Morgunblaðið - 19.02.1991, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991
"‘47
Kristín Halldórs-
dóttir - Minning
Fædd 16. september 1910
Dáin 8. febrúar 1991
„Hún amma þín dó í morgun.“
Þetta voru fréttirnar sem ég fékk
er ég kom heim með son minn úr
dansskólanum þann 8. febrúar.
Ég er ekki sterk manneskja og
tek svona fréttum ýfirleitt illa, hvort
sem þær eru um ungt eða gamalt
fólk.
Auðvitað fannst mér sárt að
missa ömmu, en það er samt gott
að hugga sig við það að hún þurfti
ekki að þjást lengi. Hún veiktist
snögglega miðvikudaginn 6. febrú-
ar og var síðan horfín frá okkur
föstudaginn 8. febrúar.
Ég mun sakna hennar, því það
var alltaf gott að koma í heimsókn
til hennar. Ég minnist þess er ég
átti heima í Keflavík á Hólabraut-
inni, þá átti amma heima á Sólvalla-
götu 24 í Keflavík. Þegar ég gekk
úr skólanum kom ég oft við hjá
Stínu ömmu og þar fékk ég oft
snarl í hádeginu. Hún var yfírleitt
að hekla þegar ég kom og seinna
meir kenndi hún mér að hekla. Ég
minnist þess er hún gaf okkur að
drekka í kaffitímanum, þá smurði
hún rúgbrauð og skar sneiðarnar í
teninga. Ég man hvað mér og hin-
um barnabörnum hennar fannst
gaman að borða rúgbrauðið þannig.
Þegar ég flutti úr Keflavík var
ég komin með mína eigin fjölskyldu
og gat ég því ekki hitt ömmu eins
oft og mig langaði til, en þegar við
komum suður notuðum við tækifær-
ið og fórum í heimsókn og var ávallt
tekið á móti okkur opnum örmum.
Við amma höfum alltaf getað
spjallað heilmikið saman, bæði fyrr
og síðar. Við spjölluðum mikið síð-
ast þegar ég hitti hana, við rifjuðum
upp gamlar stundir, ræddum um
núverandi stundir og spáðum í
framtíðina.
Amma var alltaf vön að segja
við mig þegar við kvöddumst: „Þú
átt óskaplega falleg börn, Kristín
Blómastofa
Friöfinm
Suðuriandsbraut 10
103 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
bllélnn q u'<lll
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
.iiiiMtJdiil ái.ni-ÍAi ■;i.tr:iui.).4(ii /
og þú ert rík. Hugsaðu vel um þitt
gull.“ Ég minnist þessara orða oft
þegar mér finnst allt ómögulegt og
eins og amma sagði: þá er ég rík
og á því ekki að kvarta.
Bömunum mínum fannst alltaf
gaman að fara til Stínu ömmu og
fá mola í munninn og jafnvel kók
í glas. Yngsti sonur minn sagði
yfirleitt: Eigum við að fara til ömmu
sem á heima í lyftunni? Og þegar
við vorum komin til Stínu ömmu,
varð hann að segja henni frá ferð
sinni í lyftunni.
Það er margs að minnast, en það
kemst aldrei allt á eitt blað. Eftir
að afí dó, sagði amma að nú biði
hann eftir sér. Nú er hún farin og
ég veit að þau hafa hitt hvort ann-
að aftur.
Með þessum orðum viljum við
kveðja elsku ömmu og biðjum Guð
að gæta hennar. Guð blessi ömmu
og varðveiti í eilífðinni.
Kristín Halldórsdóttir og
fjölskylda, Blönduósi
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
JUSTA MORTENSEN,
Bræðraborgarstíg 9,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 19. febrú-
ar, kl. 13.30.
Daníel Jakob Jóhannsson,
María Jakobsdóttir, Jóhannes Guðmannsson,
Martin J. Jakobsson, Helga Einarsdóttir,
Jóhann P. Mortensen, Hanna Mortensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Leiðrétting:
Minningargrein um Kristínu í
blaðinu á laugardag bar yfirskrift-
ina Guðný K. Halldórsdóttir. Það
hét hún fullu nafni, en notaði ekki
sjálf Guðnýjar nafnið. Heimilisfang-
ið Bíldudal er ranghermi. Þá misrit-
aðist í greininni nafn eiginmanns
hennar, Brynjólfs Ágústs Alberts-
sonar. Eru hlutaðeigandi beðnir
afsökunar á þessum mistökum um
leið og þau eru leiðrétt.
Móðir okkar,
GUÐRÍÐUR GUÐLAUGSDÓTTIR,
Hátúni 10,
Reykjavík,
er lést 13. þ.m., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 21. febrúar kl. 13.30.
Grétar Bergmann,
Guðlaugur Bergmann.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
NILS ÍSAKSSON,
Boðahlein 8,
Garðabæ,
lést á sjúkradeild Hrafnistu laugardaginn 16. febrúar.
Steinunn Stefánsdóttir,
Gústav Nilsson, Ólafur Nilsson,
Bogi Nilsson, Anna Nilsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓHANN GREIPUR FRIÐÞJÓFSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20. febrúar
kl. 13.30.
Jóna Hansdóttir,
Davíð Jóhannsson,
Ásrún Jóhannsdóttir,
Jóhann MárJóhannsson,
Sigurrós Hulda Jóhannsdóttir.
t
Móðir okkar,
GUÐNÝ J. OTTESEN,
Túngötu 36a,
andaðist hinn 16. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. febrúar
kl. 10.30.
Guðlaug Ottósdóttir,
Birgir Ottósson,
Guðmundur K. Ottósson,
Karl Jóhann Ottósson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÞÓRUNNAR H. GÍSLADÓTTUR,
Bústaðavegi 67.
Stefán Sigurdórsson,
Finnbogi Sævar Guðmundsson, Sigríður Sigurþórsdóttir,
Svavar G. Stefánsson,
Sigurdór Stefánsson,
Jón Á. Stefánsson,
Helga Stefánsdóttir,
Dagrún Sigurðardóttir,
Guðný Steinþórsdóttir,
Sigrún Högnadóttir,
Sveinn Kjartansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
HÁVARÐUR KARL REIMARSSON,
Hátúni 10,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 20. febrú-
ar kl. 10.30.
Aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
móður okkar, fósturmóður og systur,
SIGRÚNAR EIRÍKSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Hlið,
Akureyri.
Eiríkur Hreinn Finnbogason, Stefán Yngvi Finnbogason,
Margrét Kristjánsdóttir, Jóhannes Eirfksson.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT STEFÁNSDÓTTIR,
írafossi,
Grímsnesi,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 19. febrúar
kl. 13.30.
Óli Haukur Sveinsson,
Anna Marfa Óladóttir, Gylfi Þorkelsson,
Elín Geira Óladóttir,
Hafdís Óladóttir, Jóhannes Bjarnason
og barnabörn.
Lokað
Lokað í dag vegna jarðarfarar
VIÐARS SIGURÐSSONAR.
Verslunin Dalakofinn,
verslunin Laufið.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
RUNÓLFUR ÓLAFSSON,
Vallarbraut 13,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 22. febrúar
kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Minningarsjóð
Guðmundar Sveinbjörnssonar.
Málfríður Þorvaldsdóttir,
Tómas Runólfsson, Kristrún Guðmundsdóttir,
Jón Rafns Runólfsson, Inga Harðardóttir,
Fríða Björk, Þórhalldur Rafns,
Bergþóra, Þórhildur Rafns,
Bjarni og Kristrún Sara.
llbsr
Lokað
Lokað í dag frá kl. 13.00 vegna útfarar
MARSIBILAR S. BERNHARÐSDÓTTUR.
Dælur hf., Króli,
Smiðjuvegi 2, Kópavogi. Iðnbúð 2, Garðabæ.
dímváfkt/ífviMtía
Minningarkort Krabbameinsfélagsins fást
í flestum lyfjabúðum í Reykjavík
og á nær öllum póstafgreiðslum úti á landi.
Einnig er hægt að hringja í síma 62 14 14.
Ágóða af sölu minningarkortanna
er varið til baráttunnar gegn krabbameini.
Krabbameinsfélagið