Morgunblaðið - 19.02.1991, Síða 32

Morgunblaðið - 19.02.1991, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1991- Frumvarp um varnir gegn mengun sjávar: landsins og þjálfi lið til að hreinsa olíu sem fer í sjó. Margrét Frímánnsdóttir sagði í samtali við Morgunblaðið að hún teldi meiri líkur til þess komið verði upp hreinsibúnaði með hagkvæm samnot í huga ef dreifingar- og söluaðilar sjái um búnaðinn og þjálfun á mannskap til að hreinsa olíu úr sjó. Margrét taldi einnig að sú sérþekking og verkkunnátta sem þyrfti til að vinna þetta verk væri frekar að finna hjá dreifing- ar- og söluaðilum en sveitarstjórn- um. „I þeim tilvikum þegar einhver olíumengun hefur orðið í höfnum landsins hafa olíufélögin sýnt góð- an samstarfsvilja og í raun unnið að hreinsuninni með aðilum frá ríki eða sveitarfélögum og hafnar- yfirvöldum," sagði Margrét Frímannsdóttir. Skattamál: Skattbyrði á Islandi o g í OECD-ríkjum Skattalög: Flutningar milli lands- hluta verði auðveldaðir Lagafrumvarp sex þingmanna SEX þingmenn úr jafnmörgum flokkum vilja auðvelda fólki að flytja milli byggðarlaga og lagfæra ákveðið óréttlæti sem þeir telja viðgangast í skattalögum gagnvart hjónum. Þingmennirnir hafa lagt fram í efri deild frumvarp um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekju- og-eignaskatt. álagi á þann hluta tekjuskatts- stofns sem greitt hefur verið af.“ í greinargerðinni kemur fram að þessi tillaga taki til þeirra tilvika þegar hjón telji fram sameiginlega Flutningsmenn tillögunnar eru Valgerður Sverrisdóttir (F-Ne), Danfríður Skarphéðinsdóttir (SK-Vl), Guðmundur Ágústsson (B-Rv), Eiður Guðnason (A-Vl), Margrét Frímannsdóttir (Ab-Sl) og Salóme Þorkelsdóttir (S-Rn). og annar aðilinn hafí einhvers kon- ar rekstur á sínum vegum en mak- inn starfi hjá opinberum aðilum. Telji hjónin ekki fram til skatts innan tilskilins frests megi skatt- stjóri bæta 25% álagi við þá skatt- stofna sem hann áætlar þrátt fyrir að annar aðilinn sé í skilum sam- kvæmt staðgreiðsluskatti. Flutn- ingsmenn telja eðlilegt að álagi sé í slíkum tilvikum einungis beitt gagnvart þeim aðila sem ekki sé í skilum. Olíufélögin sjái um hreinsunarbúnað MARGRÉT Frímannsdóttir (Ab- Sl) vill breyta lögum um varnir gegn mengun sjávar. A dagskrá efri deildar í dag er frumvarp til laga um breytingu á 18. gr. laganna þess efnis að: „Umboðsaðilar og fyrirtæki, er annast dreifingu og sölu á olíu, skulu koma upp fullnægjandi búnaði og þjálfa lið til hreinsunar á olíu úr sjó. Hafa skal samráð við viðkomandi sveitarsljórn, hafnaryfirvöld og Sigl- ingamálastofnun rikisins. Siglingamálastofnun rikisins skal setja relgur um samræmdan búnað með hagkvæm samnot i huga.“ Skúli Alexandersson (Ab-Vl) er meðflutningsmaður með Margréti að þessu frumvarpi. í greinargerð segir Margrét Frímannsdóttir m.a., að þetta frumvarp sé flutt til að létta af sveitarfélögum þeirri skyldu sem á þau er lögð samkvæmt 18. gr. I lögunum um varnir gegn mengun sjávar segir að sveitarfélögin ann- ist og kosti búnað til að hreinsa olíu úr sjó. Þrátt fyrir ákvæðið hafi hreinsibúnaði ekki verið komið upp í höfnum landsins utan Reykjavíkur. Sveitarfélög eða hafnarsjóðir þeirra virðist ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til að standa undir þeim kostnaði sem þessu fylgir, þrátt fyrir að ríkis- sjóði beri að greiða hluta þar af. Ennfremur er í greinargerðinni bent á, að í 16. gr. sömu lága segi að ef hætta sé á mengun sjávar, sem bijóti gegn ákvæðum laganna, skuli sá sem ábyrgð beri á mengun- inni gera allt sem í hans valdi standi til að koma í veg fyrir eða draga úr henni. I þeim tilvikum sem hætta sé á olíumengun á sjó í eða utan hafnarsvæðis, sé sjaldn- ast hægt að benda á sveitarfélagið sem mengunarvald eða ábyrgða- Margrét Frímannsdóttir raðila á þeim búnaði sem mengun- inni valdi. Að dómi flutningsmanna er eðlilegt að þau fyrirtæki og umboðsaðilar, sem annast sölu og dreifíngu á olíu, beri kostnað af mengunarvarnarbúnaði í höfnum Starfsmenn Siglingamálastofnunar kanna oliubrák á fjörum í Grund- arfirði. ÓLAFUR R. Grímsson hefur boðið alþingismönnum að sitja ráð- stefnu um skattbyrði á íslandi og öðrum OECD-ríkjum. Fjármála- ráðuneytið gengst fyrir ráðstefnu þessari næstkomandi föstudag 22. febrúar. Gestur ráðstefnunnar er hagfræðingurinn John Nörre- gárd einn stjórnenda skattadeildar Efnahags- og framfarastofnun- arinnar, OECD. í fyrsta lagi leggja flutnings- menn til að við 2. mgr. 2. töluliðar C-liðar 7. gr. laganna bætist: „Leigi skattaðili eigið íbúðarhúsnæði út og taki á leigu íbúðarhúsnæði í öðru byggðarlagi til eigin nota telst aðeins mismunur leigutekna og leigugjalda til tekna. Óheimilt er að flytja tap sem þannig myndast milli ára.“ Samkvæmt gildandi lög- um eru leigutekjur skattskyldar án tillits til þess hvort viðkomandi greiðir leigugjöld. Flutningsmenn segja í greinargerð að þessi tillaga sé gerð til að auðvelda fólki sem áhuga hafi á að flytjast í annan landshluta um óákveðinn tíma án þess að hafa' tekið ákvörðum um að flytja aðsetur sitt endanlega og selja íbúðarhúsnæði sitt. Ótal dæmi finnist um að ungt fólk af Reykja- víkursvæðinu, sem hafí viljað reyna fyrir sér á landsbyggðinni, hafí hætt við þegar það hafí áttað sig á þessum reglum skattalaga. I annan stað flytja sexmenning- arnir tillögu um að við 1. mgr. 106. gr. bætist: „Komi í ljós við framtalsskil að skattaðili hefur greitt staðgreiðslu af tekjum sínum er skattstjóra þó óheimilt að beita Guðmundur H. Garðarsson: Afnema verður marg- sköttun iðgjalda til lífeyrissjóða Skattfrjáls í flestum EB-ríkjum Fyrirlestur Johns Nörregárd nefnist „Skattbyrðismælingar OECD: aðferðir og niðurstöður." Þar að auki fjalla íslenskir sérfræð- ingar, úr ráðuneytinu og víðar að, um ýmis álitamál í þessu sam- bandi, t.d: „Hvers vegna mælist skattbyrði á Islandi lægri en í meirihluta aðildarlanda OECD?“ Á ráðstefnunni verður gefínn kostur á almennum umræður og fyrir- spurnum. í bréfí frá fjármálaráðherra til alþingismanna segir m.a., að síðasta haust hafí komið út fyrsta skattaskýrsla OECD sem náð hafi til Islands. Niðurstöður hennar hafí vakið mikla athygli og deilur hérlendis. I framhaldi af viðbrögð- unum hér hafí verið ákveðið að bjóða til Islands fulltrúa frá OECD til að skýra fagleg vinnubrögð stofnunarinnar í þessum fræðum og svara fyrirspurnum um álita- mál. Fleiri meðmælendur Geir H. Haarde (S-Rv) hefur lagt fram breytingartillögu við frum- varp um breytingu á lögum um kosningu til Alþingis. Eins og frum- varpið er nú, er gert ráð fyrir að .framboðslista skuli fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í hlutaðeigandi kjör- Fjármálaráðherra vonast til að hitta alþingismenn „á þessari at- hyglisverðu ráðstefnu síðdegis á næsta, föstudaginn í Borgartúni 6“. Samkvæmt dagskrá mun fjár- málaráðherra setja ráðstefnuna kl. 13.30 en ráðstéfnuslit verða kl. 17.00. Fundarstjóri verður Magnús Pétursson ráðuneytisstjóri fjár- málaráðuneytisins. John Nörre- gárd mun flytja mál sitt á ensku og mun fyrirlestur hans liggja frammi á ráðstefnunni. Alíir áhugamenn eru velkomnir. dæmi. Fjöldi meðmælenda skal vera margfeldi af þingsætatölu kjördæmisins' og talnanna 10 að lágmarki og 15 að hámarki. Geir leggur til að fjöldi meðmæ- lenda verði tuttuguföld þingsæta- tala kjördæmisins. Ef samþykkt verður þýðir tillaga Geirs, t.d. í Reykjavík, að 360 meðmælendur mun þurfa við framboðslista í stað 180. Kennarar í Litháen þakka Alþingi íslendinga hefur borist skeyti frá kennarasambandi Lithá- en: „Kennarar Litháen þakka ykk- ur fyrir viðurkenningu á sjálfstæði Litháen. Guð blessi ísland og íslenska þjóð.“ Guðmundur H. Garðarsson (S-Rv) hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um afnám margsköttunar á iðgjaldi sjóðfé- laga til lífeyrissjóða. Þingmaður- inn staðhæfir að iðgjaldið sé skattlagt þrisvar: fyrst iðgjaldið, síðan greiðslur frá sjóðunum og loks sé skerðing á tekjutrygg- ingu frá Tryggingastofnun einn- ig skattlagning. Tillagan felur fjármálaráðherra, verði hún samþykkt, að hefja undir- búning lagabreytinga, sem hafi það að markmiði að afnema margskött- un iðgjalda til lífeyrissjóðanna. Fyrst er iðgjaldið skattlagt, segir í greinargerð, síðan greiðslur frá sjóðunum til lífeyrisþega og loks er skerðing tekjutryggingar líka skattlagning. í flestum löndum Evrópubanda- lagsins eru iðgjöld, bæði launþega og atvinnurekenda, skattfijáls, en lífeyrir frá sjóðunum er skattskyld- ur sem hér. Þingmaðurinn sagði það ranglátt að þeim einstakling- um, sem innt hafi greiðslur til sjóð- anna af hendi langa starfsævi, skuli refsað fyrir það þegar að töku elli- Guðmundur H. Garðarsson lífeyris kemur með skerðingu tekju- tryggingar. Með tillögunni fylgdi ítarleg greinargerð unnin af Jónasi Bjarnasyni, verkfræðingi. Stuttar þingfréttir:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.