaldsmynd, Sagan
endalausa II („The Never Ending
Stop? II: The Next Chapter"). Hún
segir frá dreng sem kemst yfír töfra-
bók og dettur inn í æfintýralandið
sem hún lýsir og bjargar því frá hinni
illu nom, Tóminu. Hér er á ferðinni
klassískt ævintýri um baráttu góðs
og ills, flughundurinn Fálki úr fyrri
myndinni kemur aftur við sögu og
Steini, gtjótið sem talar.
Önnur barátta góðs og ills fer fram
í þriðju jólamynd Bíóhallarinnar en
það er Disney-teiknimyndin Litla
hafmeyjan („The Little Mermaid").
Hún er einnig sýnd í Bíóborginni.
Litla hafmeyjan er gerð eftir ævin-
týri H.C. Andersens og vakti gríðar-
lega hrifningu í Bandaríkjunum þeg-
ar hún var sýnd þar fyrir ári en þá
var hún sögð besta Disney-teikni-
myndin sem komið hefði fram í 30
ár eða frá því Þymirós var gerð árið
1959.
Hun markar afturhvarf Disneyfé-
lagsins til fallegu ævintýranna í sögu
um hafmeyjuna litlu sem bjargar
prinsi frá dmkknun, verður yfír sig
ástfangin og dreymir um að fá lapp-
ir og iifa í mannheimum. Faðir henn-
ar, sjávarguðinn, er sannarlega á
móti ráðahagnum en illa nornin í
undirdjúpunum ætlar að nota draum
hafmeyjunnar til að ná völdum.
Önnur jólamynd Bíóborgarinnar
er gamanmyndin Jólafríið
(„Christmas Vacation") með Chevy
Chase í aðalhlutverki. Það er farsa-
kennd lýsing á því hvemig jólahald
Griswold-fjölskyldunnar fer hægt en
örugglega í hundana.
Þetta er þriðja frí Griswold-fjöl-
skyldunnar sem við fáum að fylgjast
með; það fyrsta var ferð um Banda-
ríkin og númer tvö var ferð um Evr-
ópu. Höfuð fjölskyldunnar, sjálfur
Griswold sem leikinn er af Chase,
er rósemin uppmáluð og holdtekning
bjartsýninnar sem veitir ekki af því
hann er sjúklegur hrakfallabálkur.
Hann vill halda góð, gamaldags jól
í faðmi fjölskyldunnar og býður í því
skyni foreldrum sínum, tengdafor-
eldrum, afa og ömmu og að auki
kemur heldur sóðaiegur frændi í
heimsókn með allt sitt fólk.
Þá fmmsýnir Bíóhöllin myndina
„Prancer" um jólírí. Það er fjöl-
skyldumynd um litla stelpu sem
hjálpar öðrum að endurupplifa hina
sönnu merkingu jólanna. Með aðal-
hlutverkin fara Sam Elliot og Reb-
ecca Harrell. Leikstjóri er John Han-
cock.
LAUGARASBIO
BIOHOLLIN/BIOBORGIN
""-Tl
\SAltYO\
rýfur hljóömúrinn
Betri mynd- og hljómgæði
en áður hafa þekkst.
CEP 3359
•Flaturskjár „MATRIX“.
• Stereo 2x15w magnari
með fjórum hátölurum
• Super VHS • SCART-tergi
• Tengi fyrir aukahátalara
• Sjálfvirk stöðvaleit
• Fjölkerfa, PAL, SECAM,
NTSC • Nicam tengi •
Fullkomin fjarstýring og
skjátexti fyrir aðgeröir
• „Teletext" og fleira
kr. 189.900 stgr.
CEP 2872
• Flatur skjár „MATRIX"
• 78 aðgerðir úr fjarstýringu
• „Teletext“ • Stereo
• 2x16w magnari • Færan-
legirhátalararáhliðum *Tvö
SCART-tengi • Sjálfvirk
stöðvaleit • Super-VHS
• Skjátexti með möguleika á
sex tungumálum • Fjölkerfa,
PAL, SECAM, NTSC.
kr. 106.400,- stgr.
CEP 2151
21”
• Flatur skjár „MATRIX“
• „Teletext“ tengi • Skjátexti
• Tímarofi, 30, 60,90 og
120 mín. • Tengingfyrir
heyrnartól • SCART-tengi
• Slekkur sjálft á sér eftir að
útsendingu lýkur
• AV inngangur.
kr. 60.500,- stgr.
CEP 6022
20”
• Skjátexti • Fullkomin
fjarstýring með 32 aðgerðum
• AV inngangur • Tímarofi,
30, 60, 90 og 120 mín.
• Tengi fyrir heymartól
• Stöðvalæsing • Flettir
stöðvum í minni • 32 stöðvar.
kr. 44.800,- stgr.
CEP 3022
14”
• Fullkomin fjarstýring með
32 aðgerðum • Skjátexti
• Tímarofi, 20, 60, 90
og 120 mín. • Tengi fyrir
heyrnartól • AV inngangur
• Órlampi og fleira.
kr. 28.300,- stgr.
GK
Gunnar Asgeirsson hf.
Suöuriandsbraut 16 • Sími 680780
HÍtí S NÚ WUÝSINGASTOfA