Morgunblaðið - 19.02.1991, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19, F£BRÚAR 1991
21
Hæstaréttarlög-
maður á vakn-
ingarsamkomu
eftir Hörð Pálsson
Ekki fara í þurrð skemmtilegheit
Gunnlaugs Þórðarsonar hæstarétt-
arlögmanns og sem fyrr veit hann
allt betur en aðrir menn. Það sýnir
grein hans í Morgunblaðinu 1. fe-
brúar.
Hæstaréttarlögmaðurinn þenur
sig víða í tíma og rúmi og vitnar
m.a. í Hávamál. Mér þykir með ólík-
indum ef jafnspakur maður man
ekki eftir að „sígild speki Háva-
mála“ kemur með ótvíræðum hætti
fram í erindinu:
„Er-a svo gott
sem gott kveða
öl alda sonum,
því að færra veit,
er fleira drekkur,
sins til geðs gumi.“
Þessi vísa sýnir okkur, svo að
ekki verður um villst, að áfengi er
ekki jafnhollt mönnum og sumir
vilja halda.
Að sjálfsögðu er tilgangurinn
með frumvarpinu um lækkun leyfi-
legs áfengismagns í blóði öku-
manna sá að stuðla að því að menn
aki alls ekki eftir að hafa neytt
áfengis; hætt sé við að ef menn á
annað borð telja sig geta ekið eftir
að hafa drukkið eitt glas — eða
„lyft glasi“ eins og hæstaréttarlög-
maðurinn kemst svo skemmtilega
að orði — fylgi trúlega annað á
eftir og svo ef til vill það þriðja.
Og þá er nú ekki að spyija að hvert
dómgreindin er farin. Umferðarráð
hefur mælt með samþykkt frum-
varpsins en ekki er að efa að hæsta-
réttarlögmaðurinn veit betur.
Þó að skýrslur sýni að áfengi
komi við sögu í yfir 90% ofbeldis-
giæpa, þar á meðal mannvígum,
þá er hæstaréttarlögmaðurinn ekki
í vandræðum með að afgreiða slíkt
sem einfeldni enda staðreyndir
aukaatriði í áfengismálaumræðu
þegar viskan öll er saman komin í
einni persónu.
Rökvísi hæstaréttarlögmannsins
er best lýst með því að hann hyggst
svara nýrri grein Halldórs Krist-
jánssonar en leggur þá til atlögu
við skrif þess heiðursmanns frá
1983.
Hörður Pálsson
„Að sjálfsögðu er til-
gangurinn með frum-
varpinu um lækkun
leyfilegs áfengismagns
í blóði ökumanna sá að
stuðla að því að menn
aki alls ekki eftir að
hafa neytt áfengis.“
Vonandi grípur sá vísi hæstarétt-
arlögmaður enn til pennans og
skemmtir fólki um þessi mál þó að
ég hafi ekki nenningu til að eiga
við hann orðaskipti um ófyrirsjáan-
lega framtíð. Það yrði enda íslensk-
um blöðum óbætanlegur hnekkir
ef hann hætti að skemmta lesend-
um.
Hæstaréttarlögmaðurinn hefur
grein sína á spaklegum orðum um
vakningarsamkomur. I lokin er
hann sjálfur greinilega kominn á
dúndrandi hallelújasamkomu og
hefur fornfrægan rúbluklerkinn til
biblíuskýringa og útlistunar Orðs-
ins. Vantar þá fátt nema tungu-
talið. — í þeim félagsskap er við
hæfí að skiljast við alvísan hæsta-
réttarlögmanninn.
Höfundur er bukarameistari.
ÍSLANDSBANKI
íslandsbanki hf.
kt. 421289-5069
Kringlunni 7, Reykjavík
Útboð bankavíxla 2. ílokkur 1991
Útboðsfjárhæð kr. 2.000.000.000.-
45-120 daga víxlar
1. útgáfudagur 15. febrúar 1991
Forvextir nú 14,0 -14,5%
Umsjón: Verðbréfamarkaður Islandsbanka hf.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26.
Góðan daginn!