Morgunblaðið - 19.02.1991, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.02.1991, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1991 27 Heimkvaðning innrásarliðsins eini valkostur Saddams forseta? Araman. The Daily Telegraph. SADDAM Hussein íraksforseti virðist ekki eiga ura marga kosti að velja í Persaflóastyrjöldinni ef gengið er að því sem vísu að hann hafi ennþá fulla stjórn á Byltingarráðinu. Þessi valdastofnun lýsti óvænt yfir því á föstudag að írakar væru tilbúnir til að kalla innrásarliðið heim frá Kúveit með ákveðnum skilyrðum þó. Á Vesturlöndum var þessari tilkynningu íraka snimhendis hafnað en þeim fer fjölgandi sem telja að yfirlýsing þessi sé til marks um að Saddam geri sér ljóst að Kúveit fái hann aldrei haldið. í Jórdaníu túlkuðu stjórnmálaskýrendur tilkynningu Iraka á þennan veg og Hussein konungur lítur greinilega svo á að skilyrði íraka séu ekki ófrávíkjanleg og afdráttlaus. Á laugardag sagði sendiherra íraka hjá Sameinuðu þjóðunum að ekki mætti túlka yfirlýsingu Byltingarr- áðsins bókstaflega. Það sem menn á Vesturlöndum hefðu sagt vera „skilyrði" og „kröfur“ af hálfu íraka væru miklu fremur „málefni" sem ræða þyrfti til að koma á friði í Mið-Austurlöndum. Landbardagar eru yfirvofandi í Persaflóastyrjöldinni en margir telja að Saddam Hussein sé nú tekinn að efast um að írökum takist að halda Kúveit. Sérstaka athygli vakti að Hus- sein Jórdaníukonungur minntist ekki skilyrði íraka og þá kröfu að ísraelar gefi eftir hernumdu svæðin í símskeyti er hann sendi Saddam Hussein á laugardag. Jórdaníukon- ungur bar hins vegar lof á Iraka fyrir að hafa lýst yfir vilja sínum tii að halda frá Kúveit í samræmi við ályktun Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna númer 660. Dagblöð í írak vöruðu Vesturl- önd við því að hafna tillögum stjórnvalda á sunnudag og lýstu eina ferðina enn yfir því að írösku hersveitiínar væru fullfærar um að sigrast á liðsafla óvinarins. „Jurtir eyðimerkurnar verða vök- vaðar með blóði trúvillinganna," sagði í málgagni hersins og eina ferðina enn var ísraelum hótað tortímingu og dauða. Tariq Aziz, utanríkisráðherra íraks, sagði áður en hann hélt til Moskvu á sunnu- dag að írakar hefðu með þessu gert allt sem í þeirra valdi stæði til að afstýra frekara blóðbaði á vígvöllum Persaflóastríðins. Krafa þeirra væri því sú að Vesturlönd gerðu slíkt hið sama. Forsendur Saddams Husseins Saddam forseti hefur fram til þessa gengið út frá því að tíminn vinni með írökum. Hann taldi að bandamenn skorti staðfestu til að halda úti langvarandi hernaðarað- gerðum og að almenningsálitið myndi snúast honum í vil. Nú þeg- ar innrás í Kúveit er yfirvofandi og ekkert lát virðist á loftárásum bandamanna virðist Saddam lo'.is hafa gert sér ljóst að honum muni aldrei takast að halda landinu. Yfir- lýsing Byltingarráðsins og för Tariqs Aziz til Moskvu var því aug- ljóslega lokatilraun íraka til að knýja bandamenn til þess að fresta innrás í Kúveit í þeirri von að unnt yrði að fá fram lausn sem talist gæti viðunandi fyrir Saddam Hus- sein. Tilkynning Byltingarráðsins leiddi einnig í ljós að brottflutning- ur frá Kúveit myndi mælast vel fyrir meðal alþýðu manna í írak. Líkt og þegar lýst var yfir vopna- hléi í stríðinu blóðuga við íran árið 1988 greip mikll fögnuður um sig í Bagdad á föstudag þegar yfirlýs- ing stjórnvalda hafði verið gerð opinber. Dansað var á götum, úti og hleypt af rifflum út í loftið líkt og alsiða er í þessum heimshluta. Fagnaðarlætin urðu að vísu að engu skömmu síðar er í ljós kom að kröfur og skilyrði íraskra stjóm- valda voru hinar sömu og áður. En eftir því sem næst verður kom- ist er hin almenna afstaða í írak sú að menn séu ekki reiðubúnir til að fóma öllu fyrir Kúveit þó svo flestir telji að landið tilheyri írak með réttu. Allur ferill Saddams Husseins frá því hann varð forseti landsins árið 1979 sýnir að honum er fyrst og fremst umhugað um að tryggja eigin völd. Öll andstaða innan Ba- ’ath-flokksins var upprætt og reglulegar „hreinsanir" hafa farið fram. Innan hersins hafa menn frá heimabæ Saddams, Takrit, hafist til æðstu metorða og traust í garð annarra ristir ekki djúpt. Hafi Saddam komist að þeirri niðurstöðu að herafli hans í Kúveit og suður- hluta íraks fái aldrei varist árásum bandamanna og að við blasi uppr- æting liðsaflans er eini möguleiki hans í stöðunni sá að kalla liðið heim frá Kúveit hið fyrsta. Vígstaða íraka Menn greinir raunar á um hversu slæm vígstaða Iraka sé nú eftir linnulausar loftárásir bandamanna á undanförnum vikum. Sumir telja að einungis hafi tekist að rýra slag- kraft íraska heraflans um tíu pró- sent en aðrir fullyrða að allt að helmingur vígtóla Saddams heyri nú sögunni til. Þó að síðari taian reyndist rétt blasir engu að síður við að írakar réðu enn yfir öflugum herafla drægju þeir liðsaflann út úr Kúveit auk þess sem fyrir liggur að stærsti hluti flughersins er enn eftir. Afráði Saddam hins vegar að beijast áfram verður hann upp á náð og miskunn nágranna sinna kominn, einkum Sýrlendinga og írana, þegar Persaflóastríðinu lýk- ur. Slíkt yrði tæpast líklegt til að auka vinsældir Saddams á heima- velli. Á sama hátt er erfitt að gera sér grein fyrir því hvernig skilyrðis- laus uppgjöf íraka í stríðinu myndi mælast fyrir. Líkast til yrðu við- brögð landsmanna almennt jákvæð og myndu því væntanlega skyggja á reiði ýmissa í garð Saddams fyr- ir að hafa dregið þjóðina út í þetta tilgangslausa stríð. Alltjent urðu viðbrögðin þessi er stríðinu við ír- ani lauk.. Það stríð, sem var álíka tilgangslaust og skilaði írökum engu, varð mun mannskæðara en átökin nú. Það virðist einnig freist- andi að áiykta sem svo sem að ekki hafi enn verið hróflað við sjálf- um grundvelli valdakerfis Ba’a- ath-flokksins, sem kúgað hefur þjóðina til hlýðni í 23 ár. írakar áræða enn ekki að gagnrýna Sadd- am og því síður er líklegt að menn samemist um að steypa honum af stóli. í stríðinu við írani kom aldrei til mótmæla á götum úti og það hefur heldur ekki gerst nú. Hallar- bylting virðist nánast óhugsandi. Saddam hefur safnað í kringum sig mönnum sem eiga sömu hagsmuna að gæta og hann. Ef Lýðveldisvörð- urinn, úrvalssveitir íraka, er enn hollur foringja sínum má telja óhugsandi að herinn rísi upp gegn Saddam Hussein. Takist Irökum að binda enda á Persaflóastyijöld- ina í allra nánustu framtíð er því trúlegt að Saddam verði ekki kom- ið frá völdum. Sovétlýðveldið Georgía: Sovéskir hermenn handtaka skæruliða Moskvu. Reuter. SOVÉSKIR hermenn réðust í gær til atlögu við þjóðernissinnaða skæruliða í Georgíu. Djaba Josselíjani leiðtogi Riddaranna, en svo nefnist hin vopnaða sveit skæruliða, fór hörðum orðum um leiðtoga Georgíu, Zviad Gamsakhurdia, og við árás hersins. Blaðamenn í Georgíu sem Reut- ers-fréttastofan ræddi við segja að þremur skriðdrekum og tíu bryn- vörðum bílum hafi verið beitt í árás- inni á Riddarana. Þetta gerðist snemma í gærmorgun nærri höfuð- borg Georgíu, Tiflis. Að sögn voru þijátíu skæruliðar í búðunum hand- teknir en áður tókst þeim að særa tvo sovéska hermenn. Josselíjani ávarpaði útifund í Tíflis í gær eftir þessa atburði og voru um tvö þúsund manns við- staddir. Hann fordæmdi Gamsak- hurdia þótt báðir beijist þeir fyrir sjálfstæði Georgíu. Skæruliðafor- inginn sagðist ætla að stofna stjórn- sakaði hann um að standa á bak málaflokk til að beijast gegn fas- isma. Riddararnir eru ein sveit af mörgum vopnuðum sem sprottið hafa upp í Georgíu að undanförnu. Josselíjani sagði nýlega í viðtali að hann gæti auðveldlega kvatt til vopna sgx þúsund manna lið ef mikið lægi við. Hann teldi að hlut- verk sitt og sinna mann væri eink- um að halda uppi lögum og reglu. Gamsakhurdia og aðrir ráðamenn i Georgíu segja hins vegar að Moskvustjórnin hafi látið Riddurun- um vopn í té til að auka óróann í landinu. Norska sjónvarpið: Lögin of léleg fyr- ir söngvakeppnina Ósló. Fró Helge Sorensen, fréttaritara Morgunblaðsins. NORSKA ríkissjónvarpið hefur hvað þetta snertir. aflýst söngvakeppni sem verið Afráðið hafði verið að tónlistar- hefur árlegur viðburður en sigur- maðurinn Jahn Teigen yrði gestgjafi vegarar hennar hafa löngum verið í sjálfri sjónvarpskeppninni og sagð- fulltrúar Noregs í söngvakeppni ist hann hafa orðið bæði undrandi evrópskra sjónvarpsstöðva. og reiður er hann frétti af ákvörðun Alls höfðu verið send inn 140 lög sjónvarpsins gegnum fjölmiðla. í keppnina en dómnefnd komst að Sagðist hann hafa hlustað á um 30 þeirri niðurstöðu að þau hefðu öll laganna og vera ósammála því að lög verið of léleg og hefðu ekkert erindi og textar hefðu verið lélegir. í sjónvarskeppni. Þó hætt hafi verið við söngva- Forsvarsmenn sjónvarpsins sögðu keppnina mun norska sjónvarpið að gæði laganna 140 hefðu verið engu að síður senda þátttakendur í ónóg og frumlegheit hefði vantað evrópsku söngvakeppnina en fulltrú- tilfinnanlega. Sögðu þeir að. söngvá- ’ ar stöðvarinnar verða valdir,; með képpninni hefði hrakað ár frá; árí öðrúmliætlv en undanfarið. I ; Opnunartími I ___________ | Föstudaga I ki 13-19 I Laugardaga : kl. 10-16 : Aðra daga I kl. 13-18 | ----------- FRÍTT KAFFI — VÍDEÓHORN FYRIR RÖRNIN - ÓTRÚLEGT VERB SANNI STEINAR Hljómplötur — kasettur KARNABÆR Tískufatnaður herra og dömu HUMMEL Sportvörur allskonar VINNUFATABÚÐIN Fatnaður PARTÝ Tískuvörur BOMBEY Barnafatnaður MIKLIGARÐUR Fatnaður og skór á alla fjölskylduna KJALLARINN/KÓKÓ Alhliða tískufatnaður STÚDÍÓ Fatnaður SAUMALIST Allskonar efni VERSLUNIN CARA Kventískufatnaður OG MARGIR FLEIRI Fjöldi fyrirtækja — gífurlegt vöruúrval Með lágu verði, miklu vöruúrvali og þátttöku fjölda fyrirtœkja hefur stórútsölumarkaðurinn svo sannarlega slegið ígegn og stehdur undir nafni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.