Morgunblaðið - 19.06.1991, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUÐAGUR 19. JÚNÍ 1991
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Nokkrir nemendur sem tóku þátt í
námskeiðinu ásamt. Ieiðbeinendum.
Theódór
æfir sig í að
skipta um
bleiu.
VESTMANNAEYJAR:
Barnfóstrunámskeið
Rauða krossins
Rauði krossinn hefur undanfarið
staðið fyrir barnfóstrunám-
skeiðum í Eyjum. Góð aðsókn hefur
verið að námskeiðunum og hafa
yfir 50 börn útskrifast af námskeið-
um á þessu vori.
Barnfóstrunámskeiðin eru sett upp
til þess að gera verðandi barnfóstr-
ur hæfari til starfsins. Hjúkrunar-
fræðingur og fóstra sjá um kennsl-
una. Fyrirbyggjandi aðgerðir vegna
slysa eru kenndar en einnig er börn-
unum kennd skyndihjálp, blásturs-
aðferðin og fleira. Þá er þeim kennt
að umgangast og annast börn.
Undanfarin vor hafa um 20 börn
sótt þessi námskeið en nú margfald-
aðist sá fjöldi. Sigurfinna Lóa
Skarphéðinsdóttir sagði að greini-
legt væri að börnin hefðu horft á
neyðarlínuna í sjónvarpinu og gert
sér grein fyrir hvað fyrsta hjálp
skipti miklu máli ef slys bæri að
höndum og líklega hafi það ýtt við
mörgum að taka þátt í námskeiðun-
um nú.
Hvert námskeið stendur yfir í
fjóra daga og eru kenndar fjórar
kennslustundir hvern dag.
Bæði strákar og stelpur hafa
tekið'þátt í námskeiðunum og af
þeim rúmlega 50 börnum sem út-
skrifuðust voru sjö strákar. I lok
hvers námskeiðs eru börnunum af-
-hent skírteini til staðfestingar því
að þau hafi lokið Barnfóstrunám-
skeiði Rauða krossins.
Grímur
BLÖNDUÓS:
Kiwanismenn
gefa farsíma
Félagar úr Kiwanisklúbbnum
Borgum á Blönduósi afhentu
fyrir skömmu fulltrúum frá björg-
unarsveitinni Blöndu og hjálpar-
sveit skáta á Blönduósi farsíma sem
nýtast eiga björgunarsveitunum í
starfi þeirra.
Það var forseti Kiwanisklúbbsins
Borga á Blönduósi, Frímann Hilm-
arsson, sem afhennti fulltrúum
þjörgunarsveitanna gjafirnar í
björgunarstöðinni á Blönduósi.
Jón Sig.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Frá afhendingu farsímanna; talið frá vinstri: Guðjón Ragnarsson,
Ari Einarsson, Gunnar Sig. Sigurðsson, Guðmundur Ingþórsson og
Frímann Hilmarsson.
IÞROTTIR
Púttað í miðbæ Keflavíkur
Keflavík.
pnaður hefur verið púttvöllur í
hjarta Keflavíkur. Völlurinn
virðist þegar vera orðinn vinsæll,
því talsverð aðsókn er þegar að
vellinum. Keflavíkurbær kostaði og
stóð að gerð vallarins sem er raun-
ar tveir 18 holu vellir, en Hólmgeir
Guðmundsson sá um framkvæmd
verksins. Hólmgeir var í mörg ár
fcinn af hekktustu rolfleikurum
landsins og hann sá einnig um
Hólmsvöll í Leiru í mörg ár. Hólm-
geir sagði að félagar í Púttklúbbi
Suðurnesja væru sérlega ánægir
með völlinn því nú væri stutt að
fara ef þá langaði til að bregða sér
í golf. Einnig væri völlurinn þegar
orðinn vinsæil meðal yngri kynslóð-
arinnar.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Hólmgeir Guðmundsson á pútt-
vellinum á Mánaflöt, í bakgrunni
má sjá félaga í Púttklúbbi Suður-
,U«4ÍA- revna nvia yÖllinp. «
Hluti hópsins við gróðursetningu. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
NESKAUPSTAÐUR:
Gáfu trjáplöntur í tilefni
20 ára fermingarafmælis
Neskaupstað.
Fermingarbarnamótin svoköll-
uðu setja orðið talsverðan svip
á bæjarlífið á hveiju sumri.
Um síðastliðna sjómannadagshelgi
voru þijú slík haldin hér og þar af
leiðandi bar óvenju mikið á brott-
fluttum Norðfirðingum við sjó-
mannadagshátíðahöldin, því að það
er nú svo að meiriparturinn af hveij-
um hóp sem fermist hér flytur í
burtu og sest að annars staðar.
Einn hópurinn sem hélt upp á
20 ára fermingarafmæli tók sig til
og gaf Fjórðungssjúkrahúsinu 40
tijáplöntur sem þau svo gróðursettu
sjálf á snyrtilegri lóð sjúkrahússins.
Verður að telja þetta framtak þeirra
af því góða.
- Agúst
Karlakór Selfoss.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
STYKKISHÓLMUR:
Karlakór Selfoss í heimsókn
Stykkishólmur.
arlakór Selfoss var á ferðinni
í Stykkishólmi fyrir
skemmstu og hélt hér söngskemmt-
un í kirkjunni.
Kórinn telur um 30 manns og
söngstjóri er Olafur Siguijónsson
frá Forsæti í Villingaholtshreppi en
formaður Helgi Helgason og í for-
föllum undirleikarans annaðist Jó-
hanna Guðmundsdóttir undirleik.
Á söngskránni voru 19 lög og
langflest innlend og auðvitað var
fyrsta lagið Árnesþing eftir Sigurð
Ágústsson frá Birtingaholti við hinn
frábæra texta Einars Eiríkssonar
fyrrum alþingismanns.
Kórinn söng aukalög og fékk
alveg frábærar móttökur. Hólmarar
þakka komuna og frábæran söng.
- Árni.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Á myndinni eru Baldur Daníelsson formaður knattspyrnudeildar
Hvatar, Eysteinn Pétur Lárusson, 4. flokki, Svandís Ása Sigurjóns-
dóttir, kvennaflokki, og Rósa Margrét Sigursteinsdóttir.
BLÖNDUÓS:
Knattspyrnufólk í Hvöt
fær nýja
Blönduósi. **
Fjórði flokkur knattspyrnudeild-
ar Hvatar og kvennaflokkur
sama félags í knattspyrnu fengu á
dögunum nýjan íþróttabúning af-
hentan og var gefandinn íslands-
banki á Blönduósi.
Það var Rósa Margrét Sigursteins-
dóttir *,bankastjóri íslandsbanka á
búninga
Blönduósi sem afhenti búningana
og viðstaddir voru fulltrúar viðkom-
andi flokka knattspyrnudeildar
Hvatar ásamt formanni knatt-
spyrnudeildarinnar, Baldri Daníels-
syni.
Jón Sig.