Morgunblaðið - 14.03.1991, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 14.03.1991, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1991 51 Brenndu börnin og eldurinn Til Velvakanda. Nýlega birtist grein í DV ásamt tilhlýðilegri mynd af greinarhöf- undi, þar sem skorað var á alþjóð að kjósa Alþýðubandalagið í næstu kosningum. Þessi fróma ósk var borin fram af miklum en kunnug- legum orðaflaumi og virtist við fyrstu sýn i engu frábrugðin hefð- bundnum Þjóðviljagi-einum um sama efni. Sama tugga og sömu klisjur og tönnlast hefur verið á í því mæta blaði áratugum saman. En viti menn. Þegar betur var að gáð hafði þessum ágæta greinarhöfundi tekist að finna spánnýja leikfléttu, eins og skák- menn myndu segja, til að l'aða menn að Alþýðubandalaginu góða. Og nú þurfa menn ekki að velkj- ast í neinum vafa um hvaða flokk þeir eiga að kjósa í næstu kosning- um. Tilvistarvanda bandalagsins er lokið og tilveruréttur þess tryggður um ókomna tíð. Greinarhöfundur komst sem sé að þeirri bráðsnjöllu niðurstöðu að Alþýðubandalagið væri miklu and- kommúnískara en Sjálfstæðis- flokkurinn. Og hvers vegna? Taki menn nú vel eftir: Vegna þess, eins og greinarhöfundur komst sigri hrósandi að orði, „að brennt barn forðast eldinn"! Og nú vita menn það af hveiju allir réttsýnir og rökvísir menn eiga að kjósa Alþýðubandalagið. Af því þeir vita auðvitað manna best hversu gjörómögulegri stefnu þeir hafa fylgt í áratugi og hljóta því að vera manna vísastir til að vara sig á henni. Mig langar að biðja húmoris- tann Ellert Schram að birta fleiri svona frábærar greinar. Og af- brotafræðingar gætu notfært sér þessa dáindiskenningu per analog- iam: afbrotamenn hljóta að vera manna hæfastir til að gæta laga og réttar. Þeir hafa þessa dýr- mætu reynslu, sem er samfara því að brenna sig á eldinum. Og allir góðir og guðhræddir menn ættu nú að koma til liðs við Alþýðubandalagið til að kveða nið- ur þennan ólukkans kommúnisma sem þeir segja nú vita, betur en allir aðrir, að sé hin versta fals- kenning. Og þetta er enn ein sönn- unin fyrir því, að kommúnisminn er ekki dauður eins og sumar auð- trúa sálir héldu. En brenndu börn- in í Alþýðubandalaginu hafa lofað að veita honum náðarhöggið. En þangað til er gamli góði Staiín enn á meðal vor. Toggi Kynning verður á Clinique snyrtivörum í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ 14.-15. mars kl. 13-18. ___________ CLINIQUE clarifying lotion 2 CLINIQUE Innilegustu þakkir sendi ég öllum þeim, er heiÖruðu og geröu 90 ára afmœlsidaginn minn hátíðlegan meö persónulegri návist sinni, kveðjum, heillaóskum og góÖum gjöfum. Sérstakar þakkir til fmnku minnar og nöfnu, vKristjönu GuÖmundsdóttur, og stjúpdóttur minnar, Önnu Johansen, sem kom alla leiÖfrá Kýpur til aÖ heiÖra mig og aÖstoÖa. Kristjana Steinþórsdóttir. með færanlegum rimhim HURÐIRHF Skeifan 13 •108 Reykjavík-Simi 681655 SIEMENS Lítið inn til okkar og skoðið vönduð vestur-þýsk heimilistœki! Hjá SIEMENS eru gœði, ending og fallegt útlit ávallt sett á oddinn! SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.