Morgunblaðið - 12.02.1991, Síða 23

Morgunblaðið - 12.02.1991, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FBBRÚAR 1991 23 Reuter Gætt að undirstöðuatriði Breskur lautinant í fótgönguliðinu, James Gaselee, sinnir hér mikil- vægu starfi; þ. e. hann athugar hvemig fætur liðsmannanna hafast við. Líkþom og önnur fótarmein hafa löngum verið erkióvinir hermanna í fótgönguliði og vistin í eyðimörkinni reynist mörgum þolraun enda sandurinn afar fíngerður og smýgur inn um öll göt og rifur. Bandar- íski herhöfðinginn Norman Schwarzkopf, sem er aðalstjórnandi liðs bandamanna í reynd þótt Saudi-Arabi sé það að nafninu til, hefur pantað nýja gerð af hermannastígvélum handa bandaríska liðinu. Hann sagði að gömlu stígvélin væru einkum gerð fyrir votlendi. Hussein Jórdaníukonungur: __ Obreytt afstaða Washington, Amman. Reuter. Suður-Afríka: ------------ Mikilvægn vitni gegn Winnie Mandela rænt Jóhannesarborg. Reuter. RÉTTARHÖLDUM yfir Winnie Mandela í hæstarétti Suður-Afríku var frestað í gær eftir að saksóknari hafði tilkynnt að einu af helstu vitnum hans hefði verið rænt. HUSSEIN Jórdaníukonungur sagði á sunnudag að ríki hans hefði alltaf Iýst andstöðu við innrás Iraka í Kúveit og sú afstaða væri óbreytt þrátt fyr- ir ræðu hans í síðustu viku þar sem hann fordæmdi stríðs- rekstur bandamanna. Konung- ur sagði að gagnrýni Banda- ríkjastjórnar hefði verið „sær- andi“ en embættismenn í Hvíta húsinu hafa sagt að konungur sé horfinn frá hlutleysisstefnu og styðji nú Iraka. Bandaríkjamenn segja jafn- framt að Hussein aðstoði stjóm- völd í Bagdad við að æsa almenn- ing í arabaríkjunum til andstöðu við Bandaríkin. Meirihluti íbúa Jórdaníu er Pa- lestínumenn og talið er að flestir landsmenn styðji málstað íraka. Jórdanir ráða ekki yfir neinum olíulindum og hafa orðið fyrir miklu fjárhagstjóni af völdum Persaflóadeilunnar, samanlagt er talið að það nemi um tveim mill- jörðum Bandaríkjadollara (um 108 milljörðum ÍSK). Einkum hefur viðskiptabannið á írak reynst þeim erfítt enda landið mesta viðskipta- land þeirra. Stjómvöld í Bandaríkjunum segja að fjárhagsaðstoð þeirra við Jórdani verði tekin til endurskoð- unar en hún nam um 55 miljónum dollara (3.000 milljónum ÍSK) á sl. ári. Talsmenn flokks bókstafs- trúarmanna í Jórdaníu gagnrýna þessi ummæli harðlega, segja að Bandaríkjamenn séu að reyna að þvinga eigin stefnu upp á lands- menn. Jórdanskir embættismenn ★ GBC-lnnbinding Fjórar mismunandl gerðir af efni og tækjum til innbindingar OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 • 105 Reykjavik Símar 624631 / 624699 viðurkenna þó að bandaríska að- stoðin skipti sköpum fyrir efnahag landsins. Winnie Mandela, eiginkona Nel- sons Mandela, leiðtoga Afríska þjóðarráðsins (ANC), kvaðst sak- laus af ákæmm um hafa rænt og misþyrmt fjórum ungum blökku- mönnum er saksóknarinn las ákæmatriðin. Saksóknarinn til- kynnti þá að einum af fjórmenn- ingunum hefði verið rænt að nýju á sunnudag. Þetta olli miklu upp- námi í salnum og dómarinn fre- staði réttarhöldunum þar til í dag eða uns lögreglan fyndi vitnið. Saksóknarinn kvaðst ekki vilja leiða fram önnur vitni í málinu vegna mannránsins. Winnie Mandela og lífverðir hennar em sökuð um að hafa rænt fjórum ungum blökkumönnum úr gjstihúsi meþódistakirkjunnar í Soweto fyrir tveimur ámm. Þau em einnig sögð hafa misþyrmt fjórmenningunum alvarlega á meðan þau héldu þeim gegn vilja þeirra á heimili Mandela. Einn þeirra, Stompie Seinei, 14 ára blökkumaður, fannst síðar látinn í skurði. Einn af fyrram lífvörðum Mandela var dæmdur til dauða í fyrra fyrir morð á Seinei. Winnie Mandela kveðst ekki hafa misþyrmt fjórmenningunum og segir að lífverðir hennar hafí tekið þá úr gistihúsi meþódista- kirlq'unnar til að bjarga þeim und- an presti, sem hafi misnotað þá kynferðislega. Winnie Mandela. BIRKENST0CK NYKOMNIR sandalarfyrirdömur og herra íúrvali Laugavegi 41, sími 13570 TegiArizona, stærð- ir:35-40kr. 3.590,- 41-46 kr. 3.970,-. Skóverslun Þórðar, Kirkjustræti 8, sími 14181. LAXALON - FISKELDISSTOÐ Til sölu eru eignir þrotabús Laxalóns hf. Helstu eignir búsins eru: 1. Fiskeldisstöðin Fiskalón í landi Þóroddstaða í Ölf- ushreppi. 2. Fiskeldisstöðin við Laxalón í Grafarholtslandi, Reykjavík. 3. Jörðin Hvammur í Kjósarhreppi, Kjósarsýslu. Hefur verið nýtt sem útivistarsvæði, golf og veiði. 4. Jörðin Hvammsvík í Kjósarhreppi, Kjósarsýslu. Aðstaða á jörðinni og í sjónum hefur verið nýtt til fiskeldis í kvíum. Jörðin hefur einnig verið notuð til útivistar. 5. Lax og regnbogasilungur í ýmsum stærðum. 6. Tveir bátar, annar 8-10 tonna sérútbúinn vegna fiskeldis, og hinn 18 feta plastbátur. 7. Sjókvíar, ýmis tæki til fiskeldis, bifreiðar, dráttavél- ar, skrifstofubúnaður og ýmislegt annað lausafé. Eignirnar verða seldar í einu lagi eða hlutum. Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Tilboðum í eignirnar skal skilað til, Jóhannesar Sig- urðssonar, hdl., bústjóra þrotabúsins, sem jafnframt veitir nánari uppýsingar um eignirnar. Tilboðum skal skila eigi síðar en 26. febrúar 1991. LÖGMANNASTOFA, Ásgeirs Björnssonar, hdl., og Jóhannesar Sigurðssonar, hdl., Laugavegi 178, Reykjavík. Sími: 624999. Telefax: 624599. m «o co iri 00 Góðan daginn! Hjá okkur sitja gæðin í fyrirrúmi. opti . JH !HÍÍr | AUt*- | *—/ I polltur | l*er#chi« f FAE kúi u- og rúllulegur TIMKEN Keilulegur Ásþétti n Qnlinenlal Viftu- og tímareimar precision Hjöruliðir SACHS Höggdeyfar ogkúplingar WTgSfíi Bón- og bilasnyrtivörur Þekking Reynsla Þjónusta FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.