Morgunblaðið - 14.03.1991, Side 45
45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1991
Menningarvika sérskólanema
BANDALAG íslenskra sérskóla-
nema BÍSN mun standa fyrir
menningarviku 1991 frá 15.-22.
mars.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra setur menningarviku
BÍSN föstudaginn 15. mars að
Rauðagerði 27, í sal FÍH. Við það
tækifæri munu verða veitt verðlaun
fyrir tillögu að besta merki vikunn-
ar sem BÍSN og Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis efndu til.
Samkór Fósturskóla íslands og
Þroskaþjálfaskóla íslands mun
flytja nokkur lög. Einsöngvarar frá
Söngskólanum í Reykjavík munu
einnig flytja nokkur lög. Nemendur
úr Tónlistarskólanum í Reykjavík
munu flytja nokkur verk. Myndlist-
arsýning nema úr Myndlista- og
handíðaskólanum verður opnuð við
þetta tækifæri og verður opin dag-
lega frá kl. 16.00-19.00 ef frá er
skilin helgin en þá er opið frá kl.
14.00-19.00.
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
er 100 ára um þessar mundir. I til-
efni af þessu stórafmæli verður
opið hús í Stýrimannaskólanum
laugardaginn 16. mars. Þar verða
tæki og starfsemi skólans kynnt.
Björgunarþyrla Landhelgisgæsl-
unnar verður til sýnis og Jón Páll
Sigmarsson sterkasti maður heims
kemur í heimsókn og lyftir ýmsum
skipsbúnaði.
Hið árlega Opið hús verður í
Háskóla íslands sunnudaginn 17.
mars. Þar verða nær allir sérskólar
á landinu kynntir ásamt Háskólan-
um sjálfum. Einnig verða ýmis
skemmtiatriði s.s. söngur, tónlist,
fslandsmótið í
bríds hefst í dag
íslandsmótið í brids hefst á
Hótel Loftleiðum í dag klukkan
13. Þar keppa 32 sveitir af öllu\
landinu um átta sæti í úrslita-
keppni sem verður um páskana.
Flestar sveitirnar eru úr
Reykjavík, eða 13 talsins. Fjórar
sveitir eru frá Norðurlandi vestra
og þijár frá flestum hinna kjördæ-
manna.
Spilaðar verða tvær umferðir á
dag en mótinu lýkur á sunnudag.
leikræn tjáning, ljóðaupplestur o.fl.
Nemendur Fósturskólans, Kennara-
háskólans og Þroskaþjálfaskólans
munu vera með leikherbergi fyrir
börnin. Þar verður málað, litað,
lesnar sögur, brúðuleikhús o.fl.
Mánudaginn 18. mars mun stutt-
myndin Raunasaga 7.15 verða sýnd
á breiðtjaldi í matsal Iðnskólans í
Reykjavík kl. 12.30. Um kvöldið
kl. 20.30 verða Tónleikar í Hafnar-
borg, Hafnarfirði. Nemendur sem
eru að ljúka einleikaraprófum úr
Tónlistarskólanum munu flytja verk
eftir: Dvorák, Beethoven, Wieni-
awski, Bach, Brahms og Chopin.
Þriðjudaginn 19. mars mun Ingi-
mar Ingimarsson fréttamaður RUV
stýra umræðum um málefni sér-
skólanema. Þátttakendur eru sér-
skólanemar og fulltrúar 6 stærstu
stjórnmálaflokka á Islandi. Umræð-
urnar hefjast kl. 16.00 og verða í
matsal Iðnskólans í Reykjavík.
Sæbjörg, slysavarnaskóli sjó-
manna, verður tii sýnis í Reykjavík-
urhöfn. Nemendur Stýrimannaskól-
ans í Reykjavík munu sýna notkun
á reykköfunarbúnaði, flotgöllum,
þyrlulykkju, björgunarbátum
SAMTÖK um vestræna samvinnu
(SVS) og Varðberg halda sameig-
inlegan hádegisfund í Hliðarsal
Hótels Sögu (inn af Súlnasal)
laugardaginn 16. mars 1991. Sal-
urinn verður opnaður klukkan
tólf á hádegi.
Framsögumaður á fundinum
verður dr. Dennis J.D. Sandole,
„Associate Professor of Conflict
Resolution and International Relati-
ons“ við George Mason University.
Umræðuefni hans er: Hlutverk
Norður-Atlantshafsbandalagsins í
framtíðarfyrirkomulagi varna í Evr-
ópu.
Meðal ritsmíða ræðumanns má
nefna „Generic Theory: The Basis
of Conflict Resolution", „Tradition-
o.m.fl. Fyrirlestrar og kaffi verða í
matsal skipsins.
Málþing verður í Þroskaþjálfa-
skóla íslands miðvikudagskvöldið
20. mars í húsnæði skólans í Skip-
holti. Kynnt verður margskonar
fötlun, andleg og líkamleg. Ein-
hverfa og heilalömun verða einnig
kynntar sérstaklega. Júlía Hreins-
dóttir, Örn Ómarsson o.fl. svara
spurningum sem tengjast þeirri
fötlun.
Fimmtudaginn 21. mars verður
opið hús í List- og verkgreinadeild
Kennaraháskóla Islands, Skipholti
37. Húsið opnar kl. 20.00.. Verk
eftir nemendur verða til sýnis.
Menningarviku BISN lýkur síðan
með árshátíð félagsins á skemmti-
staðnum LÍDÓ í Lækjargötu.
Innan BÍSN eru eftirtaldir 16
sérskólar: Garðyrkjuskólinn, Lylja-
tækniskólinn, Samvinnuháskólinn,
Fósturskólinn, Þroskaþjálfaskólinn,
Myndlista- og handíðaskólinn, Iðn-
skólinn, Kennaraháskólinn, Tónlist-
arskólinn, Tækniskólinn, Fisk-
vinnsluskólinn, Leiklistarskólinn,
Stýrimannaskólinn, Söngskólinn,
Tölvuháskóiinn og íþróttakennara-
skólinn.
al Approaches to Conflict Manage-
ment: Short-term Gains versus
Long-term Costs“, „Expanding the
Debate on Generic Theory of
Conflict Resolution: A Response to
a Critique", „Simulation in the
Analysis of International Conflict:
Accessing Total Systems", „Britain
between East and West: A Con-
cerned Independence", „Conflict
Management and Problem Solving:
Interpersonal to International
Applications“ og „The Genesis of
War: Mapping and Modelling of
Complex Conflict".
Fundurinn er opinn félagsmönn-
um í SVS og Varðbergi, svo og
gestum félagsmanna.
(Fréttatilkynning)
SVS og Varðberg:
Framtíðarhlutverk Atl-
antshafsbandalagsins
Muming:
Hjördís Tryggvadóttir
Kvaran — Húsavík
En innsta hræring hugar míns,
hún hverfa skal til upphafs síns,
sem báran endurheimt í hafið.
(Einar Benediktsson)
Það sem bærist með manni þegar
góður vinur kveður óvænt þennan
heim verður líklega aldrei sett á
blað. Hugsanir koma og hugsanir
fara líkt og öldur hafsins. Hjördís
Tryggvadóttir Kvaran eða Læla
eins og vð kölluðum hana kvaddi
þennan heim aðfaranótt miðviku-
dagsins 6. mars sl. Það var mikill
missir fyrir okkur, því Læla var
heilsuhraust fram á síðasta dag og
jafnan hrókur alls fagnaðar.
„Vertu ekki hryggur" sagði kon-
an mín við mig, þegar ég minntist
Lælu stuttu eftir andlát hennar,
„hún hefur aðeins lokið sinni skóla-
vist hér“.
Ósjálfrátt reikaði hugur minn til
þeirrar skólavistar sem ég naut
vetrarlangt á Húsavík, hjá þeim
hjónum, sem unglingur. Þessir
umbrotatímar æsku minnar urðu
að verðmætri minningu undir hand-
leiðslu Lælu. Hún gat deilt með
mér sorg og gleði meira en gengur
og gerist, þegar tvær kynslóðir
mætast. Hún kunni að glæða áhuga
minn á bókmenntum og ljóðum,
meira en margur annar. Það þykir
mér gott veganesti. Hún sagði oft
við mig, þegar við ræddum saman,
að hún ætti dálítið mikið í mér.
Slíkt fannst mér forréttindi.
Læla ólst upp ásamt móður minni
á Mælifelli í Skagafirði. Þegar ég
var strákur, var ég svo heppinn að
fá sveitapláss á æskuslóðum þeirra
systra. Og það hef ég fyrir satt að
mikill var missir Lýtinga, þegar þær
systur, æskufjörið holdi klætt, urðu
að taka sig upp og flytja á mölina,
ásamt frú Önnu, sem allra vanda
vildi leysa.
Og mér býður í grun að þegar
mín lest mun bruna yfir landamæri
þessa heims og annars, munu þær
systur mæta mér, með sinn smit-
andi hlátur. Hvort Mælifellshnjúk-
urinn verður í baksýn, læt ég ósagt,
en eitt er víst að þar munu glymja
hlátrasköll. Mér er ljúft að enda
þessi fátæklegu orð á setningu sem
tengdasonur Lælu viðhafði um
móður mína látna. „Það var heiður
að teljst til þess hóps, sem hún bar
svo mjög fyrir bijósti.“
+
Þökkum af alhug þeim fjölmörgu, sem vottuðu okkur samúð og
veittu okkur styrk við fráfall dóttur okkar, móður, tengdamóður
og ömmu,
RANNVEIGAR MAGNÚSDÓTTUR BRINK,
írabakka 34,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Foreldrar, börn,
tengdabörn og barnabörn.
Röskva vann eitt
sæti í Stúdentaráði
RÖSKVA, samtök félags-
hyggjufólks, vann eitt sæti í
kosningum til Stúdentaráðs
Háskóla íslands. Röskva fékk
sjö fulltrúa en Vaka, félag lýð-
ræðissinnaðra stúndenta, fékk
sex menn kjörna. Þar með er
komin upp pattstaða í Stúdenta-
ráði því fylkingarnar hafa báð-
ar fimmtán fulltrúa þar.
í kosningunni til Stúdentaráðs
hlaut Röskva 1.504 atkvæði, eða
50% gildra atkvæða, og sjö menn
kjöma. Vaka hlaut 1.498 atkvæi,
eða 49,8% gildra atkvæða, og sex
menn kjörna. Auðir seðlar og
ógildir voru 145.
í kosningum til Háskólaráðs
hlaut Vaka 1.587 atkvæði, eða
52,3%, en Röskva 1.442, eða
47,5%, og hvor fylking fékk einn
mann kjörinn.
Kjörsókn var góð í kosningun-
um og hefur aukist undanfarin
ár. Á kjörskrá vom 5.046 og 3.153
greiddu atkvæði og er það 62,5%
kjörsókn.
Við kosningar til Stúdentaráðs
og Háskólaráðs er kosið um helm-
ing fulltrúa hvetju sinni. Stúd-
entaráð er skipað 30 stúdentum,
kosið er um 13 í hverjum kosning-
um og að auki sitja þar þeir fjórir
sem sæti eiga í Háskólaráði. Vaka
var með sextán fulltrúa í Stúd-
entaráði en Röskva fjórtán. Eftir
kosningarnar eru félögin með
jafnmarga fulltrúa í Stúdentaráði,
fimmtán talsins. í Háskólaráði
hafa félögin tvo fulltrúa hvort.
Erum í skýjunum
yfir fyrsta kosn-
ingasigri Röskvu
- segir Skúli Helgason,
efsti maður á lista Röskvu
RÖSKVA, samtök félags-
hyggjufólks, vann eitt sæti í
kosningum _ til Stúdentaráðs
Háskóla Islands. Samtökin
fengu sjö fulltrúa í Stúdentaráð
og einn í Háskólaráð.
„Ég er auðvitað í skýjunum
yfír kosningasigri Röskvu, þessa
unga félags. Samtökin voru stofn-
uð 1988 og það er merkilegt að
þá kom upp sama staða og nú,
báðir voru með fimmtán fulltrúa.
Fulltrúar fylkinganna verða að
setjast niður og semja af heilind-
um um málin,“ sagði Skúli Helga-
son, efsti maður á lista Röskvu
til Stúdentaráðs.
„Vaka fékk Stúdentaráð 1988
vegna þess að þeir unnu kosninga-
sigur. Nú sigruðum við en ég skal
ekkert um það segja hvort við
fáum Stúdentaráð. Fordæmið er
alla vega komið en það á alveg
eftir að ræða þetta,“ sagði Skúli.
Hann sagði að kosningabarátta
Röskvu hefði verið með nokkrum
örðum hætti en oft í Stúdentapól-
itík. „Við einbeittum okkur að
málefnanlegum umræðum en sát-
um á okkur þegar baráttan virtist
,vera að fara út í persónulegar
árásir. Ég er stoltur af stúdentum
að hafa tekið þá afstöðu að mál-
efnin skiptu meira máli en áróð-
ursstríð. Ég er líka stoltur af
hversu mikil þátttaka var í kosn-
ingunum enda hvöttum við fólk
til að kjósa, hvert svo sem valið
yrði,“ sagði Skúli.
Aukin þátttaka skil-
aði sér ekki til okkar
- segir Hermann Hermannson
efsti maður á lista Vöku
VAKA, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, tapaði í kosningum
til Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands. Félagið hlaut sex menn
kjörna og einn í Háskólaráð.
„Það er í rauninni lítið um þessi
úrslit að segja. Við erum auðvitað
óhress með að tapa og svo virðist
sem aukin þátttaka í kosningun-
um hafi ekíri skilað sér til okkar
nema að litlu leyti. Það munaði
að vísu ekki nema sex atkvæðum
en þetta gengur bara betur næst,“
sagði Hermann Hermannsson,
efsti maður á lista Vöku til Stúd-
entaráðs um úrslit kosninganna.
„Þessi úrslit þýða pattstöðu í
Stúdentaráði. Við erum með
fimmtán fulltrúa og Röskva líka.
Nú þurfa Vaka og Röskva að setj-
ast niður og semja. Þessi staða
kom einnig upp 1987/88 og þá
fengum við Stúdentaráð og stjórn-
uðum því. Ég veit ekki hvarnig
þetta fer núna,“ sagði Hermann.
„Þrátt fyrir tapið fékk Björn
Ársæll Pétursson mjög góða kosn-
ingu til Háskólaráðs og það er
mjög gleðilegt," sagði Hermann.
Hann sagðist telja að aukna
kjörsókn mætti skýra með því
öfluga starfi sem Stúdentaráð
hefur haft í vetur. „Það hefur
mikið starf verið unnið í Stúdenta-
ráði í vetur og ég held það sé
aðalskýringin á aukinni þátttöku
stúdenta í kosningunum,“ sagði
Hermann.
Einar