Morgunblaðið - 12.02.1991, Síða 41

Morgunblaðið - 12.02.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1991 41 HARMLEIKUR Þrjú ungmenni tróðust til bana á rokkhlj ómleikum Hitinn í húsinu steig upp í tæp 40 stig. Myndin var tekin í upphafi hljómleikanna í Salt Palace. Hin feikivinsæla ástralska þungarokkssveit AC/DC hef ur verið á ferð og flugi með. hljóm- leikahald um heim allan sem endra- nær. Um miðjan janúar var sveitin í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Salt Lake City, og þar enduðu hljómleikamir með skelfingu er þrjú ungmenni tróðust til bana og marg- ir slösuðust, sumir alvarlega. Gítarleikarinn Angus Young nær og söngvarinn Brian Johnson fjær, á fullri ferð skömmu áður en ósköpin dundu yfir. Hljómsveitina og öryggisvörðum greinir á um ýmislegt varðandi at- burðarásina, en AC/DC var mjög svo legið á hálsi fyrir að skeyta engu um og leika áfram af öllum kröftum þrátt fyrir neyðarástandið sem skapaðist í höllinni. Þessu hafa rokkararnir vísað á bug. Það var aðeins ein sýning á dag- skrá í Salt Lake City og áhugi ung- mennanna gífurlegur, enda fáar rokksveitir vinsælli en AC/DC. 13.294 miðar seldust, þar af 4.400 í stæði á gólfinu fyrir framan svið- ið í Salt Palace. Rammgerð girðing var reist fyrir framan sviðið. Stemmningin var ótrúleg, krakk- arnir tróðu sér inn og fljótlega steig hitastigið í húsinu. Var upp undir 40 stiga hiti og svitinn bogaði, en enginn skeytti neitt úm það. Svo birtist hljómsveitin og um leið fór alda um mannhafið fyrir framan sviðið. Fyrsta lagið var vart á enda er ungmenni í fremstu röðunum voru farin að troðast undir. Örygg- isverðir segja að ástandið hafi fljót- lega orðið hroðalegt, en það hafi tekið þá um 40 mínútur að fá hljóm- sveitina til að hætta spilamenns- kunni. Þnn tíma hafí 7-8 lög verið leikin. Þessu andmæla hljómsveitar- menn. Þeir segjast ekki hafa haft aðstöðu til að sjá hvað fram fór fremst í salnum vegna girðingarinn- ar og það hafi verið í miðju fjórða lagi að öryggisverði tókst að brjót- ast upp á sviðið og vekja athygli þeirra með handapati. Söngvarinn Brian Johnson hafi þá hlaupið fremst á sviðið, séð sem var og öskrað á fólkið í hátalara að færa sig aftur á bak. „Þessir menn eru eins og guðir, um leið og Johnson sagði þeim að færa sig þá færði fólkið sig, en fram að því hafði fólk- ið troðist hvert um annað þvert og engu skeytt um þótt angistarvein hafi borist undan kösinni. Um leið og fólkið færði sig þá fórum við að ná fólki undan farginu,“ er haft eftir öryggisverðinum Russ Boyd. AC/DC er sem fýrr á ferð og flugi, en málið er í rannsókn í Salt Lake City og aðstandendur hinna látnu hafa stefnt hljómsveitinni og telja hana bera ábyrgð. Fram- kvæmdastjóm AC/DC segist aftur á móti harma dauðsföllin, en harm- leikurinn skrifist á reikning örygg- isgæslunnar í húsinu sem hafí verið fyrir neðan allar hellur. Þetta mál mun Iíklega fylla mælinn hvaíf' varðar skipulagningu rokkhljóm- leika. Ekki er svo ýkja langt síðan að tveir unglingar voru troðnir til bana á hljómleikum Guns and Ros- es og fieira mætti telja. hefst 18. febrúar INNRITUN HAFIN - NÚ VERÐA UUR MED! 6 vikna, ★ Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri V'‘kna * *^r'nn ^8 + 7 námskeið * M°rgun-< dag- og kvöldtímar COSPER - Þetta er bráðfyndið, við erum komnir tveimur hæðum of hátt. ★ Rólegir tímar ★ Lokaóir flokkar (framhald) ★ Púltímar fyrir ungar og hressar ★ „Lausir tímar“ fyrir vaktavinnufólk Sérflokkar fyrir 17-23 ára f kúrinn 28 + 7 Ath. að vegna mikillar eftirspurnar bjóðum við nú dagtíma með BARNAPÖSSUN ■ M mmM bruce willis 1VI /\r wm greip fresh horses Þarsem myndirnar fást! Mögnuð óströlsk mynd sem hefur alls staðar Xw Stórgóð mvnd þor sem fróbærir leikoror og óvenkilegt umhverfi magna upp dulúo 09 mikla spennu. í Utgófa 18. febrúor. 'ojsséíJ' myndbandaleigur SKIPHOLT 9, SÍMI 626171 - REYKJAVÍKURVEGI 64, SÍMI 671425 ■ ÁLFABAKKA 14, MJÓDDfsÍMI 79015 - KRINGLAN 4, 679015

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.