Morgunblaðið - 19.02.1991, Page 4
4
MORGCNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991
Ólafsvík:
Hraðfrystihúsið kaupir
togarann Má af Utveri
Utver væntanlega lagt niður
HRAÐFRYSTIHÚS Ólafsvíkur gengur á næstunni frá kaupum á
togaranum Má, sem nú er í eigu Utvers hf. á Ólafsvík. Kaupin
felast í yfirtöku skulda og verður Útver væntanlega lagt niður.
Ólafur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins og
stjórnarformaður Útvers, sagði í samtali við Morgunblaðið að
endanlegt kaupverð lægi ekki fyrir, en miðað væri við 400 milljón-
ir króna. Um 2.300 tonna kvóti fylgir togaranum.
Útver hf. keypti Má til landsins
árið 1980 og var félagið eingöngu
stofnað til að reka togarann. Að
Útveri standa ^ Ólafsvíkurbær,
Hraðfrystihús Ólafsvíkur, físk-
verkunarstöðvamar Hrói ogjlakki
á Ólafsvík og þrír fískverkendur á
Rifí. Ólafur Gunnarsson sagði að
staða Útvers væri mjög slæm og
hluthafafundur hefði ákveðið að
fela stjórn fyrirtækisins að ganga
frá sölu togarans til Hraðfrysti-
hússins. Slíka ákvörðun þurftu
tveir þriðju hluthafa að sam-
þykkja.
„Hraðfrystihúsið yfirtekur allar
skuldir, sem á togaranum hvíla,
en þær eru taldar um 400 milljón-
ir, þó endanleg tala liggi ekki fyr-
ir,“ sagði Ólafur. „í kjölfar sölunn-
ar verður Útver hf. væntanlega
lagt niður, enda var eini tilgangur
félagsins sá að reka togarann. Ég
vænti þess að félagið verði lagt
niður skuldlaust, en helstu lánar-
drottnar þess eru Fiskveiðasjóður,
Ríkisábyrgðasjóður og Lands-
bankinn. Til að renna styrkari
stoðum undir rekstur Hraðfrysti-
hússins og tryggja því hráefni var
ákveðið að það keypti Má, enda
viljum við halda honum í Ólafsvík."
Ólafur sagðist vænta þess að
gengið yrði frá kaupunum innan
hálfs mánaðar.
VEÐURHORFUR í DAG, 19. FEBRÚAR
YFIRLIT í GÆR: Yfír Bretlandseyjum er 1017 mb hæð og við norð-
austur Grænland er 982 mb lægð skammt vestan af Bjargtöngum,
hreyfist norðaustur.
SPÁ: Fremur hæg norðvestanátt, él vestan- og norðanlands, en
bjartari suðaustanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG:Breytileg átt eða hægviðri víðast hvar
á landinu, víða él, frost 4 tíl 5 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG:Norðan- og norðaustan kaldi eða stinn-
ingskaldi með éljum vestan- og norðanlands, en hægviðri og úr-
komulaust annars staðar. Frost 2 til 4 stig.
N: Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig:
I0 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar • Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður V
er 2 vindstig. * Él Þoka
Léttskýjað / / / / / / / Rigning V
/ / / Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 Súld
- / * / * Slydda oo Mistur
Skýjað / * / # * # 4 Skafrenningur
Alskýjað # * # # Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 0 snjókoma
Reykjavík 4 rigning
Bergen vantar
Helsinki +8 snjókoma
Kaupmannaböfn 0 skýjað
Narssarssuaq T-S snjókoma
Nuuk ■«•6 haglél
Osió 0 skýjað
Stokkhólmur +8 skýjað
Þórshöfn 5 rigning
Aigarve 10 skýjað
Amsterdam 3 alskýjað
Barcelona 13 mistur
Berlín 4 skýjað
Chicago 1 þokumóða
Feneyjar 6 léttskýjað
Frankfurt +0 skýjað
Glasgow 4 mistur
Hamborg 1 þokumóða
Las Palmas vantar
London 6 skýjað
LosAngeles 15 heiðskírt
Luxomborg 1 léttskýjað
Madrfd 1 slydda
Malaga 14 alskýjað
Mallorca 14 kýjað
Montreat +17 heiðskírt
New York 13 alskýjað
Orlando 10 alskýjað
París 1 þokumóða
Róm 12 rigning
Vín +0 mistur
Washlngton 2 rigning
Winnipeg +11 skýjað
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Skriðan sem féll á húsið færði það úr stað.
Vestmannaeyjar:
Aurskriða féll á hús
lundaveiðimanna
Vestmannaeyjum.
HÚS lundaveiðimanna í Álsey varð fyrir aurskriðu og skemmd-
ist mikið fyrir skömmu. Skriðan féll úr hlíðinni fyrir ofan hú-
sið og lenti á því með þeim afleiðingum að það færðist nokkra
metra úr stað.
Þeim brá í brún veiðimönnun- færst nokkra metra úr stað og
um í Álsey er þeir sáu frá Heima- er líklega ónýtt. Húsið er gengið
ey að skriða hafði fallið úr hlíðinni af grunninum, veggir og gólf eru
ofan við veiðihús þeirra. Um helg- brotin og húsið allt skakkt þannig
ina fóru þeir út til að kanna hvort að ljóst er að veiðimennirnir verða
einhveijar skemmdir hefðu orðið að huga að nýju húsi fyrir kom-
og kom þá í ljós að húsið hefur andi lundavertíð. — Grímur
3 sækja um stöðu
rektors við KHI
KOSNING rektors Kennarahá-
skóla íslands fer fram í skólanum
mæstkomandi mánudag, 25. fe-
brúar. Þrír umsækjendur eru um
stöðuna sem veitt er til fjögurra
ára.
Umsækjendur um stöðu rektors
Kennaraháskóla íslands eru Anna
Kristjánsdóttir, dósent, Bragi Jós-
epsson, dósent, og Þórir Ólafsson,
prófessor. Öll eru þau starfandi við
skólann.
Kosingarétt hafa fastráðnir
starfsmenn og nemendur skólans
en atkvæði nemenda gilda þriðjung
á við atkvæði starfsmanna. Núver-
andi rektor Kennaraháskólans er
Jónas Pálsson en hann er nú í or-
lofi frá skólanum. Starfandi rektor
er Hjalti Hugason. Jónas hefur
gegnt stöðu rektors tvö kjörtímabil.
Nýr rektor mun hefja störf 1.
ágúst næstkomandi.
..♦
BROTIST var inn í hesthús í
Víðidal um helgina, lagt þar á
gæðing og honum líengriðið.
Þegar eigandinn vitjaði um hesta
sína var gæðingurinn kominn í hús
og sprett hafði verið af honum.
Hins vegar sá á dýrinu eftir með-
ferðina og það var löðursveitt.
Engu hafði verið stolið úr hest-
húsinu en greinilegt þótti að rótað
hafði verið. Ekki er vitað hver þarna
var að verki.
Fæddi stúlku í stiga-
gíingi fjölbýlishúss
ísafirði.
ÞORBJORN Sveinsson slökkviliðsstjóri og Birgir Finnsson
brunavörður voru kallaðir út á laugardag til að flytja sængur-
konu á sjúkrahús. Konan býr á 4. hæð í blokk við Fjarðarstræti.
Nokkuð erfiðlega getur gengið
að koma sjúkrabörum niður
þrönga stigana, en í þetta sinn
vildi ekki betur til en svo að kon-
an ól stúlkubam á pallinum milli
fyrstu og annarrar hæðar.
„Þar sem við vorum þarna úti
á gangi sá ég ekki ástæðu til að
fara að skilja í milli“, sagði Þor-
björn, „heldur lagði ég stúlkuna
í fang móður sinnar og svo ókum
við mæðgunum upp á sjúkrahús."
Þorbjörn er ekki óvanur svona
atvikum, því hann hefur tekið á
móti 11 börnum á síðasta 21 ári.
Fyrst var það á Hafnarfjarðarveg-
inum, þegar verið var að fara með
sængurkonu frá Hafnarfirði inná
fæðingardeild, sú var ljósmóðir,
svo hún gat sagt honum hvað
hann ætti að gera. Nú var sæng-
urkonan hjúkrunarkona, Ingi-
björg Jónsdóttir, og sagði Þor-
þjörn að hún hefði staðið sig mjög
vel við þessar óvæntu aðstæður.
Sú nýfædda var 3.610 grömm,
14 merkur, og 54 cm við fæðingu
og heilsast mæðgunum vel.
- Úlfar.
Braust inn
og reið út