Morgunblaðið - 12.02.1991, Síða 25

Morgunblaðið - 12.02.1991, Síða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Island og Litháen Fokin tré í Múlakoti. Þegar leið að lokum fyrri heimsstyij aldarinnar, 1914-1918, fengu hugmyndir um sjálfsákvörðunarrétt þjóða og þjóðarbrota ríkari hljóm- grunn í álfunni. Sú fijálsræðis- alda, sem þá reis, færði ýmsum þjóðum fullveldi, þar á meðal Eystrasaltsþjóðunum þremur og íslendingum. Snemma árs 1918 samþykkti þingið í Lithá- en lög um sjálfstæði landsins; lýsti yfir endurreisn sjálfstæðs lýðræðisríkis. Raunar rekur sjálfstætt Litháen rætur aftur á miðja 13. öld, er fyrsti kon- ungur Litháens tók við veld- iskrúnu úr hendi Innósentíusar páfa IV. íslendingar viður- kenndu hið endurreista sjálf- stæði Litháens 21. janúar 1922 og hafa aldrei síðan breytt þeirri afstöðu. Við upphaf heimsstyijaldar- innar síðari gerðu utanríkisráð- herrar Sovétríkjanna og Þýzka- lands (þriðja ríkisins), Molotov og Ribbentrop, svonefndan „griðasamning“, sem leiddi til „innlimunar" Eystrasaltsríkj- anna í Sovétríkin. Síðan hafa Kremlveijar litið á þau sem sovézk ríki, jafnvel eftir að þing Sovétríkjanna lýsti fyrrnefndan „griðasáttmála“ Hitlers og Stalíns ólöglegan og ógildan, 4. desember 1989. Frá lyktum síðari heimsstyijaldarinnar hafa Eystrasaltsþjóðirnar háð sjálfstæðisbaráttu, sem máski reis hæst í þjóðaratkvæði Lit- háa um eigið sjálfstæði. Það hefur vakið heimsathygli fyrir tvennt. í fyrsta lagi mjög sér- stæðar kringumstæður, sem m.a. mótast af yfirgangi sov- ézks hers í landinu, „áskorun“ Kremlveija til Litháa um að sniðganga kosningarnar og síð- ast ekki sízt það, að flutningar fólks frá og til landsins á liðn- um áratugum valda því, að rúm 20% íbúa landsins nú eru Rúss- ar. í annan stað vegna mjög mikillar kosningaþáttöku, þrátt fyrir þessar aðstæður, og nær einróma niðurstöðu. í þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi árið 1944, annars vegar um niðurfellingu dansk-ís- lenzka sambandslagasamn- ingsins frá 1918 og hins vegar um stjórnarskrá lýðveldisins íslands, var kosningaþátttaka mjög mikil, eða um 98%. 97% þeirra, sem gengu að kjörborð- inu, samþykktu sambandsslitin og 95% samþykktu stjórnar- skrá lýðveldisins. Allar aðstæð- ur voru eins og bezt verður á kosið og kölluðu beinlínis á metkjörsókn og þá niðurstöðu sem raun varð á. Aðstæðumar voru allt aðrar í Litháen nú en á íslandi árið 1944. Sovézkur her er í landinu, sem beitt hefur margs konar ofbeldi, og var til alls líklegur. Meir en tuttugu af hveijum hundrað kjósendum voru innfluttir Rússar. Kreml- veijar höfðu hvatt landsmenn til að sitja heima. En þrátt fyr- ir þessar kringumstæður kusu 84,5% kosningabærs fólks. Rúmlega 90 af hveijum 100, sem gengu að kjörborðinu, lýstu stuðningi við sjálfstætt Litháen. Vilji Litháa til sjálf- stæðis verður ekki dreginn í efa. Sama gildir augljóslega um vilja meirihluta hinna innfluttu Rússa. Miðað við allar aðstæð- ur er sigur sjálfstæðissinna í Litháen engu minni í þessu þjóðaratkvæði en sigur lýðveld- issinna í lýðveldiskosningunum hér á landi 1944. Tvennt hefur öðra fremur verið fært fram gegn sjálfræði Litháa. í fyrsta lagi Molotov- Ribbentrop-samningurinn 1939. Sú röksemd nær skammt, enda hefur sjálft sovézka þingið lýst hann ólög- legan og ógildan. í annan stað segja Kremlveijar að Vestur- lönd hafi með undirskrift loka- skjals Helsinkisáttmálans 1975 fallizt á tiltekna landamæra- helgi, sem feli í sér viðurkenn- ingu á innlimun Eystrasalts- ríkjanna. Sú staðhæfing stenzt heldur ekki. Gerald Ford, Bandaríkjaforseti, setti fram sérstakan fyrirvara, í þessu efni, varðandi Eystrasaltsríkin og ummæli Geirs Hallgríms- sonar, þáverandi forsætisráð- herra, við undirskrift Helsinki- sáttmálans, sem rifjuð vora upp hér í blaðinu sl. sunnudag, verða heldur ekki misskilin. Önnur Vesturlönd hafa og hafnað þessum skilningi Kremlveija. Utanríkisráðherra íslands hefur áréttað að mál Eystrasaltsríkjanna séu arfur seinni heimsstyijaldarinnar með sama hætti og skipting þýzku ríkjanna, sem nú hafa sameinast á ný. Grandvallar- reglan er að innrás og hernám myndi aldrei rétt einnar þjóðar til afskipta af annarri. Af þessum sökum ber að fagna því að íslenzkir þing- flokkar bera gæfu til að ná saman um einróma íslenzka afstöðu, þar sem ítrekuð er fyrri viðurkenning á sjálfstæðu Litháen og ákvörðun tekin um eðlilegt stjórnmálasamband milli ríkjanna. Múlakot í Fljótshlíð: Tæplega aldargömul tré rifnuðu upp með rótum Hvolsvelli. í ÓVEÐRINU á dögunum rifn- aði hátt á annan tug trjáa upp með rótum í Múlakoti í Fljótshlíð. Sum þessi tré eru yfir 90 ára gömul. Árið 1897 gróðursetti Guðbjörg Þorleifsdóttir húsfreyja í Múlakoti margar tijáplöntur framan við bæinn. Þessi garður var rómaður fyrir fegurð og var þetta upphafíð að tijárækt í sveitum landsins. Um áraraðir var gisti- og veitinga- sala í Múlakoti. Þá var setið úti og drukkið kaffi. Garðurinn var þá gjarnan skreyttur með mislitum ljósaperum að erlendum sið. Það er sorglegt að sjá gamla garðinn eftir óveðrið. Stór og virðuleg tré liggja á hliðinni og önnur hafa skekkst. Þá fauk hjólhýsi sem staðsett var upp við klettana rétt austan við lundinn í Múlakoti. Það hefur fokið eina 100 metra yfir tún, girð- ingu og veg. Það er ekkert eftir af hjólhýsinu annað en dekkin og gólfið. Annað hefur dreifst um túnin og fokið inn í lundinn. Brak- ið úr hjólhýsinu og innihald þess er útum allt. Pottar, könnur, inn- réttingar og fleira, allt malað mélinu smærra. Þá vafðist önnur hlið hússins utan um nokkrar asp- Myndin sýnir brak úr hjólhýsinu. ir í lundinum. Árni Guðmundsson í Múlakoti sagðist giska á að hjól- hýsið hafi farið í mörg þúsund parta. Það verður mikið verk fyrir eigendurna að hreinsa þetta allt upp. I Múlakoti er flugvöllur og flug- skýli. Þar fauk stöng með vind- poka. Að sögn flugmálastjórnar Morgunblaðið/Steinunn Ó. Kolbeinsdóttir eiga þessir pokar alls ekki að geta fokið. Árni sá hinsvegar stöngina takast á loft og fara í um 10 metra hæð áður en hún lagðist niður. Áma fannst ótrúlegt hvað mörg tré rifnuðu upp. Hann sagði að jafnvel tré sem voru í bestu skjóli hefðu einnig rifnað upp. - S.O.K. Dráttarbáturinn Orion til heimahafnar eftir tveggja mánaða útiveru DRÁTTARBÁTURINN Orion II kom til Reykjavíkur á sunnudags- kvöld eftir rúmlega tveggja mánaða ferð til Englands. Orion II, sem er í eigu Köfunarstöðvarinnar hf., fór til Englands í lok nóv- ember til að sækja gröfu- og hífingarprammann Dag II, sem er 893 tonn að stærð. Áhöfn Orions II beið í tæpa tvo mánuði í Englandi eftir að óveður, sem varið hefur á Englandi sl. mánuð, gengi yfir. Orion II fór til Englands til að sækja Dag II sem er gröfu- og hífingarprammi og kemur í stað Dags I, sem sökk á Faxaflóa í október í fyrra. Ferðin til íslands gekk án meiri- háttar áfalla, ef undan er skilið þegar Orion II fékk tóg í aðra skrúfuna við Vestmannaeyjar. Veður á leiðinni var mjög risjótt, en miklu var kostað til að tryggja fullt öryggi í ferðinni. Dráttarbún- aður var óvenju sterkbyggður og var dráttartaug í báðum skipum. Krani um borð prammanum og annar búnaður var soðinn fastur við dekkið, en íslenskir járniðnað- armenn fóru til Englands fyrri jól til að vinna það verk. Dagur II mun á næstunni fara í að ljúka dýpkunarverki fyrir Reykjavíkurhöfn við Vogabakka. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991 25 Hugsanlegur innflutningur landbúnaðarvara; Hvert 1% í innflutningi gæti þýtt 150 ársverka samdrátt - segir framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda TALIÐ er að innflutningur á hverju 1% af markaðshlutdeild unn- inna mjólkur- og kjötvara geti þýtt um 150 ársverka samdrátt í þessum greinum. I GATT- tilboði ríkisstjórnarinnar var gefið fyrir- heit um rýmkaðar innflutningsheimildir á þessum vörum, og höfðu ráðherrar í ríkissljórninni gefið í skyn að þar gæti að hámarki verið um 1-5% af markaðshlutdeild að ræða. Þetta kom fram í erindi Hákons Sigurgrímssonar, framkvæmdasljóra Stéttarsam- bands bænda, um áhrif GATT-samkomulagsins á íslenskan landbún- að, sem hann flutti á ráðunautafundi Búnaðarfélags íslands og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. Hákon sagði að fyrirheit í GATT-tilboði ríkisstjórnarinnar um rýmkaðar innflutningsheimild- ir hefði komið á óvart og verið án nokkurs samráðs við Stéttarsam- band bænda. Hann sagði að af íslenska tilboðinu væri nánast ekk- ert hægt að ráða um það hvernig framkvæmdinni við hugsanlegan innflutning yrði hagað, enda væri það í stærstum dráttum háð því hvemig samið yrði um það á veg- um GATT. Stéttarsambandið hefði spurst fyrir um ýmis atriði sem snerta framkvæmdinna í bréfi til ríkisstjórnarinnar 19. nóvember síðastliðinn, en engin svör við því hefðu borist. Hákon sagði nauð- synlegt að átta sig á því að þátt- tökuþjóðir GATT yrðu í aðalatrið- um að sæta því heildarsamkomu- lagi sem gert yrði. Þess vegna virtist ekki vera um sérsamninga eða fyrirvara að ræða nema í mjög takmörkuðum mæli, og ef hann skildi málið rétt, þá væri það því í raun ekki á færi íslenskra stjórn- valda að ákveða framkvæmdaat- riði málsins á þessu stigi. Hákon sagði að eitt af áherslu- atriðum Stéttarsambands bænda í tengslum við GATT málið væri að lögð yrðu jöfnunargjöld á þær vörur, sem hugsanlega yrði heimil- að að flytja til landsins, þannig að samkeppni við íslenskar afurðir yrði fyrst og fremst á grundvelli gæða en ekki verðs. Á GATT fund- inum í desember hefði legið i loft- inu að slíkar verndarreglur yrðu heimilaðar, en ekki hefði verið ljóst hvort þar yrði um jöfnunargjöld að ræða eða breytilega tolla, sem myndu gera svipað gagn. „Það skiptir okkur gífurlega miklu máli hver niðurstaðan verður að þessu leyti. Ég hygg að við þyrftum ekki að óttast svo mjög samkeppni á grundvelli gæða, en við stæðum mjög höllum fæti í verðsam- keppni, að minnsta kosti fyrst í stað,“ sagði Hákon. Hann sagði að með töku jöfnun- argjalda eða tolla væri verið að jafna mun á heimsmarkaðsverði þess landbúnaðarhráefnis, sem notað væri í hinar innfluttu vörur, og á verði samskonar hráefnis hér innanlands, en þar gæti til dæmis verið um að ræða osta og kjöt sem notað er í pizzur. Þetta eitt sér nægði þó ekki til að jafna verð- muninn, þar sem íslenskt landbún- aðarhráefni væri í mörgum tilfell- um einungis 20-30% af því hrá- efni, sem notað er í viðkomandi vörur, og innflutningsverndin næði því aðeins til þess hluta hráefnis- ins, en til þess að jafna verðmun- inn að fullu þyrftu því aðrir þætt- ir að vera samkeppnisfærir. Ef innlendur matvælaiðnaður væri ekki samkeppnisfær hvað fram- leiðslukostnaðinn snertir dygðu jöfnunargjöldin skammt til vernd- ar, og því væri engu að síður mikil- vægt að huga að hagræðingu í matvælaiðnaðinum en í búvöru- framleiðslunni ef takast ætti að standast þá samkeppni, sem huggsanlegur aukinn innflutning- ur veitti. GATT-viðræðurnar hafa nú ver- ið teknar upp að nýju á embættis- mannagrundvelli, og er talið að á næstu mánuðum verði reynt að finna niðurstöðu sem meirihluti getur skapast um. Umboð banda- rísku sendinefndarinnar rennur út í mars, en talið er að umboðið verði framlengt í tvö ár, og það geti tekið allt að því þann tíma að finna grundvöll til samkomu- lags. Stúdentaráð: Frumvarpi um sjóðs- happdrætti mótmælt Aðför að Happdrætti Háskólans STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands hefur mótmælt frumvarpi dóms- málaráðherra um sjóðshappdrætti. SHÍ segir að sjóðshappdrættið verði peningahappdrætti, og verði því í beinni samkeppni við Happ- drætti Háskólans. Stúdentaráð hefur sent dóms- málaráðherra, forsætisráðherra, menntamálaráðherra og fjármála- ráðherra eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var á fundi ráðsins 1. febrúar: „Stúdentaráðsfundur þann 1. fe- brúar 1991 mótmælir aðför þeirri að einkaleyfi Hapþdrættis Háskóla íslands á peningahappdrætti sem frumvarp til laga um sjóðshapp- drætti til stuðnings flugbjörgunar- málum og skák er. Það að greiða vinninga út í ríkis- skuldabréfum er ekkert annað en peningahappdrætti og hlýtur að teljast árás á einkaleyfi það, er Happdrætti Háskóla íslands hefur til ársins 2000. Ríkisstjórnin hefur oftsinnis áður reynt með einum eða öðrum hætti að draga fé úr Happ- drætti Háskóla íslands til annarra nota en kveður á í reglugerð um Morgjmblaðið/KGA- i i ist, happdrættið. Stúdentaráð mótmæl- ir enn einni aðförinni og hvetur til endurskoðunar á áðurnefndu frum- varpi. Stúdentaráð minnir á að Happdrætti Háskóla íslands borgar um 20% af brúttótekjum sínum í einkaleyfisgjald til ríkissjóðs." Arnþór Helgason tekur fyrstu skóflustunguna að nýju fjölbýlishúsi Hússjóðs Oryrkjabandalagsins við Sléttuveg. Hússjóður Öryrkjabandalagsins: Fyrsta skóflustung- an tekin að fjölbýlis- húsi við Sléttuveg FYRSTA skóflustungan að fjölbýlishúsi Hússjóðs Oryrkjabandalagsins að Sléttuvegi 7 i Reykjavík var tekin síðastliðinn laugardag. I húsinu verða 33 tveggja til fjögurra herbergja íbúðir. Verða þar m.a. gesta- íbúðir sem leigðar verða MS-félaginu, sem ætlar að koma upp dag- vistun og endurhæfingaraðstöðu í tengslum við bygginguna. I fréttatilkynningu frá Öryrkja- bandalaginu segir að breyttar þjóð- félagsaðstæður kalli sífellt á ný og fjölþættari úrræði fyrir fjölskyldur fatlaðra. Með fjölbýlishúsinu sem nú hefur verið tekin fyrsta skófl- ustungan að sé einmitt hugsað fyr- ir því að koma til móts við hinar margvíslegu þarfir og aðstæður fatlaðra og m.a. tekið tillit til þess að saman geti búið fatlaðir og ófatl- aðir. Hússjóður Öryrkjabandalagsins, sem verður fimm ára 22. febrúar nk., er sjálfseignarstofnun með fimm manna stjórn. Eru fjórir kosn- ir af stjórn bandalagsins og einn tilnefndur af félagsmálaráðherra. Aðalhvatamaðurinn að stofnun sjóðsins og formaður allt til hins síðasta var Oddur Ólafsson fyrrum yfirlæknir og alþingismaður. Hlut- verk sjóðsins er að eiga og reka íbúðarhús fyrir öryrkja og í dag eru 379 íbúðir víðs vegar á landinu í eigu Hússjóðsins þar af 300 í Reykjavík. Tekjustofn Hússjóðsins hefur fr|i árinu 1987 verið tekjuhlutur hans frá íslenskri getspá, Lottóinu. Frá þeim tíma hafa verið keyptar og byggðar 89 íbúðir og fimm einbýlis- hús en þau eru leigð svæðisstjórn- um undir sambýli. Þörfin fyrir íbúðarhúsnæði af þessu tagi er mjög mikil og eru um 300 manns á biðlista í dag. Formaður stjórnar Hússjóðs er Tómas Helgason, prófessor, og framkvæmdastjóri er Anna Ing- varsdóttir. Viljum enga ríkisstyrki en eðli- v legt að veitt verði ríkisábyrgð - segir Jón Ólafsson formaður Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda „ÞAÐ eru alveg hreinar línur að við viljum enga ríkisstyrki vegna loðnubrests en okkur finnst eðli- legt að loðnuverksmiðjunum verði veitt ríkisábyrgð á banka- lánum, fáist fyrirgreiðsla ekki með öðrum hætti. Við munum hins vegar greiða þau lán,“ segir Jón Ólafsson framkvæmdastjóri . Félags íslenskra fiskmjölsfram- leiðenda. Skipuð hefur verið nefnd til að fjalla um þann vanda, sem skapast vegna loðnubrests, til dæmis þjá loðnuverksmiðjum, bæjar- og _ sveitarfélögum og verkafólki. I nefndinni eru full- trúar fimm ráðuneyta, sjávarút- vegs-, forsætis-, félagsmála-, fjármála- og utanríkisráðuneytis. „Við höfum talið að ekki sé enda- laust hægt að vísa á bankana,“ segir Jón Olafsson. „Bankarnir geta ekki lánað okkur endalaust, enda er ekki fýsilegt að lána fyrirtækjum, sem ekki eru í neinum rekstri og ekki er bjart framundan hjá á næst- unni. Við höfum hins vegar bent á að loðnubræðsla er rótgróinn iðnað- ur, sem við getum ekki verið án. Þar af leiðandi sé ósköp eðlilegt að okkur sé hjálpað á meðan erfiðleik- ar steðja að,“ heldur Jón fram. Þegar loðnuveiðar voru bannaðar um áramótin var sett á laggirnar svokölluð bjargráðanefnd með full- trúum Landssambands íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiski- mannasambands íslands, Sjó- mannasambands íslands og Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda. „Bjargráðanefndin var aðallega stofnuð til að aðstoða sjávarútvegs- ráðuneytið við aðgerðir en nefnd- inni var fljótlega skipt upp í fulltrúa veiða annars vegar og vinnslu hins vegar,“ upplýsir Jón Ólafsson. Hann segir að útgerðarmenn og sjómenn deili um framsalsrétt á auknum bolfiskkvóta loðnuskipa en sjómenn vilji að óleyfilegt verði að framselja þennan kvóta. „Fulltrúar vinnslunnar hafa til dæmis skoðað möguleika á bræðslu á kolmunna en hann er ekki fýsilegur til bræðslu miðað við núverandi afurðaverð. Það er því lítið um önnur verkefni fyrir verksmiðjurnar, þegar ekki er um loðnubræðslu að ræða, þannig að þetta er bara spurning um fjár- hagsfyrirgreiðslu og í hvaða formi hún eigi að vera,“ segir Jón. Arnarflug innanlands: Lendingargjöld síðustu tveggja ára ógreidd ARNARFLUG innanlands á enn eftir að greiða Flugmálasljórn lendingargjöld vegna starfsemi félagsins síðustu tvö ár. Pétur Einarsson, flugmálastjóri, segir Arnarflug innanlands eiga óuppgerðar skuldir við Flugmála- stjórn fyrir tvö síðustu ár og sé þar fyrst og fremst um lendingargjöld að ræða. Segir hann skuldina vera einhvers staðar nálægt níu milljón- um króna án dráttarvaxta. Aðspurður um hvort félaginu hefðu verið settir einhvetjir úrslita- kostir vegna þessarar skuldar sagði hann að það hefði verið gert fyrir eigendaskiptin sem urðu nýlega'á félaginu. „Nýju eigendurnir komu til mín fyrir skömmu og við erum að ganga frá því hvernig best sé að gera þetta upp,“ segir Pétur. Hann segir ekki vera mikið um að gjöld til Flugmálastjórnar séu í vanskilum og standi lang stærsti viðskiptiaðilinn, Flugleiðir, s^jn greiðir um 90% af þessum gjöldum, ávallt fullkomlega í skilum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.