Morgunblaðið - 09.05.1991, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins:
Geir H. Haarde
kjörínn formaður
Salóme Þorkelsdóttir forseti Sam-
einaðs þings og Matthías Bjarnason
forseti Efri deildar
GEIR H. Haarde var kjörinn
formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksihs á þriggja stunda löng-
um fundi þingflokksins síðdegis
Staðarsveit:
Útigöngufé
bjargað úr
sjálfheldu
Hlíðarholti.
FIMM menn úr björgunar-
sveitinni í Ólafsvík komu
sunnudaginn 5. maí sl. til þess
að gera tilraun til björgunar
tveggja kinda sem voru í sjálf-
heldu í svonefndum Svarta-
gilsklettum í Bjarnafosskots-
landi.
Vitað var um þessar kindur í
allan vetur í klettunum en til-
raunir til þess að ná þeim mis-
tókust jafnan. En fyrir um þrem-
ur vikum lentu þær á þröngum
stalli sem þær komust ekki af
sjálfar aftur.
Tveir björgunarsveitarmenn
fóru upp í klettana ofan við kind-
umar og gátu þeir fest þar kað-
al til þess að fara í niður á stall-
inn en aðrir klifu neðan frá með
því að koma þar fyrir léttum
stigum. Hæð bjargsins neðan við
kindumar mun vera um 20-30
m. Tókst björgunarmönnum að
að koma böndum á kindurnar
og draga til sín. Var þeim síðan
slakað niður fyrir bjargið.
Þama var um að ræða gimbr-
ar á fyrsta vetri frá Kálfavöllum.
Eigendur þeirra eru Sólveig
Bjamadóttir 8 ára og móðir
hennar, Sigrún Guðmundsdóttir.
í björgunarsveitinni frá Ól-
afsvík voru Gunnar Hauksson,
stjómandi hópsins, Gunnþór
Ingason, Karl Mortensen, Sævar
Hansson og Þorgrímur Ólason.
- Þ.B.
í gær. Davíð Oddsson, forniaður
Sjálfstæðisflokksins, gerði til-
lögu um Geir sem formann og
var hann einróma kjörinn. Geir
gerði tillögu um Björn Bjarnason
sem varaformann og Sigríði
Önnu Þórðardóttur sem ritara
og voru þau bæði kjörin.
„Þetta starf leggst ákaflega vel
í mig og ég hlakka til að takast á
við þetta verkefni með félögum
mínum í þingflokknum. Þetta er
samhentur þingflokkur, eins og
kom vel fram á fundinum nú. Ég
tel að nýkjörin stjóm þingflokksins
hafi alla möguleika á að stýra starfi
þessa stóra þingflokks þannig að
vel gangi,“ sagði r.ýkjörinn formað-
ur þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
Geir H. Haarde, í samtali við Morg-
unblaðið er hann kom af fundi þing-
fiokksins. Morgunblaðið hefur upp-
lýsingar um að allir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins á fundinum í gær
hafi greitt Geir atkvæði sitt, að
Geir sjálfum undanskildum - hann
sat hjá.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
gerði einnig tillögu um Salóme Þor-
kelsdóttur sem frambjóðanda Sjálf-
stæðisflokksins til embættis forseta
Sameinaðs þings, sem kemur sam-
an á ný nú á mánudag, 13. maí.
Tillaga formannsins var samþykkt,
en í því felst jafnframt að Salóme
verður frambjóðandi flokksins til
forsetaembættis, eftir að Alþingi
er orðið að einni málstofu. Þá gerði
Davíð tillögu um Matthías Bjarna-
son sem frambjóðanda flokksins til
embættis forseta Efri deildar á því
vorþingi sem hefst á mánudag, og
var tillagan samþykkt.
(ö
INNLENT
Skokkað í alheimsátaki
Fjöldi manns tók í gærkvöldi þátt í skokki sem Rauði kross íslands gekkst fyrir, en það var liður í fjöl-
skyldusamkomu sem haldin var í tilefni af Alheimsátaki til hjálpar stríðshijáðum.
Davíð Oddsson:
Gerir tillögu um ákveð-
inn eftirmann sinn
- innan eða utan borg-arstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins
Eiður Guðnason umhverfismálaráðherra:
Landgræðsla o g skóg-
rækt í nmhverfisráðuneyti
SKOGRÆKT, landgræðsla og
hugsanlega hollustuvernd ríkis-
ins munu heyra undir umhverfis-
ráðuneytið í framtíðinni sam-
kvæmt samkomulagi innan rikis-
stjórnarinnar, sagði Eiður
Guðnason umhverfisráðherra
m.a. á kynningarfundi með
starfsfólki ráðuneytisins og
stofnana er heyra undir það.
„Umhverfismál eru einnig
byggðamál og skipulagsmál og mun
ég leggja mikla áherslu á að koma
á góðu samstarfi við sveitarstjórnir
og þá aðila sem fara með náttúru-
verndarmál og mun sækja þá heim
um allt land,“ sagði Eiður.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra og borgarsljóri mun á
borgarstjórnarfundi í næstu
viku gera tillögu um ákveðinn
eftirmann sinn í embætti borg-
arsljórans í Reykjavík. „Eg
hafði haft í huga að gera tillögu
um fulltrúa úr borgarsljórnar-
flokknum, en jafnframt vil ég
viðra það innan flokksins, að
ef það er ekki nægilega breið
samstaða að baki einhveijum
úr hópnum, þá er rétt að kanna
hvort það væri samstaða um
sjálfstæðismann - pólitískan
borgarsljóra, sem myndi þá
starfa i umboði borgarstjórnar-
flokksins fram að kosningum
og væntanlega bjóða sig fram
í prófkjöri fyrir kosningarnar
1994,“ sagði Davíð í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Eg mun tala við alla borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
næstu daga og eftir helgina mun
ég hitta borgarstjórnarflokkinn og
skýra frá niðurstöðum mínum, og
í framhaldi af því mun ég gera
tillögu um eftirmann minn,“ sagði
Davíð. Davíð sagði að í þeirri til-
lögu sem hann myndi gera, tæki
hann auðvitað mið af þeim skoðun-
um sem kæmu fram í þeim sam-
tölum sem framundan eru, en ekki
endilega eigin skoðunum, og því
hvaða tillaga væri líklegust til
þess að kalla fram víðtæka sam-
stöðu.
„Oft þegar þetta hefur verið
gert með þessum hætti, hefur slik
tillaga verið samþykkt. Ef menn
telja að ég hafi ekki lagt rétt mat
á stöðuna, greiða menn væntan-
lega atkvæði um tillögu mína,“
sagði Davíð.
Þrír prestar ráðnir
til Starfa í kirkjunni
RÁÐIÐ hefur verið í þijár af
þeim stöðum og embættum inn-
an kirkjunnar sem auglýst vorú
með umsóknarfresti til 1. maí.
Gamli Kennaraskólinn:
HÍK afþakkar sinn hluta hússins
Áður hafði öllu húsinu verið afsalað til KÍ
HIÐ íslenska kennarafélag hefur afþakkað gjöf íslensku ríkisstjórn-
arinnar, hlut í Kennaraskólahúsinu við Laufásveg í Reykjavík. „Þetta
var samþykkt á stjórnarfundi 24. apríl og þá með vísan til samþykkt-
ar fulltrúaráðs 23. mars,“ sagði Eggert Lárusson formaður HIK í
samtali við Morgunblaðið. Áður en til þessarar formlegu afþökkunar
HÍK kom, höfðu fyrrverandi fjármálaráðherra og menntamálaráð-
herra afsalað húsinu að öllu leyti til hins þiggjandans, Kennarasam-
bands íslands, það var þriðjudaginn 30. apríl síðastliðinn.
Eggert sagði húsið hafa verið
gjöf ríkisstjórnarinnar til kennara-
samtakanna í tilefni af að 100 ár
voru frá stofnun Hins íslenska
kennarafélags í febrúar 1989.
Eggert sagði að báðum félögun-
um, HÍK og KÍ, hafi upphaflega
verið gefið húsið. „Við treystum
okkur ekki til að taka við því, vegna
þess að ekki var staðið við fyrirheit
sem okkur höfðu verið gefín og
þeir afgreiddu þetta til Kennara-
sambandsins þarna síðasta daginn
sem þeir voru við völd,“ sagði hann.
„Það eru 26 mánuðir síðan við
fáum húsið gefið og þetta er auðvit-
að búið að vera mikil þrautasaga
að reyna að fá þetta hús. Það er
mjög illa farið og hefur ekki verið
haldið við. Við treystum okkur illa
til að geta gert húsið upp vegna
kostnaðar. Menntamálaráðherra
lofaði þá fjárstyrk til þess, en stóð
svo ekki við það. Við gáfum honum
átta mánuði til þess að standa við
það, en það tókst nú ekki,“ sagði
Eggert.
Hann sagði að ekki hafi verið
rætt við forsvarsmenn HIK um þá
ráðstöfun að afsala KÍ húsinu að
öllu leyti. Á þeim tíma sem afsalið
fór fram, hafi HÍK ekki verið búið
að tilkynna stjórnvöldum að félagið
hygðist hafna gjöfinni.
Svanhildur Kaabér formaður KÍ
staðfesti í samtali við Morgunblaðið
að á þriðjudag í síðstu viku hefði
verið gengið frá afsali hússins til
KÍ.
Kjörmenn í Norðfjarðar-
prestakalli hafa kosið Ingileif
Malmberg guðfræðing í embætti
sóknai-prests og tekur hún við af
sr. Svavari Stefánssyni em hefur
fengið veitingu fyrir Þorláks-
hafnarprestakalli. Ingileif lauk
guðfræðiprófi á síðasta ári. Eigin-
maður hennar er sr. Þórhallur
Heimisson.
Biskup íslands hefur ráðið
Bjarna Þór Bjarnason guðfræðing
í starf farprests í Kjalarnespróf-
astsdæmi til þriggja ára, 'að feng-
inni umsögn héraðsnefndar og
prófasts. Bjarni Þór lauk guð-
fræðiprófi 1987.
Þá hefur biskup ráðið Þór
Hauksson guðfræðing í starf að-
stoðarprests í Árbæjarprestakalli.
til fjögurra ára, að fenginni um-
sögn sóknamefndar og sóknar-
prests. Þór lauk guðfræðiprófi á
síðasta ári. Eiginkona hans er
Magnhildur Sigurbjörnsdóttir.
Guðfræðingarnir verða vígðir
af biskupi íslands í Dómkirkjunni
í Reykjavík næstkomandi sunnu-
dag.