Morgunblaðið - 19.02.1991, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991
Bretland:
Kosningar í vor?
"v- v r
St. Andrews. Frá Gudmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
STAÐA breska Ihaldsflokksins hefur styrkst í skoðanakönnunum
að undanförnu. Fjölmiðlar flytja æ oftar fregnir af mögulegum
kosningum í vor. John Major forsætisráðherra hefur ekkert Iátið
hafa eftir sér um kosningar.
...—■"—'
•'Ú
Reuter
Ung hjón reyna að hughreysta konu sem missti náinn ættingja í
sprengingunni í Pang Nga.
Tæland:
171 ferst í sprengingii
Bangkok. Reuter.
ALLS lét 171 lífið og tugir særðust er vörubifreið hlaðin dýnamiti
valt og sprakk. Atvikið átti sér stað á föstudag nálægt Phang-Nga,
sem er um 850 km fyrir sunnan Bangkok, höfuðborg Tælands.
Bfllinn valt í krappri beygju en
sprengingin varð ekki fyrr en um
klukkustund síðar. Flestir hinna
látnu og særðu var fólk úr nágrenn-
inu sem hafði safnast saman til að
sjá hvað gerst hafði. Skemmdir
urðu á u.þ.b. 50 húsum í nágrenn-
inu og ijórir bílar eyðilögðust.
Lögreglubíll fylgdi flutningabíln-
um vegna þess hve hættulegur
farmurinn var. Yfirvöld á Tælandi
Iýstu því yfir að þau myndu herða
reglur um flutning á hættulegum
efnum eftir að gasflutningabíll lenti
í árekstri á fjölförnum gatnamótum
í Bangkok í september á síðasta
ári. Þá létu 80 manns lífið og 100
særðust. Flestir þeirra voru kyrr-
stæðir í umferðarhnút.
Harðlínumenn reyna að
koma Jeltsín frá völdum
Pravda kallar forseta Rússlands svikara
Breski forsætisráðherrann hef-
ur það í hendi sér, hvenær þing
er rofið og boðað til kosninga, en
samkvæmt hefð getur þing ekki
setið lengur en fimm ár. Þetta
Helsinki-nefndin var sett á stofn
árið 1976 til að fylgjast með og
stuðla að því að fylgt yrði mann-
Wall Street Journal:
Islands get-
iðvegna
Litháens
Washington. Frá Ivari Guðmundssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
DAGBLAÐIÐ Wa.ll Street Jour-
nal gat þess í frétt fyrir helgi
að Alþingi íslands hefði sam-
þykkt með 41 atkvæði gegn 1
að verða fyrsta landið í heimin-
um til að viðurkenna sjálfstæði
Litháens.
Blaðið segir ennfremur að við-
brögð Sovétríkjanna hafi verið
neikvæð „eins og búast mátti við“.
Blaðið bætir því við að ef til vill
gæti það flýtt fyrir sjálfstæði
Eystrasaltslandanna ef fleiri þjóð-
ir færu að dæmi íslendinga.
þing getur setið fram á mitt næsta
ár.
I tveimur skoðanakönnunum
um helgina hafði íhaldsflokkurinn
7% og 4% forskot á Verkamanna-
réttindaákvæðum Helsinki-sátt-
málans. Sjö öldungadeildarþing-
menn og átta fulltrúadeildarþing-
menn standa að tillögunni sem
hefur verið send til Nóbelsnefndar-
innar í Ósló. Helsinki-nefndin hef-
ur nokkrum sinnum áður gert til-
lögur um veitingu friðarverðlaun-
anna, t.d. til Vaclavs Havels, for-
seta Tékkóslóvakíu, og Lechs
Walesa Póllandsforseta. Formaður
þingnefndarinnar, Dennis DeCon-
cini öldungadeildarþingmaður,
sem er einn af forsetum nefndar-
innar lét svo ummælt að vonandi
yrði það Míkhaíl Gorbatsjov, for-
seta Sovétríkjanna, og handhafa
friðarverlaunanna árið 1990,
kröftug áminning ef Eystrasalts-
ríkin fengju þau í ár.
Rússland:
Moskvu. The Daily Telegraph. Reuter.
HARÐLÍNUMENN í kommún-
istflokki Rússlands hafa nú
safnað nógu mörgum undir-
skriftum til þess að kallað verð-
ur saman aukafulltrúaþing
flokkinn. Staða íhaldsflokksins
hefur stöðugt styrkst frá áramót-
um. Frá því John Major varð leið-
togi flokksins í nóvember á sl.
ári, hefur íhaldsflokkurinn haft
forystu í 14 af 17 meiriháttar
skoðanakönnunum, sem birtar
hafa verið síðan þá.
í fréttum sl. mánudag eru tald-
ar auknar líkur á kosningum í vor
og talað um 3. maí sem kosninga-
dag, en þann dag verður kosið til
sveitarstjórna. Þá er búist við að
Persaflóastríðinu verði lokið og
John Major njóti enn þess fylgis,
sem hann hefur aflað sér, meðan
á styijöldinni hefur staðið, sem
leiðtogi stjórnarinnar.
Innan raða Verkamannaflokks-
ins gætir æ meiri spennu vegna
afstöðunnar til Persaflóastríðsins.
í síðustu viku sagði Claire Short
af sér embætti í skuggaráðuneyti
flokksins vegna þess að hún vildi
geta látið skoðanir sínar í ljósi á
styijöldinni. Neil Kinnock, leiðtogi
flokksins, hefur bannað ráðherrum
í skuggaráðuneytinu að segja
nokkuð opinberlega um annað en
sitt sérsvið.
I síðustu viku kom upp ágrein-
ingur innan flokksins um viðbrögð
við yfirlýsingu Saddams Husseins
Iraksforseta um að hann myndi
draga herlið sitt til baka frá Kú-
veit að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum og um viðbrögðin við
sprengingu loftvarnarskýlisins í,
Bagdad. Forysta flokksins hefur
stutt stefnu stjórnarinnar og
hvergi hvikað.
Rússlands til að fjalla um van-
trauststillög á Borís Jeltsín for-
seta landsins. Jeltsín hefur auk
þess fyrir orðið fyrir harðvítug-
um árásum í þremur útbreidd-
um fréttablöðum kommúnista
undanfarnar vikur
Jeltsín var kosinn forseti Æðsta
ráðs Rússlands í maí síðastliðnum
með einungis tveggja atkvæða
mun. Því er spáð að mjög mjótt
verði á mununum þegar van-
trauststillagan verður borin upp í
fulltrúaþingi Rússlands en þar
sitja 1.050 þingmenn. Ekki er
búið að ákveða hvenær tillagan
verður borin upp en harðlínumenn
vilja að það verði fyrir 17. mars.
Þá hefur verið boðuð þjóðarat-
kvæðagreiðsla um gervöll Sov-
étríkin um nýja stjómarskrá
landsins. Mörg lýðveldi segjast
ekki ætla að taka þátt í kosning-
unum og sum ætla að halda eigin
kosningar eins og Litháar hafa
þegar gert. Rússneska þingið hef-
ur einnig boðað þjóðaratkvæða-
greiðslu um forseta Iandsins. Er
talið að Jeltsín standi á bak við
þau áform og vilji tryggja stöðu
sína með því að hljóta umboð sitt
beint fráf þjóðinni.
Pravda, málgagn sovéska
kommúnistaflokksins, kallaði
Jeltsín svikara 1. febrúar á sex-
tugsafmæli forsetans. Einn að-
stoðarmanna Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétforseta kallaði
Jeltsín lygara fyrir skemmstu og
dagblaðið Glasnost vændi hann
um tengsl við mafíu. Um helgina
birti Sovjetskaja Rossíja, vikublað
rússneska kommúnistaflokksins,
nafnlaust lesendabréf þar sem
Jeltsín var sakaður um að ætla
að steyp’a Sbvetríkjunurh'í 'glbtun.
Forseti Grænliöfðaeyj a
bíður ósigiir í kosningum
Praia. Reuter.
PAICV, flokkurinn sem farið hefur með völd á Grænhöfðaeyj-
um undanfarin fimmtán ár, missti sín siðustu tök á stjórn lands-
ins á sunnudag er forseti landsins Aristides Pereira galt mikið
afhroð í forsetakosningum.
Þegar fimmtungur atkvæða
hafði verið talinn hafði frambjóð-
andi stjórnarandstöðunnar An-
tonio Mascharenhas Monteiro
fengið 66% atkvæða en Pereira
32%. Talsmaður forsetans játaði
ósigur á sunnudagskvöld. Mas-
charenhas er fyrrum forseti
Hæstaréttar Grænhöfðaeyja.
PAICV (Afríski flokkurinn
fyrir sjálfstæði Grænhöfðaeyja)
hefur farið einn með vö!d á
Grænhöfðaeyjum síðan ríkið
fékk sjálfstæði frá Portúgal fyrir
fimmtán árum. En undanfarið
hefur verið unnið að því að inn-
leiða fjölflokkakerfi í landinu og
hefur PAICV orðið fyrir barðinu
á því^ í þingkosningum 13. jan-
úar beið flokkurinn ósigur og
Lýðræðishreyfíng Mascharenhas
vann stórsigur.
Áhugi var ekki mikill á for-
setakosningunum á sunnudag.
Kjörsókn var einungis 60%.
Margir sögðust ekki vilja kjósa
vegna þess hve kosningabarátt-
an hefði verið á lágu plani. í
stað þess að reifa stefnumál sín
skiptust frambjóðendurnir á
svívirðingum hvor um annan.
Grænhöfðaeyjar, sem eru
eyjaklasi vestur af Vestur-
Afríku, eru ein af fimm fyrrum
nýlendum Portúgala í Afríku. í
öllum ríkjunum hafa marxista-
stjórnir verið við völd en alls
staðar eru merki um að fjöl-
flokkakerfí sé að fæðast. Á Sao
Tome og Principe, lítilli eyju í
vestur af Gabon á vesturströnd
Afríku, voru fyrstu fijálsu kosn-
ingarnar haldnar 20. janúar
síðastliðinn. Forsetakosningar
verða haldnar 3. mars næstkom-
andi. í Guinea-Bissau hefur
valdaflokkurinn boðað áætlun
um að koma á fjölflokkakerfi. í
Angóla og Mozambique eiga
stjórnvöld í stríði við skæruliða
og mikill óstöðugleiki ríkir en
valdaflokkarnir hafa í báðum
löndum heitið því að koma á fjöl-
flokkakerfi.
Friðarverðlaun Nóbels:
Eystrasaltsríkin tUnefnd
Washington. Frá fvari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
EIN af fastanefndum Bandaríkjaþings, Helsinki-nefndin svokall-
aða, hefur lagt til að Eystrasaltsríkjunum verði veitt friðarverð-
laun Nóbels á þessu ári.