Morgunblaðið - 12.02.1991, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991
Hlaupagikkir borgarsljómar
eftir Ólínu
Þorvarðardóttur
Félagi minn Signijón Pétursson
vandar mér ekki kveðjurnar í
skammargrein í Morgunblaðinu sl.
niiðvikudag undir fyrirsögninni:
„Ólína hljóp á sig.“ Vont er mitt
ranglæti en verra er mitt réttlæti
— segir sá ágæti maður og er reið-
ur. Ekki einungis fyrir viðleitni
mína til þess að ná fram lækkun
fasteignagjalda fyrir aldraða, held-
ur ekki síður fyrir það að ég skuli
undrast andstöðu hans við málstað-
inn. En Siguijón greiddi atkvæði
gegn lækkuninni í borgarráði í síð-
ustu viku, og einnig í borgarstjórn
eins og frægt er orðið.
Aðallega fínnst mér þó reiði hans
stafa af því að Alþýðublaðið skuli
hafa tekið eftir þessu — og haft
eitthvað við afstöðu hans að at-
huga. „Sigurjón hljóp til hægri“
sagði blaðið af því tilefni í fyrir-
sögn, og borgarfulltrúinn dró sam-
stundis þá ályktun að afstöðu blaðs-
ins bæri að rekja til mín. En það
er versti misskilningur að ég beri
ábyrgð á fyrirsögnum Alþýðublaðs-
ins enda þótt ég eigi því láni að
fagna að eiga þar skoðanabræður.
Siguijón kýs þó ekki að svara
mér á þeim vettvangi, né heldur í
eigin málgagni (sem var?) Þjóðvilj-
ánum. Hann skrifar að sjálfsögðu
í Morgunblaðið, þar sem hann vek-
ur verðskuldaða athygli á tillögu
Nýs vettvangs um lækkun fast-
eignagjalda. Það var vel gert og
ekki skal ég amast við því hvar
„sósíalistinn" finnur skoðunum sín-
um farsælastan farveg. Þó verð ég
að viðurkenna að mér þykir rauna-
legt að sú samleið skuli liggja með
sjálfstæðismönnum, enda þótt mig
hafi um hríð grunað að svo væri
komið.
Tillögur Nýs vettvangs um
lækkun fasteignagjalda
Samkvæmt tillögu Nýs vett-
vangs, sem Siguijón reiddist svo
illa, er gert ráð fyrir verulegri lækk-
un fasteignagjalda frá því sem nú
er. Við vettvangsmenn viljum miða
við skattleysismörkin (57.000 króna
mánaðartekjur) og reikna afsláttar-
þrepin út frá sambærilegri tölu, en
sjálfstæðismenn og Siguijón vilja
hafa berar örorku- og ellilífeyris-
bæturnar sem viðmiðun, en það eru
39.000 krónur á mánuði. Nýr vett-
Norðurland eystra:
Listi Framsóknar ákveðinn
STJÓRN kjördæmaráðs Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra hefur ákveðið
lista flokksins fyrir komandi al-
þingiskosningum.
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, skipar
fyrsta sæti listans. Valgerður
Sverrisdóttir, alþingismaður, er í
örðu sæti. Þriðja sætið skipar Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson bóndi,
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri, er í íjórða sæti, Dan-
íel Árnason, fulltrúi, í því fimmta
og Guðlaug Björnsdóttir, banka-
starfsmaður í því sjötta.
HMur
fyrir vörubretti
Traust og gott hillukerfi á góðu verði.
Hentar nánast allsstaöar og er fljótlegt í uppsetningu.
Ávallt fyrirliggjandi.
ft
0 0
Q 0
Q 0
O V
O V
0 0
, , . ,\n -G.
HILLUKERFI OG LYFTARAR - ÞAÐ EROKKAR FAG
UMBOÐS- OG HEILD VERSL UNIN
Leitið
upplýsinga
BlLDSHÖFÐA 16SÍMI672444 TELEFAX672580
vangur gerir auk þess ráð fyrir fjór-
um afsláttarþrepum (100%, 80%,
50% og 30%) upp að 76.700 króna
mánaðartekjum einstaklings. Þetta
finnst Siguijóni trúlega fráleitt og
telur 56.000 króna mánaðartekjur
nægjanlegt hámark fyrir einstakl-
ing.
Nú ber þess að geta a upphaflega
flutti ég tillögu sem gekk mun
lengra. Hún hlaut engan hljóm-
grunn, þannig að á síðasta borgar-
stjórnarfundi var flutt varatillaga
sem áður hafði verið kynnt í borgar-
ráði. Sú tillaga kom til móts við
sjónarmið þeirra sem töldu fyrra
tekjumarkið of hátt. Ég skal viður-
kenna að ég hafði gert mér vonir
um að málsvari Alþýðubandalags-
ins myndi taka undir þau sjónarmið
sem að baki lágu — og bera þá
fram breytingartillögu færi svo að
hann gæti ekki fellt sig við varatil-
löguna. Það var hinsvegar borin
von. Siguijón Pétursson greiddi at-
kvæði með tillögu sjálfstæðismanna
sem gerir ráð fyrir óbreyttu fyrir-
komulagi: Að einungis sé tekið til-
lit til örorku- og ellilífeyristekna við
niðurfellingu fasteignagjalda
(39.000/mán.) éins og fyrr segir.
Efstu mörkin miðast síðan við „dag-
vinnulaun lágtekjustétta" eins og
Siguijón benti réttilega á í fyrr-
nefndri skammargrein. Einmitt
þess vegna verð ég að játa, að mér
varð undarlega heitt innanbijósts
þegar ég fylgdist með handleggnum
á Siguijóni Péturssyni takast á loft
er hann samþykkti þá tilhögun.
Réttlætið verra en ranglætið?
Sjálfum sér til afsökunar rekur
Siguijón ástæður fyrir afstöðu sinni
í Morgunblaðinu og segir það órétt-
læti að lækka fasteignagjöld fólks
67 ára og eldra „á meðan fullir
skattar eru lagðir lögum samkvæmt
á 66 ára og yngri, einstæðar mæð-
ur jafnt og fólk sem skuldar yfir
haus vegna öflunar húsnæðis, þótt
tekjur þeirra séu jafnvel helmingi
lægri.“
Nú ber á að láta, að yngra fólk,
þ.m.t. lágtekjufólk sem „skuldar
yfir haus“ ber ekki fulla eigna-
skatta, enda þótt það greiði full
fasteignagjöld. Greiðslubyrði þess
fólks gagnvart hinu opinbera er því
ekki sambærileg við gi-eiðslubyrði
eldra fólks, sem er flest komið með
skuldlausar eignir og greiðir af
þeim full gjöld — án tillits til tekna.
Staðreyndin er nefnilega sú að þekj-
ur rýrna þegar komið er á efri ár,
og eru þ.a.l. ekki í samræmi við
eignastöðu. Þetta finnst Siguijóni
og þeim sjálfstæðismönnum ágætt
fyrirkomulag. En það finnst mér
ekki.
Ég get ekki séð neitt réttlæti i
því að aldraður einstaklingur sem
hefur alla ævi greitt skatta og
skyldur til samfélagsins sé látinn
gjalda þess á efri árum að honum
tókst á sínum tíma að koma yfir
sig húsnæði sem hann kýs að búa
í áfram. Það getur enginn skyldað
nokkurn mann til að „minnka við
sig“ enda þótt Siguijón Pétursson
hafi einhvern tíma viðrað hugmynd-
ir um þjóðnýtingu húsnæðis í borg-
arstjórn. Fólk á rétt á því að búa
í híbýlum sínum svo lengi sem það
sjálft kýs, — og hið opinbera ætti
að sjá sóma sinn í því að gera f'ólki
það kleift.
Hvar eru öldrunar-
úrræðin Sigurjón?
Þar að auki er ekki um auðugan
garð að gresja í öldrunarúrræðum.
SéreignastefnaSjálfstæðisflokksins
hefur leitt það af sér, að fólk á
fárra kosta völ. Hinar svokölluðu
„þjónustuíbúðir“ eru rándýrar sölu-
íbúðir sem kosta jafn mikið ogjafn-
vel meira en húsnæðið sem viðkom-
andi á nú þegar. Á síðasta ári kost-
aði 2ja herbergja þjónustuíbúð með
bílskýli um sjö milljónir króna. Aldr-
aður einstaklingur er engu bættari
íjárhagslega með slíka „minnkun".
Við skulum ekki heldur gleyma
því að í öldrunarmálum ríkir nánast
neyðarástand í Reykjavík, þar sem
aldraður einstaklingur þarf að bíða
í þijú ár eftir hjúkrunarvist og bið-
listar á dvalarheimilin eru óralang-
ir. Einmitt á sama tíma og borgar-
yfirvöld standa ráðþrota frammi
fyrir ástandinu er sorglegt að „mál-
Ólína Þorvarðardóttir
„Ég get ekki séð neitt
réttlæti í því að aldrað-
ur einstaklingur sem
hefur alla ævi greitt
skatta og skyldur til
samfélagsins sé látinn
gjalda þess á efri árum
að honum tókst á sínum
tíma að koma yfir sig
húsnæði sem hann kýs
að búa í áfram.“
svari hirina vest stöddu“ í borgar-
stjórn skuli ekki telja þörf á því að
hlúa að þeim sem vilja og verða að
búa heima.
Já, vont er mitt réttlæti — segir
Siguijón, en verra þykir mér
prinsippleysi „sósíalistans" í borg-
arstjórn. Það er ekki nóg með að
hann hlaupi til hægri, og síðan af
sér hornin í Morgunblaðinu heldur
hefur hann einnig hlaupist undan
merkjum.
Iíöfundur er borgarfulltrúi Nýs
vettvangs.
^SAB
í 30 ár á íslandi
Nýjung !
Suða og slturður
með sama tækinu !
Með Migcut 250/50 hefur ESAB tekist að
gera eitt tæki bæði fyrir PLASTMASKURÐ
(50 Amp.) allt að 15 mm efnisþykkt og
HLÍFÐARGASSUÐU (250 Amp )
Hafðu samband við sölumenn okkar sem
veita allar nánari upplýsingar.
Forysta ESAB er trygging fyrir gæðum og
góðri þjónustu.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SÍMI 624260
VERSLUN - RÁÐGJOF
+ Sokkabuxur 4 pör 490 kr. + Dömu/herraúlpur 2.490 kr. ik Barnaúlpur 1.990 kr.
+ Frottesloppar 1.990 kr. ir Peysur 990 kr.
MARKAÐSHÚSIÐ Snorrabraut 56 (2. hæð), 16131 Opið frá kl. 12 -18, laugardag frá kl. 10 -16.