Morgunblaðið - 14.02.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.02.1991, Blaðsíða 27
MÖROTNBEAÐIÐI FIMKFWJDAÖURI ¥4< PEBRÚA'R 1991' 27 ATVINNUA UGL YSINGAR Verkstjóri Óskum að ráða verkstjóra í saltfisk-.og skreiðarverkun sem fyrst. Upplýsingar í síma 96-61707 og heimasíma 96-61728. Fiskvinnslustöð KEA í Hrísey. Garðabær Fóstrur Fóstrur óskast til starfa á Hæðarból, nýjan leikskóla í Garðabæ, sem tekur til starfa 1. mars nk. Nánari upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 657670 eða síma 656651. Forstöðumaður. Spennandi störf Vegna breytinga á rekstri óskum við að ráða í eftirfarandi störf: ★ Veitingastjóra. ★ Aðstoðarfólk á bari. ★ Aðstoðarfólk í eldhús. ★ Fólk í uppvask. ★ Dyraverði ★ Ræstingu á virkum dögum. Ráðum ekki fólk yngra en 20 ára. Upplýsingar veittar á staðnum í dag milli kl. 18.00 og 20.00. Þjóðminjasafn íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu safnstjóra við Þjóðminjasafnið til 5 ára. Verkefni safnstjóra er umsjón með daglegum rekstri safnsins, innri málefnum þess, sýn- ingum og þeim deildum, sem starfa innan safnsins. Einnig er safnstjóri staðgengill þjóðminjavarðar. Umsækjendur skulu hafa próf í einhverjum þeim greinum, sem svið safnsins nær yfir og góða þekkingu á almennri menningarsögu og rekstri safna. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs- manna. Umsóknarfrestur ertil 28. febrúar, en staðan veitist frá 1. apríl 1991. Umsóknir sendist Þjóðminjasafni íslands. Nánari upplýsingar veitir þjóðminjavörður. Þjóðminjasafn islands. Laus er til umsóknar staða sérfræðings við jarðf ræðistof u Raunvísindastofn- unar Háskólans Staðan veitist til þriggja ára frá 1. apríl 1991. Umsækjandi skal hafa lokið doktorsprófi og hafa a.m.k. þriggja ára reynslu við rannsókn- ir. Starfsmanninum er ætlað að starfa að athugun á rannsóknaviðbúnaði vegna eld- virkni. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Ráðningin ertil rannsóknarstarfa, en kennsla starfsmannsins við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raunvísinda- deildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans. Skal þá m.a. ákveða, hvort kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu við- komandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist Raunvísindastofnun Háskólans, Dun- haga 3, 107 Reykjavík, fyrir 15. mars 1991. Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dómbærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindá- störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál. Raunvísindastofnun Háskólans. Ræstingar Óskum að ráða fólk til ræstingastarfa. Vinnutími frá kl. ca 14.00. Brauð hf., Skeifunni 19. ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Sjúkrahúsprestur St. Jópsefsspítali, Landskoti, óskar eftir að ráða prest til starfa. Umækjandi skal hafa lokið sérnámi í sálgæslu (CPE). Nánari upplýsingar veita framkvæmdastjóri og rekstrarstjóri spítalans og skal umsóknum skilað fyrir 28. febrúar nk. Reykjavík, 11. febrúar 1991. St. Jósefsspítali, Landakoti. Sendikennarastaða við Óslóarháskóla Laus er til umsóknar sendikennarastaða í íslensku máli og bókmenntum við Háskólann í Ósló. Um er að ræða tímabundið starf til þriggja ára en unnt er að fá það framlengt í önnur þrjú. Umsækjendur verða að hafa háskólapróf í greinunum og teljast hæfir til að kenha við háskóla í Noregi í þeim báðum. Laun samkvæmt launakerfi norska ríkisins. Frekari upplýsingar um starfið veitir Gudleiv Bo við Oslóarháskóla, sími (02) 456766. Umsóknum ásamt rækilegum upplýsingum í þríriti um námsferil og störf, svo og skýrslu um vísindastörf og þremur eintökum af ritsmíðum, ber að senda til Institutt for nordi- stikk og litteraturvitenskap, Pb. 1013 Blind- ern, 0315 Oslo 3, fyrir 4. mars. Laus ertil umsóknar staða sérf ræðings við jarðeðlisf ræðistof u Raunvísindastofn- unar Háskólans Staðan veitist frá 1. júlí 1991. Fastráðning kemur til greina. Umsækjandi skal hafa lokið doktorsprófi og hafa reynslu í notkun massagreinis. Starfsmanninum er ætlað að sjá um dagleg- an rekstur massagreinis Raunvísindastofn- unar og annast meðal annars rannsóknir á sviði fornveðurfars, vatnafræði og aldurs- greininga með geislakolsaðferð. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Ráðningin ertil rannsóknarstarfa, en kennsla starfsmannsins við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raunvísinda- deildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans. Skal þá m.a. ákveða, hvort kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu við- komandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist Raunvísindastofnun Háskólans, Dun- haga 3, 107 Reykjavík, fyrir 15. mars 1991. Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dómbærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísinda- störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál. Raunvísindastofnun Háskólans. jr Utgerðarmenn - skipstjórar 37 ára sjómaður óskar eftir að komast á togara hvar sem er á landinu. Net, lína eða beiting kemur til greina. Vinsamlega hafið samband í síma 33736. LANDSPITALINN Aðstoðarlæknir Staða reynds aðstoðarlæknis við handlækn- isdeild Landspftalans er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. mars nk. til eins árs með möguleika á ári til viðbótar. Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til Stjórnarnefndar ríkisspít- alanna fyrir 10. mars. Nánari upplýsingar gefur Halldór Jóhanns- son, forstöðulæknir í síma 601000. RÍKISSPÍTALAR Geðdeild Landspítalans Læknaritari Læknaritari óskast til starfa við geðdeild Landspítalans á Kleppi. Um framtíðarvinnu er að ræða. Fullt starf. Upplýsingar gefur skrifstofustjóri frá kl. 10-12 næstu daga í síma 601701. Umsókn- ir sendist geðdeild Landspítalans merktar: „Læknaritari". Umsóknareyðublöð fást á Landspítalanum og Starfsmannahaldi ríkisspítalanna, Þver- holti 18. Markaðsfulltrúi óskast Örtölvutækni-Tölvukaup hf. hyggst ráða til starfa sölu- og markaðsfulltrúa til að sjá um sölu á ÓpusAllt viðskiptahugbúnaði, ásamt Hewlett-Packard og Tulip tölvubúnaði í samstarfi íslenskrar forritaþróunar hf. og Örtölvutækni-Tölvukaupa hf. Ef þú uppfyllir eftirfarandi skilyrði: ■ Hefur mjög góða bókhaldsþekkingu. ■ Ert sjálfstæð(ur) í starfi. ■ Sýnir frumkvæði og Tramtakssemi. ■ Hefur góða framkomu. ■ Hefur áhuga á tölvukerfum og notkun þeirra. Þá bjóðum við þér: ■ Góð laun fyrir mikil afköst. ■ Gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. ■ Sjálfstæði í starfi og frjálsan vinnutíma. ■ Spennandi og krefjandi starf í öruggu umhverfi. Umsóknareyðublöð færðu með því að koma við hjá okkur í Skeifunni 17. Umsóknarfrest- ur er til föstudagsins 15, febrúar nk. = ÖRTÖLVUTÆKNI m | íslensk forritaþróun hf. • tniá.>u'^ur > Mtm i»' i' ii HEWLETT PACKARD OpUS allt M •••••• TuL.p

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.