Morgunblaðið - 12.02.1991, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991-
, ,
■. ;; ,
; • i í;; í > - ;E®
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Bergey dregin til hafnar
Vestmannaeyjum.
Vélarbilun varð í Bergey VE 544 á föstudag er skipið var statt skammt austan við Eyjar. Smáey hélt til aðstoðar Bergey og dró hana til hafnar
í Eyjum. Bergey var um 2,5 sjómílur austan við Bjarnarey er bilun varð í gír skipsins og gat það ekki siglt til hafnar fyrir eigin vélarafli. Smáey
VE fór til aðstoðar og dró Bergey til hafnar. Strekkingsvindur, af suðaustri var í Eyjum á föstudag og aðstoðaði Lóðsinn Smáey við að koma
Bergeynni inn innsiglinguna. — Grímur
Sóttnæmt sorp verið urðað um
margra ára skeið í Gufunesi
SÓTTNÆMT sorp frá sjúkrahús-
uni hefur verið urðað í Gufunesi
á hverju ári þann tíma sem Sorp-
brennsla Suðurnesja er lokuð
vegna árlegs viðhalds. Ögmund-
ur Einarsson, framkvæmdastjóri
Sorpeyðingar höfuðborgarsvæð-
isins, segir að í reglugerð heil-
brigðisráðherra um mengunar-
varnir sé kveðið á um að sóttnæ-
man úrgang megi ekki fiytja í
móttökustöð sorpeyðingarstöðv-
arinnar og því sé það ekki á valdi
stöðvarinnar að eyða honum.
Heilbrigðiseftirlitinu hefur verið
falið í samvinnu við Sorpeyðingu
höfuðborgarsvæðisins að vinna að
framtíðarlausn varðandi förgun á
sóttnæmum úrgangi í kjölfar blaða-
skrifa um þessi mál. Breyta verður
reglugerð heilbrigðisráðherra ef
förgun sóttnæms sorps á að fara
fram í sorpböggunarstöðinni í Gufu-
nesi.
„Við megum ekki taka við þessu
sorpi. Sveitarfélögin spyija sig nú
að því hvort þeim beri að leysa
þetta mál. í öllum hinum siðmennt-
aða heimi er þetta hlutur sem hvert
sjúkrahús leysir fyrir sig,“ sagði
Ogmundur. m
Hann sagði að stjórnum sjúkra-
húsanna hefði verið bent á þessa
staðreynd og að starfsemi Sorp-
brennslu Suðumesja stöðvist á
hverju ári í nokkrar vikur vegna
viðhalds. Þá hafi sóttnæmt sorp
alltaf verið urðað í sorphaugunum
í Gufunesi án þess að athugasemd-
ir hafi verið gerðar við það.
„Við erum að láta gera heildarút-
tekt á umfangi spilli- og eiturefna
með tilliti til framtíðarlausnar varð-
andi förgua þeirra og spítalamálin
koma væntanlega líka inn í það
dæmi. En það hefur engin fyrir-
spurn borist frá spítölunum til okk-
ar um eyðingu sóttnæms sorps,“
sagði Ögmundur.
Hann sagði að eyðing slíks sorps
Stöð 2:
Samningur við CNN
var framlengdur
GENGIÐ hefur verið frá framlengingu á samningi Stöðvar 2 og CNN-
sjónvarpstöðvarinnar um fréttasendingar stöðvarinnar til næstu mán-
aðamóta. Fyrri samningurinn kvað á um reynslusendingar Stöðvar 2
á fréttaefni CNN til 15. febrúar nk. Nefnd sem menntamálaráðherra
skipaði til að fjalla um tilhögun beinna gervihnattasendinga skilar áliti
20. febrúar næstkomandi.
Nefndin er skipuð fulltrúum frá
Stöð 2, Ríkisútvarpinu, íslenskri
málnefnd, Póst og síma, mennta-
og samgönguráðuneyti og hefur
henni verið falið að endurskoða
þann hluta útvarpslaga sem snýr
að þýðingaskyldu og móttöku og
dreifingu sjónvarpsefnis um gervi-
hnött.
P3.ll Magnússon sjónvarpsstjóri
Stöðvar 2 sagði að kostnaður Stöðv-
ar 2 vegna útsendinga á fréttaefni
CNN-stöðvarinnar væri töluverður,
einkum vegna móttöku efnisins og
rynnu þau útgjöld til Pósts og síma.
Hann sagði að ekki hefði verið
gengið frá föstum greiðslum til
CNN vegna þessarar þjónustu. „Við
höfum ekki enn samið við Póst og
síma um greiðslur fyrir móttöku
sem helgast meðal annars af því
að þeir hafa notað gervihnattadisk
sem varla er boðlegur. Ef við tækj-
um við þessu efni til frambúðar þá
yrðum við að gera það með mun
stærri disk en Póstur og sími notar
núna,“ sagði Páll. Póstur og sími
yrði, lögum samkvæmt, að eiga og
reka þá jarðstöð, en Stöð 2 leigja
afnot af henni.
BÓNDI á fimmtugsaldri stór-
slasaðist er dráttarvél sem hann
ók hafnaði út af vegi og valt á
Skógarstrandarvegi, skammt
frá bænum Hálsi, snemma á
sunnudagsmorgun. Talið er að
það hafi tekið manninn allt að
því tvær og hálfa klukkustund
að komast af eigin rammleik
að Hálsi til að gera vart um sly-
sið. Hann liggur nú á gjörgæslu-
deild Borgarspítalans.
Tildrög slyssins eru óljós en
talið er að maðurinn hafi orðið
undir dráttarvélinni, þegar hún
valt fram af um tveggja metra
háum vegarkanti. Dráttarvélin er
ekki með öryggisgrind.
Maðurinn slasaðist mjög mikið.
Rifbein voru brotin báðum megin
í bijóstkassa hans, og öðrum meg-
in hafði brotið riftiein gengið inn
í lunga og lagt það saman. Hitt
lunga mannsins marðist auk þess
sem hann hlaut önnur innvortis
meiðsli.
Þannig á sig kominn komst
maðurinn að Hálsi og lét heimilis-
fólk þar vita. Hafi hann farið yfir
girðingar og tún er um 300 metra
að fara en um 600 metra eftir
veginum.
Maðurinn var í fyrstu fluttur á
Matvöruverslanir:
Meðalverð
óbreytt í
þrjá mánuði
Á ÞRIGGJA mánaða tímabili hef-
ur meðalverð á vörum í 49 mat-
vöruverslunum verið óbreytt.
Verð á 20 vörutegundum hefur
lækkað en 29 vörutegundir höfðu
hækkað lítillega í verði. Þetta eru
niðustöður janúarkönnunar Verð-
lagsstofnunar.
Verðlagsstofnun hefur á sl. ári
fylgst með vöruverði 50 algengra
vörutegunda í 49 matvöruverslunum
á höfuðborgarsvæðinu með reglu-
bundnum könnunum. í lok janúar sl.
var gerð samskonar könnun og nið-
urstöður hennar bornar saman við
síðustu könnun sem gerð var í októb-
er 1990.
Meðalverðið á vörunum 50 lækk-
aði eða var óbreytt í 24 verslunum.
Verðlag lækkaði mest í versiuninni
Gunnlaugsbúð í Grafarvogi, eða um
rúm 7%. Meðalverð hækkaði yfir 1%
í 16 verslunum.
Þær vörur sem mest lækkuðu í
verði voru ýmsar gerðir af sykri.
Strásykur lækkaði að meðaltali um
14,3% á þriggja mánaða tímabili.
Þær vörur sem helst hækkuðu í verði
voru ýmsar hreinlætisvörur.
væri mjög kostnaðarsöm og taldi
hann ekki ólíklegt að kostnaðurinn
væri á bilinu 50-100 kr á hvert kg.
Nokkur hundruð tonn falla til af
sóttnæmu sorpi á hveiju ári. Förgun
á hveijum 100 tonnum kostar því
á bilinu 5-10 milljónir kr.
Stórslasaöur maður
var rúma tvo tíma
að gera vart um slys
sjúkrahúsið í Stykkishólmi en síðar
með þyrlu á Borgarspítalann í
Reykjavík. Þar lá hann enn á gjör-
gæsludeild í gær.
Vesturland:
Sjálfstæðis-
menn sam-
þykkja fram-
boðslista
Framboðslisti Sjálfstæðis-
flokksins á Vesturlandi vegna al-
þingiskosninganna 1991 var sam-
þykktur af kjördæmisráði sjálf-
stæðismanna sl. sunnudagskvöld.
Listann skipa eftirtaldir aðilar:
1. Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri
Stykkishólmi.
2. Guðjón Guðmundsson, skrif-
stofustjóri, Akranesi.
3. Elínbjörg Magnúsdóttir, fisk-
vinnslukona, Belgsholti Melasveit.
4. Sigurður Rúnar Friðjónsson,
mjólkurbússtjóri, Búðardal.
5. Sigrún Símonardóttír, forseti
bæjarstjórnar, Borgarnesi.
6. Guðjón Kristjánsson, kaupfé-
lagsstjóri, Skriðulandi Dalasýslu.
7. Óttar Guðlaugsson, skipstjóri,
Ólafsvík.
8. Davíð Pétursson, bóndi, Grund
Skorradal.
9. Valdimar Indriðason, fyrrver-
andi alþingismaður, Akranesi.
10. Friðjón Þórðarson, alþingis-
maður, Búðardal.
Nýkjörinn formaður kjördæmis-
ráðsins er Sæmundur Kristjánsson,
Dalasýslu.
Heiðlóa sást við
bæ í Þistilfirði
HEIÐLÓA sást við bæinn Laxárdal í Þistilfirði á laugardaginn.
„Við sáum lóu hér í túninu þjá okkur,“ sagði Stefán Eggertsson,
bóndi í Laxárdal, í samtali við Morgunblaðið.
Stefán sagði að sonur sinn,
Eggert sem er 9 ára, hafi fyrstur
heyrt í lóunni og síðan séð hana.
„Við hjónin sögðum að þetta væri
vitleysa og héldum að hann væri
bara að plata okkur þar sem veðr-
ið væri eins og á sumardegi, logn
og sólskin. Síðan endurtók hann
söguna og fórum við að kanna
málið og þá kom í ljós að þetta
var rétt hjá honum því lóan var
spölkorn frá okkur á túninu. Síana
flaug hún syngjandi hátt í sólar-
átt, eins og Jónas Árnason orðaði
það, þegar við nálguðumst hana,“
sagði Stefán.
Stefán ■ sagðist aldrei hafa séð
lóu svo snemma árs, enda væri
hún farfugl og kæmi ekki til
landsins fyrr en á vorin. Hann
sagði að lóan væri mikið á túnun-
um við bæinn á sumrin og kæmi
oft í flokkum í ágúst áður en hún
yfírgæfi landið. Mikil veðurblíða
hefur verið í Norður-Þingeyjar-
sýslu síðustu daga og kann það
að hafa ruglað lóuna í ríminu.
„Þetta var hin hressilegasta lóa
og virtist ekki vera aðframkomin.
Ég hef trú á því að hún hafi kom-
ið með suðræna loftinu sem hefur
verið hér undanfarið heldur en að
hún hafi verið að þvælast hér í
allan vetur," sagði Stefán. Hann
sagðist hafa frétt að lóa hafi einn-
ig sést á bæ skammt frá Laxár-
dal á laugardaginn.