Morgunblaðið - 09.05.1991, Qupperneq 36
36
— ------—'—'—■ -----
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991
-----------------, —-—; rrt— --------------:--: ;---;---------------------
Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
. StyrmirGunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eíntakið.
Víðtæk satt
um fiskveiðistj ór nun
að vekur athygli og verður
ekki framhjá því horft
þegar Pétur Bjarnason, for-
maður stjórnar Utgerðarfélags
Akureyringa, segir í ræðu sinni
á aðalfundi félagsins að nauð-
synlegt sé að ná víðtækri sátt
um stjórnun fiskveiða við Is-
land og ekki sé ástæða til að
halda fast við stefnu hringl-
andaháttarins eins og hann
komst að orði, svo mikið sem
er í húfi fyrir útgerðina sjálfa
að vel takist til því sjávarútveg-
ur þurfi að búa við jafnstöðug
skilyrði og unnt er að veita
honum enda sé það forsenda
þess að hægt sé að taka skyn-
samlegar ákvarðanir í rekstri
þessara fyrirtækja. Víðtækt
samstarf verði að nást um þann
ramma sem settur verði við
stjórnun fiskveiða en kvóta-
kerfið hafí ávallt verið umdeilt
frá því það var reynt.
Nú er allt í grænum sjó í
fiskveiðistjórnun við ísland og
hún er umdeildasta stórmál
sem við þurfum að horfast í
augu við og leysa. Nú hafa
einnig risið deilur milli útgerð-
armanna og sjómannasamtaka
um kvótann og formaður Sjó-
mannasambands íslands telur
að fyrir bragðið þurfi að endur-
skoða allt kerfið.
í þessu samhengi vekur það
einnig — og ekki síður — at-
hygli þegar Þorsteinn Pálsson
nýskipaður sjávarútvegsráð-
herra minnir sérstaklega á það
í ræðu sem hann flutti fyrir
helgina á aðalfundi íslenskra
sjávarafurða hf. að fiskimiðin
séu sameign þjóðarinnar „og
hugsanlega yrði að binda þenn-
an sameiginlega rétt í stjórnar-
skrá“. Þar með eru forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins
sammála um þetta atriði. Og
Jón Baldvin Hannibalsson hef-
ur tekið undir það, svo vart
verður um það deilt úr því sem
komið er. Kvótinn er eign
fólksins í landinu, það er
grundvallaratriði þessa máls
og það ákvæði verður að gera
virkt í fiskveiðistjórnuninni.
Kvóti gengur nú kaupum og
sölum milli þeirra sem eiga
hann ekki öðrum fremur og
ef ráðamenn hyggjast halda
kerfinu verður að leggja kvóta-
söluna í sameiginlegan sjóð
eigendanna, þ.e. fólksins í
landinu, en fráleitt að aðrir
geti einir og fyrirvaralaust tal-
ið sjóðinn til sipnar eignar.
Þennan sjóð mætti svo nota
útgerð til eflingar og eigendum
til aukins áhuga á höfuðat-
vinnuvegi þjóðarinnar.
Það veldur siðferðisbresti
sem bitna mun á útgerð og
þeim sem fást við hana, og
verða að gera út á velþóknun
almennings og stöðugleika en
ekki illindi og hringlandahátt.
Þó að sjávarútvegsráðherra
telji að um núverandi kerfi
hafi tekist einna mest sátt þá
segir það litla sögu, svo illvígar
sem þær deilur hafa verið sem
þetta kerfi hefur kallað yfir
þjóðfélagið allt — og þá ekki
síst forystumenn í stjórnmálum
og sjávarútvegi. í stjórnarsátt-
málanum er sagt fyrir um það,
svo skýlaust sem verða má, að
kvótakerfið verði endurskoðað
og öll atriði þess endurmetin
eins og núverandi lög gera
reyndar ráð fyrir. Þetta er í
fullkomnu samræmi við lands-
fundarsamþykkt Sjálfstæðis-
flokksins um sjávarútvegsmál
og þá ekki síður stefnu hins
stjórnarflokksins, Alþýðu-
flokksins, sem hefur gert harða
hríð að kvótakerfinu og raunar
lagt á það áherslu að yfirlýsing
um fiskimiðin sem sameignar
þjóðarinnar verði sýnd í verki
með einhverskonar gjaldi eða
veiðileyfum. Þeirri stefnu hefur
að vísu ekki aukist fylgi í Sjálf-
stæðisflokknum þótt þar á bæ
sé öflugur stuðningur við end-
urskoðun kerfisins og þá eink-
um aukna áherslu á grundvall-
aratriði laganna um sameign
þjóðarinnar. En sjálfstæðis-
menn eru klofnir í marga hópa
þegar fiskveiðistjórnun er ann-
ars vegar, sumir þeirra fylgja
veiðileyfum, aðrir aflamarki og
enn aðrir — og það er kannski
ekki minnsti hópurinn — vill
fylgja sóknarmarki og fluttu
raunar fjölmargir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins þingsá-
lyktunartillögu þess efnis á
'síðasta Alþingi. Um allar þess-
ar leiðir má deila en hitt er
grundvallaratriði að um sam-
eiginlega niðurstöðu verði
víðtæk sátt. Mikill vandi er
lagður á herðar Þorsteini Páls-
syni og þeim sem með honum
vinna að þessari víðtæku sátt
og skapa eiga frið um málið í
landinu og eyða deilum svo að
allir geti lagst á eitt um að
sjávarútvegurinn fái þann
starfsfrið sem honum er nauð-
synlegur og allir leggja höfuðá-
herslu á. Það yrði raunveruleg
þjóðarsátt.
Við stóðumst
báðir prófið,
ég og báturinn
Egersund. Frá Ágústi Inga Jónssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
HAFSTEINN Jóhannsson, kaf-
ari og siglingakappi á Eldingu,
kom til Egersund í Noregi í
gærmorgun. Þaðan lagði hann
upp í hnattsiglingu í ágústmán-
uði í fyrra og komst einn á
Eldingu, 63 feta skútu sinni,
fyrir Góðrarvonarhöfða,
kringum Suðurskautslandið,
fyrir Horn og heim aftur án
aðstoðar á innan við einu ári.
Hafsteinn lenti í margvíslegum
ævintýrum og erfiðleikum í ferð-
inni, m.a. skipti hann fjórum sinn-
um um öll stög í mastrinu. Hann
vildi þó ekki gera mikið úr erfið-
leikunum í gær og hafði ekki
mörg orð um það er hann bjarg-
aði þýskum hjónum á 23 feta
Hafsteinn Jóhannsson
Elding, skútan sem Hafsteinn sigl
skútu frá bráðum bana í fárviðri
við Hornhöfða. En hvað var eftir-
minnilegast í ferðinni? „Ég horfi
aldrei til baka. Þegar ég fór frá
íslandi árið 1971 var ég farinn
og ný verkefni tóku við. Eins er
það með þessa ferð, nú er hún
búin og ég fer fljótlega að vinna
mína verkamannavinnu í álverk-
smiðjunni í Husnes. Mér tókst að
sýna að ég gæti þetta. Við stóð-
umst báðir prófið, ég og báturinn,
en ég teiknaði hann og smíðaði
sjálfur. Ef þið norskir og íslenskir
blaðamenn væruð ekki að spyija
Flugmenn Flugleið
Samningarni
FÉLAG íslenskra atvinnuflugmai
Flugleiðir hf. á félagsfundi síðas
atkvæði með samningnum, 51 gej
Garðarssonar formanns félagsins.
Samningurinn felur í sér að flug-
menn fá hækkun launa í samræmi
við þjóðarsáttarsamninga, 2,8% frá
1. mars síðastliðnum, 2% 1. júní og
síðan fá þeir 2% hækkun umfram
þjóðarsátt gegn aukinni vinnu. Það
ákvæði felur í sér að í sólarlanda-
AF ERLENDUM VETTVANGI
CFE-sáttmálinn um fækkun vígtóla í Evrópu:
Undanbrögð Sovétsljórn-
arinnar o g öryggis-
hagsmunir Norðurlanda
Washington. Frá Ásgeiri Sverrissyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
SA ásetningur Sovétstjórnarinnar að sniðganga anda og ákvæði
CFE-sáttmálans svonefnda um fækkun hefðbundinna vígtóla í Evr-
ópu veldur bandarískum embættismönnum sýnilega verulegum
úhyggjum. Sovétmenn hafa flutt þúsundir þungavopna austur fyrir
Uralfjöll og þar með komið þeim undan eyðileggingarákvæðum sátt-
málans og flugsveitir frá Ungverjalandi hafa m.a. verið fluttar til
Kóla-skaga af sömu ástæðum. Af þessum sökum hefur samningurinn
ekki verið lagður fyrir þjóðþing ríkja Atlantshafsbandalagsins og í
bréfi sem George Bush Bandaríkjaforseti hefur sent Míkhaíl S. Gor-
batsjov, leiðtoga sovéska kommúnistaflokksins, er sérstaklega tekið
fram að Bandaríkjamenn geti ekki fellt sig við neina þá lausn á
þessu ágreiningsefni er feli í sér aukna spennu á jaðarsvæðum
varnarsvæðis aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) í norðri
og suðri.
Norskir embættismenn og sér-
fræðingar á vettvangi öryggis- og
varnarmála hafa þráfaldlega bent
á að slökunar- og afvopnunarstefnu
Sovétstjómarinnar, sem Míkhaíl S.
Gorbatsjov hefur boðað á undan-
förnum árum, sé enn ekki tekið að
gæta á norðurslóðum. Innan Atl-
antshafsbandalagsins og í evrópsk-
um fjölmiðlum hafa sjónir manna
einkum beinst að brottflutningi sov-
éskra hersveita frá fyrrum leppríkj-
um Kremlverja í Austur-Evrópu og
gjaldþroti Varsjárbandalagsins sem
almennt er viðurkennt að er al-
gjört. Þetta kemur ekki síst til af
því að allur viðbúnaður NATO-ríkj-
anna hefur miðast við stórfellda og
snögga innrás Sovétmanna inn í
Evrópu. Á sama tíma hafa Sovét-
menn unnið ötullega að því að end-
urnýja og auka herstyrk sinn á
Kóla-skaga. Nú þegar við blasir að
Sovétmenn virðast ætla að hafa
anda CFE-sáttmálans að engu hef-
ur athygli manna innan Atlants-
hafsbandalagsins í auknum mæli
beinst að þessari staðreynd.
Bréf Bush til Gorbatsjovs
Að sögn háttsetts talsmanns
bandaríska vamarmálaráðuneytis-
ins lagði Bush Bandaríkjaforseti
áherslu á flutning sovéskra her-
sveita til herstöðva í nágrenni við