Morgunblaðið - 19.02.1991, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 4991
Siglingar Egypta til forna:
St. Andrews, frá Guðmundi Heiðari
Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðs-
ins.
KENNETH Clarke, breski
menntamálaráðherrann, lagði
nýlega fram lokatillögur sínar
um námsskrá í sögu fyrir breska
grunn- og framhaldsskóla. Flest-
ir þeir, sem hafa látið málið sig
varða, virðast óánægðir með
þessi lokadrög námsskrárinnar.
Kenneth Clarke lagði nýlega
fram lokadrög námsskrár í sögu
fyrir grunn- og'framhaldsskóla í
Englandi og Wales. í henni er farið
nákvæmlega yfir uppbyggingu
sögukennslu, markmið hennar og
aðferðir. Lagt er til, að nemendur
séu skyldaðir til að taka sögu fram
að 14 ára aldri. Einnig er lagt til
að samtímasaga eftir 1960 verði
ekki kennd.
Undirbúningur þessara draga
hefur verið umdeildur frá upphafi
og nánast útilokað virðist vera að
rata einhvern meðalveg. Talsmaður
Verkamannaflokksins í menntamál-
um, Jack Straw, hefur fordæmt
það, að ekki verði kennd samtíma-
saga og sagst munu krefjast þess,
að málið verði rætt í Neðri mál-
stofu þingsins.
Nú hefur félag skólameistara
framhaldsskóla ályktað gegn þess-
um tillögum. Þeir eru andsnúnir því
að nemendur geti hætt sögunámi
við 14 ára aldur. Þeir segja, að
margir nemendur geti hugsanlega
komið sér algerlega hjá sögu þess-
arar aldar. Sömuleiðis segja þeir,
að námsskrárdrögin séu allt of ná-
kvæm og ítarleg og dragi úr frum-
kvæði kennara og skóla.
Einn af talsmönnum aðalhug-
myndabanka íhaldsflokksins,
Centre for Policy Studies, Sheila
Lawlor, hefur gagnrýnt drögin
harkalega. Hún segir óbreytt drög
muni skaða sögukennslu næstu
kynslóða. Þau séu of viðamikil, allt
of mikil áhersla sé á skilning í stað
þekkingar, að nemendur lifi sig inn
í sögulega viðburði fremur en ná
tökum á staðreyndum um þá.
Námsskrá eigi að binda sig við
ákveðið lágmark og leyfa skólum
að bæta við hana eftir efnum og
getu.
Kenneth Clarke hefur ekki svar-
að þessum andmælum enn sem
komið er.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans!_______________x
r---1/
CREW CAB sameinar kosti 5 manna fólksbíls með ótrúlega rúmgóðu og
þægilegu farþegarými og burðarmikils flutningatækis.
Staðgreiðsluverð mei ryðvörn ob skráningu:
Bensínbíll kr. 1.401.000.— Dísilbíllkr. 1.481.000.—
SPORTS CAB hefur rými og
kraft burðarmikils vinnubíls og
einnig ótrúlega gott pláss fyrir
aftan framsætin fyrir farangur
eða 2 farþega.
Heyerdahl rennir frekari
stoðum undir kenningar sínar
Oslo. Reuter.
NORSKI könnuðurinn Thor Hey-
erdahl segist hafa fundið minjar
um pýramída á Kanaríeyjum og
styrkt þannig kenningu sína um
að Egyptar geti hafa siglt til
Ameríku til forna. Þetta kemur
fram í viðtali við Heyerdahl sem
birtist í norska dagblaðinu Verd-
ens gang í síðustu viku.
Heyerdahl segir í viðtalinu að
hann telji hönnuði pýramídanna á
Tenerife hafa verið „sjómenn, sem
fylgdu sömu straumum og við gerð-
um á Ra frá Norður-Afríku. Þessir
straumar fara framhjá Tenerife og
áfram í átt til Suður-Ameríku.“
Ra 2 var eftirlíking af fornu
egypsku sjófari, búið til úr papýrus-
reyr, og á því sigldi Heyerdahl yfir
Atlantshafið árið 1970. Hann sagði
að pýramídaminjarnar, sem eru í
grennd við þorpið Quimar, væru
greinilega meira en 2.000 ára gaml-
ar. Þorpsbúar hefðu alltaf haldið
að rústirnar væru bara steinar sem
hefði verið hlaðið upp til að hreinsa
land til ræktunar og landbúnaðar.
„Mexíkanskir sérfræðingar, sem
hafa verið hér, eru sammála um
að byggingarlagið sé mjög líkt
pýramídunum í Mexíkó og sumum
þeirra pýramída sem fundist hafa
í Perú,“ sagði Heyerdahl í viðtalinu.
Thor Heyerdahl hefur eytt
ævinni í að reyna að finna fornar
siglingaleiðir milli heimsálfa. Fræg-
ustu ferð sína fór hann yfir Kyrra-
hafið á „Kon Tiki“, fleka úr balsa-
viði, árið 1947 — 4.300 mílna sigl-
ingaleið frá Perú. til kóraleyjar í
grennd við Tahiti.
Thor Heyerdahl fyrir miðri
mynd. A bak við hann sést í pap-
ýrusskipið „Ra 2“ en á því sigldi
Heyerdahl yfir Atlantshafið árið
1970.
Bretland:
Sótt að nýrri
námsskrá
í sögu úr
öllum áttum
ISUZU 4x4 PALLBILARNIR
/ /
FREMSTIRISINUM FLOKH
ISUZU pallbílarnir hafa vakið sérstaka athygli fyrir fallega og nýtískulega
hönnun. Þeir eru sterkir og kraftmiklir, en samt mjúkir og þægilegir í akstri.
Staðgreiðsluverð með ryðvörn og skráningu:
Bensínbíll án VSK kr. 1.066.700.—
■ meðVSKkr 1.328.000.—
Dísilbíll án VSK kr. 1.149.400.—
" með VSK kr 1.431.000.—
Bílarnir eru fáanlegir með 2,3 I bensín- eða 2,5 I dísilvélum.
Berðu ISUZU pallbílana saman við bestu og vinsælustu jeppana á markaðnum í dag. Þeir þola fyllilega þann
samanburð, enda eru ISUZU R0DE0 jepparnirsem nú fara siguiför um Bandaríkin, smíðaðir á sömu
forsendum.
Berðu líka verð, stærð og gæði pallbílanna saman við það sem aðrir bjóða. Komdu svo til okkar og aktu bílunum
til reynslu. Þú munt sannfærast um að þeir eru fremstir í sínum flokki!
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ! ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN Á VEGUM FRAMLEIÐANDA
m
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 og 674300
o