Morgunblaðið - 09.05.1991, Síða 20
CRAFlT
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR, 9. MAI 1991
Ef þú vilt lækka matarreikning heimilisins, þarftu
ekki aö velta lengi fyrir þér veröi og kostum
lambakjöts á lágmarksveröi til aö sjá augljósa leiö til
sparnaöar. Gæöi kjötsins hafa veriö stóraukin með
mun meiri snyrtingu, auk þess sem öllu kjötinu í
pokanum er nú sérpakkað í fjóra minni poka,
tilbúið í ísskápinn.
I hverjum poka eru:
6-7 súpukjötsbitar
4-5 framhryggjarsneiðar eöa grillsneiöar
12-14 kótilettur eða hálfur hryggur
1/1 heilt læri *
•y t
/•
lá m
abeins 2.900,- Wr*
Sparaðu og kauptu poka af
lambakjöti á lágmarksverði
því það er
- náttárulega gott
-7*-
SAM.STARFSHOPUR
UM SOLU LAMBAKJOTS
* Um 6 kg á 486,- kr/kg
Stéttaskiptingin
á Islandi
eftir Margréti Sigríði
Sölvadóttur
Kæru landar, mikið hefur þjóðfé-
lagið okkar breyst á síðastliðnum
50 árum. í þá daga voru til hugsjón-
amenn og konur er lögðu ótrauð
fram um veg þó viðfangsefnið virt-
ist óviðráðanlegt.
Ég ólst upp við sögur um það
merka fólk sem nánast útrýmdi
berklum hér á landi. Hjúkrunarfé-
lagið Líkn var stofnað og þar unnið
merkt forvarnarstarf. Þegar ég
heyrði um laun lækna í dag, þá rifj-
aðist þetta fólk upp fyrir mér.
Vegna þess að þeir læknar sem
þarna lögðu hönd á plóg voru hug-
sjónamenn og margir tóku engin
laun fyrir vinnu sína hjá Líkn eða
gáfu laun sín til rannsóknastarfs-
ins. Sumir áttu ekki bíl og ferðuð-
ust með áætlunarbíl til að sinna
sjálfboðastarfi, eftir sína daglegu
spítalavinnu. Laun lækna í dag er
mér tjáð að séu ekki ýkja há, en
samt tekst þeim að ná út úr kerfinu
milljónum fyrir störf utan spítal-
anna. Hefur líknin vikið fyrir
græðginni? Hvað með flugmennina,
álíta þeir að végna þess að þeir
svífa um yfir höfðum okkar, rétt-
læti það svífandi há laun? Hvað
gerir starf þeirra svo merkilegt að
launin eigi að vera margföld laun
annarra landsmanna. Ekki þýðir við
þá að sakast ef flugvélin ferst og
ekki er meiri áhætta að vera flug-
maður en bílstjóri. Eða stjórnmála-
mennirnir, þessir sem eru á launum
hjá-okkur, en munurinn er bara sá
að þeir skammta launin sín sjálfir,
þeir eru síst betri. Er búið að kenna
vissum starfsstéttum það, að þær
séu upp yfir venjulegt fólk hafnar?
Breytingar eiga sér ekki stað þó
að stjórnir komi og fari, þær gera
ekki annað en að skipta um sæti,
með sama getuleysi, og sömu sóun.
Aldrei er afgangur til að sinna brýn-
um málefnum þeirra sem um sárt
eiga að binda í þjóðfélaginu eins
og t.d. ógæfusömum veglausum
börnum. Hin margrómaða þjóðar-
sátt hefur komið verst niður á lág-
launafólki en þeir sem hafa marg-
föld verkamannalaun hafa notið
góðs af því að vöruverð hefur ekki
hækkað alveg eins mikið og vana-
Margrét Sigríður Sölvadóttir
„Látið ekki þá sem
klæðast skarti telja
ykkur trú um að þið
séuð annars flokks fólk
og munið að þeir sem
æðri þykjast, komust
þangað með ykkar
hjálp.“
lega, en hefur þó hækkað verulega
fyrir þá Iaunþega með laun sem
nægja ekki einstaklingi til fram-
færslu. Ríkisstjórnin segir að hér
sé ekki verðbólga, en samt hækka
afborganir af lánum tengdum vísi-.
tölu og verðtryggingu sífellt. Stað-
reyndin er að þessum hástéttum
finnst þær yfir fólkið í landinu hafn-
ar. Orð á borð við „að flokkurinn
eigi að breytast og víkka, verða
meira fyrir fólkið í landinu" er slag-
orð forystumanna flokkanna, en
enginn trúir lengur, en einhver er
ástæða þess að þeim finnst þörf á
slíkum málflutningi nú fyrir kosn-
ingar. En hvað halda þessir menn
að fólkið í landinu sé treg-gáfað,
þó ekki höfum við öll notið mennt-
unar úr æðri menntastofnunum
landsins. En langvarandi fátækt
sviftir fólk virðingu og stolti, á
meðan auðurinn færir hinum völd.
Góðir landsmenn, á hvetju nærast
þessar auðmannastéttir ef ekki á
okkur fátæklingunum? Hvar stæðu
læknar ef við værum ekki til staðar
til að lækna eða stjórnmálamenn-
irnir ef engir væru til að vinna fyr-
ir þá fiskinn eða borga skattana til
að viðhalda sóuninni? Hvað lengi
kæmust þeir af án okkar á þeim
Vkr GBC-lnnbinding
Fjórar mismunandi
gerðlr af efni og tækjum
til innbindingar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 ' 105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
auði sem þeir hafa safnað sjálfum
sér til handa? Hafa verður í huga
að þessir menn lifa engu sultarlífi
og kunna ekki að lifa eins spart og
við. En er það ekki einmitt þetta
sem er að í íslensku þjóðfélagi? Að
þeir sem geta gefið af gnægðum
sínum vilja ekkert gefa, en halda
sínu striki við að mergsjúga almúg-
ann svo áð ekki einu sinni fær hann
að halda virðingu sinni. Það er stað-
reynd að sá sem er í góðrí stöðu
fær margt fyrir lítið eða ókeypis
sem hinn almenni borgari verður
að sætta sig við að greiða mikið fé
fyrir. Við horfum á menningaruppá-
komur stórborgaranna í sjónvarp-
inu þangað sem þeim háu herrum
er boðið, en við getum síðan af litl-
um launum okkar greitt okkur inn
á viðburðinn seinna þegar engir
stórborgarar þurfa að hræðast að
mengast af Iágstéttinni. Hér munu
margir mér ósammála. Því vil ég
vitna í fréttamann á Stöð 2 er hann
í lýsingu sinni við opnun Þjóðleik-
hússins að loknum viðgerðum sagði:
„Hér eru allar stéttir þjóðfélagsins
mættar."
Gaman hefði verið að vita hvort
þarna var mætt hið almenna verka-
fólk. Af mynd í DV 23. þ.m. af
atburðinum, fer sætaröð greinilega
eftir embættum. Annað dæmið er
grein í DV 16. mars sl. um Davíð
Oddsson en þar var haft eftir Dav-
íð sjálfum: „að hann hafi aldrei lit-
ið svo á að hann ætti frama vísan
í pólitík vegna þess að hann værí
bæði fátækur og ættlítill". Hvað
segja þessi orð okkur, dæmi hver
fyrir sig. En fyrst einum af okkur
fátlæklingunum er nú spáð svo
miklum frama að hann gæti orðið
næsti forsætisráðherra, skyldi hann
þá gleyma okkur, j,sinni stétV‘1
Góðir landar, á Islandi ríkir ekki
aðeins launamismunur svo milljón-
um skiptir heldur líka svo mikil
stéttaskipting að með ólíkindum er
hjá ekki stærri þjóð. Þjóð sem telur
ekki fleiri íbúa en ein lítil borg á
Spáni, Alicante. Við þurfum ef til
vill ekki nema einn góðan borgar-
stjóra til að stjórna okkur, og
kannski er Davíð sá rétti, ef hann
þá miklast ekki af veldinu. En ég
vona svo sannarlega að ef Davíð
kemst til valda, þá beri hann gæfu,
mildi og visku til að sjá ranglætið
í þjóðfélaginu og snúi því við, þjóð
sinni allri til heilla.
Mín lokaorð til ykkar samlandar
mínir eru þessi: Látið ekki þá sem
lkæðast skarti telja ykkur trú um
að þið séuð annars flokks fólk og
munið að þeir sem æðri þykjast,
komust þangað með ykkar hjálp,
þó þeir hafi gleymt því. En þeir
falla líka með ykkar atkvæði. Hugs-
ið ykkur vel um hvetjir séu verðug-
ir atkvæðis ykkar í komandi kosn-
ingum.
Skyldu þeir niður til vor líta
vorir sönnu íslandsmenn
sem með krafti tókst að slíta
ísland burt úr Danahremm.
Þessa menn þá skorti eigi
ættjarðarást né þjóðarstolt,
þeir vissu eigi að framtíðardegi
yrði fleygt í hundsins skolt.
Höfundur er rithöfundur.
Aialfundur
Haf narf jariardeildar RKÍ
veróur haldinn miðvikudaginn ló.maíkl. 17.00
íBæjarhrauni 2, Hafnarfirði.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
0
mwLv
Skútuvogi 10a - Sími 686700