Morgunblaðið - 02.03.1991, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARZ 1991
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Staðið gegn
sovéskum hótunum
Ymsar efasemdir hafa komið
fram um að rétt hafi verið
staðið að málum á Alþingi, þeg-
ar þar var samþykkt að fela
ríkisstjórninni að taka upp
stjórnmálasamband við Litháen.
Þegar ályktunin var gerð vissu
allir að með henni væri tekin
áhætta. Þingmenn þorðu engu
að síður að stíga skrefið og það
hefur mælst vel fyrir meðal
þeirra sem átta sig á því, að það
kostar baráttu að tryggja
Eystrasaltsríkjunum sjálfstæði
að nýju. Með ályktun Alþingis
lögðum við þeim best lið í þeirri
baráttu. Hún var rökrétt í fram-
haldi af ferð Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráð-
herra til landanna eftir ofbeldis-
verk Sovétmanna í Vilnius um
miðjan janúar.
Morgunblaðið hefur áður bent
á að áhrif ályktunar Alþingis
megi meðal annars meta með
hliðsjón af viðbrögðum yfirvalda
í Moskvu. Sovéski sendiherrann
hefur verið kallaður frá
Reykjavík og mótmæli hafa ver-
ið borin fram við íslensk stjóm-
völd. í tengslum við þing Norð-
urlandaráðs sem lauk í Kaup-
mannahöfn í gær hafa Kreml-
veijar vikið sérstaklega að ís-
landi í mótmælum sem þeir hafa
bórið fram við ráðið vegna þeirr-
ar virðingar sem sjálfstæðisbar-
áttu Eystrasaltsþjóðanna og for-
ystumönnum þeirra er sýnd þar.
Athyglisvert er að skoða með
hvaða rökum Sovétstjómin
reynir að fæla Norðurlöndin frá
stuðningi við Eystrasaltsríkin.
Sovétmenn segja beinum orðum
að þessi afskipti kunni að stofna
í hættu öllum árangri sem náðst
hafi á undanförnum árum í lýð-
ræðisþróun, stöðugleika og virð-
ingu fyrir mannréttindum í Sov-
étríkjunum. Gefið er til kynna
að erlend ríki ýti undir upphlaup
innan Sovétríkjanna og sagt, að
stjórnir Eystrasaltslandanna
beiti ólöglegum meðulum og
pólitískri og siðferðilegri ógnar-
stjórn. Alþingi er sakað um að
hafa brotið gegn þjóðarétti og
Norðurlöndin sökuð um að hafa
misnotað tengsl sín við Eystra-
saltsríkin.
Orðsending Sovétstjómarinn-
ar bendir aðeins til þess að hún
sé að búa sig undir að skella
skuldinni á Norðurlöndin, ef hún
vegna eigin hagsmuna grípur til
þess örþrifaráðs að bijóta sjálf-
stæðisbaráttu Eystrasaltsþjóð-
anna á bak aftur með valdi.
Þessi aðferð er margreynd í
Sovétríkjunum. Nýlega rök-
studdi forsætisráðherra þeirra
upptöku peninga með því að
erlendir bankar ætluðu að eyði-
leggja sovéskt efnahagslíf með
því að dæla rúblum inn í það.
Brezhnev-kenningin frá 1968
byggðist á því að Sovétstjórnin
hefði rétt til að hlutast til um
málefni annarra þjóða, ef hún
teldi sósíalismanum ógnað í
þeim. Þegar Sovétmenn réðust
inn í Afganistan var sagt að það
væri gert til að útiloka undirróð-
ursöfl útlendinga frá því að ná
völdum í landinu.
Viðbrögð Kremlveija sýna
ótta þeirra við sjálfstæðisþróun-
ina í Eystrasaltsríkjunum. Það
er á þeirra valdi en ekki sjálf-
stæðissinnanna að bregðast við
með þeim hætti að ekki komi
til blóðsúthellinga, sovéska kerf-
ið er hvort sem er hrunið og
verður ekki endurreist. Hugsun-
arháttur nýlenduveldisins er
tímaskekkja í Moskvu.
Anker Jörgensen, nýkjörinn
forseti Norðurlandaráðs, segir
að mótmæli Sovétmanna hafi
engin áhrif á forsætisnefnd
ráðsins, hún hviki ekki frá fyrri
afstöðu sinni til Eystrasaltsland-
anna. Þessi ummæli eru fagnað-
arefni. Það er brýnna nú en
nokkru sinni fyrr að Norðurlönd-
in sýni Eystrasaltsþjóðunum
ótvíræðan stuðning. Dropinn
holar steininn.
Blekkingar
ráðherra
A
Olafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra kallaði
blaðamenn enn einu sinni til
fundar við sig í vikunni. Hvert
var tilefnið? Að koma því á fram-
færi að halli ríkissjóðs á síðasta
ári hefði verið minni en fjárlög
gerðu ráð fyrir. Hallinn 1990
nam 4,4 milljörðum króna. í
fjárlögum ársins 1990 stendur
skýrum stöfum að hallinn verði
2.854,7 milljónir króna. Hallinn
á árinu 1990 var þannig 1500
milljónum króna meiri en fjárlög
gerðu ráð fyrir. Blekkingar fjár-
málaráðherra byggjast á því að
hann fékk samþykkt fjárauka-
lög á árinu, hið síðara fáeinum
dögum áður en fjárlagaárið var
á enda.
Starfshættir af þessu tagi
dæma sig sjálfir. Því fleiri ráð-
stefnur og blaðamannafundi
sem ráðherrann heldur í nafni
síns háa embættis fram að kosn-
ingum þeim mun betur kemur í
ljós hve sjálfumgleði hans styðst
við léleg rök.
FRJÁLSLYNDI
OG FRAMFARIR
eftir Þorstein Pálsson
Á næsta kjörtímabili þurfa menn
að takast á við ýmis veigamikil
verkefni sem ráða munu miklu um
þróun atvinnumála, lífskjara og
búsetu í landinu um langa framtíð.
Kosningarnar á vori komanda munu
verða vegvísar um það með hvað
hætti verður tekist á við þessi við-
fangsefni.
Frá stöðnun til hagvaxtar
Um þessar mundir er þjóðarbú-
skapurinn í stöðnun. Það er lítil sem
engin framför. Við erum ekki að
auka tekjur okkar eða verðmæta-
sköpun og fyrir þá sök standa lífs-
kjörin í stað eftir kaupmáttarrýmun
undangenginna ára.
Með einföldum hætti má segja
að verkefnin framundan felist í því
að auka hagvöxt á nýjan leik. Það
er forsenda fyrir alhliða uppbygg-
ingu í landinu öllu og bættu lífskjör-
um. Ljóst má einnig vera að aðeins
með því móti getum við fylgt öðrum
þjóðum eftir. En að öllu óbreyttu
gætum við dregist aftur úr og lífs-
kjör hér orðið lakari um næstu alda-
mót en annars staðar á Vestur-
löndum.
Þetta þarf hins vegar ekki að
gerast. Og þegar við lítum til baka
segir reynslan okkur að þá hafa
framfarimar orðið mestar þegar
fijálslynd og víðsýn sjónarmið sjálf-
stæðisstefnunnar hafa ráðið mestu
um stjórn Iandsmála og sama mun
gilda um framtíðina.
Arangur í starfi
Á síðasta fimm ára tímabili sem
Sjálfstæðisflokkurinn var samfellt
í ríkisstjórn frá 1983 til 1988 náð-
ist margvíslegur árangur og mikil-
vægar grundvallarbreytingar vom
gerðar á ýmsum sviðum efnahags-
stjórnunar. Hér skulu tilgreind örfá
dæmi:
í fýrsta lagi var gerð grundvall-
arbreyting á öllu tekjuöflunarkerfi
ríkisins. Mesta einföldun á tekju-
sköttum einstaklinga sem um getur
var lögleidd með staðgreiðslukerfi
skatta meðan Sjálfstæðisflokkurinn
hafði lyklavöldin í fjármálaráðu-
neytinu. Þá var tollskráin einfölduð
og tollar lækkaðir og virðisauka-
skatti komið á í stað söluskatts.
Ný frjálslynd löggjöf var sett um
bankastarfsemi. Árangurinn af
þeim grundvallarbreytingum hefur
verið að skila sér á síðustu misser-
um í betra jafnvægi á peningamark-
aði en áður var.
Erlendar skuldir lækkuðu úr
50% af landsframleiðslu í 40%
Á sviði félagsmála má nefna að
tryggingabætur voru hærra hlutfall
af lágmarkstekjum en í annan tíma.
Húsnæðislánakerfið var byggt upp
en hefur verið brotið niður á nýjan
leik í tíð núverandi ríkisstjórnar.
Á þessum tíma voru lagðir fleiri
kílómetrar af bundnu slitlagi en
fyrr og síðar og nefna má að raf-
orkuverð lækkaði að raungildi um
þriðjung og stigin voru skref til
jöfnunar. Það hafði mikla þýðingu
ekki síst fyrir landsbyggðina þar
sem verulegur ójöfnuður ríkir enn
að því er varðar orkuverð, án at-
hafna af hálfu vinstri flokkanna.
Góð skilyrði illa nýtt
Núverandi ríkisstjórn hefur und-
anfarin tvö ár búið við einstaklega
hagstæð ytri skilyrði. Verð á afurð-
um okkar erlendis hefur hækkað
meir en sögur fara af hvert sem
litið er. Á sama tíma hefur gengis-
þróun á mikilvægasta markaði okk-
ar í Evrópu verið einkar hagstæð.
Fyrir ári gerðu forystumenn
launþega og atvinnurekenda ein-
stæða tilraun í kjarasamningum.
Hún miðaði að því að koma í veg
fyrir vaxandi verðbólgu eins og þá
var einsýnt að hljótast myndi af
óbreyttri stjórnarstefnu. Ennfremur
var markmiðið að koma í veg fýrir
enn frekari kaupmáttarrýmun eins
og ríkisstjórnin sjálf gerði ráð fyrir
að yrði afleiðing af stefnu hennar.
Aðilar vinnumarkaðarins tóku
þannig fram fyrir hendumar á ríkis-
stjórninni og þeir hafa þegar náð
umtalsverðum árangri til þess að
ná niður verðbólgu. Vitaskuld hefur
ÁTAK til byggingar tónlistarhúss
hefur verið eflt mjög undanfarin
misseri og er nú fyrirsjáanlegt
að hægt verði að taka fyrstu
skóflustunguna að húsinu næsta
sumar. í haust var byijað að
byggja upp styrktarmannakerfi
og á skömmum tíma voru styrkta-
raðilar byggingarinnar orðnir
fimm þúsund á Stór- Reykjavík-
ursvæðinu. Á næstunni er fyrir-
hugað að leita til landsmanna
allra til að gera byggingu tónlist-
arhússins að veruleika en mark-
miðið er að húsið verði afmælis-
gjöf þjóðarinnar til sjálfrar sín á
50 ára afmæli lýðveldisins 17.
júní 1994. Á morgun verður þátt-
ur á dagskrá sjónvarpsins tileink-
aður byggingu tónlistarhúss.
„Flestar menningarþjóðir eiga sér
vegleg tónlistarhús og það er löngu
kominn tími til þess að þaki verði
komið yfir tónlistina hérlendis og
henni búinn samastaður," sagði
Raggý Guðjónsdóttir í samtali við
Morgublaðið en hún skipar þriggja
manna samstarfshóp sem umsjón
hefur haft með framkvæmd fjáröfl-
unarinnar. Með Raggý starfa þau
Sigríður Pétursdóttir og Valgeir
Guðjónsson.
„Draumurinn um 'íslenskt tónlist-
arhús er mjög gamall og Samtök
um byggingu tónlistarhúss hafa
starfað frá því í byijun níunda ára-
tugarins en það var fyrst nú í haust,
‘þegar átak var gert til að fjölga
styrktaraðilum, að við sáum að e.t.v.
væri fyrsta skóflustungan ekki svo
langt undan. Nú gerum við okkur
vonir um að hún verði tekin þann
17. júní í sumar. Viðtökurnar sem
við fengum í haust voru ótrúlega
góðar. Fólk virðist hafa mikinn
áhuga á því að hér rísi tónlistar-
hús,“ sagði Raggý.
„Það má í raun segja að það hafi
staðið á ríkisvaldinu undanfarin ár
að taka af skarið með byggingu
þessa húss því stemmningin fyrir
þessu í þjóðfélaginu er greinilega
góð og það er fullt af fólki sem vill
sjá þetta hús rísa sem fyrst. Við
viljum því fá sem flesta í lið með
okkur til að sannfæra ríkisstjórnina
um það hversu gott mál bygging
þessa húss sé, því það er ljóst að
án stuðnings frá ríkinu og bæjarfé-
lögum tekst okkur ekki að reisa
húsið. Fullbúið mun húsið væntalega
kosta um einn og hálfan milljarð og
það er fjárhæð sem erfitt er að ná
saman með fijálsum framlögum ein-
göngu, þó þau hjálpi mjög til,“ sagði
Valgeir Guðjónsson í samtali við
Morgunblaðið.
Á næstunni er fyrirhugað að haldá
áfram uppbyggingu styrktarmanna-
kerfisins og um þessar mundir er
verið að senda upplýsingar um bygg-
ingu hússins og aðild að styrktar-
kerfinu til fólks um land allt. Nokk-
ur fyrirtæki, sveitar- og bæjarfélög
hafa auk þess lagt sitt af mörkum
með því að „festa kaup á stól(um)
í fyrirhuguðu tónlistarhúsi. í framt-
íðinni verður hver gefinn stóll merkt-
ur gefanda sínum með ágröfnum
látúnsskildi eða með öðrum hætti í
samráði við arkitekt hússins.
Reykjavíkurborg gaf lóðina sem
húsið mun rísa á við Suðurlands-
braut.
Væntanlegt tónlistarhús verður
fyrsta sérhannaða tónleikahúsið sem
risið hefur hér á landi en gert er ráð
fyrir að húsið geti þjónað fleiri hlut-
verkum og þannig hýst ráðstefnur
einnig.
Islenskt tónlistarhús;
„Fyrsta skóflustungan verð-
ur væntanlega tekin í sumar“
- segir Raggý Guðjónsdóttir sem sæti á í fjáröflunarnefnd
Líkan af tónlistarhúsinu eftir Guðmund Jónsson arkitekt.
Þprsteinn Pálsson
„ Alvarlegast er þó að
við höfum verið að fær-
ast úr hópi lágskatta-
landa upp í hóp þeirra
sem greiða meðalskatta
og stefnum nú óðfluga
með sama áframhaldi í
hóp háskattaþjóða.“
verðbólgudraugurinn ekki verið
kveðinn niður í eitt skipti fyrir öll.
Það er viðvarandi verkefni. Ýmsar
hættur eru framundan í þeim efn-
um. Verkefnið sem við blasir er að
viðhalda þeirri þjóðarsamstöðu sem
tekist hefur um að halda niðri verð-
bólgunni.
En þrátt fyrir þessi hagstæðu
„Þama verður ekki einungis til
mjög glæsileg tónleikamiðstöð held-
ur einnig góður ráðstefnustaður.
Slíkur vettvangur alþjóðlegra ráð-
stefna getur, þegar fram í sækir,
skilað til baka þeim peningum sem
lagðir verða í byggingu hússins. Nú
er verið að vinna mjög alvarlega í
því á vegum opinberra aðiia að gera
Island að ráðstefnulandi og með til-
komu hússins verður mun auðveld-
ara að höfða til ráðstefnuhaldara
erlendis. Þessi ráðstefnuþáttur hefur
aukið mjög áhuga margra að und-
anförnu á húsinu," sagði Valgeir.
„Það er nokkuð sorglegt til þess að
vita að nú þegar við erum að reyna
að fá til okkar erlenda listamenn
höfum við ekki upp á neitt hús að
bjóða og það er ástæða þess að fullt
af erlendu listafólki neitar að koma
hingað til tónleikahalds," bætti Val-
geir við.
Árið 1986 var efnt til norrænnar
samkeppni um hönnun hússins. Alls
bárust 75 tillögur í samkeppnina og
varð tillaga Guðmundar Jónssonar
arkitekts hlutskörpust. Tónlistarhú-
sið verður hannað fyrir listamenn
úr öllum greinum tónlistarlífsins. í
húsinu verða tveir tónlistarsalir,
minni salurinn mun taka um 250 til
400 manns í sæti en sá stærri mun
rúma um 1400 manns í sal og á
svölum. Auk tónlistarsalanna verður
veitingasalur í tónlistarhúsinu.
Tónlistarhúsið verður hannað fyr-
ir flutning allra tegunda tónlistar
en gert er ráð fyrir að Sinfónían fái
þarna fastan samastað.
„Það er löngu orðið tímabært og
mjög nauðsynlegt að Sinfónían eign-
ist heimili, ekki síst með tilliti til
þess að það hefur komið í ljós að
Sinfóníuhljómsveit Islands er með
þeim betri á Norðurlöndum. Hún
nýtur sín hins vegar ekki nægilega
vel hér heima og spilar undantekn-
ingarlaust betur erlendis þar sem
aðstaðan er betri. Tilkoma tónlistar-
hússins myndi því breyta mjög
miklu, bæði fyrir listamenn og þá
sem áhuga hafa á að hlýða á tón-
list. Það er hins vegar langt í land.
Áætlað er að fuilbúið muni tónlistar-
húsið kosta um einn og hálfan millj-
arð en við höldum ótrauð áfram og
eigum vonandi eftir að sjá drauminn
rætast áður en langt um líður,“ sagði
f_Raggý að lokum. .
MORGUNBLADIÐ LAUGARDAGUR 2. MARZ 1991
23 ^
Frá æfingu hljómsveitarinnar í vikunni með söngvurum í óperunni,
þeim Sherrill Milnes og Blythe Walker.
Evrópufrumflutning-
ur á tveimur verkum
um Rakhmanínovs
ytri skilyrði og einstakt framtak
forystumanna launþega og atvinnu-
rekenda hafa stjórnvöld um margt
brugðist að fylgja þesssum breyttu
aðstæðum eftir af sinni hálfu.
Benda má á að erlendar skuldir
hafa vaxið frá því að vera um 40%
af landsframleiðslu og eru nú komn-
ar yfir 50%. Þannig hefur ríkis-
stjórnin sett íslandsmet í söfnun
erlendra skulda.
í ríkisíjármálum hefur skatta-
gleðin ráðið ferðinni en þrátt fyrir
16 milljarða króna skattahækkanir
er ríkissjóðshallinn enn talinn í
mörgum milljörðum króna og þar
að auki að stórum hluta falinn.
Þrátt fyrir lága verðbólgu og
hátt afurðaverð á erlendum mörk-
uðum hafa raunvextir farið hækk-
andi að undanförnu. Þar ræður
mestu um að ríkissjóður hefur verið
allsráðandi á lánamarkaðinum og
nú er ráðgert að hann stórauki lán-
tökur sínar á þessu ári. Það þýðir
minna svigrúm fyrir atvinnufýrir-
tæki og heimilin í landinu. Slík fjár-
málastefna getur ekki leitt til auk-
ins hagvaxtar.
Þrátt fyrir allar skattahækkan-
irnar hafa færri kílómetrar verið
lagðir bundnu slitlagi en áður. Og
nú þegar kjörtímabilinu er lokið eru
gefin fyrirheit um að bæta nokkuð
úr á næsta kjörtímabili í þessum
efnum með því að auka enn álögur
á umferðina.
Stöðvum skattaæði
vinstri flokkanna
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa á
undanförnum mánuðum verið að
undirbúa nýja sókn í hækkun
skatta. Á flokksþingi Framsóknar-
flokksins fyrr í vetur lýsti formaður
flokksins því yfir að stórhækkun
skatta væri nauðsynleg og óhjá-
kvæmileg. Hann bað menn að halda
sér fast meðan þessi stefnuyfirlýs-
ing var lesin og sumir framsóknar-
menn hafa tekið það svo alvarlega
að þeir hafa ekki þorað að endur-
flytja erkibiskups boðskap.
Menntamálaráðherra hefur skil-
greint í blaðaviðtali að hækka þurfí
skatta um allt að níu milljarða
króna til þess að unnt verði að
standa undir þeim auknu útgjöldum
sem vinstri stjórnin hefur á pijónun-
um.
Fjármálaráðherrann hefur síðan
verið iðinn við að freista þess með
talnasamanburði að sýna fram á
að skattar hér á landi séu lægri en
annars staðar. Þetta er augljóslega
gert í þeim tilgangi að sætta menn
við þær ákvarðanir sem framundan
eru.
I ljós hefur komið að þessi sam-
anburður er á hinn bóginn um
margt villandi, meðal annars vegna
þess að skattakerfi eru byggð upp
með ólíkum hætti í einstökum lönd-
um. Þegar tekið hefur verið tillit
til þessa kemur í ljós að við erum
í hópi þeirra ríkja sem greiða meðal-
skatta.
Alvarlegast er þó að við höfum
verið að færast úr hópi lágskatta-
landa upprí hóp þeirra sem greiða
meðalskatta og stefnum nú óðfluga
með sama áframhaldi í hóp há-
skattaþjóða.
Stærsta verkefnið nú er að koma
í veg fyrir að vinstri flokkunum
takist þessi áform. Þau munu, verði
þau að veruleika, draga fjármagn
frá atvinnulífi og heimilum og á
þann veg gera að engu vonir okkar
um að glæða hagvöxt og lyfta þjóð-
inni úr fari stöðnunar. Ein af for-
sendum þess að okkur takist að
auka verðmætasköpun, hagvöxt og
bæta lífskjör er sú að stöðva þetta
skattaæði vinstri flokkanna.
Höfundur er fornmdur
Sjálfst-æðisflokksins.
TÓNLEIKAR í rauðri tónleika-
röð SinfóníuhUómsveitarinnar
verða í dag kl. 14:30, en síðustu
tvær vikur hafa staðið yfir í
Háskólabíói æfingar og upptökur
hljómsveitarinnar á tveimur
verkum Rakhmanínovs, sem ekki
hafa verið áður flutt í Evrópu.
Þetta eru upphafleg gerð Píanó-
konserts nr. 4 og ófullgerða óp-
eran Monna Vanna. Auk hljóm-
sveitarinnar taka bandarískir
listamenn þátt í flutningnum
ásamt Kór Hamrahliðarskólans
og Jóni Þorsteinssyni, söngvara.
Þessi tónlist verður flutt á tón-
leikunum í dag.
Upptökumar em gerðar fyrir
breska hljómplötufyrirtækið Chan-
dos, sem dreifir klassískri tónlist í
32 löndum. Fyrirtækið hefur gert
samning við Sinfóníuhljómsveitina
til þriggja ára um upptökur og
dreifingu geisladiska á alls konar
klassískri tónlist. Þessi fyrstu verk
hafa ekki áður verið hljóðrituð.
Meðal flytjenda er bandaríski barit-
onsöngvarinn Sherrill Milnes.
Á fiskasýningunni var svo sannarlega handagangur í öskjunni enda margt að skoða og gaman að
pota í sýningargripina.
Tvö þúsund börn kynntu
sér starfsemi Granda
í fiskvinnsluhúsi Granda hf.
við Norðurgarð var heldur bet-
ur líf í tuskunum í gærmorgun
þegar 2.000 ellefu ára grunn-
skólanemum af höfuðborgar-
svæðinu var boðið að heimsækja
fyrirtækið á svokölluðum opn-
um degi. Krakkarnir skoðuðu
sögusýningu og fiskasýningu,
sem settar voru upp í tilefni
dagsins, kynntu sér starfsemi
fyrirtækisins undir leiðsögn
starfsmanna og brögðuðu á sýn-
ishorni af framleiðslunni. Kjör-
orð opna dagsins var: „Fiskur,
já takk“.
„Þetta er annað árið i röð sem
við erum með opinn dag af þessu
tagi í fyrirtækinu. I fyrra komu
1.500 grunnskólanemar í heim-
sókn en í dag tökum við á móti
um það bil 2.000 ellefu ára krökk-
um úr 25 grunnskólum á höfuð-
borgarsvæðinu," sagði Pjetur _ Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Árnason, sem vann að skipulagn- Áslaug, Hildur og Rut úr ellefu ára bekk i Hólabrekkuskóla.
ingu dagsins, í samtali við Morgun-
blaðið. „Krakkarnir koma í fylgd
umsjónarkennara sinna en hér
taka starfsmenn fyrirtækisins á
móti þeim og leiða bekkina í gegn-
um fýrirtækið þar sem við höfum
komið fyrir tveimur sýningum. Sú
fyrri er sögusýning þar sem við
kynnum gamlan og nýjan tækja-
búnað, vinnuföt og ýmislegt sem
tengist starfsemi fyrirtækisins en
seinni sýningin er fiskasýning þar
sem sýndar eru helstu fisktegundir
sem veiðast hér við land.“
Pjetur sagði að krakkarnir væru
almennt mjög áhugasamir og fýnd-
ist heimsókin skemmtileg tilbreyt-
ing frá skólanáminu. Þá sagði
hann að starfsmenn fyrirtækisins
væru ekki síður ánægðir með opna
daginn og ákveðin stemmning
skapaðist í kringum hann. í sam-
talinu kom fram að ætlunin væri
að gera opinn dag sem þennan að
árlegum viðburði hjá fyrirtækinu
og fram kom að kennarar barn-
anna hefðu fengið bréf frá skipu-
leggjendum dagsins þar sem þeir
•eru beðnir um umsögn um heim-
sóknina og tillögur sem komið
gætu að gagni á opnum dögum í
framtíðinni.
Nokkrir krakkar sem blaðamað-
ur tók tali í heimsókninni lýstu
yfir mikilli ánægju með opna dag-
inn. Til dæmis sögðust þær Rut,
Hildur og Áslaug úr Hólabrekku-
skóla hafa orðið mikils vísari um
fiskvinnslu og starfsemi Granda
um daginn. Þær voru sammála um
að áhugi þeirra á fiskvinnslu hefði
aukist eftir heimsóknina en hvorki
Rut né Áslaug áttu von á að þær
myndu vinna við fiskvinnslu í
framtíðinni. Hildur taldi það ekki
útilokað. Skemmtilegast fannst
stelpunum að skoða vinnslusalinn
og fiskasýninguna og félagar
þeirra, flestir, kinkuðu kolli. Ellefu
ára bekkur úr Vogaskóla, sem
hvíldi lúin bein eftir heimsóknina,
var afar ánægður með móttökurn-
ar hjá starfsfólkinu í Granda og
krakkarnir tilkynntu blaðamanni
ákafir að hjá þeim væri sjávarút-
vegskynningunni ekki lokið því
þeir ættu von á að fara í stutta
siglingu um miðjan mánuðinn.