Morgunblaðið - 27.04.1991, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRIL 1991
„Og h'mn h&ppnl Sigun/egarL er... No. 1 •"
Ást er...
3-Z7
... að gefa honum að
smakka.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
© 1991 Los AngelesTimesSyndicate
Eitthvað er því farið að förlast
Þetta er nóg. Þetta er svaka-
lega fyndið þegar pabbi gerir
það!
HÖGNI HREKKVtSI
HONOM LlKAf? EKKI MATSB&U-L INN,
\>Á HVDLFlI? HðNM HENNI EKKI/ "
Þessir hringdu . ..
Listahátíð barna
Dagmóðir hringdi:
„Ég vil þakka borgaryfirvöld-
um og menntamálaráðuneyti fyrir
að bömum sem vistast hjá dag-
mæðrum skyldi boðið að taka
þátt í Listahátíð barna. Ég vona
að börnum dagmæðra geti staðið
til boða uppákomur sem þessi, ef
hægt er að koma því við, og að
þau séu ekki metin sem annars
flokks börn af ráðamönnum eða
sem gleymdur hópur. Sýningin er
í anddyri Miklagarðs og vissu
dagmæður reyndar seint að börn-
um þeirra stæði þetta til boða og
afrakstur hefði á án efa orðið
meiri með lengri fyrirvara. En það
er aukaatriði. Aðal altriðið er að
þessi börn fengu að vera með og
sýna sína listsköpun eins og þeirra
jafnaldrar. Þau börn sem hjá mér
vistast og sendu mynd. Þau voru
ákaflega glöð og ánægð og géf
ég sagt með vissu að þessi Lista-
hátíð hefur glatt okkur mikið. Nú
vilja börnin leggja leið sína í Mik-
lagarð og versla með mömmu eða
pabba og skoða myndirnar sínar
um leið, og trúi ég að það verði
lengi i minnum haft hjá smáfólk-
inu að þarna hafi hangið mynd
sem þau áttu og verður gaman
að rifja það upp seinna.“
Úr
Úr með svörtu armbandi fannst
í síðustu viku á Bjarnarstíg og
einnig fannst annað úr um mánað-
armótin mars-apríl skammt frá
Þjóðleikhúsinu. Upplýsingar í
síma 22496.
Köttur í óskilum
Grábröndóttur fressköttur kom
í hús fyrir skömmu. Hann er með
hálsól með bjöllu og gulri tunnu
sem er tóm. Éigandinn er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
42499.
Myndavél
Sjálfvirk Kodak myndavél
fannst í Sætúni á annan í páskum.
Á filmunni sem í vélinni var eru
m.a. myndir af börnum að borða
páskaegg. Upplýsingar gefur
Kristbjörg í síma 23772 eftir kl.
19.
Úr
Úr fannst fyrir utan safanaðar-
heimili Laugarneskirkju. Upplýs-
ingar í síma 73959.
Hanskar
Svartir kvenhanskar fundust
efst á Álfhólvegi 14. apríl. Upplýs-
ingar í síma 41719.
Hvers vega var
staðan ekki auglýst?
Jóhann Páll Símonarson-
hringdi:
„Þetta er fyrirspurn til stjórnar
Slysavarnafélags Islands. Þar sem
komið hefur í ljós að búið er að
ráða nýjan skólastjóra Slysa-
varnaskóla-sjómanna án þess að
staðan hafi verið auglýst er spurn-
ingin hvers vegna var hún ekki
auglýst opinberlega.“
Umslag
Umslag merkt „Magnús Helga-
son“, sem í var fermingarkort og
10 þúsund krónur, tapaðist við
Ránargötu. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
12121.
Týndur högni
Dökklitur högni með rauða ól,
hvíta bringu og lappir, er týndur
frá Njörfasundi 80. Síminni
32887. Vinsamlegast athugið
hvort hann hefur lokast inni í
geymslum.
Armband
Gullarmband tapaðist í nóv-
ember sl. sennilega í Sundlaugun-
um í Laugadal eða á bílastæði á
Borgartúnssvæðinu. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 41957
eðatil Ernu í síma 41103. Fundar-
laun.
Köttur í óskilum
Þessi fressköttur hefur verið á
flakki í Dalaseli og nágrenni undan-
farinn rúman mánuð. Hann er u.
þ. b. árs gamall, svartur og hvítur.
Hann er með ól og ómerktur. Þeir
sem sakna hans eru beðnir að hafa
samband í síma 77003.
Týndur högni
Þessi rauðbröndótti og hvíti
högni týndist frá Freyjugötu 9 hinn
18. apríl. Vinsamlegast hafið sam-
band við Þuríði í síma 13845 eftir
kl. 18 ef hann hefur sést einhvers
staðar.
Hvolpur
Collie hvolpur, fimm til sex
mánaða gamall, tapaðist frá Kald-
árhöfða í Grímsnesi við Þingvalla-
vatn. Hann er ljósbrúnn með
hvítan kraga og svartan blett í
miðju skotti. Hann er ómerkur en
með ljósbrúna ól með bjöllu. Vin-
samiegast hringið í síma 670901
ef hann hefur einhvers staðar
komið fram.
Víkverji skrifar
Nánast í hveiju fyrirtæki er
komið nýtt símtæki sem á
ensku hefur verið kallað telefax,
en fax er stytting á orðinu facsim-
ile. í ensk-íslensku orðabókinni frá
Erni og Örlygi er gefin þýðingin
„myndasendir, aðferð við að senda
og taka á móti prentuðu máli og
teikningum gegnum síma eða fjar-
skiptasamband". Ekkert íslenskt
orð hefur náð almennilegri fótfestu
sem lýsirþessari tækni. Sumir hafa
kailað þetta myndsendi, aðrir bréf-
sendi og fleiri orð hafa heyrst.
Vikveija finnst hins vegar upplagt
að kalla þetta ritsíma, sem er til í
málinu og gengi þannig í endurnýj-
un lífdaganna. Á bréfsefni og reikn-
inga væri þá hægt að prenta ann-
ars vegar talsímanúmer og hins
vegar ritsímanúmer. Á sama hátt
finnst Víkvetja að kalla mætti bréf-
in sjálf, sem send eru með ritsíma,
símskeyti eða símbréf. í nýyrðagerð
liðinna ára hefur það gefist betur,
að taka „gömul“ orð og gefa þeim
nýja merkingu þegar gamla orðið
er orðið úrelt, en að búa til ný sem
eiga erfiðara uppdráttar. Nýyrði,
sem eiga sér ekki fyrirmynd í mál-
inu eru oft stirð og ná reyndar alls
ekki fótfestu nema þau séu bæði
gegnsæ og lipur. Þannig orð er
ritsími.
xxx
Talsverðar umræður hafa verið
á undanförnum árum um
nauðsyn þess að krafist sé persónu-
skilríkja þegar kosið er til Alþingis
eða sveitarstjórna. Á undanförnum
árum hefur ætíð verið eitthvað um
það, að einhveijir hafi kosið í ann-
ars nafni og þannig tekið kosninga-
réttinn af viðkomandi. í alþingis-
kosningunum núna var eitthvað um
það, að kjörstjórnir krefðust per-
sónuskilríkja, en því miður var illa
að því staðið. Fyrst og fremst þann-
ig, að slíkt virtist gert af handa-
hófi; í sumum kjördeildum var alls
ekki beðið um skilríki og var
Víkveiji meðal annarra sem kaus
að þessu sinni án þess að vera beð-
inn um að gera grein fyrir sér. í
annan stað var illa staðið að kynn-
ingu á þeim nýju reglum sem nú
gilda, þannig að það kom einhveij-
um að óvörum þegar þess var óskað
að þeir sýndu skilríki. Þar að auki
var ríkjandi óafsakanlegt fijálslyndi
um þau skilríki sem menn fengu
að nota. Þannig gerðu einhveijir
grein fyrir sér með bókasafnsskír-
teinum og bankakortum.