Morgunblaðið - 27.04.1991, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1991
51
KARFA
Torfi velur
EM-liðið
Torfi Magnússon, landsliðsþjálf-
ari í körfuknattkleik, hefur
valið landslið sitt sem leikur í und-
ankeppni EM, sem hefst í Reykjavík
1. maí. Liðið er þannig skipað: Jón
Kr. Gíslason, ÍBK, Magnús Matt-
híasson, Val, Falur jiarðarson, ÍBK,
Teitur Örlygsson, UMFN, Guð-
mundur Bragason, UMFG, Axel
Nikulásson, KR, Páll Kolbeinsson,
KR, Jón Arnar Ingvarsson, Hauk-
um, Valur Ingimundarson, UMFT,
Guðni Guðnason, KR, Guðjón
Skúlason, ÍBK, Pétur Guðmunds-
son, UMFT.
ÚRSLIT
Handknattleikur
Selfoss - ÍR 21:21
íþróttahúsið á Selfossi, 1. deildarkeppnin -
neðri hluti, föstudagur 26. apríl:
Gangur leiksins: 5:1, 8:6, 10:8, 12:9.
14:13, 16:16, 19:19, 21:21.
Mörk Selfoss: Einar G. Sigurðsson 6, Ein-
ar Guðmundsson 5, Gústaf Bjamason 4/2,
Sigurjón Bjamason 3, Sigurður Þórðarson
2, Stefán Halldórsson 1.
Vamin skot: Ólafur Einarsson 12.
Utan vallar: 6 mín.
Mörk ÍR: Jóhann Ásgeirsson 7/3, Matthías
Matthiasson 4, Ólafur Gylfason 3, Róbert
Rafnsson 3, Magnús Ólafsson 3, Guðmund-
ur Þórðarson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson 7.
Utan vallar: Engin.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson.
Áhorfendur: Um 500.
BSelfyssingar tryggðu sér áframhaldandi
rétt til að leika i 1. deild með því að gera
jafntefli við ÍR-inga í hnífjöfnum og
skemmtilegum leik. Bæði liðin börðust af
fullum krafti fyrir tilverarétti sínum í deild-
inni. Selfyssingar höfðu ávallt tveggja til
þriggja marka forskot í fyrri hálfleik og
léku góðan handknattleik, en ÍR-ingar virk-
uðu taugaóstyrkir. Síðari hálfleikur var
hnífjafn og lokamín. æsispennandi. Þegar
30 sek. voru til leiksloka vora ÍR-ingar með
eins mark forskot, 21:20. Selfyssingar
fengu vítakast þegar 12 sek. eru eftir.
Gústaf Bjamason tók vítakastið, en skaut
i stöng. Siguijón Bjarnason fékk knöttinn,
skoraði, og tryggði Selfyssingum sæti í 1.
deild. Liðsheild Selfyssinga skóp sigurinn
og iéku allir leikmenn liðsins vel. Hjá ÍR
var Jóhann Ásgeirsson bestur.
Óskar Sigurðsson
1. DEILD:
ÍBV - Stjarnan.............Frestað
Leikurinn fer fram í Eyjum i dag.
2. DEILD:
Völsungur - Breiðablik.......19:24
<-Breiðablik tryggði sér sæti í 1. deild
ásamt hinu Kópavogsfélaginu, HK.
UMFN-ÍBK.....................21:19
Körfubolti
NBA-DEILDIN
Fyrst umferð úrslitakeppninnar, fyrstu leik-
ir. Þqá sigra þarf til að komast áfram:
CbicagoBulls—NewYorkKnicks....l26: 85
■Michael Jordan gerði 28 stig og Scottie
Pippen 25 fyrir Chicago.
Philadelphia 76ers—Milwaukee.. 99: 90
Los Angeles Lakers—Houston.... 94: 92
Utah Jazz—Phoenix Suns........129: 90
San Antonio Spurs—Golden State ...130:121
■Þrír leikmenn San Antonio gerðu sam-
tals 98 stig, Willie Anderson (38), David
Robinson (30) og Rod Strickland (30).
Tennis
MONTE CARLO MÓTIÐ
Pjórðungsúrslit. Tölur framan við nöfnin
sýna röð á styrkleikalista:
2-Boris Beeker—8-Andr. Tjesnókov ..6:1 6:3
Goran Prpic—Carl-Uwe Steeb.6:4 6:2
Íshokkí
HM í ÍSHOKKÍ
Kanada—Sviþjóð................3:3
Bandaríkin-Þýskaiand .'.......4:4
NHL-DEILDIN
Úrslitakeppni NHL-deildarinnar. Fjóra
sigra þarf til að komast áfram:
Adams-riðill:
Boston Bruins—Montreal Canadiens..4:1
Boston hefur forystu 3:2.
Patrick-riðill:
Pittsburgh Penguins—Washington....4:1
Pittsburgh sigraði 4:1.
Knattspyrna
Tactic-mótið á Akureyri:
Þór-Leiftur.................... 3:1
Árni Þór Ámason, Axel Vatnsdal, Ásmund-
ur Arnarsson, sjálfsmark - Halldór Guð-
mundsson.
KA-Tindastóll....................3:1
Sverrir Sverrisson 2, Birgir Arnarson -
Ingi Þór Rúnarsson.
Borðtennis
íslenska landsliðið tapaði leikjum sínum
gegn Danmörku, Skotlandi, Kúbu ogEgypt-
alandi, 0:3.
ívar Hauksson í
18 mánaða bann
Lyfjanefnd íþróttasambands íslands hefur dæmt ívar Hauksson í
18 mánaða keppnisbann frá 2. nóvember 1990 að telja.
ívar, sem féll á lyfjaprófi á heimsmeistaramóti í vaxtarækt í Malasíu
í fyrra, hefur keppt fyrir Golfklúbb Grindavíkur og er dæmdur í banp
vegna þess. Bannið nær ekki til vaxtaræktar, sem er ekki innan ÍSÍ,
en þar var ívar dæmdur í eins árs bann af Alþjóðsambandi vaxtarækt-
armanna. Þegar bann vaxtaræktarsambandsins rennur út má ívar
keppa í vaxtarækt að nýju en ekki í íþróttum á vegum sérsambanda ÍSÍ.
KORFUKNATTLEIKUR / EM
Portúgal sýnir beint
Portúgalar hafa samið við Körfuknattleikssamband Íslands um
beinar útsendingar frá öllum leikjum sínum í undankeppni Evrópu-
mótsins í körfuknattleik sem hefst 1. maí.
Ríkissjónvarpið mun sjá um að taka leikinu upp á þeir vera sýndir
í beinni útsendingum í portúgalska sjónvarpinu. Að sögn Péturs Hrafns
Sigurðssonar, framkvæmdastjóra KKÍ, er um töluverða fjármuni að
ræða. Stór hluti fer tii sjónvarpsins vegna vinnu við leikina en Körfu-
knattleiksamband íslands fær einnig nokkuð í sinn hlut.
Til stóð að evrópska sjónvarsstöðin Eurosport sýndi frá leikjunum
en af því varð ekki vegna þess að það er á sama tíma og heimsmeist-
aramótið í íshokkí í Finnlandi.
KNATTSPYRNA
„Pétur er ekki eins vel
upplagður og hann var“
- segir BoJohansson, landsliðsþjálfari. Mikla
athygli hefurvakið að Pétur Ormslev og Birkir
Kristinsson eru ekki í landsliðshópnum
UNDIRBÚNINGUR landsliðsins
fyrir leiki gegn Albaníu og
Tékkóslóvakíu í Evrópukeppni
landsliðs hefst í dag þegar
landsliðið mætir B-liði Eng-
lendinga í Watford, en síðan
verður leikið gegn Wales í
Cardiff á miðvikudaginn kemur
og gegn Möltu íValetta 7.
maí. Það hefur vakið mikla at-
hygli að Pétur Ormslev, mið-
vallarspilarinn sterki og Birkir
Kristinsson, markvörður,
misstu sæti sín í landsliðs-
hópnum, en þeir voru fasta-
menn íhópnum sl. keppn-
istímabil.
o Johansson, landsliðsþjálfari,
sagði í viðtali við Morgunblað-
ið, að Pétur væri ekki eins vel upp-
lagður nú og hann var sl. keppn-
istímabil og það sama væri að segja
um Birki. „Eg þekki þá vel og þeir
hafa ekki leikið eins vel að undan-
förnu og þeir gerðu sl. keppnistíma-
bil. Ég vel Pétur ekki til að hann
vermi varamannabekkinn í leikjun-
um sem framundan eru,“ sagði Bo.
Bo valdi Þorvald Örlygsson á ný
í landsliðið, en Þorvaldur missti
sæti sitt í landsliðinu eftir landsleik
gegn Frökkum sl. sumar. „Þorvald-
ur lék ekki vel gegn Albönum og
Frökkum. Hann lék ekki vel í þeim
leikjum og spilaði þar inní að það
gekk ekki eins vel hjá honum hjá
Nottingham Forest og hann von-
aði. Þorvaldur hefur þroskast síðan
þá og nú fær hann aftur tækifæri.
Gunnar Gíslason er kominn aftur
í hópinn, en hann átti við meiðsli
að stríða í fyrra og gat ekki leikið
gegn Frökkum, Tékkum og Spán-
veijum. Gunnar hefur leikið vel í
Svíþjóð og kemur hann með að
styrkja landsliðshópinn. Aftur á
móti geta þeir Eyjólfur Sverrisson,
Sigurður Jónsson og Kristján Jóns-
son ekki leikið vegna meiðsla,“
sagði Bo.
Þrír nýliðar eru í landsliðshópn-
um sem leikur í Englandi og Wal-
es. Ólafur Gottskálksson, 23 ára,
Hlynur Stefánsson, 27 ára, og Grét-
ar Einarsson, 27 ára. „Ég hef séð
Hlyn leika tvo leiki með Eyjamönn-
um að undanförnu og hefur hann
leikið stórvel á miðjunni, þar sem
hann stjórnaði leik Éyjamanna. Ég
sá Grétar leika með Víði í fyrra og
einnig í ár. Grétar, sem er útsjónar-
samur og klókur leikmaður, lék vel
með Víði gegn FH á dögunum og
skoraði tvö mörk. Þeir fá nú tæki-
færi til að spreyta sig með landslið-
inu.“
Leikirnir gegn Englandi og Wal-
es verða örugglega harðir og erfið-
ir. Ég mun tefla fram reyndum leik-
mönnum í þeim, en yngri leikmenn
fá tækifæri til að spreyta sig á
Möltu. Þessi keppnisferð er mjög
góður undirbúningur fyrir Evrópu-
leikina gegn Albaníu og Tékkóslóv-
akíu. Ég fær gott tækifæri til að
sjá hvar leikmennirnir standa nú.
Bo Johansson
Leikmenn þurfa að berjast fyrir
sæti sínu í landsliðinu. Það á enginn
leikmaður fast sæti. Ég loka á eng-
an leikmann. Fjölmargir leikmenn,
sem taka ekki þátt í ferðinni nú,
Pétur Ormslev
eru inni í myndinni hjá mér. Marg-
ir eru meiddir og nokkrir ungir leik-
menn sem ég hafði áhuga á að
hafa með, komust ekki vegna
náms,“ sagði Bo.
PéturOrmslev:
„Ég er í betri æfingu“
Auðvitað er maður sár að vera
ekki valinn í landsliðið. Ég
er í betri æfingu nú heldur en í
fyrra og þess vegna á ég bágt
með að skilja það að Bo segi að
ég sé ekki eins vel upplagður
nú,“ sagði Pétur Ormslev, fyrirliði
Fram. „Ég lít svo á að ég sé ekki
inni í myndinni hjá Bo fyrir Evr-
ópuleikina gegn Albaníu og
Tékkóslóvakíu. Heldur ekki Birkir
Kristinsson, markvörður, sem
ekki hefur farið aftur frá því í
fyrra," sagði Pétur.
„Pétur er í betri æfíngu núna
heldur en hann var í fyrra. Það
er mín skoðun að hann sé einn
af sextán bestu knattspyrnu-
mönnum ísiands," sagði Ásgeir
Elíasson, þjálfari Framliðsins.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
Helga Magnúsdóttir, gjaldkeri HSÍ og Sigurður Tómasson, eigandi Ramma-
miðstöðvarinnar, með hinn glæsilega bikar sem keppt er nú um í fyrsta skipti.
Stór-
leikur
Fram og Stjaman leika
hreinan úrslitaleik
ram og Stjarnan leika hreinan
úrslitaleik um íslandsmeistara-
titilinn í handknattleik kvenna í
Laugardalshöllinni á morgun kl. 15.
Félögin er jöfn að stigum.
Framstúlkurnar, sem unnu
Stjörnunna í bikarúrslitaleik á dög-
unum, hafa náð skórkostlegum ár-
angri á undanförnum árum. Fram-
liðið hefur verið meistari sjö síðustu
ár.
Leikurinn er nokkuð sögulegur,
því að hann er kveðjuleikur Guðríð-
ar Guðjónsdóttur, sem hefur leikið
lykilhlutverk hjá Fram undanfarin
ár. Einnig leikur Sigi'ún Blomster-
berg sinn síðasta leik með Fram.
Keppt verður um nýjan glæsileg-
an bikar, sem Rammamistöðin við
Sigtún hefur gefið, en bikarinn er
um fimmtán kg.
Heiðurgestur leiksins verður Jó-
hanna Sigurðardóttir, félagsmála-
ráðherra.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um að leikurinn verður bæði
spennandi og skemmtilegur, en
Fram og Stjarnan hafa á að skipa
öflugum liðum, sem tefla fram
mörgum landsliðsstúlkum.
ÍÞRÚmR
FOLX-
■ ALFREÐ Gíslason skoraði
12/7 mörk þegar Bidasoa vann
Granollers, 27:24, í 1. deildar-
keppninni á Spáni. Geir Sveinsson
lék vel með Granollers og skoraði
fjögur mörk.
■ PAUL Merson hjá Arsenal
meiddist á ökkla í leik gegn QPR
og mun hann ekki vera í B-liði
Englands, sem leikur gegn
íslenska landsliðsinu. Það getur
farið svo að hann leiki ekki meira
með Arsenal á keppnistímabilinu.^^
■ STEVE Bould, miðvörðui^"*
Arsenal, leikur heldur ekki með
B-liðinu. Hann meiddist á læri.
■ IAN Rush, markahrókur hjá
Liverpool, mun ekki leika með
Wales gegn Islandi.
■ ERIC Young hjá Crystal
Palace meiddist í leik gegn
Liverpool og verður ekki í_ lands-’**"
liðshópi Wales, sem mætir íslandi
í Cardiff.