Morgunblaðið - 02.03.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.03.1991, Blaðsíða 18
tööl S51AM .& flUOAQHAOUAJ QIQAJHMUOHOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARZ' 1991 ' Reuter Skrímslasýning Mikil skrímslasýning er nú að hefjast í Sydney í Ástralíu. Þar eru sýndar ýmsar furðuskepnur sem sumar lifðu fyrir meira en 350 milljón árum. Hér er framkvæmdastjóri sýningarinnar að bursta tennumar í hinu ægilega sæskrímsli Tylosaurus. Royal -uppáhaldið mitt! ROYAL skyndiréttur fyrir þá sem geta ekki beðið. Aðrar bragðtegundir: Jarðarberja Súkkulaði Vanillu Sítrónu Meintir stríðsglæpir íraka: Erfitt kann að reynast að sanna sekt Saddams hvernig fara bæri með óbreytta borgara og stríðsfanga. Lög íslams, Sharia, kveða einnig á um hvemig fara á með óbreytta borgara á stríðstímum. Abu-Bakr, eftirmaður Múhameðs spámanns á sjöundu öld, brýndi fyrir hermönn- um sínum að fara ekki illa með sigr- aðar þjóðir og virða menningu Chicago. Reuter. Ef bandamenn í stríðinu fyrir botni Persaflóa ákveða að beita sér fyrir réttarhöldum vegna meintra stríðsglæpa Iraka kunna að verða vandkvæði á því að sanna sekt Saddams Husseins Iraksforseta og æðstu yfirmanna íraska hersins, að sögn sérfræðinga í alþjóðalögum. „Því hærra sem mennirnir eru settir því erfiðara er að sanna sekt þeirra," sagði Cherif Bassiouni, for- stöðumaður mannréttindastofnunar Depaul-háskóla í Bandaríkjunum. Hann sagði að helsta vandamálið í þessu sambandi væri að fyrirmæli valdhafanna í írak væru venjulega munnleg og sjaldan skjalfest. Til að hægt sé að dæma æðstu yfírmenn hers fyrir stríðsglæpi samkvæmt núgildandi alþjóðalög- um þarf að sanna að þeir hafi fyrir- skipað glæpina, ekkert aðhafst til að koma í veg fyrir þá þótt þeir hafi vitað af þeim eða látið hjá líða að refsa fyrir þá. Nokkrir sérfræðingar telja líkleg- ast að bandamenn í stríðinu fyrir botni Persaflóa skipi alþjóðlega dómnefnd ef þeir ákveða að efna til réttarhalda gegn írökum vegna stríðsglæpa þeirra í Kúveit. Sak- sóknarar þyrftu þá að færa sönnur á að frásagnir um pyntingar, nauðganir, mannrán og morð ír- askra hermanna á óbreyttum borg- urum í Kúveit væru réttar. Líklegt er að fyrirmyndin verði réttarhöldin yfir stríðsglæpamönn- um öxulveldanna í Numberg og víðar í Evrópu eftir síðari heims- stytjöldina. Um 3.000 nasistar vora þar dæmdir fyrir „glæpi gegn mannkyninu" og nokkrir yfirmenn hers Adolfs Hitlers vora hengdir eftir réttarhöldin í Numberg. Til að hægt verði að dæma Sadd- am Hussein og helstu samstarfs- menn hans þurfa hins vegar annað- hvort bandamenn að taka þá hönd- um eða írakar sjálfir. Síðan þyrftu bandamenn að færa óyggjandi sönnur á að þeir hefðu fyrirskipað grimmdarverkin gegn óbreyttum borgurum í Kúveit og stríðsföngum Iraka. Iraskir hermenn, sem yrðu leiddir fyrir rétt, myndu líklega segja að þeim hefði verið fyrirskip- að að fremja stríðsglæpina og óhlýðni hefði kostað þá lífið, sem er réttmæt málsvöm að sögn sér- fræðinga. „En það er algengur mis- skilningur að í stríði gildi engin lög,“ sagði Grey Dorsey, lagapró- fessor við Washington-háskóla. Hann benti á að írakar hafa undir- ritað Genfarsáttmálann og íröskum hermönnum hefði átt að vera kennt þeirra. Þótt engin fordæmi séu fyrir því að Sameinuðu þjóðirnar láti stríðsglæpi til sín taka sögðu sér- fræðingar að þær kynnu að gera það nú. Ýmsir búast við því að ar- abaríki hafi frumkvæði að réttar- höldum yfír leiðtogum íraks á veg- um Arababandalagsins. Bassiouni sagði hins vegar að stjórnvöld í Kúveit og Saudi-Arabíu kynnu að leggjast gegn slíkum réttarhöldum til að friða Iraka og stuðningsmenn þeirra í nágrannaríkjunum. Kúveiskir læknar sýna frétta- mönnum illa útleikin lík Kúveitborg. Reuter. LÆKNAR á stærsta sjúkrahúsinu í Kúveitborg boðuðu fréttamenn á sinn fund í gær og sýndu þeim hræðilega útleikin lík sem þeir sögðu að bæru vitni um pyntingar og grimmileg dráp íraskra örygg- issveita i landinu. „Þetta var ekki bara innrás, held- ur martröð í sjö mánuði," sagði Abdullah Mutalah Bahhani, læknir við Mubarak-spítalann í Kúveitborg. „Það var komið með svo mörg lík hingað að fæstir starfsmannanna hafa tölu á því,“ bætti hann við. Erfítt er að fá heildarmynd af mann- fallinu í Kúveit og komið hefur í ljós að sjúkrahús landsins vora einangr- uð og mátti starfsfólk þeirra ekki vera í sambandi hvað við annað. Reuíers-fréttastofan hefur eftir starfsfólki á Mubarak-spítalanum að komið hafí verið með um 250 fórn- arlömb íraka þangað frá því 2. ágúst er innrásin var gerð. Ástandið hafi verið hvað verst fyrst eftir innrás- ina, en einnig fyrstu vikuna eftir að loftárásir bandamanna hófust og svo síðustu dagana áður en írakar flýðu Kúveit. Fréttamönnum var í gær sýnt 41 illa útleikið lík á Mubarak-spítal- anum. „Við viljum að heimsbyggðin trúi orðum okkar,“ sagði Abdul Beh- behani læknir. Hann sýndi viðstödd- um áverkana á þremur líkum. „Hauskúpa hans hefur verið moluð, heilinn liggur úti, augun hafa verið stungin út, hann hefur verið skotinn Sundurtætt lík og skriðdrekafiök á veginum til Basra: íraskir hermenn myrtu fjölda óbreyttra borgara á flóttanum Á hernámssvæði bandamanna. Reuter. Blóðsúthelling styrjaldarinnar verður öllum ljós þegar ekið er eftir aðalveginum frá Kúveit til írösku stórborgarinnar Basra, að sögn fréttamanna. Bandamenn vörpuðu m.a. klasasprengjum á flýjandi skriðdrekasveitir Iraka. Svo virðist sem írösku hermenn- irnir hafi ráðist miskunnarlaust á bíla óbreyttra borgara og myrt fjölda fólks. París. Reuter. YITZHAK Shamir, forsætisráð- herra ísrael, segir í viðtali við franska dagblaðið Le Figaro, sem birtist í gær, að bandamenn í Persaflóadeilunni séu nú að leita leiða til að koma Saddam Hussein, Iraksforseta frá völd- um. Segist Shamir vona að þeim takist það ætlunarverk sitt. Shamir segir í viðtalinu að ísrael muni ekki gleyma Scud-eldflauga- Illa útleikin lík, brannin flök brynvagna og bíla og hvers kyns brak liggja um allt eins og hráviði. Hermenn bandamanna, margir úr- vinda eftir leiftursnögga sókn sem lauk með hruni íraska hersins, taka líkunum gröf með skotgrafaspöðum sínum. Þeir fundu bíl sem ekið hafði verið út af veginum og allir í hon- um, fjögurra manna fjölskylda, voru látnir. Fólksbílar og vörubílar era árásum íraka á land sitt þó að stríðinu sé nú lokið. Alls skutu írak- ar um Qöratíu flaugum á ísrael með þeim afleiðingum að fjórir ísra- elskir borgarar féllu og rúmlega þijú hundruðu særðust. Forsætisráðherrann sagði ísraela vilja hefja viðræður við Arabaþjóð- imar en gaf í skyn að land hans væri ekki reiðubúið að láta af hendi hemumin syæði. margir orðnir að samanslungnum, tætingslegum málmflækjum, oft langtum minni en farartækin voru upprunalega. Annars staðar hafa bílarnir bókstaflega sprangið í tætl- ur þegar stórar sprengjur hafa lent á þeim, gígamir era allt sex metrar að dýpt. Stórar skriðdrekar og minni brynvagnar hafa stöðvast og eru ýmist stórskemmdir eða ónýt flök. Fallbyssuturnar drekanna hafa fall- ið af og byssuhlaupin vísa í ýsmar áttir, skriðbeltin slitin í sundur. Sum skriðdrekavopn bandamanna bora sér leið ính um brynhlíf drekanna og springa inni í þeim en að utan- verðu sést aðeins lítið gat þótt áhöfnin sé látin. Fimm íraskir hermenn lágu með stuttu millibili við veginn, allir látn- ir. Allan bijóstkassann vantaði á eitt líkið og virtist ein af klasa- sprengjunum eða fallbyssukúla hafa lent á manninum. Einn hermaður, sem hafði falið sig undir vörubíl, fannst á lífí. Hann var illa særður, annar fóturinn nær rifinn af. Læknir gaf honum morfín og sagaði fótinn af fyrir neðan hné til að bjarga lífí írakans. Forsætisráðherra ísraels í blaðaviðtali: Bandamenn leita leiða tíl að koma Saddam frá Á þriðja líkið vantaði annað augað en stungið hafði verið í hitt. Gat eftir byssukúlu var í gegnum höfuð- ið og svöðusár voru á hálsi líksins líkt og eftir öxi: Læknirinn benti á lítil brunasár á öxlum mannsins og sagði sennilegt að þau væru eftir sígarettuglóð. Félagi í andspyrnuhreyfingu Kúv- eits, Mishaal Abdulla að nafni, skýrði frá því við sama tækifæri að 25. febrúar hefðu íraskir hermenn í fylgd nokkurra hvítklæddra manna, sem virtust vera læknar, tekið níu manns höndum í úthverfí borgarinn- ar sem heitir Kurain. Vitni hefðu séð að safnað hefði verið blóði úr fólkinu úti á götu og hefði athæfíð ekki dulist nærstöddu fólki þótt tjöldum hefði verið slegið upp á götunni. Svo hefði einnig virst sem líffæri hefðu verið numin brott úr fólkinu. Ab- dulla sagði að mennirnir hefðu sést flytja blóð í flöskum á brott og sjálf- ur hefði hann séð þijú lík þar sem vora enn slöngur í æð á hálsi. Behbe- hani læknir leiddi að því getum að írakarnir hefðu þurft á blóði og líffæram að halda handa særðum hermönnum. Reuter Fahad AI-DwaiIah segist hafa orðið vitni að því er íraskir hermenn tóku kúveiska andspyrnumenn af lífi í Kúveitborg. Hér sést Al-Dwa- ilah sýna myndband sem hann segist hafa tekið af atburðinum. af stuttu færi. En hann er heppinn því hægt er að bera kennsl á hann. Pjölskylda hans þekkir hann. En á öðram er vart að sjá að þar hafí verið um mannverar að ræða.“ Næst sneri hann sér að illa brannu líki. „Ég held að kveikt hafí verið í honum áður en hann var drepinn," sagði Behbehani. „Andlitið er horfið, engin augu, engir vöðvar á fótleggj- unum. Sjáið skotsárið í vinstra eyr- anu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.