Morgunblaðið - 19.06.1991, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991
--------;----(-:--;-_i_—-:-- ;--l-i-:-——■
Markaðsskilyrði fiskvinnslu og garð-
yrkju á evrópsku efnahagssvæði
eftir Björn S.
Stefánsson
Það er sá grundvallarmunur á
forsendum fiskveiða og garðyrkju á
íslandi og í Evrópu yfirleitt, að sjáv-
arafli verður ekki aukinn með aukn-
um tilkostnaði, en uppskeru í garð-
yrkju má auka með því að leggja
meira land undir og með_ auknum
áburði og öðrum ráðum. I upphafi
samninga um evrópskt efnahags-
svæði var því lýst yfír, að þeir ættu
ekki að ná til landbúnaðar. íslend-
ingar settu á oddinn, að tollar yrðu
felldir niður á sjávarafurðum. Síðar
fréttist, að í þágu Miðjarðarhafsríkja
Evrópusamfélagsins væri verið að
ræða um greiðari innflutning á
grænmeti frá þeim til Norðurlanda.
Kunnugur sagði mér, að þetta
þyrfti ekki að bitna á íslenskri garð-
yrkju, þar sem hugmyndin væri að
miða við, að norðiægu Efta-löndin
héldu hvert sig ákveðinni hlutdeild
á heimamarkaði fyrir hveija tegund
afurða, og vegna stutts vaxtartíma
væri íslensk framleiðsla undir þeirri
hlutdeild. Hvort svo verður veit varla
nokkur. Þar veldur hver á samning-
um heldur.
Nú vill svo til, að í Evrópusamfé-
laginu eru landbúnaður og sjávarút-
vegur -undir sama hatti. Því má
spyija hvort íslendingar hafi gert
landbúnaðarmál að samningamáli í
skilningi Evrópusamfélagsins með
því að taka sjávarútvegsmál fyrir í
samningum. Því skal ég ekki svara.
Hins vegar er brýnt, að íslendingar
geri sér og öðrum grein fyrir því,
að afnám tolla á sjávarafurðum hef-
ur önnur áhrif á framleiðslumagn í
hveiju landi en greiðari verzlun með
landbúnaðarafurðir.
Það yrði ekki fiskað meira við
ísland, þótt Evrópusamfélagið felldi
niður tolla á íslenzkum sjávarafurð-
um. Það leiddi ekki heldur til þess,
að minna yrði fiskað í ríkjum Evr-
ópusamfélagsins. Hins vegar yrði
það til þess, að ýmis frekari vinnsla
sjávarafurða hér stæði undir hærra
verði og útgerðin hefði hag af því
að selja meira af aflanum til vinnslu
„ Afnám tolla á sjávar-
afurðum hefur önnur
áhrif á framleiðslu-
magn í hverju landi en
greiðari verzlun með
landbúnaðarafurðir. “
hér í landi í stað þess að flytja hann
lítt unnin út. Fiskvinnslan er iðnað-
ur. Tollamál íslenzks sjávarútvegs
eru samkvæmt því sama eðlis og
tollamál iðnaðar á fyrirhuguðu evr-
ópsku efnahagssvæði og hafa áhrif
á hvar fiskvinnslan fer fram, en
ekki hveijir veiða fiskinn.
Öðru máli gegnir um garðyrkju
og annan landbúnað og raunar einn-
ig fiskeldi. í þeim greinum má auka
framleiðslu með ýmsum ráðum. Þar
er það háð afurðaverði og öðrum
starfsskilyrðum í hveiju landi,
hversu mikið er framleitt þar. Þau
viðskiptakjör garðyrkju, sem verið
er að semja um þrátt fyrir upphafleg
fyrirheit samningsaðila, hafa áhrif á
það hversu mikið er ræktað í hverju
landi.
Höfundur stundar
þjóðfélagsrannsóknir.
Björn S. Stefánsson
Seltjarnarnes:
SPARIÐ BENSÍN
AKIÐ Á
Kammermúsikhatið
ungs tónlistarfólks
ÞESSA dagana stendur yfir
kammermúsíkhátíð ungra tónlist-
armanna. Þátttakendur eru á
aldrinum 15 ára til rúmlega tvi-
tugs og eru flestir í efri stigum
tónlistarnáms, en sumir þeirra
hafa þegar lokið einleikaraprófi
við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Æft er daglega í Tónlistarskóla
Seltjarnarness undir leiðsögn
Guðnýjar Guðmundsdóttur fiðluleik-
ara og Gunnars Kvaran sellóleikara
og mun unga fólkið halda opinbera
tónleika í Seltjarnarneskirkju sunnu-
daginn 23. júní. Tónleikarnir heflast
kl. 20.30. Einnig munu þau fara á
nokkur sjúkrahús og stofnanir á
höfuðborgarsvæðinu og halda tón-
leika. Þá munu þau leika við messu
kl. 11.00 í Seltjamarneskirkju á
sunnudag. Verkefni á efnisskrá
verða m.a. strengjakvartettar eftir
Bartok, Beethoven, Mozart og Shu-
bert, flautukvartett og klarinettu-
kvintett eftir Mozart og konsert fyr-
ir fjórar fiðlur eftir Vivaldi.
Þeir sem koma fram eru: Guðrún
Arnadóttir, Gyða Stephensen, Hlín
Erlendsdóttir, íma Þöll Jónsdóttir,
Jón Ragnar Örnólfsson, Olga Björk
Ólafsdóttir, Pálína Árnadóttir, Sif
Tulinius, Sigurgeir Agnarsson, Sig-
urbjörn Berharðsson, Sigutjón Hall-
dórsson, Stefán Öm Arnarson, Stef-
án Ragnar Höskuldsson og Þórhildur
Halla Jónsdóttir.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill með húsrúm
leyfir.
Vinningstölur laugardaginn (17) (2l). (31 K3 15. iúní 1991
(18)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 ,, 1 2.203.303
2. 4^ wi 42.561
: 3. 4at5 97 6.811
4. 3af 5 3.325 463
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.786.494 kr.
m ,
- upplýsingar:sImsvari 91-681511 lukkulIna991002
GOOD0YEAR
GOODjFVEAR
60 ÁR
HEKLA
LAUGAVEG1174
» 695560 & 674363
A ISLANDI
FLUGLEIDIR
Á eyjunum átján bíður þín ógleymanlegt sumarfrí. Þú kynnist stórbrotinni náttúrufegurð, sérstæðu mannlífi og
einstakri gestristni nágrannaþjóðar sem nær hámarki á Ólafsvöku. Allir vegir eru malbikaðir, brýr og jarðgöng liggja
á milli byggðarlaga og ferjuferðir eru tíðar. Gististaðir eru í Þórshöfn og í flestum stærri bæjum.
Flugogbtll
ísjödaga.
Tvisvar í viku.
20150
Upplýsingar í síma 690300 (alla 7 daga vikunnar) á söluskrifstofum okkar, hjá umboðsmönnum um land allt og fcrðaskrifstofum.
*Stgr. á manninn m.v. 4 í bíl í a-flokki (2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára) .
secð