Morgunblaðið - 09.02.1991, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1991
Landsbyggðin situr við annað
o g verra borð í húsnæðismálum
eftir Halldór Blöndal
Augn manna eru smátt og smátt
að opnast fyrir því, að Jóhanna Sig-
urðardóttir hafi ekki yfirsýn yfir
húsnæðismálin. Byggingarsjóður
ríkisins er kominn í greiðsluþrot,
eins og kunnugt er af fréttum. Og
það sem verra er: Fólk verður að
sættá sig við svo mismunandi
vaxta- og greiðslukjör, að hér er
að verða mesti lífskjaramunur hjá
ungu fólki, sem orðið hefur frá
stríðslokum. Þeir, sem fjármagna
íbúðir sínar með húsbréfum, sæta
afarkostum borið saman við hina,
sem komast inn í félagslega kerfið.
Munurinn á greiðslubyrði af 5 millj.
kr. láni er ekki minni en 400 þús.
kr. á ári eftir því hvemig afföll eru
reiknuð.
Eg þekki dæmi af ungum hjónum
á Akureyri, sem hafa ekki meiri
tekjur en svo, að þau eru innan við
Samgönguráðherra um
jarðgangagerð á Vestfjörðum:
Hef traustar heimild-
ir til að hefja útboð
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, samgönguráðherra, segist ætla að
heimila Vegagerð ríkisins að senda út útboðsgögn á næstu dögum
vegna jarðgangagerðar á Vestfjörðum. Segir hann að stofnað hafi
verið til framkvæmdanna með góðum undirbúningi. Steingrímur
segir að Alþingi hafi þegar veitt mjög traustar heimildir til að hefja
undirbúning verksins með útboði enda þótt ekki sé búið að afgreiða
lántökuheimild í lánsfjárlagafrumvarpinu. Kveðst hann eiga von á
að það hljóti afgreiðslu innan tveggja vikna á alþingi.
Steingrímur sagði að fyrir lægi
undirbúningsíjárveiting á vegaá-
ætlun síðasta árs. Þá hafi Alþingi
gert sérstaka samþykkt á sl. vori
um að hraða skuli þessum fram-
kvæmdum og þær fjámagnaðar
með tilteknum hætti, m.a. með lán-
tökum til viðbótar tekjustofnum á
vegaáætlun.
„Fyrsti áfangi þeirrar lántöku
120 fm íbúðir til sölu
Á veðursælum stað í Grafarvogi eru vel skipulagðar
íbúðir til sölu. Góðar suðursvalir. Stórar stofur. Þvotta-
hús á hæðinni. Bílskúr fylgir.
íbúðirnar eru til sýnis fullbúnar á næstu dögum.
Örn ísebarn, byggingameistari,
sfma 31104.
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSS0N FRAMKVÆMDASTJÓRI
KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRl. löggiltur fasteignasali
Til sölu er að koma m.a. eigna:
Góð íbúð við Vesturberg
4ra herb. íbúð á 1. hæð, 95,6 fm. Teppi, harðviður, Danfosskerfi. Sér
lóð. Sólverönd. Rúmg. geymsla. Gott lán. Sanngjarnt verð.
Séríbúð í Laugarneshverfi
3ja herb. jarðh./kj., 84,5 fm nettó. Lítið eitt niðurgrafin. Sérinng.
Sérhiti. Nýtt gler og fl. Ágæt sameign.Vinsæll staður. Sanngjarnt verð.
Nýendurbyggð séríbúð
2ja herb. á jarðh./kj. 53,5 fm nettó. Á vinsælum stað í Skerjafirði. Öll
nýendurbyggð. Allt sér. Tvíbýli. Laus strax. Gott húsnæðislán fylgir.
Góð íbúð með bílskúr
2ja herb., bæði við Stelkshóla og við Nýbýlaveg, Kóp. Vinsaml. leitið
nánari upplýsinga.
Sérhæð við Miklubraut
Endurnýjuð 4ra herb. efri hæð um 100 fm nettó. Tvennar svalir. Rúm-
gott geymsluris. Verð aðeins 7,7 millj.
Á einni hæð við Yrsufell
Endaraðhús ein hæð með sólstofu, rúmir 150 fm. Nýl. parket og fl.
Góður bílskúr 23,1 x2 fm. Verð aðeins 10,5 millj. Eignaskipti möguleg.
Lítil hæð með góðu láni
2ja-3ja herb. efri hæð í þríb.húsi í Norðurmýri. Nýtt eldhús. Nýl. sturtu-
bað. Húsnæðislán 2,3 millj.
í lyftuhúsi við Hrafnhóla
Stór og góð 4ra herb. íb. á 5. hæð. Tvöf. stofa, 3 svefnherb. Frábært
útsýni. Laus 1. apríl nk. Tilboð óskast.
Þurfum að útvega
fjársterkum kaupendum
Einbýlishús eða raðhús í Mosfellsbæ, borginni, Kópavogi, Garðabæ
eða Hafnarfirði. Æskilegar stærðir: 150-200 fm auk bílskúrs. Ýmiskon-
ar eignaskipti möguleg.
• • •
Opið ídag kl. 10-16.
Gott einbýlishús óskast
til kaups á Seltjarnarnesi.
Fjársterkur kaupandi.
ALMENNA
FflSTEIGNASALAM
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
tekjumark verkamannbústaða. Þau
uppfylla þar með skilyrði laganna
um félagslegar íbúðir. En það hefur
ekki dugað til. Þau hafa þess vegna
tekið út sparifé sitt og vilja nú
kaupa nýja íbúð á ftjálsum mark-
aði. Húsnæðisstofnun hefur yfirfar-
ið kostnaðaráætlun ungu hjónanna
og samþykkt, að byggingarkostn-
aður sé kr. 5.500.000 miðað við 15.
janúar sl. Bréf þessa efnis er dag-
sett 7. desember sl.
í samræmi við þetta festu ungu
hjónin kaup á íbúðinni og væntu
þess að fá húsbréf fyrir kr.
3.575.000. Hinn 21. janúar skrifaði
Húsnæðisstofnun annað bréf. Nú
er ekki lengur miðað við 5,5 millj.
kr., heldur kr. 4.920.000 og þar
með er lánið til ungu hjónanna
lækkað um 377 þús. kr. í kr.
3.198.000. Þessi ungu hjón eru
ekki að fá neitt gefins. Þau verða
að sætta sig við 12-15% afföll og
raunvextir verða ekki lægri en 7%
borið saman við 1% í verkamanna-
bústöðum. Þessi ungu hjón hafa
orðið fyrir barðinu á húsnæðis-
stefnu Alþýðuflokksins og Jóhönnu
Sigurðardóttur. Þau munar um 377
þús. kr. í húsbréfum.
Skýringin á því, að Húsnæðis-
stofnun vill ekki miða við bygging-
arkostnað er sú, að lánið er „mark-
aðstengt“ og íbúðin á Akureyri.
Ég hélt því fram, að 5,5 millj.
kr. væri markaðsverð, úr því að
íbúðin seldist fyrir það á frjálsum
markaði. Þá var mér undireins bent
á, að nýjar íbúðir á Akureyri lækk-
uðu um a.m.k. 10% um leið og flutt
væri inn í þær, sem þær gerðu ekki
í Reykjavík — hjá ungu hjónunum
um 580 þús. kr. Ég þykist vita að
matið sé lægra á Húsavík en á
Akureyri og lækki enn, þegar kom-
ið er norður í Norður-Þingeyjar-
sýslu.
Starfsfólk Húsriæðisstofnunar,
sem ég hef kynnst og leitað til, er
allt af vilja gert og vill leysa vanda-
mál eins og ég hef hér rakið með
því að bjóða upp á það, að endur-
mat fari fram á viðkomandi íbúð.
Gagnrýni mín beinist ekki að því,
heldur ráðherranum og ríkisstjórn-
inni. Þaðan koma fyrirmælin um,
að fólk skuli ekki sitja við sama
borð varðandi húsbréfin. Ég geri
mér vonir um, að það dæmi, sem
ég hef rakið leiðréttist. En síðara
bréf Húsnæðisstofnunar hefur þeg-
ar kostað leiðindi og valdið ungum
hjónum þungum áhyggjum. Ég
vona sannarlega að það takist að
greiða úr þeirra málum.
Halldór Blöndal
„Og það sem verra er:
Fólk verður að sætta
sig við svo mismunandi
vaxta- og greiðslukjör,
að hér er að verða mesti
lífskjaramunur hjá
ungu fólki, sem orðið
hefur frá stríðslokum.“
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Norðuriandskjördæmi eystra.
var tekinn inn í útgjaldatölu vega-
gerðarinnar í fjárlögum sem Alþingi
hefur þegar afgreitt, og er það um
350 milljónir króna, sem koma til
viðbótar því fé sem reiknað er rrieð
að renni. úr stórverkefnaflokki
vegaáætlunar til Vestfjarða á þessu
ári. Samtals gerir það nálægt 400
milljónum króna,“ sagði samgöngu-
ráðherra.
ífcOsisíM máíl
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Vilhelm G. Kristinsson í
Reykjavík sendir mér efnismikið
og vel skrifað bréf, og birtist
hér meginhluti þess:
„Kæri Gísli.
Nú um nokkurt skeið hef ég
í síauknum mæli orðið var við
málnotkun sem ég leyfi mér að
nefna yfirlætisfullt orðaval
starfsmanna í heilbrigðisþjón-
ustu, meðvitað eða ómeðvitað.
Nefni ég hértvö dæmi um þetta:
1) „Heilsugæslustöðin við
Hraunberg í Breiðholti óskar
skjólstæðingum sínum gleðilegs
árs.“ Þannig hljóðaði ein af
mörgum nýárskveðjum í
Ríkisútvarpinu um nýliðin ára-
mót. Fleiri kveðjur voru lesnar
frá læknum og hjúkrunarliði
annarra hliðstæðra stofnana,
allar til skjólstæðinga.
2) Aðspurður um reykinga-
bann í sjúkrahúsum segir hjúkr-
unarframkvæmdastjóri á Landa-
kotsspítala í viðtali við Morgun-
blaðið hinn 11. janúar sl.: „Ef
við veltum því fyrir okkur, hveij-
ir það eru, sem sækja þjónustu
til sjúkrahúsa, þá eru það skjól-
stæðingar, sem sjúklingar ann-
ars vegar og aðstandendur sjúkl-
inga hins_ vegar.““
Vilhelm heldur áfram:
„Þetta skjólstæðingatal hef
ég heyrt víðar af munni starfs-
manna heilbrigðisstofnana,
einkum lækna og hjúkrunar-
kvenna, og þykir mér það afar
ósmekklegt. Svo gæti virst sem
starfsmenn hefðu tekið sig sam-
an um að tala niður á viðskipta-
menn sína með þessum hætti.
Málvitund mín segir mér að
skjóístæðingur sé einhver sem á
undir högg að sækja og nýtur
velvilja samborgara sinna. Þann-
ig lætur vel í mínum eyrum þeg-
ar talað er um skjólstæðinga
Mæðrastyrksnefndar, skjólstæð-
inga Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar og skjólstæðinga móður Ther-
esu. Að mínu viti er skjólstæð-
ingur sá sem hlífiskildi er haldið
yfir í lífsins ólgusjó.
Ég get ekki sætt mig við að
maður, sem leitar í sjúkrahús
eða á lækningastöð til þess að
fá við kvefi eða láta taka úr sér
kirtla, sé skjólstæðingur starfs-
manna sem hann á viðskipti við.
Ekki fremur en að hann væri
skjólstæðingur bifvélavirkjans
sem setti nýjan blöndung í bílinn
hans.“ Hér fellir umsjónarmaður
niður ofurlítinn hluta bréfsins,
en svo tekur Vilhelm aftur til
máls:
„Best gæti ég trúað að þarna
væru menn að þýða erlenda orð-
ið „client“ ög væru feimnir við
að nota orðið sjúklingur. Mér
þykir hins vegar ekkert óeðlilegt
við orðið sjúklingur, eða einfald-
lega viðskiptavinur eða við-
skiptamaður þegar sá sem eftir
þjónustu leitar er ekki sjúkur.
Ég gæti líka unað því vel að
vera nefndur gestur á stofnun,
væri ég að heimsækja sjúkling
sem þar dveldist sér til heilsubót-
ar...“
„Úr því að ég er farinn að
fetta fingur út í málnotkun
starfsmanna heilbrigðiskerfisins
get ég ekki látið hjá líða að nefna
annað dæmi sem angrar mig
afskaplega mikið. Það er þegar
starfsmenn tala um að vinna
með fólk. Þroskaþjálfar, félags-
ráðgjafar, sjúkraþjálfarar og
margir fíeiri segjast vinna með
fólk, rétt eins og þeir væru kjöt-
iðnaðarmenn.
Trúlega er hér um að ræða
áhrif frá dönsku eða öðrum
skandinavískum málum, þar
sem mikill fjöldi starfsmanna í
þessum starfsgreinum hefur sótt
sér menntun og fyrirmyndir til
frændþjóða okkar á Norðurlönd-
um. Danir tala til að mynda um
að „arbejde með folk“. Þegar
þessum orðum er hins vegar
snúið beint á íslensku verður úr
þvættingur sem alls ekki er
starfsmönnunum sæmandi og
er beinlínis niðrandi fyrir þá
sjúklinga sem hlut eiga að máli.
Skömminni skárra væri að
starfsmenn töluðu um að vinna
með fólki, enda eru þeir í raun
að vinna'með fólki að lausn
vanda þess...
Með bestu kveðju.“
576. þáttur
Umsjónarmaður þakkar þetta
skörulega bréf. Hann hefur al-
veg sömu skoðun á síðari lið
þess og bréfritari, en þessu með
skjólstæðingana hafði ég ekki
veitt athygli. Ég geri fastlega
ráð fyrir því, að skýring V.G.K.
sé rétt, að þarna séu áhrif frá
enska orðinu client. Fyrsta þýð-
ing á því í orðabók Arnar og
Orlygs er einmitt „skjólstæðing-
ur“. I Nudansk ordbog segir
hins vegar undir klient meðal
annars: „ogsá om læges patient-
er og om modtagere af sociale
ydelser“, en það mun þýða: einn-
ig um sjúklinga læknis og þá
sem þiggja félagslega aðstoð.
Eins og fyrri daginn eru svo
lesendur hvattir fremur en lattir
til þess að láta frá sér heyra um
álitamál eins og hér hefur verið
hreyft.
Jón Ólafsson frá Grunnavík
(1705-1779) ritaði margt um
málfræði, og þykir mönnum nú
sem fræði hans séu nokkuð kími-
leg. Hann hafði uppi þá kenn-
ingu, að öll orð væru styttingar.
Dæmi: köttur ■*- kömpóttur,
grænn <— grasvænn, hundur ■*-
hússvandur, happ ■*- handa-
klapp, kona V- karl vonandi,
dauður ■*- dugauður, karl •*-
kappharðligur, milti ■*- maga-
veltandi. (Sjá tímaritið Islenskt
mál, 10.-11. ár.)
Færi betur að ekki væri bros-
að að okkar lærdómsskrifum
eftir 250 ár, eða skiptir það
kannski engu?
Hlymrekur handan kvað:
Ég vil banana heldur en ber,
og brauð kýs ég fremur en smér,
og um hárið á mér:
mér finnst flott að það er,
en djöfulli fúlt ef það fer.
P.s. í síðasta þætti umsnerist
dánarár Sturlu Þórðarsonar og
varð „1248“ í stað 1284. Beðist
er afsökunar á þessu.
tUÍVLÁáéAaiíÁAit-ji 14. *í
1 AééiAAAs*
íi • ÍÍiii 2 1 4 ií l.í-* «: -".i - ji'ii-iíiljjíliíiii ,|‘F