Morgunblaðið - 09.02.1991, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1991
AFREKSMANNASJOÐUR ISI
Fjórir styrkþegar bætast við
FRAMKVÆMDASTJÓRN
íþróttasambands íslands
samþykkti ífyrrakvöld tillögu
afreksmannasjóðs þess efnis
að Ragnheiður Runólfsdóttir,
sundkona, spjótkastararnir
Sigurður Einarsson og Sig-
urður Matthfasson, og Vé-
steinn Hafsteinsson, kringlu-
kastari, bætist við sem styrk-
þegar sjóðsins. Sjóðurinn
styrkir þrjá íþróttamenn að
auki; Bjarna Á. Friðriksson,
júdómann, Einar Vilhjálms-
son, spjótkastara, og Pétur
Guðmundsson, kúluvarpara.
Fjórmenningarnir, sem voru
allir styrkþegar a'síðasta ári,
fá 40.000 kr. á mánuði til ágúst-
loka, en að sögn Friðjóns Friðjóns-
sonar,_ formanns afreksmanna-
sjóðs ÍSÍ, er styrkveitingin skilyrt
að vissu leyti. íþróttafólkið þarf
að leggja fram æfinga- og keppn-
RagnheiAur Runólfsdóttir
isáætlun og þau markmið, sem
keppt er að á tímabilinu og
greiðslur fara ekki fram fyrr en
samstarfssamningur í sjö liðum
hefur verið undirritaður. Þar er
meðal annars kveðið á um að
lyfjanefnd ÍSÍ hafi óskorað vald
til að kalla viðkomandi í lyfjapróf
Sigurður Einarsson
hvenær sem er.
í nóvember s.l. var fækkað á
listanum, en ákveðið að hækka
mánaðarlega styrkveitingu til
þriggja íþróttamanna — Bjarna,
Einars og Péturs — úr 40.000 kr.
í 60.000 kr. Samningur við þá var
til aprílloka, en hann var fram-
Sigurður Matthíasson
lengdur í gær og gildir út ágúst-
mánuð eins og hjá hinum.
Golfsambandið, Körfuknatt-
leikssambandið, Júdósambandið
og Badmintonsambandið sóttu
einnig um styrki úr sjóðnum, en
afgreiðsla þeirra mála var frestað.
Friðjón sagði að samkvæmt fjár-
Vésteinn Hafsteinsson
hagsáætlun væru tekjur sjóðsins
4,5551 milljón á árinu. Ef þessir
sjö íþróttamenn halda styrknum
út árið verða 631.000 krónur eft-
ir til ráðstöfunar, sem er ekki há
upphæð til skiptanna, og því var
ákveðið að bíða og sjá til með
frekari styrkveitingar á árinu.
]
|
\
SKÍÐI
Reuter
Elena Vyalbe eftir sigurinn.
ÚRSLIT ~
skiai
Garmisch-Partenkirchen, Þýskalandi
Heirasbikarkeppnin, brun kvenna:
Chantal Bournissen (Sviss).....1:37.01
Caroie Merle (Frakklandi)......1:37.08
Veronika Wallinger (Austurriki).1:37.45
Barbara Sadleder (Austurríki)..1:37.57
Kerrin Lee-Gartner (Kanada)....1:37.82
Warwara Zelenskaja (Sovétr.)...1:37.84
Anja Haas (Austurríki).........1:37.88
Sabine Ginther (Austurriki)l:37.97
Tatiana Lebedeva (Sovétr.).....1:37.98
Nathalie Bouvier (Frakklandi)..1:38.01
Vyalbe
örugg
ígöngu
Elena Vyalbe frá Sovétríkjunum
var öruggur sigurvegari í 15
km göngu kvenna með hefðbund-
inni aðferð á HM í norrænum grein-
um á Ítalíu í gær. Vilabe, sem hef-
ur sigrað samanlagt undanfarin tvö
tímabil og er með forystu á þessu
tímabili, var síðust í rásröðinni og
nýtti sér það.
„Brautin var góð og ég fann mig
vel. Ef mér gengur vel í 10 kíló-
metra göngu með fijálsrí aðferð
þarf ekki að spyija að leikslokum
í fimm og 30 kílómetra göngunni,"
sagði Vialbe, sem hreppti gull í
Lahti fyrir tveimur árum — 15
mánuðum eftir barnsburð.
Trude Dybendahl frá Noregi varð
í öðru sæti og það kom henni ekki
á óvart. „Ég held að ég geti farið
hraðar yfir,“ sagði sú norska.
Ítalska stúlkan Stefania Belm-
ondo brást ekki stuðningsmönnum
sínum. Hún býr í 25 manna þorpi
og allir íbúarnir voru á staðnum,
er hún hreppti bronsið.
Fumiko Aoki hafnaði í 13. sæti
og varð fyrst japanskra stúlkna til
að vinna stig á HM í norrænum
greinum.
Reuter
Chantal Bournissen sigraði í bruni kvenna á heimsbikarmótinu í Garmisch-
Partenkirchen í Þýskalandi í gær.
Loks brunsigur
hjá Boumissen
Svissneska stúlkan Chantal Bo-
urnissen sigraði í bruni kvenna
á heimsbikarmótin'ú í Garmisch-
Partenkirchen í Þýskalandi í gær.
Bournissen, sem er 23 ára, hefur
verið nálægt sigri í allan vetur, en
tókst Ioks ætlunarverkið. Jafnframt
var þetta fyrsti sigur hennar í bruni
á HM síðan 1987, en hún sigraði í
risasvigi á HM í desember s.l. og
IMykanen keppir á HM
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í norrænum grein-
um skíðaíþrótta hófst í Val di Fiemme á Ítalíu
í fyrradag. Opnunarathöfninni var aflýst vegna
- Persafióastríðsins eins og á HM í alpagreinum
í Saalbach. Miklar öryggisráðstafanir eru við-
hafðar og eru 200 lögreglumenn sem sjá um
að gæta öryggis keppenda þá 11 daga sem
keppnin stendur yfir.
Finnar, sem unnu 15 verðlaun á síðasta móti í
Lahti fyrir tveimur árum, senda ekki eins öflugt
lið til keppni að þessu sinni. Finninn fljúgandi, Matti
Nykanen, verður með á mótinu en það hefur ekki
~~i'arið mikið fyrir honum á stökkmótum í vetur. „Ég
held að hann eigi eftir að koma á óvart á mótinu,“
sagði Jari Piirainen, liðsstjóri finnska liðsins. Nykan-
en, sem unnið hefur fern gullverðlaun á Ólympíuleik-
um, hefur átt við áfengis- og agavandamál að stríða
og var settur út úr finnska landsliðinu í desember.
En Finnar geta ekki án hans verið og hafa valið hann
í landsliðið sem keppir á HM.
Ef Nykanen mistekst að vinna til verðlauna gera
Finnar sér helst vonir um að hjónin Harri og Marja-
Finninn fljúgandi, Matti Nykanen, verður með.
Liisa Kirvesniemi nái góðum árangri. Þau geta þó
ekki varið titlana frá því á HM 1989 þar sem þau
keppa bæði í styttri vegalengdum nú. Harri, sem er
32 ára og sigraði í 15 km göngu með hefðbundinni
aðferð á HM 1989, keppir í 10 km göngu og kona
hans, Máija-Liisa, sem er 35 ára og vann 10 km
gönguna 1989, keppir nú í 5 km göngu.
varð heimsmeistari í alpatvíkeppni
kvenna á nýafstöðnu heimsmeist-
aramóti í Saalbach.
Bournissen kunni vel að meta
aðstæður og fékk timann 37,01
sek. Carole Merle frá Frakklandi
varð í öðru sæti og austurríska
stúlkan Veronika Wallinger fékk
bronsið.
Skíðadrottningin Petra Kronber-
ger, sem er með mjög örugga for-
ystu samanlagt, gat ekki tekið.þátt
vegna meiðsla, en gerir sér vonir
um að vera á meðal keppenda á
mótunum í Japan um næstu mánað-
armót.
GETRAUNIR
Um helgina
HANDKNATTLEXKUR
Landslcikur á mánudag:
Fyrri landsleikur íslands og Ung-
veijalands í handknattleik fer fram
í Laugardalshöll á mánudag og hefst
kl. 21.
Laugardagur
1. deild karla:
Höll, Vikingur-Stjaman....16:30
Se(jaskóli, IR-Fram.......16:30
Seltj.nes, Grótta-Selfoss.16:30
Strandgata, Haukar-KA.....16:30
1. deild kvenna:
Höll, Víkingur-Valur.........13
Kaplakriki, FH-Fram.......18:30
Sunnudagur
Selfoss, Selfoss-Grótta......15
6. flokks mót í Hafnarfirði
Um 40 lið taka þátt í 6. flokksmót-
inu, sem hófst í Hafnarfirði í gær
og heldur áfram um helgina. Keppt
er í Kaplakrika og íþróttahúsi Víði-
staðaskóla frá kl. 8:30 - 19 í dag og
á morgun. Gert er ráð fyrir að úr-
slitaleikir hefjist um kl. 15:15 á
morgun í Kaplakrika.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Sijörnuieikur í Grindavík
Stjörnuleikur á vegum Körfuknatt-
leikssambandsins og Samtaka
íþróttafréttamanna fer fram í
Grindavík á morgun, sunnudag, og
hefst hátíðin klukkan 15.
Úrvalsdeild:
Tindastóll og KR mætast á Sauðár-
króki í dag kl. 14.
BLAK
Laugardagur
Karlar:
Akureyri, KA-Fram.........14:30
Neskaupst., Þróttur N-HK..13:30
Konur:
Akureyri, KA-Víkingur.....15:45
Neskaupst., Þróttur N-HK..14:45
SUND
Sundmót Ármanns
Sundmót Ármanns fer fram í Sund-
höll Reykjavíkur í dag og á morgun.
Keppni hefst kl. 10 og 15:30 í dag,
en kl. 10:30 á rrforgun, sunnudag.
BADMINTON
íslandsmót í öðlinga- (40 ára og
eldri) og æðsta flokki (50 ára og
eldri) í badminton fer fram í TBR-
húsinu í dagog hefst kl. 14. Á morg-
un kl. 15:10 leika Úaraldur Korne-
líusson og Reynir Guðmundson til
úrslita í Á-flokki.
Teningurinn á 9 leiki
Sjónvarpsleikurinn á Anfield ferfram
l\l
íu leikjum á íslenska get-
raunaseðlinum hefur verið fre-
stað og verður því teningi varpað
til að fá rétt merki. Fimm hliðar á
teningnum gefa heimasigur, ijórar
jafntefli og þijár útisigur.
Þrír leikir fara fram og eiga veil-
irnir það sammerkt að vera með
hitalagnir undir grasinu.
■ Sjónvarpsleikurinn heldur velli
— Liverpool og Everton leika á
Anfield. Liðin hafa mæst 22 sinnum
síðan 1979. Liverpool hefur sigrað
11 sinnum, Everton fjórum sinnum
og átta leikjum hefur lokið með
jafntefli.
■ Manchester City og Chelsea
leika á Main Road. Heimamenn
hafa ekki fagnað sigri síðan 1979.
■ Sunderland tekur á móti
Wimbledon, en síðast léku liðin á
Roker Par 1985 og þá unnu heima-
menn 2:1.