Morgunblaðið - 19.06.1991, Side 53
MORGUNBLÁÐlÐIi)VIKi:DAt;L'[{ 19. 'JÚNÍ 1991
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Heilaþvottur?
Ólafur Hannesson hringdi:
„Undanfarið hefur Ríkissjón-
varpið verið að segja frá kosning-
um í Rússlandi og kallar þá and-
stæðinga umbótamannsins Boris
Jeltsín íhaldsmenn og Prövdu kall-
ar Rískissjónvarpið málgagn
íhaldsmanna. Nú hefur orðið
íhaldsmaður verið notað yfir hægri
menn í Bretlandi og sjálfstæðis-
menn á íslandi og hefur okkur lík-
að það vel en nú fara að renna á
okkur tvær grímur. Boris Jeltsín
vill einkavæðingu, lýðræði og
fijálslyndi og hann vill afnema
miðstýringu. Andstæðingar hans,
sem eru fulltrúargömlu kommaklí-
kunnar sem vill viðhalda miðstýr-
ingu og ríkiskerfi eru kallaðir
harðlínumenn, vinstri öfgamenn
eða kommúnistar. Þetta fólk heitir
á íslensku fréttastofu Ríkisút-
varpsins, íhaldsmenn. Og sjálfur
fréttastjórinn, Bogi Ágústsson, les
formála vinstrisinnaðra frétta-
manna sinna með ánægju. Hvað
er að ske? Nú er eru flestir fyrrver-
andi ritstjórar Þjóðviljans starfandi
á ríkisfjölmiðlunum. Hvenær verð-
ur Svavar Gestsson ráðinn?“
Vísnabók
Fyrir nokkru glataðist vísnabók
sem er merkt eiganda. Vinsamleg-
ast hafið samband við Maríu í síma
22871 ef bókin hefur fundist.
Kettlingar
Þrír fallegir kettlingar fást gef-
ins. Upplýsingar í síma 53918 eft-
ir kl. 19.
Úlpa
Karrígul telpuúlpa, nr. 134, með
mynstruðu fóðri tapaðist á leið frá
Goðafossi til Reykjavíkur með við-
komu í Staðarskála og Borganesi
og víðar. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 37920.
Fundarlaun.
Setjið bjöllu á köttinn!
Afi hringdi:
„Mér finnst að kattareigendur
ættu að sjá sóma sinn í því að
hafa bjöllu á köttum sínum meðan
varptími smáfuglanna stendur
yfir. Það er synd hvemig kettirnir
veiða smáfuglana á þessum árs-
tíma en þetta væri hægt að koma
í veg fyrir með því að setja á þá
bjöllu."
Hæpin kæra
G. hringdi:
„Ég er alveg gáttaður á þessari
kæru Sláturfélags Suðurlands
gegn Goða. Svo virðist sem þeir
kunni ekki íslensku. Það er sama
efnið í pylsunum og á þeim er
aðeins bragðlaukamunur. Ég held
að þeir sem að kærunni standa
hjá Sláturfélaginu ættu að fara á
íslenskunámskeið - þeir standa
ekki sterkt að vígi með þessa
kæru.“
Lyklar
Assa húslykiil og Toyota bíllyk-
ill fundust við Flúðasel fyrir
nokkru og var skilað á Lögreglu-
stöðina Drafnarfelli 12.
C-
53
p PHILIPS Whirlpool
• 198 lítra kælirými
• 58 lítra frystirými (★***)
• Sjálfvirk afþýöing
• Stór grænmetisskúffa
• 4 stillanlegar hillur
• Hægt er að velja á milli
hægri eöa vinstri handar
opnun á hurð
• HxBxD: 159x55x60 sm
.750
51
KR.STGR.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8SÍMI691515 ■ KRINGIUNNI SlMI 6915 20
> i seuntunaunb
Börn eiga helst ekki að hjóla á akbrautum. Þau mega hins vegar hjóla
á gangstéttum, ef þau taka tillit til þeirra, sem eru gangandi. Mjög
æskilegt er að ung börn á reiðhjólum séu með hjálm á höfðinu.
E(jálmurinn hlífir höfðinu verði óhapp.
Tréklossarnir með beygjanlegu sólunum
nú aftur fáanlegir.
Vinsælu dönsku
h errainniskórnir
komnir aftur
GEíslB
H
Aih.: Greftt er fyrtr viö-
skíptaviBi í bifreiftageymslD
Vesturgötu 7
Kæra frú
Hvernig væri að fá elsku eiginmanninn með sér til
okkar að skoða hjónarúm?
Við eigum alveg einstaklega falleg rúm nuna - og
stillum upp 40 mismunandi gerðum.
HÉR ERU EJÖGUR FRÁ RAUCH
FABIOLA
rúm - náttborð
spegill - dýnur
21.880,-
CARMEN
rúm - náttborö
spegill - dýnur
28.220,-1
ANDREA
rúm - náttborð
spegill - dýnur
1136.400,-
111 ''>í-'' T*
S/ j rúm spej LBRINA - náttborð ;ill - dýnur 9.880,-
10
GÓÐDÝM = GÓÐUR SVEFTÍ