Morgunblaðið - 02.03.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.03.1991, Blaðsíða 4
. j ^MÖRGjjNBIÍAfe)' ÍkUGARbÁÓUR I£mA® Norðmenn lækka verð á loðnuhrognum um 8,4% EFTIR var að veiða um 45 þúsund tonn af 175 þúsund tonna loðnukvóta í gær. Norðmenn hafa boðist til að selja Japönum 5 þúsund tonn af loðnuhrognuin fyrir einungis 316 japönsk jen kflóið, eða 132,70 íslensk- ar krónur, sem er 8,4% lægra verð í jenum en Japanir greiddu Islend- ingum í fyrra. Þá greiddu þeir 345 jen, eða 144,90 krónur á núvirði, fyrir kílóið af loðnuhrognum, að sögn Teits Gylfasonar hjá íslenskum sjávarafurðum hf. (áður sjávarafurðadeild Sambandsins). Loðnuskipin voru að veiðum í miðj- um Breiðafirði, við Öndverðames og í Faxaflóa í gær. Grindvíkingur GK °g Gígja VE veiddu loðnu við Selt- jamames í gærkvöldi en Grindvík- ingur frystir loðnuhrogn. Rannsóknaskipið Ámi Friðriksson var komið í Berufjarðarál í gær og hafði þá enga loðnu fundið austan við Dyrhólaey en skipið mældi 24 þúsund tonn af loðnu við Dyrhólaey aðfaranótt fimmtudags. Sveinn Sveinbjömsson leiðangursstjóri seg- ist búast við að þessi loðna hrygni við Suðvesturland. Ámi Friðriksson fer næst vestur með Suðurlandi og á Vestijarðamið. Á fundi Verðlagsráðs sjávarút- vegsins á mánudag varð samkomu- lag um að gefa fijálsa verðlagningu á loðnu og loðnuhrognum til frysting- VEÐUR ar. Ingvi Einarsson, skipstjóri á Faxa RE, segir að greiddar séu 50-60 krónur fyrir kflóið af loðnuhrognum upp úr sjó, eða svipað verð og greitt hafi verið í fyrra. Teitur Gylfason segist búast við að einungis verði fryst 1.500-2.000 tonn af hrognum hér á þessari vertíð, þar sem lítið sé eftir að veiða af loðnukvótanum, en reiknað er með 5-6% meðalnýtingu í hrognatöku. Fyrir 2 þúsund tonn af loðnuhrogn- um fást um 260 milljónir króna, miðað við það verð, sem Norðmenn vilja fá. „Ég held að það sé algjörlega óraunhæft að reikna með að öllum loðnukvótanum, sem eftir er, verði landað til hrognatöku. Norðmenn halda verðinu markvisst niðri en ég held að það brái af mönnum þegar þeir átta sig á því að það kemur ekki svo mikið magn af hrognum héðan. Japanir vilja helst ákveða verðið þegar loðnuvertíðin er búin, bæði hér og hjá Norðmönnum, en hrognataka hefst seinna hjá þeim en okkur,“ segir Teitur Gylfason. Japanir vilja kaupa af okkur allt að 4 þúsund tonn af loðnuhrognum á þessari vertíð en markaður er fyr- ir um 6 þúsund tonn í Japan. „Japan- ir hafa meiri áhuga á íslensku hrogn- unum en þeim norsku. Sumir hafa beðið með að veiða Ioðnuna til að geta landað henni til hrognatöku en aðrir hafa lagt áherslu á að ná loðnukvóta sínum,“ segir Gylfi Þór Magnússon framkvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Japanir keyptu af okkur 1.922 tonn af loðnuhrognum í fyrra fyrir um 150 milljónir króna. Þar af seldi sjávarafurðadeild Sambandsins um 300 tonn. Japanir keyptu 1.633 tonn af heilfrystri loðnu héðan í fyrra fyr- ir 53,3 milljónir en þar af framleiddi sjávarafurðadeild Sambandsins ein- ungis 65 tonn. ...- VEÐURHORFUR í DAG, 2. MARZ YFIRLIT í GÆR: Skammt suðvestur af Jan Mayen er 1007 mb lægð sem grynnist en 962ja mb lægð um 500 km suðsuðaustur af Hvarfi þokast norðnorðaustur. SPÁ: Austlæg átt, nokkuð hvöss við suðurströndina. Snjó- eða slydduél syðst á landinu á Austfjörðum og líklega nyrst á Vestfjörð- um en þurrt vestanlands og bjart veður í innsveítum norðanlands. Hiti víða nálægt frostmarki, hlýjast sunnanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Austan- og suðaustanátt, víða strekking- ur og slydda eða rigning um sunnan- og vestanvert landið en hægari og úrkomulítið norðaustanlands. HORFUR Á MÁNUDAG: Suðaustlæg átt. Él á víð og dreif um landið, þó líklega þurrt í innsveitum norðan- og norðvestanlands. Hiti um og yfir frostmarki sunnanlands en vægt frost norðanlands báða dagana. TAKN: Heiðskírt aLéttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■J 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skurir * V El — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —[- Skafrenningur [7 Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að isl. tíma Akureyri Reykjavík hiti +1 +3 veSur skýjaft skýjaö Bergen 3 skýjað Helsinki +2 skýjað Kaupmannahöfn 2 skýjað Narssarssuaq 0 skýjað Nuuk +17 skafrenningur Ósló +1 snjókoma Stokkhólmur 0 snjók. á síð. klst. Þórshöfo 5 skýjað Algarve vantar Amsterdam B þokaásíö.klst. Barcelona 11 rigníng Berlín 5 léttskýjað Chicago B alskýjaö Feneyjar 10 þokumóða Frankfurt 6 skýjað Qlasgow 6 léttskýjað Hamborg 3 mistur Las Palmas vantar London 7 skýjað LosAngeles vantar Lúxemborg vantar Madríd 10 skýjað Malaga 15 rign. á síð. klst. Mallorca 13 rigníng Montreal +2 alskýjað NewYork 2 léttskýjað Orlando 18 afskýjað Paris 6 rigning Róm 13 rignlng Vln 2 mistur Washington 4 skýjað Winnipeg +17 snjókoma Í991 Morgunblaðið/Sigurgeir Unnið við loðnuhrognakreistingu í Vestmannaeyjum. Á myndinni hér fyrir ofan sést Smári Guð- geirsson í Fiskimj ölsverksmiðj - unni skoða hrognin sem renna úr skilvindunni og hér til hliðar sést fulltrúi japönsku kaupend- anna taka sýni úr farmi Kaps á „skrifstofu" sinni við skipshlið. Loðnuhrognafryst- ing komin á skrið Vestmannaeyjum. Neskaupstað. FRYSTING loðnuhrogna er nú komin á fullan skrið í Eyjum. Fyrstu hrognin voru kreist úr förmum Sigurðar og Kap á fimmtudag og í gær komu Guðmundur, Gígja, Gullberg, Bergur og Sigurður með loðnu til Eyja og voru hrogn kreist úr förmum allra bátanna. Þokkaleg útkoma er úr kreisting- unni en hrognin þykja heldur smá og eru á mörkum þess að vera orð- in nógu þroskuð fyrir frystinguna. Vinnsla á loðnuhrognum hófst hjá Sfldarvinnslunni í Neskaupstað í gær er Börkur NK kom með um 1.200 lestir af loðnu sem úr feng- ust á milli 35 og 40 tonn af hrogn- um. Hrognafylling loðnunnar reyndist vera 23,2%. Hlutfall hrygnu í farminum var aðeins um 34%. Þá kom Hilmir SU í gær- kvöldi með fullfermi og verður sú loðna einnig krest. Grímur/Ágúst Útsendingum Sky hætt á sunnudag SAMÞYKKT var á fundi útvarps- ráðs í gær að hætta útsendingum Sky á sunnudag. Tillagan var sam- Hrólfur vill selja sinn hlut í Júpiter TIL SÖLU er 47,5% alls hlutafjár í Júpiter hf., sem er eigandi loðnu- skipsins Júpiters RE. Hrólfur Gunnarsson, útgerðar- maður í Reykjavík, á hlutaféð, sem auglýst hefur verið til sölu. Hann seldi Einari Guðfínnssyni hf. í Bol- ungarvík 47,5% hlutafjárins í Júpiter hf. árið 1989 og Lárus Grímsson, skipstjóri á Júpiter RE, á afganginn af hlutafénu, 5%. Hrólfur Gunnars- son segist ekki vilja gefa upp ástæð- una fyrir sölunni en hann sé nú að kanna hvað hann geti fengið fyrir hlutaféð. Óhljóð frá söng - ekki barsmíðum LÖGREGLA var kvödd að húsi í austurbæ Reykjavíkur í gær þar sem talið var að verið væri að misþyrma konu. Það voru nágrannar sem kölluðu á lögregluna en þeir töldu, af óhljóð- unum að dæma, að einhver væri að ganga í skrokk á konunni. Þegar lögregla kom á vettvang hafði konan hátt en háreystin stfif- aði ekki af misþyrmingum heldur var konan að 6yngja af mikilli ástríðu, að sögn lögreglu. þykkt á fundi ráðsins með fjórum atkvæðum gegn tveimur. Magnús Erlcndsson og Rúnar Birgisson töldu að halda bæri útsendingun- um áfram enn um sinn. Að sögn Ingu Jónu Þórðardóttur, formanns útvarpsráðs, samþykkti ráðið á sínum tíma að útsendingar Sky yrðu tímabundnar. „Við höfum verið að draga úr þessum sendingum undanfarnar vikur og á fundinum í gær var samþykkt að stöðva þær að fullu. Nú þegar stríðinu er lokið var talið að ástæðulaust væri að halda útsendingunum áfram því þær kosta stofnunina peninga og valda því að skera verður niður aðra dagskrárliði. Telji fréttastofa sjónvarpsins ástæðu til þess að hefja slíkar útsendingar aftur af einhveiju tilefni verður það gert,“ sagði Inga Jóna. Amfetamínmálið: Urskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald 34 ÁRA gamall maður sem hand- tekinn var í fyrradag með 1 kg af amfetamíni i fórum sínum var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Tveir aðrir mcnn sem voru taldir viðriðnir málið voru leystir úr haldi í gær. Amfetamíninu hafði verið smyglað til landsins með flugvél frá Lúxem- borg og er þetta stærsta einstaka sending sem lögreglan hér á landi hefur komist yfir. Að sögn Bjama Halldórssonar lög- reglufulltrúa sem fer með rannsókn málsins var ekki talin ástæða til að halda mönnunum tveimur lengur í haldi. Sagði hann að svo virtist sem sá er enn er í haidi sé einn viðriðinn málið. Rannsókn málsins miðar þokkalega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.