Morgunblaðið - 12.02.1991, Page 11
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991
11
Sérlega fallegir o g vel
heppnaðir upphafstónleik-
ar „Myrkra músíkdaga“
Reykjavíkurkvartettinn skipaður þeim Rut Ingólfsdóttur, Zbigni-
ew Dubik, Guðmundi Kristmundssyni og Ingu Rós Ingólfsdóttur.
_________Tónlist___________
RagnarBjömsson
Fyrir utan tónskáld kvöldsins
áttu heiðurinn af þessum- ágætu
tónleikum Reykjavíkurkvartett-
inn, skipaður þeim Rut Ingólfs-
dóttur, Zbigniew Dubik, Guð-
mundi Kristmundssyni og Ingu
Rós Ingólfsdóttur. Þau hófu leik
sinn með „Sjö smámunum fyrir
strengjakvartett“ eins og Atli
heimir kallar þessa stuttu þætti
sína þar sem hann prófar sig í
flestum brellum strokhljóðfæ-
ranna og þrátt fyrir rúmlega
þtjátíu ára gamlar hugmyndir,
líklega gerðar á námsárum hans
í Köln, þá leynir sér ekki snilld
Atla og hugmyndaauðgi. Kvart-
ettinn lék þessar skissur af næm-
um skilningi.
Karólína Eiríksdóttir átti næsta
kvartett á efnisskránni, Sex lög
fyrir strengjakvaitett, allt stuttir
þættir, einskonar andstæður sett-
ar fram án þess að vera langt
fléttaðar, oft sem einskonar þrá-
hyggja, en þó vel skrifaðir þættir.
Hásselby-kvartettinn kallar Þor-
kel Sigurbjörnsson kvartett sinn
sem hann skrifar fyrir Hásselby-
höllina fyrir utan Stokkhólm. Þor-
kell segir sjálfur að tónamir,
H,A,Es og B, ásamt „Óttusöng"
Steins Steinars, — „Hin djúpa
nótt, sem drekkir augans ljósi“
hafí verið ofarlega í huga við
samningu kvartettsins. Einkenni
Þorkels-eru gjarnan að taka fyrir
eina hugmynd, þróa hana í ýmsum
litbrigðum, þó með uppbrotum
sem halda áheyrandanum ætíð
vakandi. Víst gæti sparsemi, ef
hægt er að kalla því nafni, orðið
svolítið þreytandi ef ekki væri vel
á pennanum haldið, en það kann
Þorkell. Þrátt fyrir ekki svo mjög
óiíkan aldur þessara þriggja höf-
unda, og nútímalegir allir, eru
þeir furðu ólíkir í vinnubrögðum,
sem gerði og hlustunina fram að
hléi sérlega ánægjulega.
„Enginn veit hvemig tónlist
framtíðarinnar verður, en eitt er
víst, hún sprettur upp úr tónlist
dagsins í dag,“ sagði Hjálmar H.
Ragnarsson í ávarpi sínu við opn-
un Myrkra músíkdaga. Hvað lifir?
hvað deyr? hvað verður klassík
framtíðarinnar? Svarið liggur hjá
næstu kynslóðum, en er Jon Leifs
ekki þegar orðinn klassíker okkar
íslendinga? Magnaður er kvartett
hans Vita et mors op. 36. sem
fjórmenningamir léku af mikilli
innlifun og oft feikn vel.
Reykjavíkurkvartettinn er mjög
saínstilltur hópur, nákvæmur og
vandvirkur í besta lagi. Hljóm-
burður Áskirkju hjálpaði og til
þess að gera þessa tónleika mjög
eftirminnilega.
Edda Erlendsdóttir
Sl. sunnudag lék Edda í ís-
lensku óperunni verkefni eftir Jón
Leifs, Hjálmar H. Ragnarsson,
M. Maros, Liszt, Pierre Boulez,
Atla Ingólfsson og Alban Berg.
Edda lék mjög kreijandi efnisskrá
eftir þessa höfunda, þar sem mjög
reyndi á tæknihæfni, túlkun og
skilning flytjandans. Edda fetaði
þessa krákustigu af mikilli fími
og verkin lifnuðu sannarlega í
höndunum á henni. Strax fyrsta
verkið Torrek eftir Jón Leifs gerir
miklar kröfur til flytjandans og
einnig ágætlega skrifaðar Þrjár
prelúdíur eftir Hjálmar Ragnars-
son sem Edda skilaði eftirminni-
lega. Variazioni eftir Miklos Ma-
ros náði að vísu ekki að kveikja
í undirrituðum, en það var, held
ég, ekki flytjandanum að kenna.
Merkilegt var hvað Fr. Liszt féll
vel inn i þessa efnisskrá. En Réve,
Toccate, Nugas Gris og Bagateila
skrifuð 1883-4 sýna Liszt sem
framsýnt og merkilegt brautryðj-
andatónskáld, en það vill stundum
gleymast. Edda skilaði þessum
verkum með tærri tækni og fal-
legu innsæi. Sonata no 1 eftir
Pierre Boulez byggist, eins og
flest hans verk, á miklum og
óvæntum dýnamiskum andstæð-
um. E.t.v. komu þessi einkenni
ekki nægjanlega skýrt fram, en
mjög forvitnilegt var að heyra
þetta þrælerfiða verk í flutningi
Eddu og það að ég best veit, í
fyrsta skipti á Islandi. Atli Ing-
ólfsson fannst mér teygja lopann
um of til að halda manni vakandi
til enda í annars vel píanistisku
verki sem hann kallar A verso.
Tónleikunum lauk á Sónötu op. 3
eftir Alban Berg, sem er eins og
annað frá hans hendi — snilld.
Þessir tónleikar voru sigur fyrir
Eddu og sérlega ánægjulegt var
Edda Erlendsdóttir
að heyra hvað henni hentar vel
túlkun, eða framsetning nútíma-
verka.
Austurlenskir silkiblævængir
Fyrsta sending nýkomin.
Vikutilboð á heildsöluverói, frá 9.-13. febrúar.
sími 626002.
r seiú
sAeQ-
Leitið til okkar:
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 - SÍMI 28300
Öskudagurinn;
Krökkum boðið í versl-
anir við Laugaveg
í TILEFNI öskudagsins munu
kaupmenn og verslunareigendur
við Laugaveg bjóða öllum krökk-
um sem leggja leið sina í miðbæ-
inn á öskudag upp á góðgæti.
Síðustu ár hafa Reykvíkingar
verið að taka upp öskudagssiði
Norðlendinga. Krakkar klæðast
skemmtilegum búningum og arka
á Lækjartorg til þess að slá köttinn
úr tunnunni.
Laugavegssamtökin vilja nú
leggja sitt af mörkum til þess að
auka enn við öskudagsstemmning-
una.
Allir krakkar á leið á Lækjartorg
eru því boðnir velkomnir í verslanir
við Laugaveginn, þar sem þeim
verður boðið upp á eitthvert góð-
gæti. í staðinn vonast verslunar-
fólkið til þess að krakkarnir taki
lagið og syngi fyrir það eitt eða tvö
lög, segir í frétt frá Laugavegssam-
tökunum.
Bókhaldsnám
Tölvuskóli Reykjavíkur býður nú upp á bókhaldsnám fyr-
ir fólk, sem vill ná tökum á bókhaldi fyrirtækja.
Markmið námsins er að þátttakendur verði fullfærir um
að starfa sjálfstætt við bókhaldið og annast það allt árið.
Þeim, sem ekki hafa kynnst bókhaldi, gefst kostur á
sérstöku grunnnámskeiði.
Námskeiðið er 72 klst.
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar.
BcH'qartúni 28. sími 91-687590