Morgunblaðið - 12.02.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991
21
Bretland;
Engar horfur á
að vetrarhörkum
linní á næstu dögum
St. Andrews, frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
UMTALSVERÐAR vetrarhörkur hafa nú staðið í sex daga á
Bretlandi og engar horfur eru á, að þeim linni fyrr en um
næstu helgi. Snjóþyngsli og kuldi hafa truflað samgöngur og
valdið slysum á mönnum.
Sl. fimmtudag gerði mikla snjó-
komu í suðurhluta Englands og
meðfram allri austurströnd Eng-
lands og Skotlands. Síðan hefur
snjóað á hveijum degi í Suðaustur-
Englandi og hiti hefur varla kom-
ist upp að frostmarki á daginn.
Snjókoman hefur valdið miklum
truflunum á samgöngum. Vegir
hafa víða orðið ófærir, járnbrauta-
kerfið hefur farið algerlega úr
skorðum og flugvellir hafa iðulega
verið lokaðir heila og hálfa daga.
Nk. fímmtudagur, 14. febrúar,
er Valentínsmessa, sem er dagur
elskenda. Af því tilefni eru árlega
fluttar inn milli 2 og 3 milljónir
rósa frá ísrael. Nú óttast menn,
að ekki verði mögulegt að dreifa
rósunum um landið í tæka tíð
vegna veðursins.
Dauðsföll vegna slysa, sem
veðrið hefur valdið, eru 12 fram
til þessa. Þó nokkrir fjallgöngu-
menn í Skotlandi hafa látist vegna
veðursins og fólk hefur farist í
umferðarslysum. Læknar óttast
að gamalt fólk muni deyja unn-
vörpum á næstu dögum og vikum
vegna kuldans, en það býr gjarnan
í lélegu húsnæði og hefur ekki
efni á að kynda.
Veðrið olli því að einungis fjórir
knattspyrnuleikir í Englandi fóru
fram sl. laugardag en heldur fleiri
á Skotlandi. Enginn rugby-leikur
fór fram um helgina og öllum
hestaveðhlaupum hefur verið af-
lýst síðan sl. fimmtudag.
Vegna kulda annars staðar í
Evrópu hefur sjaldséðum fuglum
ijölgað við strendur Bretlands.
Þannig hefur duggöndum fjölgað
mikið og vart hefur orðið við
nokkrar hvítendur frá Skandinavíu
eða Rússlandi. Ein straumönd hef-
ur sést við Vík í Norður-Skot-
landi, en það er einungis tólfta
straumöndin, sem sést hefur á
Bretlandi sl. 130 ár. Breskir fugla-
vinir óttast að fuglar verði illa úti
í þessu kuldakasti.
*
Reuter
Götusóparl í London reynir að ryðja fótgangandi vegfarendum braut.
Danmörk:
Ný útfararað-
ferð viðurkennd
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
ÚTFARARFYRIRTÆKI á
Borgundarhólmi hefur fengið
leyfi til að haga útförum þann-
ig að eftir líkbrennslu verður
ösku hins látna dreift yfir haf-
ið kringum Borgundarhólm.
Þetta er í fyrsta skipti sem
gefið er leyfi fyrir slíkum útförum
í Danmörku. Kirkjumálaráðuneyt-
ið og umhverfismálaráðuneytið
hafa viðurkennt aðferðina.
Kirkjumálaráðuneytið hefur á
síðustu árum fengið um 20 beiðn-
ir frá fólki sem óskaði eftir því
að fá hinstu hvílu á þessu formi
eftir lát sitt. Verð slíkrar útfarar
er á bilinu 38.000 - 57.000 ÍSK.
ERUNGUR BJARNASON ER UNUMAÐUR
Erlingur veit hvað er í húfi ef rafmagnið fer.
Þess vegna berst hann ótrauður við illfærur
og vonskuveður til að lagfæra línur.
Hja okkur starfa 65 linumenn sem eru
reiðubúnir á nóttu sem degi til að tryggja
þér öruggt rafmagn.
RAFMAGNSVEITUR
. RÍKISINS j
lifandiafl Æ