Morgunblaðið - 12.02.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991
19
Upplýsingamiðstöð ferðamála:
Mikil vonbrigði að borgin skuli
draga sig út úr samsstarfinu
- segir Magnús Oddsson ferðamálastjóri
MAGNÚS Oddsson, ferðamálastjóri, segir að það séu sér mikil
vonbrigði, að Reykjavíkurborg skuli hafa ákveðið að draga sig út
úr samstarfi um rekstur Upplýsingamiðstöðvar ferðamála. Ferða-
málanefnd Reykjavíkur tók ákvörðun þess efnis fyrir nokkru og
mun úrsögnin taka gildi um næstu áramót.
Það eru mér mikil vonbrigði að það sveitarfélag, sem hefur mestar
Reykjavíkurborg skuli hafa tekið
þessa ákvörðun," segir Magnús
Oddsson. „Við höfum átt ákaflega
gott samstarf við borgina um þessa
upplýsingamiðstöð, sem gífurlegur
fjöldi ferðamanna hefur leitað til,
og hefur átt mikinn þátt í þeirri
uppbyggingu, sem átt hefur ser
stað í ferðaþjónustu í borginni. Eg
trúi því ekki fyrr en á reynir, að
tekjur af ferðaþjónustu í formi að-
stöðugjalda, ætli að láta ferðamenn,
sem koma til þessarar fallegu borg-
ar, koma að lokuðum dyrum þegar
þeir leita sér upplýsingu um ferða-
þjónustufyrirtæki og afþreyingu.“
Magnús segir að það sér rétt,
að' Ferðamálaráði beri samkvæmt
lögum að veita ferðamönnum upp-
lýsingar. „En þar sem Ferðamála-
ráð fær aðeins 50% af því fjár-
magni, sem því ber samkvæmt lög-
um, höfum við leitað eftir sam-
starfi við ýmsa aðila um fram-
kvæmd margra hluta, sem okkur
ber að sinna, þar á meðal upplýs-
ingaþáttinn, landkynningu, um-
hverfismál og fleira. Bein fjárfram-
lög aðila til slíkra samstarfsverk-
efna með Ferðamálaráði eru á þesáu
ári um 25 milljónir króna og ég
trúi því ekki fyrr en á reynir, að
borgarfulltrúar geti ekki séð af 3
milljónum til þessa mikilvæga þátt-
ar, á sama tíma og Selfossbær til
dæmis lætur 1 milljón í ár í upplýs-
ingamiðstöð þar í bæ, í samstarfi
við ýmsa aðila,“ segir Magnús
Oddsson.
SIEMENS-sæð/
ÁREIÐANLEG OG HAGKVÆM
ÞVOTTAVÉL FRÁ SIEMENS
SIEMENS þvottavélar eru traustar, endingargóðar og
þægilegar í notkun. Það sannar áratuga reynsla.
Dagsbrún:
Félagssjóður greiðir ekki
kostnað framboðslistanna
i»
S/WAMArpa/S 2BS
e
X
Trúnaðarráð felldi tillögu mótframboðsins
HALLDÓR Björnsson,
skrif-
stofustjóri Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, segir að kostnaður
félagsins vegna stjórnarkosning-
anna í janúar hafi verið mikill
en ekki liggi endanlega fyrir
hversu hár hann verður, þar sem
reikningar eru ekki allir komnir
inn. Segir hann að allur sá kostn-
aður verði greiddur úr félags-
sjóði Dagsbrúnar en framboðs-
listarnir muni sjálfir bera þann
kostnað sem þeir stofnuðu til.
Fulltrúar mótframboðsins lögðu
fram þá tillögu í trúnaðarráði
félagsins, sem skipað er 100 fé-
lagsmönnum, að félagssjóður
greiddi hvorum lista um sig 100
þúsund krónur upp í kostnað
þeirra. Var það fellt með flestum
greiddum atkvæðum.
Halldór sagði að venja væri fyrir
því að framboðslistar við stjórnar-
kjör í Dagsbrún stæðu sjálfir undir
eigin skrifstofuhaldi og öðrum
kostnaði sem fylgdi framboðinu.
„Tillagan frá B-listamönnum í trún-
aðarráði naut ekki stuðnings. Það
voru rúmlega sjötíu manns á fund-
inum og aðeins þrír eða fjórir voru
henni hlynntir. Það hefur aldrei
tíðkast hér að félagssjóður greiði
kostnað framboðslistanna,“ sagði
hann.
WV2852
■ Vinduhraði 600 og 850 snún./mín. ■ Sparnaðarhnappur
og hagkvæmnihnappur ■ Frjálst hitaval og mörg þvottakerfi
■ Þægilegt og aðgengilegt stjórnborð. "Verð kr. 70.900,-
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SIMI 28300
Háskólatónleikar
haldnir á morgnn
HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða miðvikudaginn 13. febrúar kl. 12.30
í Norræna húsinu. Þar koma fram Eiríkur Örn Pálsson sem leikur
á trompet og Pétur Grétarsson á slagverk. Flutt verður amerísk
samtímatónlist eftir William Kraft og Leo Kraft.
Eiríkur Örn Pálsson stundaði
nám við Tónlistarskóla Reykjavíkur
og síðan framhaldsnám í Banda-
ríkjunum. Hann nam fyrst við
Berklee College of Music í Boston,
þá í einkatímum hjá Charles
Schlueter trompetleikara Boston-
sinfóníunnar og síðast við Californ-
ia Institute of the Arts í Los Ange-
les.
Pétur Grétarsson lærði slagverk
fyrst í Tónlistarskólanum í
Reykjavík, en síðan í Berklee Coll-
ege of Music í Boston. Hann stund-
ar lausaleik hjá Sinfóníuhljómsveit
íslands og öðrum þekktum hljóm-
sveitum og leggur að jöfnu alvar-
lega tónlist og þá sem er að hryn-
rænni toga t.d. jazz. Pétur hefur
undanfarin ár unnið mikið við leik-
hús auk þess sem hann kennir við
slagverksdeild Tónlistarskóla F.Í.H.
Húðin verndar þig.
Vemdar þú húðina?
pH5-Eucerin
til verndar húðinni.
Ráðstefna um opinber útgjöld
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ gengst fyrir ráðstefnu í dag í Borgart-
úni 6 frá kl. 13-17 sem ber yfirskriftina: „Opinber útgjöld: ísland í
norrænu ljósi. í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að
á ráðstefnunni verði reynt að líta á opinber útgjöld í nýju ljósi og
fjallað um hlutverk hins opinbera í framtíðinni.
Á ráðstefnunni verður dreift inga sem leitað verður svara við á
íslenskri þýðingu og endursögn
norrænnar skýrslu um „Norræna
velferðarsamfélagið á aðhaldstím-
um“. Þar munu einni koma fram í
ræðu og riti upplýsingar um þróun
opinberra útgjalda hérlendis og
horfur í þeim efnum. Meðal spurn-
ráðstefnunni er hvort unnt sé að
hemja vöxt ríkisútgjalda og minnka
þau án þess að skerða velferðar-
þjónustuna. Fundarstjóri á ráð-
stefnunni er Sigmundur Guðbjarna-
son háskólarektor.
Búið með ólöglegar laxveiðar
STJÓRNVÖLD í Panama ætla hér eftir að hlíta samþykktum um
bann við laxveiðum í Norðaustur-Atlantshafi. Danskir útgerðarmenn
geta því ekki lengur sniðgengið bannið með því að sigla undir öðrum
fána, panömskum eða pólskum, en Danir eru sjálfir aðilar að bann-
inu eða NASCO-samþykktinni frá 1984.
Það eru einkum skip frá Borg- og Póllandi að koma í veg fyrir
undarhólmi, sem hafa stundað þess-
ar veiðar en þeim hefur verið mót-
mæjt harðlega, aðallega í Noregi
og íslandi. í fyrra lögðu stjórnvöld
í Bandaríkjunum, Sovétríkjunum, á
Norðurlöndum og Evrópubandalag-
ið hart að ráðamönnum í Panarrja
þetta og hafa þeir nú orðið við því.
I síðasta mánuði voru eigendur sex
laxveiðibáta á Borgundarhólmi
dæmdir til að greiða nærri 250
milljónir ísl. kr. í sekt fyrir ólögleg-
ar veiðar.