Morgunblaðið - 14.03.1991, Qupperneq 38
38
i-
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1991
innkaupastjórar
SÓL-
GLERAUGU
Otrúlegt úrval
af dömu-, herra-,
unglinga- og
barnasólgleraugum.
Einnig skíðasólgleraugu.
Frábært verd
HOLLENSKA
VERSLUNARFÉLAGIÐ
Borgartúni 18
Simi 61 88 99 Fax 62 63 55
HELDUR
BETUR!
Gott er að launa skriftir
eftirAra Trausta
Guðmundsson
i.
Almenningur er svo rausnarlegur
að styrkja skapandi höfunda af öll-
um toga til starfa. Það gerist m.a.
með því að hluti ríkistekna eru nýtt-
ur til listamannalauna, styrkja og
starfslauna ýmiss konar listamanna
og höfunda. Það er nú mikið lán
þeirra, sem eiga dijugan þátt í að
búa til menninguna í landinu, að
fá að „vinna að list sinni á eigin
vegum“ og vita að ríkisvaldið (og
fólkið í landinu) hefur skilning á
því að þess konar höfundar „hafa
því langmesta þörf fyrir starfs-
laun“; eins og segir í athugasemd-
um við nýtt frumvarp til laga um
listamannalaun frá því á síðasta
ári. Nú er frumvarpið til afgreiðslu
hjá Alþingi.
II.
Það er aðal sjálfstæðra þjóða að
hlúa að allri menningarstarfsemi.
íslendingar geta státað af ýmsu í
því efni. Launasjóður rithöfunda,
sem hefur verið til alllengi, getur
úthlutað árlega starfslaunum sem
svara til 360 mánaðarlauna og eft-
ir fraumvarpsins hljóðan verða þau
orðin 480 eftir fimm ár. Þetta er
mikilsverður stuðningur við ritað
mál í landinu, eina aðalstoðina und-
ir tilvist íslendinga. Menningin á
að vera saltið í þjóðargrautnum og
rithöfundar hvers konar hafa sann-
arlega lagt til salt á leturfonni.
Úthlutunarnefnd launasjóðsins
hefur afar sjaldan fundist nauðsyn-
legt að úthluta starfslaunum til rit-
höfunda sem ekki semja fagurbók-
menntir. Þá á ég við höfunda bóka
um t.d. sögu lands og fólks, náttúru
landsins, tunguna og menningu;
allt sem flokkast undir samheitið
fræðirit. Líklega koma árlega út
jafnmörg slík rit og nemur tölu
skáldrita. Þá sjaldan höfundur þess
konar bóka hefur fengið starfslaun,
hefur hann verið nánast einsamall
í hópi margra tuga skálda; þeirra
andans manna sem bæta við víddum
í hugsun okkar og vita allra manna
gjörlast hve fræðirit eru mikilvæg.
Þau halda nefnilega uppi þekkingu
fólks á veröldinni; rammanum sem
skáldskapur sprettur úr og fellur
inn í, eftir að hann er til orðinn.
III.
Við árlega úthlutun fær oft eng-
inn fræðiritahöfundur aura þó svo
sannað sé að hann, eins og margir
aðrir rithöfundar, vinnur að sinni
ritun á eigin vegum og skrifar
hvorki í vinnutíma sínum né með
tilstyrk ríkisstofnunar, sjóðs eða
samskota. Samt segir í reglum
launasjóðsins að rétt til launa úr
honum hafa íslenskir rithöfundar
og höfundar fræðirita, svo sem
skrifað er orðrétt. Ekki er reyndar
auðvelt að henda reiður á skilum
milli rithöfundar, skálds og höfund-
ar fræðirits en samt ætti meiningin
að vera skýr. Höfundar rita um
sögu Hornstranda, skáldskap á 18.
öld og Hekluelda fyrr og nú eiga
allir rétt á starfslaunum. En fá
sjaldnast eða aldrei og fer jafnan
lítið fyrir röksemdum fyrir ástæðum
þess hjá Rithöfundasambandinu eða
úthlutunarnefnd þegar spurt er þar
um.
IV.
I nýja frumvarpinu, þar sem fjall-
að er um launasjóðinn, er eftir sem
áður greint frá rétti fræðirithöfunda
til starfslauna. Það er frekar kynd-
ugj; þegar rýnt er í reynslu fyrri
ára, en gott er það. Afar gott. Sá
galli fylgir samt að úthlutunar-
nefndin skal áfram skipuð án þess
að félag höfunda fræðirita og
kennslugagna, Hagþenkir, hafi þar
nokkuð að segja, rétt eins og fram
að þessu. Og það þrátt fyrir margv-
íslegar tilraunir til að eiga orð í
ákvörðunum úthlutunarnefndar eft-
Ari Trausti Guðmundsson
„En svona til þess að
gæta þess að fræðirit-
höfundarnir fái meðbyr
þá bið ég skáldin í
landinu að rétta sam-
starfsfólki sínu hjálpar-
hönd og sjá til þess að
alls konar skapandi rit-
höfundar fái starfs-
Iaun.“
ir að félag þetta kom til. í félaginu
eru 210 höfundar og reyndar eru
líka fræðirithöfundar í Rithöfunda-
sambandinu.
Nú hefur Hagþenkir því hreyft
við því réttlætismáli, þegar nýtt
frumvarp er brátt að verða að lög-
um, að félagið fái að koma til við
skipan úthlutunarnefndar launa-
sjóðs rithöfunda. Þá er betur hægt
að tryggja að fræðiritahöfundar
komist ávallt á blað þegar veita
skal höfðingleg og sárvöntuð laun
til skrifandi og skapandi höfunda
BÓKMENNTA. Það hefur þá ba'ra
líklega gleymst hingað til að bók-
menntir eru bara einar og rithöf-
undar bara einn hópur skapenda
bóka með gjörólíku innihaldi (og
þá er ekkert sagt um gæði sem eru
deilumál eilífðarinnar; sem betur
fer!). Væri þá líka réttast að segja
hátt og snjallt að skáld og fræði-
menn, sem skrifa annað en skýrslur
eða vinnuplögg, teljist rithöfundar,
því hvor var rithöfundur, Ari fróði
eða sá sem reit Njálu og hvor þeirra
er það, sá sem skrifaði bygginga-
sögu Skálholtsstaðar eða sá sem
samdi Heimsljós.
V.
Stjórn og fulltrúaráð Hagþenkis
hefur nú sent alþingismönnum bréf
með tillögu vegna frumvarpsins til
laga um listamannalaun og beðið
þá „að tryggja félaginu . . . tillögu-
rétt vegna skipunar nefndar sem
úthlutar fé úr launasjóði rithöf-
unda“.
Þegar öllum er nú orðið ljóst að
bókmenntir eru bara einar og allir
rithöfundar jafnréttháir til starfs-
launa (eins og úthlutunarreglur
segja), þá ætti beiðnin að vera auð-
sótt. En svona til þess að gæta
þess að fræðirithöfundarnir fái
meðbyr þá bið ég skáldin í landinu
að rétta samstarfsfólki sínu hjálpar-
hönd og sjá til þess að alls konar
skapandi rithöfundar fái starfslaun.
Til dæmis mætti byija á að taka á
málinu_ í stjórn Rithöfundasam-
bands íslands og athuga hvort ekki
sé unnt að lýsa yfir samstöðu með
Hagþenki. Rithöfundar gætu líka
skrifað í blöðin. Það hjálpar til.
Höfundur erjarðeðlisfræðingur
og rithöfundur.
nýtt
Þeir rækta kaffijurtina af aldagamalli hefð við bestu
aðstæður í frjósömum fjallahlíðum Colombiu.
Við veljum bestu baunirnar þeirra.
Þú færð ilmandi nýbrennt Colombiakaffi í
stjörnuflokki nánast beint úr kvörninni - njóttu þess.
Sfev
%
KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF