Morgunblaðið - 19.02.1991, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1991
19
son náðu þriðja sætinu og Guð-
laugur R. Jóhannsson og Örn Arn-
þórsson urðu í fjórða sæti. Þá urðu
Helgi Jóhannsson og Aðalsteinn
Jörgensen í sjötta sæti sem verður
að teljast frábær árangur þar sem
kerfið fékk 5 mínútna umræðu
áður en mótið hófst. Til gamans
má geta þess að sumir kalla þetta
kerfi “Suðurnesja-precision" og
varð landsþekkt fyrir allmörgum
árum þegar sveit undir nafninu
Bogga Steins hristi ærlega upp í
íslandsmótinu og bika.rkeppninni.
Lokastaðan:
BorisBaran-MarkMolson 557
ZiaMahmood-SchrauelLev 346
RagnarMagnúss.-PállValdimarss. 255
Öm Arnþórss. - Guðlaugur R. Jóhannss. 253
AlfredKadlec-FranzTerraneo 234
Helgi Jóhannss. - Aðalsteinn Jörgensen 232
HeinrichBerger-'WolfgangMeinl 231
IbLundby-IngeK.Hansen 226
Páll Hjaltason - Hjalti Elíasson 184
• Jón Sigurbjömss. - Ásgr. Sigurbjömss. 155
Bjöm Theódórss. - Guðmundur Péturss. 133
Karl Sigurhjartars. - Sævar Þorbjömss. 128
Símon Símonars. — Júlíus Siguijónsson 109
Valur Sigurðss. - Guðmundur G. Sveinss. 90
Hjördís Eyþórsd. — Ásmundur Pálsson 68
Jón Baldursson - Ómar Sharif 66
Aðalsteinn og Helgi voru
óheppnir að fá ekki fimmtu verð-
launin því þegar verðlaunaafhend-
ingu var lokið kom i ljós að skor-
miði þeirra félaga hafði verið vit-
laust útfylltur þeim í óhag og
ómögulegt að leiðrétta úrslitin.
Verðlaunin fyrir 1. sætið voru
2.300 dalir, 1.700 dalir fyrir annað
sætið. 1.200 dalir fyrir þriðja sæti,
900 dalir fyrir fjórða sæti, 700
dalir fyrir fimmta sæti og 600
dalir fyrir 6. sætið.
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensen, aðstoðarkeppnisstjóri og
reiknimeistari Kristján Hauksson
og mótsstjóri Ragnar S. Halldórs-
son. Mikill fjöldi fólks fylgdist með
mótinu allan tímann og dró hjarta-
knúsarinn Omar Sharif auðsjáan-
lega að nokkurn hóp fólks. Mátti
m.a. sjá Omar gefa ungum stúlk-
um eiginhandaráritun.
Sveitakeppnin
Sveit Zia Mahmood tók fljótlega
forystuna í sveitakeppninni. I
sjöttu umferð spiluðu þeir gegn
helztu andstæðingum sínum, sveit
Mike Polowan, og sigruðu þá ör-
ugglega, 23 gegn 7 og voru þar
með orðnir langefstir.
Öldrunarþjónustudeild;
Prestur ráð-
inn til starfa
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir
hefur verið ráðin í 75% stöðu
prests við öldrunarþjónustudeild
Reykjavíkurborgar. Ráðið er í
stöðuna til tveggja ára. Ekki
hefur áður verið starfandi prest-
ur við öldrunarþjónustudeild.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, yfir-
maður öldrunarþjónustudeildar,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að meginverkefni Guðlaugar Helgu
yrði að annast samstarf við sóknar-
og safnaðarstarf meðal aldraðra í
Reykjavík. Einnig myndi hún sjá
um samtalshópa og leshringi á fé-
lags- og þjónustumiðstöðvum og
annast sálgæslu á tveimur sólar-
hringsstofnunum á vegum öld-
runarþjónustudeildar, Droplauga-
stöðum og Seljahlíð. Auk þessa mun
prestur við öldrunarþjónustudeild
bjóða upp á viðtalstíma og heim-
sóknarþjónustu fyrir aldraða. Að
öðru leyti sagði Sigurbjörg að Guð-
laug Helga myndi þróa starf sitt í
samráði og samvinnu við aðra
starfsmenn deildarinnar, félagsráð-
gjafa og forstöðumenn stofnana.
Hún sagði að mikil þörf væri fyrir
prest við deildina og benti á að
mikið væri sóst eftir aðstoð við les-
hringi, samtalshópa og bænahópa
meðal aldraðra.
Guðlaug Helga, sem fijótlega
verður vígð til deildarinnar, mun
ekki annast helgihald.
Ármúlo 23, simi 83636.
TILBOÐSDAGAR
10-50% afsláttur
af gullfallegum borðbúnaði og gjafavörum.
Hnífapör, koparvörur, reyr- og baslvörur,
kínverskir vasar, glerblóm, silkiblóm,
leikföng o.fl.
Nýborg;#
Ármúla 23, sími 83636 ■
Húðin verndar þig.
Verndar þú húðina?
pH5-Eucerin
o til verndar húðinni.
*4a
A V
V
Sparileið sem ber ríkulegan ávöxt!
Vextir 6,5%
A Sparileiö 4 áttu kost á bestu ávöxtuninni innan Sparileiöanna.
Reikningurinn ber nú 6,5% verötryggöa vexti.
Á Sparileiö 4 vinnur tíminn meb þér. Sparileiö 4 er góbur kostur
fyrir þá sem eru vel á veg komnir í sparnabi!
ÍSLANDSBANKA
Vaxtatrygging á bundiö fé
Vextir á Sparileiö 4 eru ákveönir til 6 mánaöa í senn, 7. janúar og 7. júlí
ár hvert. Þannig er tryggt aö vextir lœkka ekki innan þessara tímabila.
Eignaskattslaus innstϚa
Innstœöa á Sparileiö 4 er eignaskattsfrjáls, aö uppfylltum ákveönum
skilyröum, eins og aörar innstœöur í bönkum og sparisjóöum.
Úttektir og úttektartímabil
Þegar aö minnsta kosti 24 mánuöir eru liönir frá stofnun reikningsins
opnast hann til úttektar í 7 mánuö og eftir þaö á 6 mánaöa fresti
á meöan innstœöa er fyrir hendi.
<
'«?
o
r-~
&
u.
<
Q
o