Morgunblaðið - 19.02.1991, Page 7
lífJ & 1 f í>\ I
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 19: PÉBRÚÁR’ 1991
Norræn skólaskák:
Islendingar unnu
þrjá flokka af fímm
ISLENSKIR skákmenn stóðu sig vel í hinni árlegu einstaklings-
keppni í norrænni skólaskák sem fram fór í Færeyjum um
heígina. Sigur vannst í þremur flokkum af fimm og í heildar-
keppninni unnu íslensku piltarnir nokkuð örugglega.
Það voru yngstu piltarnir sem
stóðu sig best. í þremur yngstu
flokkunum skipuðu þeir fyrstu
sætin. í flokki pilta, sem eru
fæddir árin 1976 og 1977, sigr-
aði Helgi Áss Grétarsson og
Magnús Órn Úlfarsson varð ann-
ar. Helgi Áss fékk 5,5 vinninga
af 6 mögulegum, vann alla nema
Magnús Örn sem hann gerði
jafntefli við. Magnús Örn fékk 4
vinninga.
Jón Viktor Gunnarsson sigraði
í flokki pilta, sem fæddir eru
1980 og síðar. Hann hlaut 5,5
vinninga af 6 mögulegum og
Bergsteinn Einarsson- varð í 4.
sæti með 3,5 vinninga.
Keppnin var jöfn og spennandi
í flokki pilta sem fæddir eru
1978 og 1979. Þar sigraði Arnar
E. Gunnarsson á stigum, hlaut
4,5 vinninga af sex mögulegum.
Matthías Kjeld varð í fjórða sæti
með 4 vinninga, tapaði þriðja
sætínu á stigum.
í flokki pilta, sem fæddir eru
1970 til 1973, varð Magnús
Pálmi Örnólfsson í þriðja sæti
með 3,5 vinninga. Sigurður Daði
Örnólfsson varð sjöundi með 3
vinninga.
í flokki pilta sem fæddir eru
1974 og 1975 urðu Rangar Fjal-
ar Sævarsson og Þórleifur Karls-
son í 7. og 8. sæti.
Alls kepptu 60 skákmenn á
mótinu. í heildarstigakeppninni
vann ísland, hlaut 39,5 vinninga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skákmennirnir ungu sem sigruðu í norrænu skólaskákinni sem
fram fór í Færeyjum um helgina. í aftari röð frá vinstri eru:
Ríkharður Sveinsson, fararstjóri, Jón Viktor Gunnarsson, Arnar
E. Gunnarsson, Bergsteinn Einarsson, Matthías Kjeld og Ólafur
H. Ólafsson, fararsljóri. f fremri röð frá vinstri eru: Þórleifur
Karlsson, Magnús Örn-ÚIfarsson, Ragnar Fjalar Sævarsson, Sig-
urður Daði Sigfússon og Magnús Pálmi Örnólfsson.
af 55 mögulegum. Norðmenn vinning, Finnar 30,5 og Færey-
komu næstir með 33 vinninga, ingar ráku lestina með 13,5 vinn-
Danir með 32,5, Svíar með 31 inga.
_________________________f
Atvinnuleysi
mest á Austur-
landi í janúar
SKRÁÐUM atvinnuleysisdögum í
landinu fjölgaði um 48% frá des-
ember til janúarmánaðar. Alls
voru skráðir um 70 þúsund at-
vinnuleysisdagar í janúar og jafn-
gildir það því, að um 3.200 manns
hafi verið á atvinnuleysisskrá I
mánuðinum. Það er sem svarar
2,5% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði. Atvinnuleysi í jan-
úar var hlutfallslega mest á Aust-
urlandi 6,2%, en minnst á Vest-
fjörðum 0,3%.
Atvinnuleysi í janúar var álíka
mikið hjá körlum og konum, sam-
kvæmt frétt frá vinnumákskrifstofu
felagsmálaráðuneytisins. í mánuðin-
um voru skráðir 35.400 dagar hjá
körlum en 34.600 hjá konum. Frá
því í desember hefur atvinnuleysi
aukist um 57% meðal kvenna en um
42% hjá körlum.
Skráðir atvinnuleysisdagar í jan-
úar voru flestir í Áusturlandskjör-
dæmi og var atvinnuleysi þar, sem
hlutfall af mannafla, 6,2%. Næst kom
Norðurlandskjördæmi vestra, en þar
var atvinnuleysi 6,1%, á Norðurlandi
eystra var það 5,8%, 4,4% á Suðurl-
andi, 3,9% á Suðumesjum, 3,1% á
Vesturlandi, 1,2% á höfuðborgar-
svæðinu en aðeins 0,3% á Vestfjörð-
um.
Með Lífsvemd slærð þú tvær flugur í einu höggi. Þú getur
hlíft ástvinum þínum við fjárhagsfegum skakkaföllum, en
um leið ávaxtað þitt pund og safnað í varasjóð sem getur
komið að drjúgum notum síðar á lífsleiðinni. Því Lífsvemd
er hvort tveggja líftrygging og henmg leið til spamaðar.
Þú kýst þér líftryggingu sem nemur þremur
milljónum króna, svo dæmi sé
tekið. Sú upphæð óskert
getur tryggt fjárhagsafkomu
ástvina þinna við fráfall þitt.
Jafnframt sparar þú ákveðna
fjárhæð í hverjum mánuði. Tíminn vinnur með þér og
líftryggingin lækkar með hverju ári en að sama skapi vex
sjóðurinn þinn og dafnar.
Að endingu áttu auk verðbóta þrjár milljónir í
handraðanum, lífeyri sem þú getur sjálf ráðstafað að vild.
Framtíðin er í þínum höndum. Ávinningurinn er
öryggi, þitt eigið og þinna nánustu.
Eignaraðilar Sameinaða líftryggingarfélagsins eru:
TRYGGINGAMIÐSTODIN HF
ADALSTRÆTI 6 101 REYKJAVÍK SIMI 91-26466
SJ-Q.VALJOAUyiENNAR
Kringlunni 5, aími 91-692500
IÍFSVERND
- LÍFTRYGGENG FYRIR ÁSTVINIÞÍNA,
LÍFEYRIR FYRIR ÞIG
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI 7,101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566
KRINGLUNNI 8-12. 103 REYKJAVÍK, S. (91) 689700
RÁÐHÚSTORGI 3, 600 AKUREYRI S. (96) 11100
Sameinaða
lífitryggingarfélagið hf
Kringlunni 5 • 103 Reykjavík
Sími 91-692500