Morgunblaðið - 19.02.1991, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPn/AlVDINUIÍF • ÞklÐTOÐAGÚR 19. I'RBRÚAR 1991
34
Iðnaður
James Bond meðaljafnmgja
Stóraukin eftirspurn eftir hlerunarbúnaði í Englandi
LORRAINE Electrocics er leið-
andi í framleiðslu á hátæknihler-
unarbúnaði í Englandi. Fyrirtæk-
ið selur framleiðslu sína í lítilli
kompu i einu af úthverfum Lon-
don og undanfarið hefur mátt sjá
marga virðulega kaupsýslumenn
leggja leið sína þangað. Eftir-
spurn eftir hlerunarbúnaði jókst
til muna í Englandi á síðasta ári
og varð um 75% söluaukning milli
ára hjá þeim aðilum sem fram-
leiða slíkar vörur.
I Englandi gilda lögmál hinna
frjálsu markaðsviðskipta um hler-
unarbúnað, þ.e. það eina sem þarf
til þess að eignast hann eru pening-
ar. Afleiðingin er sú að meðal efn-
aðri kaupsýslumanna þykir ekkert
tiltökumál lengur að stunda iðnað-
arnjósnir. Þeir eru til sem þykir nóg
um ftjálsræðið í þessum viðskiptum
og hafa farið fram á að lögbundið
eftirlit verði haft með þeim. Kunnug-
ir telja þó litlar líkur á að svo verði
í bráð og benda á máli sínu til stuðn-
ings að breska ríkið sé einn stærsti
viðskiptavinur Lorraine Electronics í
dag.
Þessa dagana er vinsælasta fram-
leiðsla Lorraine Electronics, skjala-
taska með innbyggðum hljóðnema
og upptökutæki. Kúiupenni með
hljóðnema og útvarpssendi selst líka
mjög vel hjá kaupsýslumönnum sem
eru í meirihluta meðal viðskiptavina
fyrirtækisins. Þeir nota búnaðinn
NJÓSNARINIM —
Mikið njósnaæði gengur nú
meðal enskra kaupsýslumanna
og fyrirtæki sem framleiða há-
tæknihlerunarbúnað hafa stór-
aukið söluna.
aðallega við undirskriftir á viðskipta-
samningum og á mikilvægum fund-
um. Nokkrir hafa þó viðurkennt að
nota tæknina til þess að fylgjast með
ferðum eiginkonunnar á meðan þeir
eru á skrifstofunni.
Að sögn Davids Brenn, eiganda
Lorraine Electronics, hafa bresk
stjórnvöld mestan áhuga á svokölluð-
um tengli eða ístungu með innbyggð-
um hljóðnema. Það er ódýrt og einf-
alt tæki sem nota má til þess að
fylgjast með hvort starfsmenn leki
upplýsingum um ríkisleyndarmál út
af skrifstofum. Símahlerunartæki
eru einnig ótrúlega ódýr og hægt er
að fá lítinn hljóðnema á stærð við
hálfan eldspýtnastokk fyrir tæplega
tíu þúsund íslenskar krónur. Tækið
hljóðritar símtöl ásamt því að skrá
viðkomandi símanúmer. Þessi aðferð
er mikið notuð þrátt fyrir að hún
samræmist illa viðurkenndum leik-
reglum viðskiptaheimsins.
Meðal dýrari tækja sem Lorraine
Electronics framleiðir má nefna
tölvubúnað sem gerir mönnum kleift
að skoða tölvuskjái annarra. Þannig
getur maður t.d. verið með tölvuskjá
nálægt einhverri skrifstofubyggingu
og séð hvað starfsmenn þar eru að
vinna á sínar tölvur. Þetta þykir
ómissandi búnaður fyrir njósnara
með metnað.
Eigendur Lorraine Electronics vita
hvar skórinn kreppir hjá fyrirtækjum
í kjölfar þessa njósnaæðis. Þeir bjóða
því upp á ýmis tæki og þjónustu sem
miða að því að vérnda fyrirtæki gegn
iðnaðarnjósnum - að sjálfsögðu gegn
hárri þóknun.
HeimikhBorse/i
I HEKLUHÚSINU LAUGAVEGI 170
Á annarri hæð:
752,5m2 fullbúið
skrifstofuhúsnæði.
Eldtraust
skjalageymsla.
Á þriðju hæð:
Nýbygging, 973m2.
Margvíslegir mögu-
leikará innréttingu.
Glæsilegt útsýni.
HEKLA
Húsnæöiö leigist til lengri tíma, í einu lagi eöa mörgum hlutum eftir þörfum. í
húsinu er Caterpillar vararafstöð. Mörg bílastæði. Góð aöstaða fyrir umferð að
og frá húsinu. Einn þekktasti staðurinn á Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar
gefur Sigurður Gunnarsson alla virka daga frá kl. 9.00 -18.00 í síma 695500.
Efnahagsmál
Skortur
á lánsfé
íBanda-
ríkjunum
^ Flórída, Reuter.
Á ÞINGI Félags bandarískra Iðn-
rekenda lýstu menn áhyggjum
sínum vegna Iánsfjárskorts í
Bandaríkjunum. Sums staðar eru
erfiðleikar viðskiptabanka svo
miklir að traustustu lántakendur
fá veðlán ekki framlengd.
Meirihluti bandarískra iðnrekenda
býst ekki við því að yfirstandandi
samdráttarskeið verði langvinnt. En
vegna lánsfjárskorts reikna iðnrek-
endur með að efnahagsbatinn í kjöl-
farið verði hægur.
Seðlabanki Bandaríkjanna hefur
reynt að auka framboð lánsfjár með
því að lækka vexti og minnka bindi-
skyldu viðskiptabanka. Einnig er
verið að endurskoða bókhaldslög sem
dregið hafa úr vilja viðskiptabanka
til að lána. Enn er þó vart hægt að
merkja að útlán hafí aukist í kjölfar-
ið. Alan Greenspan, aðalbankastjóri
Seðlabanka Bandaríkjanna, sagði á
iðnrekendaþinginu að þessar ráðstaf-
anir myndu að öllum líkindum duga
til að binda enda á lánsfjárskortinn.
Greenspan varaði menn við óþolin-
mæði og sagði að það tæki tíma að
koma á styrkri stjórn útlána eftir
aðhaldsleysi undanfarinna ára.
★ GBC-Pappírstætarar
Þýsk framleiðsla
Ýmsar stærðir og gerðir fáanlegar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Simar 624631 / 624699