Morgunblaðið - 09.05.1991, Blaðsíða 45
,MQRG1/NBLAÐIÍ).,S'IMMXW4GIÍR 9< MAI.aí>öl
SYLUAnilA
HEILDSÖLUDREIFING
Rafkaup
ÁRMÚLA 24, RVÍK.
S í M1: 6 8 1 5 7 4
BANDOÐUR AÐDAANDI
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóborgin:
Eymd — „Misery“
Leikstjóri Rob Reiner. Handrit
William Goldman, byggt á skáld-
sögu eftir Stephen King. Kvik-
myndatökustjóri Barry Sonnen-
feld. Aðalleikendur James Caan,
Kathy Bates, Laureen Bacall, Ric-
hard Farnsworth, Frances Stern-
hagen. Bandarisk. Castle Rock
1990. ✓
Metsöluskáldið Paul Sheldon (Ca-
an) á frægð sína að þakka söguper-
sónunni Misery og er bálkurinn um
hana orðinn stór. Innra með Sheldon
hefur blundað metnaðarfyllri rithöf-
undur og nú er svo komið að hann
hefur „slátrað“ gullkálfinum sínum
og er að ganga frá síðustu blaðsíðun-
um í bók af nýjum toga í myndar-
byijun.
Skammt frá íverustað skáldsins
býr Annie Wilkes (Kathy Bates),
fyrrum hjúkrunarkona, afskekkt og
af vanefnum. Mest ber á gyltunni
Misery og nafnið fengið úr sagna-
bálk, Sheldons. Þvi Wilkes er, eins
og hún segir sjálf, „aðdáandi nr. 1“
og hefur komið sér uup litlu Misery-
safni á heimilinu. En hitt er öllu
verra að hjúkrunarkonan fyrrver-
andi er kexrugluð og nú bera örlög-
in uppáhaldsskáldið í fang hennar
því hann missir bílinn útaf í hálku
óg hríð en Wilkes tekur til við að
hjúkra honum. Og allt gengur nokk-
um veginn normal uns henni berst
bókin þar sem Sheldon losar sig við
hina ástkæru Misery ...
Þegar bókin kom út var henni
hrósað meira en flestum öðrum
skáldsögum Kings og var ástæðan
talin sú að hér væri hann að fást
við hluti sem gætu gerst — svona
mikið til. Og það leynir sér ekki að
bókin/kvikmyndin er einmitt um
aðdáen°duma hættulegu sem gera
það að verkum að stjömumar, dæg-
urhetjurnar, fræga fólkið, forðast
fjölmenni nema þá helst umkringt
lífvörðum, gráum fyrir járnum.
Markchap-menn hennar veraldar
geta leynst þar sem síst skyldi. John
heitinn Lennon og Reagan em nær-
tæk dæmi um fórnarlömb þeirra í
sögunni.
Höfundar stilla þessum ágætu
persónum upp í makalausu um-
hverfi. Skáldið er brotið á báðum
fótum og allur meira og minna af
sér genginn og á líf sitt undir hand-
leiðslu bijálaðrar manneskju sem býr
ein og afskekkt. Ekki bætir úr skák,
að hann kemst í minningabókina
hennar — sem kostar hann eina
harðneskjulegustu tyftingu kvik-
myndasögunnar — og kemst að því
að aðdáandi nr. 1 er margfaldur
bamamorðingi! Og eftir að Wilkes
kemst að dauða Misery er myndin
orðin tímaspursmál um lífslengd
skáldsins.
Kvikmyndin er einmitt það sem
henni var ætlað að verða — úrvals
afþreying — líkt og skáldsögur
Kings. Og mannskapurinn er stór-
kostlegur. Reiner hefur margsannað
sig sem einn eftirtektarverðasta leik-
stjóra Bandaríkjanna í dag og svíkur
engan að venju. Hann heldur keyrsl-
unni gangandi og þrátt fyrir tak-
mörk í sögu á persónum og sviðum
er aldrei neinn leikhúsbrag að sjá
eða finna. Þar nýtur hann aðstoðar
snillingsins Sonnénfelds sem nýtir
sér einmitt útí ystu æsar einangrun
og fámenni efnisins með yfirþyrm-
andi drunga og innilokunarkennd.
Beitir t.d. oftast myndavélinni upp
til Wilkes til að undirstrika drottnun-
arhlutverk hennar og áhrifín hríslast
inní áhorfendur. Sama máli gegnir
um lýsinguna sem beitt er af list,
svosem í einu magnaðasta atriðinu
er Wilkes kemur í næturheimsókn
til Sheldons og birtan fellur á andlit
hennar. Úff!
Þau Bates og Caan eru óaðfinnan-
leg í erfíðum hlutverkum sem reynt
hafa geysilega á þau. Og aukaleikar-
amir fylla prýðilega útí myndina.
Hér á enginn að verða fyrir von-
brigðum því snillingurinn hann Gold-
man, (Butch Cassidy and the Sund-
ance Kid, Ali the President’s Men,
og margar fleiri góðaij, sem loksins
er að ná fótfestu aftur í kvikmýnda-
borginni eftir mörg, mögur ár er
manna flinkastur að leggja áherslu
á skemmtigildið og heldur ódýrum
meðölum minni spámanna úr sjón-
máli handritsins.
REIÐNAMSKEIÐ
Við Reykjalund í Mosfellsbæ
BÖRN OG UNGLINGAR
Námskeiðin standa í viku (5 daga) í senn,
3 tíma á dag.
Góðir hestar. Ferðir frá Grensásvegi að
Reykjalundi.
Verð kr. 6.500,-
Skráning og nánari upplýsingar í síma 620223.
FATLAÐIR: Börn - unglingar - fullorðnir
Námskeiðin standa í viku í senn.
Fjöldi á námskeið og lengd þess hvern dag
fer eftir getu þátttakenda.
- Verð kr. 6.000,-
Skráning í Laugardalshöll 9. maí kl. 15.30-
19.00 og í síma 620223.
- Slórsýning i Blómavafii.
Opnum í dag stórsýningu á allskonar garðhús-
gögnum. Sýnum borð, stóla og bekki í garða
sólstofur og svalir. Hér gefst gott tækifæri til að
sjá á einum stað allt það helsta sem í boði er.
NOVA sumarhúsgögnin eru stflhrein og
níðsterk, -henta sérlega vel við íslenskar
aðstæður. Þau staflast vel í geymslu.
NOVELLA stóll aðeins kr. 1.395.-
RAINBOW sumarhúsgögnin eru nýjung hér.
Þau eru úr sérstökum gæða harðviði sem er
viðhaldsfrír og geta húsgögnin verið úti allt árið.